Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 01.11.1996, Blaðsíða 3
 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER1996 C 3 IÞROTTIR KNATTSPYRNA Markaregn á Anfield Roadí Uverpool Reuter LIVERPOOL lenti í kröppum dansi, þegar leikmenn liðsins glímdu við svissneska liðið Sion á Anfield Road í Evrópu- keppni bikarhafa í gærkvöldi. Svisslendingarnir komu svo sannarlega á óvart, með þvf að skora tvö fyrstu mörk leiksins, voru 0:2 yfir eftir 22 mín. Þá settu leikmenn Liv- erpool á fulla ferð og sökktu Sion, 6:3. Þegar staðan var 2:3 fyrir gest- ina gerðu þeir John Barnes og Fowler þrjú mörk á sex mín. - fyrst jafnaði Barnes og síðan komu tvö mörk frá Fowler á 70. og 71. mín., 5:3 og Tékkinn Pat- rik Berger gulltryggði sigurinn á 89. mín. Stórsigur í París Evrópumeistarar bikarhafa, leikmenn Parísarliðsins St. Germain náðu því sem þeir ætluðu sér, að vinna stórsigur á tyrkneska agna sigri Liverpool á Sion á Anfield Road. Markahrókurinn Robbie Fowler kemur hlaupandi til að _____taka þátt í gleðinnl,_________________________________ Lið Skallagríms í molum, algjört baráttuleysi í Borgarnesi „Kannski eni þeir að reyna að losa sig við mig U Theodór Þórð- arson skrifar Skagamenn unnu auðveldan sig- ur á vægast sagt slöku liði Borgnesinga 68:86 í Borgarnesi í gærkvöldi. Elstu menn muna ekki eftir jafn lélegum leik hjá Skallagrími. „Það vantar allan liðsanda í liðið“, sagði Tarry Robert Upshaw, þjálfari Skallagríms, „Ég átta mig ekki á því hvað er að, einu leikmennirnir sem náðu sér á strik voru Reymond Curtis og Tómas Holton. Eg veit ekki af hveiju menn gáfu sig ekki í þennan leik, kannski eru þeir að reyna að losa sig við mig, ég veit það ekki.“ „Við unnum þennan leik á góðri vörn“, sagði Alexander Ermol- inskij, þjálfari og leikmaður Skagamanna. „Ronald Bayless var góður og allt liðið lék mjög vel saman. Það er eitthvað að hjá Skallagrímsmönnum en ég geri mér ekki grein fyrir því hvað það er.“ Það er ekki hægt að hafa mörg orð um framistöðu liðsmanna Skal- lagríms í þessum leik. Leikur liðsins var vægast sagt ömurlegur fyrir utan fyrstu mínúturnar í hvorum leikhluta. Þeir einu sem virtust vera með lífsmarki voru Reymond Curtis og Tómas Holton. Það var sárt fyr- ir dygga stuðningsmenn liðsins sem fylltu áhorfendapallana, ásamt stuðningsmönnum Skagaliðsins, að horfa upp á algjört baráttuleysi og áhugaleysi liðsmanna Skallagríms. Liðsheild Skagamanna var mjög góð og náði liðið vel saman. Þeir nýttu sér ráðaleysi heimamanna og léku sinn leik í friði án mikillar fyrirhafnar. Bestu menn ÍA voru Ronald Bayless og Alexander Er- molinskij en einnig voru Dagur Þórisson og Brynjar Karl Sigurðs- son ágætir. Guðbrandur Guöbrandsson skrifar frá Sauöárkróki Enn tapar Tindastóll á elleftu stundu Enn máttu Tindastólsmenn bíta í það súra epli að tapa með eins stigs mun á heimavelli þegar þéir fengu ÍR-inga í heimsókn í gær- kvöldi. Eftir að liðin höfðu skipst um að halda forystunni sigu Reykvíkingar fram úr á síð- ustu mínútunni og sigruðu 85:86. Fyrri hálfleikur byijaði fjörlega þar sem mikill hraði var í leiknum og mikið skorað en lítið um varnir. Gestirnir höfðu þó alltaf forystu og leiddu lengst af með nokkrum stig- um en þegar sex mínútur voru eft- ir af fyrri hálfleik komust Sauð- krækingar yfir og héldu áhorfendur í Síkinu að heimamenn ætluðu að ná afgerandi forystu, sem dygði til sigurs. En þá kom Tito Baker ÍR- ingur til skjalanna með þijár glæsi- legar þriggja stiga körfur, sem kom ÍR aftur í forystu. Ekki voru lætin minni í upphafí síðari hálfleiks og náðu Tindastóls- menn forystu strax í byijun, sem þeir héldu þar til fjórar mínútur voru eftir af leiknum. Þá náðu Reykvíkingar að jafna og komast síðan yfir, 78:80. Mikil spenna var í lokin þar sem liðin skiptust á að hafa forystu, en það voru gestirnir sem náðu að eiga síðasta orðið. Jeffrey Johnson var yfirburða- maður í liði Sauðkrækinga og hefðu samheijar hans mátt nýta krafta hans betur í sóknarleiknum því hann fékk ekki úr nógu miklu að moða. Lárus Dagur Pálsson var góður fyrir hlé. Hjá IR var Tito í aðalhlutverki en Atli Þorbjörnsson, fyrrum leik- maður Tindastóls, lék prýðilega. liðinu Galatasaray í París, 4:0, eftir að tafa tapað 2:4 í ístanbúl. 34.000 áhorfendur voru vel með á nótunum á Parc des Princes-leik- vellinum og fögnuðu þegar S- Ameríkumennirnir Leonardo og Julio Cesar Dely Valdes skoruðu í fyrri hálfleik. Leonardo, sem lék ekki með í ístanbúl, lagði síðan Upp þriðja markið, sem Loko skor- aði. Það var svo Brasilíumaðurinn Rai sem gulltryggði sigurinn. Anselmo Robbiati var hetja Fiorentína, skoraði jöfnunarmark- ið, 1:1, gegn Sparta í Prag og kom liði sínu í 8-Iiða úrslit. 50 þús. áhorfendur í Belgrad sáu Giovanni Silva skora jöfnunar- mark, Barcelona gegn Red Star, 1:1, aðeins sextíu sek. eftir að heimamenn skoruðu sitt mark. Moratti vill meira ÞAÐ virðast ekki mikil tak- mörk fyrir því hvað ítölsk félög geta ausið peningum í nýja leikmenn. Inter keypti til dæmis leikmenn fyrir um einn og hálfan milljarð króna í sumar og nú vill Massimo Moratti, forseti félagsins, meira. „Við erum staðráðnir i að styrkja Inter enn frekar og það er ljóst að það munu koma til okkar sterkir leik- menn og aðrir fara," sagði hann í gær. Blöð á Italíu hafa látið að því liggja að hann sé að tala um Roberto Mancini sóknarmann þjá Sampdoria og einnig hefur verið rætt um Gianfranco Zola hjá Parma. Haft er eftir Moratti að hann sjái eftir því að hafa ekki keypt Ronaldo, snilling- inn unga frá Brasilíu, þegar tækifæri gafst. „Barcelona fór fram á allt of mikla pen- inga og þar sem við höfum ekki Fiat eða önnur stór- fyrirtæki á bak við okkur sá ég ekki að ég gæti staðið við slík kaup. En eftir að hafa séð mörkin sem piltur er að gera er ég farinn að leita betur í buddunni," sagði Moratti. GERÐU LAUGARDAGIRim AÐ sölukössum lokad 14:00 laugardag 1»1 ivl Velkomin að netfangi WWW. TOTO. IS Nýr hópleikur 2. nóv. - 4. jan 10 vikur, árangur 8 bestu gilda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.