Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 6

Morgunblaðið - 15.11.1996, Síða 6
& B FÖSTUDAGUR 15. JfÓYEMBER 1996_________________________________________________MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Með augum landans „Virðing má aldrei þverra..." £ María Elínborg Ingvadóttir býr í Moskvu þar sem hún gegnir starfi viðskiptafulltrúa Útflutningsráðs íslands. SVALUR nóvember- morgunn, þrír frídag- ar framundan. Bylt- ingarafmælið bar upp á fimmtudag, því var gefin út tilskipun um frí á fostudeginum, en T1 ^ í staðinn skal unnið á I M J sunnudeginum. Lík- JL lega væri ekki svo vit- Olaust að færa afmæli Októberbyltingarinn- ar líka, fram til 25. október til dæmis, þá er von um betra veður og þar með líklegra að fleira fólk mæti í kröfugönguna, sem að þessu sinni var fá- menn, of margir hafa tekið hlýtt rúmið fram yfír súld og grámósku afmælisdagsins. Ég komst ekki hjá að taka þátt í undirbúningi göngunnar, há- talarakerfíð var í prófun frá því snemma um morguninn á Októbertorgi, torginu okkar Lenins, þar með rauk öll morg- unværð og leti út um gluggana, en inn streymdu baráttusöngvar og reiðilestur foringja fólksins. Þrátt fyrir að allir gluggar væru vandlega lokaðir, var lítill mun- ur á að sitja við eldhúsborðið mitt, eða standa við hlið Lenins og styðja hann þennan nötur- lega nóvembermorgun, þegar hann gerði sér grein fyrir, að flest börn byltingarinnar svæfu enn fastasvefni, í stað þess að safnast saman við fótstall hans og raða sér upp í gönguna, sem ætlaði svo að marsera í átt til Kremlar og þaðan að torginu við Bolshoi-leikhúsið, þar sem Karl Marx beið, rólegur og yfír- vegaður að vanda. Lenin ætti kannski að skamma þessa sem mættir eru fyrir alla þá sem ekki láta sjá sig, eins og ungi predikarinn, sem skammaði við- stadda kirkjugesti fyrir að hafa ef til vill látið sér detta í hug, að kúra aðeins lengur í stað þess að mæta til guðsþjónustu og sagði, “Jesús Kristur reis upp frá dauðum fyrir ykkur, en þið nennið ekki að rísa úr rekkju fyrir hann.“ Ég dreif mig út á torg, ætl- aði að athuga hvort það gæti verið að einhveijum hátölurum væri beinlínis beint að gluggun- um mínum. Af svip nágranna minna, sem ég hitti á torginu, mátti ætia að þeir væru þar í svipuðum hugleiðingum. Varla mun lyftast brúnin á Lenin þeg- ar hann heyrir að frá sjúkrabeði Jeltsins hafí frést, að þessi af- mælisdagur byltingarinnar verði í framtíðinni, dagur sátta og samlyndis. Minnlngar Hvers er helst að minnast í arfleifð kynslóðanna, hvað er það sem kallar á virðingu við hið liðna. Ekki eru allir dagar gleðidagar í sögu þjóðar, sumir dagar minna á slæma tíma, svarta daga, sem ekki mega gleymast, ekki er hægt að sópa ryki gleymskunnar yfir óþægi- lega atburði, en lyfta öðrum upp úr raunveruleika og staðreynd- um. Ætli misvitrir leiðtogar geri sér alltaf grein fyrir því, að þeir eru að skapa sögu þjóð- ar sinnar, þeir eru að skapa umhverfí og aðstæður, þar sem fólk á að geta lifað, glaðst, grát- ið og dáið með reisn, þeir eru að draga upp svarta daga og gleðidaga sögunnar, afmælis- daga framtíðarinnar. Hver þjóð fær þann þjóðhöfð- ingja sem hún á skilið, stendur einhversstaðar og þar sem fólk kýs sér leiðtoga, er það líklega rétt. Það er reyndar kald- hæðnislegt að oftast eru stærstu mistök í sögu þjóða, stofnana og fyrirtækja, gerð af mönnum sem réðu ekki við stöðu sína, eða gerðu sér ekki grein fyrir áhrifamætti stefnu sinnar og ákvarðana. Góður stjómandi þarf ekki að vera vinsæll, góður stjórnandi er sá sem þorir að taka erfíðar, en nauðsynlegar ákvarðanir, sagan segir okkur svo, hversu skynsamur og spak- ur stjómandinn var. Af spjöldum sögunnar má einnig sjá, hversu oft menn sótt- ust eftir ábyrgð sem þeir réðu ekki við, en bára ekki nógu mikla virðingu fyrir sjálfum sér og embætti sínu til að standa upp, finna sér þann sess sem hæfði getu og áhugasviði, færa þannig örlítið meiri hamingju inn í sitt eigið líf og afstýra svörtum dögum í lífi annarra. Meðalmennska og lágkúra era ekki glæsilegar fylgikonur menningarsamfélags. Ef ein- staklingurinn ber virðingu fyrir sjálfum sér, ber hann einnig virðingu fyrir trú sinni, um- hverfí, sögu, menningu og list- um, samborgurum sínum, lífí þeirra, skoðunum og störfum. Er ekki eðlilegt að hver þjóð beri virðingu fyrir þjóðhöfðingja sínum og æðri embættum, það er ekki auðvelt nema að í þau embætti veljist fólk, sem vex með ábyrgð sinni, varðveitir virðingu embættis síns. Stjómmálamenn, þjóðhöfð- ingjar, listamenn, þeir sem á einn eða annan hátt skera sig úr, fá sinn skammt í fjölmiðlum, sem keppast við að ná athygli, oftast með málefnalegri gagn- rýni og umfjöllun, en einnig frá- sögnum úr einkalífi fólks. Má ekki segja um fjölmiðla eins og stjómmálamenn, að við fáum það sem við eigum skilið. Metn- aðarfullur fjölmiðill hlýtur þó að gæta virðingar sinnar. Nýjasta uppákoman í menn- ingarlífi borgarinnar er „sirkus ballett", þar sem fjallað er um síðasta kvöld og aftöku keisara- fjölskyldunnar. Þetta fyrirbæri hefur vakið mikla athygli fjöl- miðla og hafa nokkrar sjón- varpsstöðvar sýnt valda kafla úr verkinu. Hægt er að draga dár að ýmsu, þekktar persónur verða almenningseign, fátt eitt verður heilagt, þegar um þær er fjall- að, en hvemig farið er með eig- ur almennings, hlýtur að draga dám af sjálfsvirðingu hans. ■ N emendur úr Fjölbraut í Breiðholti tóku þátt í ráðstefnu á vegum ESB RÁÐHERRARÁÐIÐ var leikið og ný lagafrumvörp lögð fram. í LOK október síðastliðinn héldu tólf nemendur og tveir kennarar frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti af stað í nokkurra daga ferð til Alden Biesen í Belgíu til að taka þátt í samstarfsverkefni á vegum Evrópusambandins (ESB) og Evr- ópska efnahagssvæðisins (EES), sem ber heitið „European Classes“. Markmiðið var meðal annars að kynnast starfsemi og uppbyggingu ESB og skilja mismunandi skoðan- ir annarra þjóða. Blaðamaður Daglegs lífs hitti nemenduma og kennara þeirra, Guðjón Ó. Magnússon land- og jarðfræðikennara, á dögunum, ræddi við þau um ferðina og hler- aði ýmsar skemmtisögur. Tllviljun réð ferðlnni Fjölbrautaskólinn í Breiðholti er fyrsti skólinn utan ESB landa sem hefur verið boðið að taka þátt í fyrmefndu samstarfsverkefni, en fjórir skólar frá jafnmörgum lönd- um taka þátt hveiju sinni. „Það má eiginlega segja að það hafí verið tilviljun að okkur hafí verið boðin þátttaka," segir Guðjón og heldur áfram: „Ég tók þátt í kenn- araskiptaáætluninni SOKRATES síðastliðið vor og kenndi í þijár vikur í Goch í Þýskalandi, en í stað- inn kom þýskur kennari hingað til lands og kenndi í FB. Nokkra síðar hófst undirbúningur ráðstefnunnar í Alden Biesen í Belgíu og hafði fjóram skólum verið boðin þátt- taka. Af óviðráðanlegum orsökum hætti einn skólinn við og þurfti því að fínna annan skóla í staðinn. Einn samstarfskennari minn í Goch var í undirbúningshópnum og stakk upp á því að bjóða FB. Þeir hringdu í okkur og við þáðum boðið,“ segir Guðjón. Hann segir að landafræðiáfangi hafí verið búinn til í kringum þessa ferð og nemendur áfangans ásamt Guðjóni og Valgerði Halldórsdóttur félags- og stjórnmálafræðikennara lögðu síðan af stað í ferðina þann 20. október síðastliðinn. Þau gistu á meðan á ráðstefnunni stóð í stór- um og gömlum riddaraliðskastala frá tólftu öld og væsti því ekki um hópinn. „Við gerðum heilmikið á þessum tíma. Til dæmis fóram við til Maastricht og skoðuðum salinn, þar sem Maastricht-samningurinn var undirritaður á sínum tíma. Þá fóram við til Brassel, þar sem Ráð- herraráðið er til húsa og fóram á söfn og sýningar," segir Guðjón. Tókst að breyta stof nlögum Evrópusambandslns Nemendurnir segja að hápunkt- ur fararinnar hafí verið síðasta daginn þegar þau tóku þátt í hóp- vinnu sem fólst í því að leika Ráð- herraráðið og leggja fram ný fram- vörp til laga og reyna að fá þau samþykkt. Þau þurftu að fara eftir fundarsköpum ráðsins í einu og öllu og ávarpa til dæmis alltaf fund- arstjóra ráðsins í upphafi máls. „Við lögðum fram lagafrumvarp sem fólst í því að breyta grandvall- arlögum ESB á þann veg að nátt- úraauðlindir sjávar, eins og til dæmis fiskurinn og aðrar sjávaraf- urðir, verði undir stjórn þess lands sem landhelgina á,“ segja nemend- urnir. „í upphafí vora öll hin löndin Ljóð og gjafakort BLÓMAKARFAN heitir ný ljóða- bók með 39 tækifærisljóðum á jafnmörgum blaðsíðum eftir Unni Sólrúnu Bragadóttur. Bókin er frá- bragðin flestum ljóðabókum að því leyti að hægt er að taka hveija einstaka síðu úr bókinni og nota Unnur sóirún sem gjafakort Bragadóttír margvísleg tækifæri. Listamaður- inn Kristín Am- grímsdóttir myndskreytti bókina, sem hef- ur að geyma ljóð er fela í sér ýms- ar ámaðaróskir; afmæliskveðjur, vinakveðjur, ba- Kristín takveðjur, ástar- Amgrímsdóttír kveðjur Og jóla- kveðjur. Útgefandi er Bókaútgáfan Blómakarfan og Svansprent ehf. sá um prentverk. Unnur Sólrún Bragadóttir hefur áður gefið út Fyrir utan gluggann og Maríutás- ljóðabækurnar Er á þetta lítandi?, ur í bandaskóm. ■ ituyatl* toér l iifjítadm'ríslwMnj '.vvríS ótaÍtatu^M’ gutúr aó Jx'»s>v siimi, þti befur þi'ifið h*k«ð briuð liptH i nétt, svo krftðiBywbttigg j»ú fesfur )»óm. Mtfð bttMÍ }mj gettumuti býiJur mm itui, ^i’idamií itwj$ð á Jiitttæiísdagittn þinti, Uigtrtit Molt ttísfð típ J»ú icpur fið Itaki, töfntt liatitingjti yfir jtct twíð vakí, Unmr ÉHniu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.