Morgunblaðið - 19.11.1996, Blaðsíða 5
4 D ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996
ÍÞRÓTTIR
Tindastóll sigraði Njarð-
víkinga í framlengdum leik
MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1996 D 5
ÍÞRÓTTIR
in, Eiríkur skoraði grimmt og ekki
bætti úr skák fyrir ÍA að Bayless
fékk 4. villuna og gat lítið beitt sér.
Heimamenn voru ekki á þeim
buxunum að gefast upp og með
mikilli baráttu náðu þeir tólf stiga
forystu um miðjan hálfleikinn. Á
þessum kafla fór Dagur Þórisson
hamförum fyrir ÍA, tróð tvívegis
með tilþrifum, hirti hvert frákastið
af öðru og skoraði mikið. IR-ingar
áttu ekkert svar og heimamenn
unnu góðan sigur.
Bayless var frábær í fyrri hálf-
leik en þurfti að hafa hægt um
sig eftir að hann fékk fjórðu vill-
una. Dagur.tók við af honum í
síðari hálfleik og lék mjög vel
ásamt þjálfaranum Ermolinskij.
Allur leikur IR-inga byggðist á
Baker, Eggerti og Eiríki og léku
þeir allir prýðilega en félagar
þeirra voru sem áhorfendur.
Létt hjá Keflvíkingum
Keflvíkingar áttu alls kostar við
slaka Þórsara í Keflavík á
sunnudaginn og sigruðu örugglega,
110:76. I hálfleik
var staðan 57:33 og
Biöndai kom Htil mótspyma
skrifar frá gestanna nokkuð á
Keflavik óvart í ljósi þess að
þeir höfðu nokkmm
dögum áður unnið sætan sigur á
toppliði Hauka.
Þórsarar virtust hafa gleymt
keppnisskapinu heima að þessu
sinni því alla baráttu vantaði í leik
þeirra og Keflvíkingar hreinlega
rúlluðu gestunum upp. „Það var
sama hveijir vom inni á - allir léku
vel í dag. Fleira er ekki um leikinn
segja, nema hvað það kom mér á
óvart hversu baráttulausir Þórsarar
vom,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari Keflvíkinga, eftir leik-
inn.
Sigurður skipti ört inn á í leiknum
og segja má að allir hafi leikið vel
hjá heimamönnum en þó enginn
eins vel og Damon Johnson sem er
trúlega einn besti erlendi leikmað-
urinn sem leikið hefur með Keflavík
lengi. Bandaríkjamaðurinn Fred
Williams var sá eini í liði Þórs sem
hafði eitthvað að segja í viðureign-
inni við Keflvíkinga að þessu sinni.
Skotæfing í Kópavogi
Leikur Breiðabliks og Grinda-
víkur var eins og illa skipulögð
skotæfing. Sóknir liðanna stóðu
sjaldan lengur en
SkuHUnnar «u sekúndur og
Sveinsson þær voru fjölmarg-
skrifar ar sem varla náðu
fimm sekúndum.
Lyktir viðureignarinnar urðu
103:91 sigur Grindavíkinga.
Blikar náðu að halda í við
Grindvíkinga, sem léku illa, mest-
allan tímann en í upphafi síðari
hálfleiks náðu gestirnir 25 stiga
forystu en náðu ekki að halda
henni hvað þá að auka en sigurinn
var aldrei í hættu.
Andre Bovain var allt í öllu en
það verður að segjast eins og er
að leikmönnum Breiðabliks getur
varla farið mikið fram við að horfa
á hann rekja boltann um völlinn
og skjóta. Það eru nokkrir þokka-
legir leikmenn í Breiðabliki. Einar
Hannesson lék vel og Erlingur
átti ágæta spretti. Eggert Bald-
vinsson er tvítugur strákur sem
sýndi góð tilþrif þann stutta tíma
sem hann fékk að reyna sig.
Hjá Grindvíkingum var Páll í
stuði framan af en lék lítið í síð-
ari hálfleiknum. Myers var sterk-
ur og Helgi Jónas hitti vel á kafla.
og Haukar fóru á toppinn
„ÞETTA var afar kærkominn
sigur eftir þrjá tapleiki í röð
þar sem við vorum að tapa
með minnsta mun. Leikað-
ferð okkar gegn Njarðvíking-
um gekk upp og ég hafði
alltaf trú á sigri þó leikurinn
færi íframlengingu," sagði
Augoston Negy, þjálfari
Tindastóls, eftir að lið hans
hafði unnið óvæntan sigur á
Njarðvíkingum, 86:82, í
Ljónagryfjunni í Njarðvík á
sunnudagskvöldið í fram-
lengdum leik. í hálfleik var
staðan 39:31 fyrir Tindastól
og eftir venjulegan leiktíma
var staðan 76:76.
Njarðvíkingar voru afar slakir
í þessum leik svo ekki sé
meira sagt og kann að vera að
þeir hafi talið norðanmenn auð-
velda bráð. En ann-
Björn að kom á daginn
Blöndai því það voru gest-
skrifar frá jrnjr sem höfðu
Njarövik keppnisskapið og
trúna á sjálfa sig. Njarðvíkingar
náðu aldrei að stilla saman strengi
sína og leika eins og liðsheild og
ekki stóð á refsingunni. Lið
Tindastóls hafði forystuna nánast
frá upphafi en undir lokin mátti
litlu muna og sigurinn gat þess
vegna lent hvorum megin sem
var.
„Þetta virðist vera orðið fastur
liður hjá okkur, að tapa fyrir
þeim, og trúlega komum við of
sigurvissir til leiks,“ sagði Hrann-
ar Hólm, þjálfari Njarðvíkinga.
„Byijunin hjá þeim var mjög góð
og setti okkur raunar úr jafnvægi
og við hreinlega komumst aldrei
í gang,“ sagði Hrannar ennfrem-
ur.
Njarðvíkingar voru með 5
sóknarfráköst í öllum leiknum og
þar af var eitt í fyrri hálfleik, 2
í síðari hálfeik og 2 í framlenging-
unni sem segir nokkra sögu.
Bestu menn hjá Njarðvík voru
þeir Torrey John og Friðrik Ragn-
arsson sem voru þeir einu sem
léku af eðlilegri getu. Bestu menn
Tindastóls voru Jeffrey Johnson,
Arnar Kárason og Lárus Dagur
Pálsson sem saman settu 75 stig.
Létt hjá Haukum
Haukar áttu ekki í minnstu
vandræðum með slakt lið
Skallagríms í íþróttahúsinu við
Strandgötu á
sunnudagskvöld og
sigruðu, 81:69.
Haukar komu
ákveðnir til leiks
og völtruðu yfir gestina þannig
að um miðjan fyrri hálfleik var
staðan 30:4. Segja má að eftir
þessa slæmu byijun hafi Skalla-
grímsmenn aldrei séð til sólar. Á
upphafskaflanum var sóknarleik-
ur þeirra ákaflega hikandi og til-
viljanakenndur og vörnin var svo
hriplek að ætla mátti að þeir
væru að hugsa um eitthvað allt
annað. Þjálfari þeirra kaus þó að
skipta ekki inn á fyrr en 12 mínút-
ur voru liðnar af leiknum og
hvorki gekk né rak. Við það skán-
aði leikur liðsins, mistökum fækk-
aði og þeir fóru að skora meira.
Haukar héldu sínu striki á meðan
á þessu basli Skallagríms stóð og
í hálfleik var staðan 44:26.
í síðari hálfleik klóruðu Skalla-
grímsmenn í bakkann þó aldrei
væri sigur Hauka í hættu. Hjá
Haukunum áttu Sigfús Gizurar-
Halldór
Bachmann
skritar
Morgunblaðið/Bjami
HAUKAR mættu ákveðnir til leiks gegn Skallagrími eins og
sjá má á svlp Sigurðar Jónssonar sem hér kemst framhjá
Sigmarl Eglissyni.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
son og Bergur Eðvarðsson góðan
leik og Shawn Smith var traust-
ur. Hjá Skallagrími var Curtis
Reymond bestur en Tómas Holton
hefur oft leikið betur. Bragi H.
Magnússon kom til í síðari hálf-
leik eftir slaka byijun.
KR í hörðum slag
KFf lét KR hafa fyrir hlutunum
er liðin mættust á Seltjarnar-
nesinu á sunnudaginn. ísfirðingar
komust reyndar
ekki nema einu
sinni yfir í leiknum,
67:68, en það vant-
aði sáralítið upp á
að þeir næðu að hafa betur, en
KR-ingar voru sterkari í lokin og
sigruðu með tíu stiga mun, 93:83.
KR hafði undirtökin í framan
af fyrri hálfleik en gestirnir voru
þó aldrei langt undan og þegar
staðan var 33:30 tóku heimamenn
leikhlé og í kjölfarið var spilað
meira upp á skytturnar með þeim
árangri að KR gerði 14 stig gegn
fjórum stigum KFÍ. Annar góður
kafli KR kom um miðjan síðari
hálfleik er liðið gerði 10 stig gegn
engu á 90 sekúndum, breytti stöð-
unni úr 67:68 í 77:68.
Liðin léku ágætlega en þó komu
kaflar þar sem menn gerðu of
mörg mistök. Ingvar hitti vel fyrir
KR og Jónatan Bow var gríðarlega
sterkur og mikilvægur liðinu. Þá
gerði Edwards ágæta hluti og fell-
ur stöðungt betur að liðinu. Oskar
lék vel í vörninni en það var skarð
fyrir skildi hjá KR að Hermann
meiddist um miðjan fyrri hálfleik-
Johannes
Haröarson
skritar
Hjá ísfirðingum var Bryant
sterkur og Vallejo er einnig ágæt-
ur leikmaður, sérstaklega í hlut-
verki leikstjórnanda. Friðrik var
mjög sterkur, tók meðal annars
20 fráköst og greinilegt að þar er
á ferðinni framtíðarmiðheiji lands-
liðsins. Hann er samt ennþá dálít-
ið óheflaður en það ætti að vera
hægur vandi að laga slíkt. Strákur
hefur mikla hæfileika.
Fimmti sigur ÍA í röð
Skagamenn unnu sinn fimmta
sigur í röð, sem er met hjá
félaginu, er þeir fengu ÍR-inga í
heimsókn á sunnu-
daginn. Leikurinn
var jafn og spenn-
andi lengst af en
um miðjan síðari
hálfleik áttu heimamenn góðan
leikkafla og tryggðu sér sigur.
Lokatölur 85:71, en í hálfleik var
staðan 40:31.
Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn
en IA þó alltaf skrefinu á undan
með Ronald Bayless í broddi fylk-
ingar. Hann átti sannkallaðan
stórleik fyrir hlé ásamt Ermol-
inskij en þeir félagar gerðu 36 af
40 stigum ÍA. Auk þess lék Bay-
less frábæra vörn gegn Tito Baker
sem komst lítt áleiðis. Félagar
Bakers, Eggert Garðarsson og
Eiríkur Önundarson, héldu þó uppi
merki ÍR og héldu í við Skaga-
menn þar til tvær mínútur voru
til hlés. Þá áttu heimamenn góða
rispu og gerðu síðustu tíu stig
hálfleiksins.
í upphafi síðari hálfleiks var
sem ÍR-ingar ætluðu að taka völd-
Haukar sigruðu Víking 18:14 í
1. deild kvenna í handknatt-
leik í Víkinni á sunnudagskvöldið
og komust þar með
Stefán í toppsæti deildar-
Stefánsson 'nnar. Með sigri
skrifar hefðu Víkingsstúlk-
ar hins vegar orðið
efstar en þær héldu ekki haus í
lokin. Lið ÍBA frá Akureyri kom
suður yfír heiðar og lék tvívegis,
tapaði fyrir KR á laugardag en
gerði jafntefli við Val daginn eftir.
Þá gerðu FH og Fram jafntefli.
„Óánægður þrátt fyrir sigur"
„Þetta var ekki slæmt hjá okkur
fyrir utan kortér í fyrri hálfleik,"
sagði Theódór Guðfinnsson þjálfari
Víkinga eftir 14:18 tap fyrir Hauk-
um. „Við byijuðum mjög vel en síð-
an stressaðist liðið upp og það má
segja að við höfum tapað þessu í
fýrri hálfleik. Þó við vöknuðum upp
eftir hlé héldum við ekki haus í lok-
in. Höfðum möguleika í stöðunni
12:14 en þá gera þær þijú mörk í
röð.“
Víkingsstúlkur náðu ekki að
fylgja eftir góðri byijun en sýndu
styrk er þær fóru langt með að
vinna upp forskot Hauka eftir hlé.
Helga Torfadóttir markvörður stóð
sig mjög vel með 21 varið skot.
„Þrátt fyrir sigur er ég mjög
óánægður. Þetta var þetta mjög
lélegt hjá okkur og sóknarleikurinn
var í rnolurn," sagði Magnús Teits-
son þjálfari Haukastúlkna eftir leik-
inn. Samt sem áður fær liðið hrós
fyrir góðan vamarleik lengst af, til
dæmis skoruðu Víkingar 3 mörk á
29 fyrstu mínútunum á meðan Vig-
dís Sigurðardóttir í markinu varði
sjö skot og það segir sína sögu um
vörnina. I sókninni brá oft fyrir
skemmtilegum töktum, sem opnuðu
vöm Víkinga.
KR sigraði ÍBA
Sigurgöngu ÍBA lauk með 22:20
tapi fyrir KR-stúlkum í slökum leik
á Seltjarnarnesinu á laugardaginn.
Akureyringar höfðu unnið tvo leiki
í röð sem vom reyndar fyrstu sigur-
leikir þeirra í tvö ár. Sókn Akur-
eyringa var afar þunglamaleg fyrir
hlé og Vesturbæingar náðu strax
forskoti. Það var ekki fyrr en um
miðjan síðari hálfleik að ÍBA-stúlk-
ur tóku Brynju Steinsen og Eddu
Kristinsdóttur úr umferð og komust
þá inn í leikinn. Sjálfstraustið kom
líka og norðanstúlkur þorðu loks
að gera atlögur að marki KR en
það var of seint.
KR var betra liðið, vörnin sterk
og oft brá fyrir góðum kerfum í
sóknarleiknum, sem Brynja Stein-
sen stjórnaði af röggsemi. Brynja,
Selma Grétarsdóttir og Edda Krist-
insdóttir voru bestar.
Dapur sóknarleikur í fyrri hálf-
leik varð ÍBA að falli því vömin var
yfirleitt vel á verði. Ánna Bryndís
Blöndal, Gunilla Almquist, Þómnn
Sigurðardóttir og Katrín Harðar-
dóttir voru bestar.
Markverðir í aðalhlutverkum
Markverðir FH og Fram, Alda
H. Jóhannsdóttir og Hugrún Þor-
steinsdóttir, sáu til þess, með góðri
frammistöðu, að áhorfendur í
Kaplakrika á laugardaginn fengu
eitthvað fyrir aurana sína. Að öðru
leyti var leikurinn lítt fyrir augað,
jafnt á langflestum tölum en eina
spennan myndaðist síðustu mínút-
una þegar FH var yfir en Svanhild-
ur Þengilsdóttir jafnaði fyrir Fram,
16:16, þegar sekúnda var eftir af
leiknum.
„Okkur gengur ekkert í sóknar-
leiknum þó að við séum að fá færi.
Við höfum yfirleitt verið yfir en
töpum svo í lokin. Okkur virðist
vanta sjálfstraust enda ungar að
árum,“ sagði Alda, markvörður
FH, eftir leikinn en hún varði Í5
skot, þar af 6 eftir hraðaupphlaup
og eitt víti. Að öðru leyti hélt
Hrafnhildur Skúladóttir uppi leik
FH. Guðrún Hólmgeirsdóttir, sext-
án ára hornamaður, sýndi þó góða
takta.
„Við vorum heppnar að ná jafn-
tefli þó við værum yfir svo til allan
leikinn. Við ætlum að gera svo
marga hluti í einu en ráðum ekki
við það,“ sagði Hugrún, markvörð-
ur Fram, eftir leikinn en hún varði
14 skot, þar af 3 eftir hraðaupp-
hlaup og eitt vítakast.
ÍBA skorti þolinmæði
Akureyringum tókst ekki að
fylgja eftir góðri byijun og Vals-
stúlkur náðu að jafna, 18:18, á
síðustu mínútu þegar liðin mættust
á Hlíðarenda á sunnudaginn. „Við
vorum of óþolinmóðar þegar við
vorum yfir en þegar við höfum
haft þolinmæði í heilan leik höfum
við unnið," sagði Dóra Sif Sig-
tryggsdóttir, fyrirliði ÍBA, eftir
leikinn. „Annars erum við að gera
góða hluti, verðum sífellt betri og'
sigurinn á ÍBV og FH um daginn
jók baráttuna og sjálfstraustið."
ÍBA-stúlkur byrjuðu vel og kom-
ust í 1:4 þrátt fyrir að klúðra þrem-
ur hraðaupphlaupum og grimma
vörn Valsstúlkna sem náðu foryst-
unni og höfðu yfir, 9:8 í leikhléinu.
Eftir hlé kom annar snarpur kafli
Akureyringa en sem fyrr tókst
þeim ekki að láta kné fylgja kviði.
Hjá Val áttu markvörðurinn
Vaiva Drilingaite, Gerður B. Jó-
hannssdóttir, Sonja Jónsdóttir,
Sigurlaug Rúnarsdóttir og Eivor
Pála Blöndal góðan leik en hjá ÍBA
voru Dóra Sif, Þórunn Sigurðar-
dóttir, Anna Bryndís Blöndal og
Gunilla Almquist atkvæðamestar.
Fyrsta tap
Herberts
Herbert Arnarson, körfu-
knattleiksmaður með
Donar í hollensku 1. deildinni,
tapaði sínum fyrsta leik um
helgina þegar lið hans heim-
sótti meistarana frá því í fyrra,
Den Bosch. Heimamenn sigr-
uðu, 104:86. „Við steinlágum
í lokin, en vorum inni í leiknum
lengst af. Staðan var 61:64
þegar þeir náðu að gera 15
stig í röð og þar með var þetta
búið,“ sagði Herbert í samtali
við Morgunblaðið. Hann gerði
20 stig í leiknum og var
ánægður með sinn hlut. Donar
missti þar með af efsta sæt-
inu, en tvö lið eru á toppnum
með 18 stig og Donar og ann-
að lið koma næst með 16 stig.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
AUÐUR Hermannsdóttlr úr Haukum, sem hér brýst framhjé Víkingunum Önnu Kristínu Árna-
dóttur og Heiðu Erllngsdóttur, skoraði þrjú mörk í sigri Hauka. Leikurlnn áttl að vera á laugar-
deginum en var færður fram á sunnudagskvöld þrátt fyrir harðorð mótmæli Vlklnga.
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
ÞAÐ skín einbeitni úr andliti Árna Þórs á þessari mynd sem tekln var í úrslitaleiknum í tvíliðaleik þar
sem hann og Broddi lögðu Svíana að velli á sannfærandi hátt.
Ámi og Broddi lögðu Svíana
ÁRNI Þór Hallgrímsson og Broddi Kristjánsson, TBR, sýndu styrk
sinn ítvíliðaleik á „lceland International", alþjóðlegu badminton-
móti sem fram fór íTBR-húsinu um helgina. Til úrslita ítvíliða-
leik karla léku þeir gegn næststerkasta pari Svía, Rasmus Weng-
berg og Frederik Bergström, og lögðu þá örugglega að velli í
þremur lotum, 15:9, 8:15,15:11. „Eg er ánægður með leikinn því
við höfum ekki leikið gegn sterkum badmintonmönnum síðan í
apríl og því erfitt að segja í hvaða sporum við stóðum," sagði
Árni Þór að leik loknum.
tvar
Benediktsson
skrifar
Við vissum að við þyrftum að ná
að byija hveija Iotu vel til þess
að eiga möguleika og þannig geta leik-
ið afslappaðri en ella
og það tókst," sagði
Broddi. „Ég er sáttur
við leikinn í heild þrátt
fyrir að ég renndi nokk-
uð blint í sjóinn eftir að hafa verið
mikið frá æfingum síðasta mánuðinn
vegna meiðsla."
Árni og Broddi hófu fyrstu lotu af
krafti og skoruðu sex fyrstu punktana
áður en Wengberg og Bergström náðu
að komast á blað. Þeim tókst aldrei
að rétta sinn hlut verulega í lotunni.
í annarri lotu voru það Svíarnir sem
byijuðu mun betur og komust í 7:1
áður en Árni og Broddi tóku við sér
og minnkuðu muninn í 12:8 en lengra
komust þeir ekki. Bergström og Wen-
berg byijuðu oddalotuna en náðu ekki
að sækja punkta og Árni og Broddi
tóku við og náðu frumkvæðinu og
gáfu aldrei eftir. Komust í 5:1 og 9:5
áður en Svíarnir bitu frá sér um stund
og minnkuðu forystuna niður í einn
punkt, 11:10, en þá spýttu Árni og
Broddi í lófana á ný og sigruðu, 15:11.
Sóknarleikur Árna og Brodda var allan
tímann góður, það var helst að gloppur
kæmu í varnarleik þeirra og stuttar
sendingar Svíanna settu þá í vanda.
Svíarnir léku til úrslita í einliðaleik
karla og sýndu þá svo ekki varð um
villst að þeir eru mjög góðir á sínu
sviði. Leikur þeirra endaði í oddalotu
og tók 80 mínútur. Bergström sem
sigraði Tryggva í oddalotu í undanúr-
slitum, hafði betur í fyrstu lotu, 15:8,
og lék hörkuvel í annarri lotu en varð
að gefa eftir í lokin og tapaði, 18:13.
Wengberg er sterkari í einliðaleiknum
og undirstrikaði það í oddalotu með
15:10 sigri. Wengberg hafði áður sigr-
að Árna auðveldlega í undanúrslitum.
í einliðaleik kvenna mættust þær
Elsa Nielsen og íslandsmeistarinn Vig-
dís Ásgeirsdóttir. Elsa byijaði vel í
fyrstu lotu og komst í 8:0. „Þetta er
ótrúlegt,“ kallaði Vigdís er áttundi
punktur Elsu var í höfn. Hún bætti
leik sinn og náði að minnka forskotið
en lotan var Elsu, 11:6. í annarri lotu
virtist það sama ætla að vera upp á
teningum. Elsa komst í 5:0 áður en
Vigdís vaknaði og það gerði hún held-
ur betur. Gerði 11 punkta í röð og
knúði fram oddalotu. Framan af henni
hafði Vigdís frumkvæðið, m.a. 10:7,
en ónákvæmur leikur varð þess vald-
andi að hún tapaði, 12:10, og Elsa
hrósaði sigri. „Þetta var venjulegur
leikur hjá okkur með miklum sveiflum.
Eftir að hafa byijað vel í tveimur fyrstu
lotunum missti ég einbeitinguna og
það hafði nærri kostað mig sigurinn,"
sagði Elsa glaðbeitt að lokum. „Ég lék
af mikilli ónákvæmni í oddalotunni og
það kostaði mig sigurinn," sagði Vig-
dís niðurlút að leik loknum. „Ég var
líka alltof lengi í gang og það kostaði
mikla orku að vinna það upp.“
í tvenndarleik báru Vigdís og Ámi
Þór öruggan sigur úr býtum í leik sem
tók mjög fljótt af. Þau sigruðu systkin-
in EIsu og Tryggva auðveldlega í
tveimur lotum, 15:2, 15:5. „Það gekk
allt upp hjá okkur Vigdísi og við rúll-
uðum þeim hreinlega upp,“ sagði Árni.
Elsa og Vigdís léku smann í tvíliða-
leik gegn þeim Brynju Pétursdóttur
og Erlu Hafsteinsdóttur. Var það leik-
ur kattarins að músinni þar Elsa og
Vigdís sigruðu í tveimur lotum, 15.5,
15:2.
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Chicago á fleygiferd
|eistarar Chicago virðist gjör-
samlega óstöðvandi og hefur
liðið sigrað í fyrstu tíu leikjum sínum.
Á sama tíma hefur allt gengið á aftur-
fótunum hjá liði Phoenix Suns sem
hefur leikið níu leiki og ekki unnið
einn einasta. Danny Ainge var ráðinn
þjálfari um helgina en varð að sætta
sig við tap gegn Lakers í fyrsta leik
sínum með liðið. O’Neal gerði 16 stig
og tók 13 fráköst og hinn 18 ára
gamli Bryant var einnig með 16 stig,
en hann fékk að leika í 14 mínútur.
Micheal Jordan gerði 25 stig þegar
Bulls vann Atlanta og þar með tíunda
leikinn í röð. Það sem ef til vill sýnir
yfirburði Chicago er að liðið hefur
sigrað í þessum leikjum með 19,8
stigum að meðaltali. „Þetta á eftir
að verða erfiðara síðar í vetur,“ sagði
Jordan.
Grant Hill var í miklu stuði þegar
Detroit heimsótti Cleveland, gerði 27
stig og leiddi lið sitt til sigurs og
hefur Pistons ekki byijað eins vel síð-
an árið 1988. Þetta var fyrsti sigur
liðsins í Cleveland í rúm fimm ár.
Clyde Drexler gerði 33 stig og
Olajuwon 23 er Houston vann Golden
State. Charles Barkley gerði 10 stig
og tók auk þess 18 fráköst, en kapp-
inn er í mikilli baráttu við Dennis
Rodman um að taka flest fráköst í
vetur.
Rex Walters gerði þriggja stiga
körfu þegar 33 sekúndur voru eftir
af leik Miami og 76ers og dugði það
gestunum til sigurs gegn Pat Riley
og félgöum. Jerry Stackhouse var
stigahæstur gestanna með 33 stig.
I New Jersey gerði Kendall Gill 32
stig, og hefur ekki gert þau fleiri í
vetur, er Nets vann Nuggets, en þetta
var fyrsti sigur hins nýja þjálfara,
Johns Caliparis. Nets tapaði fyrstu
fimm leikjunum í vetur og hafði ekki
tekist að komast yfir 100 stigin fyrr
en um helgina.
BADMINTON
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KVENNA
Víkingar héldu ekki haus