Morgunblaðið - 26.11.1996, Side 4
4 C ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 26. NÓVEMBER 1996 C 5
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflvíkingar fyrstu sigurvegararnir í
Lengjubikarkeppni KKÍ
Erummed
bestalHHð
KEFLVÍKINGAR sigruðu KR, 107:101, íjöfnum og spennandi úr-
slitaleik Lengjubikarkeppninnar í Laugardalshöll á laugardaginn.
„Ég er mjög ánægður með sigurinn og hann segir okkur að við
erum með besta liðið um þessar mundir. Þó við værum ekki að
spila okkar besta leik, dugði það,“ sagði Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari Keflvíkinga.
Leikurinn var hraður og
skemmtilegur allan tímann.
KR hafði frumkvæðið framan af
og náði mest 13
ValurB stiga forystu um
Jónatansson miðían fyrri hálf"
skrifar leikinn, 43:30. Þeg-
ar þarna var komið
sögu fékk bandaríski leikmaðurinn
í liði Keflvíkinga, Damon Johnson,
íjórðu villu sína og útlitið ekki allt
of bjart. Johnson var tekinn útaf
og þá fann Falur fjölina sína og
gerði 15 stig á síðustu 8 mínútunum
og þar af þijár þriggja stiga körf-
ur. Forskot KR-inga fjaraði því
smátt og smátt út og var munurinn
aðeins eitt stig í hálfleik, 55:54.
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflvíkinga, lét Johnson byija síð-
ari hálfleikinn með fjórar viilur. „Ég
tók ákveðna áhættu að setja hann
strax inná. Við lékum svæðisvörn
og Johnson hélt sér inn á allan síð-
ari hálfleikinn og átti stóran þátt í
sigrinum," sagði Sigurður. Johnson
var allt í öllu í sókninni, ásamt
Fal, og gerði 20 stig í hálfleiknum
og það vóg þungt.
Spennan hélst þó fram á síðustu
mínútu. Þegar tvær mínútur voru
til leiksloka var staðan jöfn, 96:96.
Keflavík náði að komast yfir
104:99 þegar ein mínúta var eftir.
Þá reyndi Ingvar Ormarsson
ótímabært þriggja stiga skot sem
rataði ekki rétta leið og Keflvíking-
ar léku af skynsemi sem eftir það
og tryggðu sér sigurinn og 250
þúsund króna ávísun í verðlaunafé.
KR lék vel í fyrri hálfleik og
enginn þó betur en Hermann
Hauksson sem fór á kostum. Hann
gerði 26 stig í hálfleiknum og var
með 100% skotnýtingu utan af velli.
Varnarleikur liðsins var ekki nægi-
lega sannfærandi í síðari hálfleik
og því fór sem fór. KR-ingar hefðu
mátt reyna meira til að „fiska“
Johnson út af í síðari hálfleik. Edw-
ards reyndi of mikið upp á eigin
spýtur og var skotnýting hans ekki
nema 38% í leiknum.
„Við vinnum ekki lið sem skorar
yfir 100 stig á móti okkur. Við ætl-
uðum að halda hraðanum niðri en
það tókst ekki nógu vel. Við gerðum
okkar besta en það dugði því miður
ekki,“ sagði Benedikt Guðmundsson,
þjálfari KR-inga, eftir leikinn.
Keflvíkingar hafa reynsluna
fram yfir KR og nýttu sér hana í
þessum leik. Lið með bakverði á
borð við Fal og Guðjón er ekki
árennilegt. Falur setti niður sex
þriggja stiga skot og tók af skarið
þegar á þurfti að halda. Damon
Johnson lék einnig vel í síðari hálf-
leik eftir afleitan fyrri hálfleik.
„Þetta var mjög skemmtilegur
leikur eins og þeir hafa flestir verið
í keppninni. Þetta er góð byijun á
keppnistímabilinu hjá okkur og ég
held að Lengjubikarinn sé kominn
til að vera og er íþróttinni tii fram-
dráttar," sagði Sigurður Ingimund-
arson, þjálfari Keflvíkinga.
Morgunblaðið/Bjarni
DAMON Johnson lék mjög vel í síðari hálfleik fyrir Keflavík
og átti stóran þátt í sigri liðsins á KR. Hér leikur hann á
Hinrik Gunnarsson KR-ing.
+
IÞROTTIR
Háspenna í KA-heimilinu
LEIKUR KA og Stjörnunnar á laugardaginn var án efa
skemmtilegasta viðureign vetrarins til þessa í KA-heimilinu.
Þetta var hraður leikur, allmiklar sviptingar og sveiflur og
mikil spenna í seinni hálfleik. Þá tóku líka áhorfendur vel við
sér og studdu sitt lið. Stjarnan hafði frumkvæðið fram í miðj-
an seinni hálfleik en KA-menn áttu góðan endasprett og sigr-
uðu 28:27.
Hver maður gerði sitt besta
Austurríkismenn
mæta sterkir
Hurð skall nærri
hælum íVíkinni
HURÐ skall nærri hælum í Vík-
inni á laugardaginn þegar Vals-
stúlkur sóttu Víkinga heim.
Víkingar höfðu forystu þar til
mínúta var eftir en þá jöfnuðu
gestirnir 14:14 og
Stefán komust síðan í
Stefánsson hraðaupphlaup á
sknfar síðustu sekúndun-
um en lokaflautið gall við þegar
þær voru á harða spretti. „Við
hefðum þurft tvær sekúndur til
viðbótar til að sigra,“ sagði
Haukur Geirmundsson þjálfari
Valsstúlkna eftir leikinn.
„Stelpurnar sýndu mikinn kar-
akter með því að vinna upp
forskot Víkinganna. Þetta eru
ungar stelpur og þetta er allt
að koma hjá okkur.“
Víkingar voru yfir frá byrj-
un, yfirleitt með þremur mörk-
um og var staða í leikhléi 8:5.
Síðustu mínútuna ætluðu Vík-
ingar að nýta tímann til hins
ýtrasta, skjóta í blálokin til að
mótherjarnir kæmust ekki í
sókn. Það gekk hinsvegar ekki
og flautan bjargaði þeim frá
tapi.
Öruggt í Árbænum
Fylkisstúlkur mættu ofjörl-
um sínum þegar Haukar úr
Hafnarfirði sóttu þær heim í
Árbæinn á laugardaginn og má
segja að 29:13 sigur Hauka-
stúlkna hafi verið eftir bókinni
því þær eru efstar og ósigraðar
í 1. deild á meðan Fylkisstúlkur
hafa enn ekki náð stigi.
Árbæingar létu þó ekki valta
yfir sig og var staðan í leikhléi
13:8, Haukum í vil en eftir hlé
skiptu Haukar ört um leikmenn
til að leyfa sem flestum að vera
með, enda nokkuð öruggar um
úrslitin.
AUSTURRÍKISMENN sýndu
mikinn styrk ífyrsta svigmóti
vetrarins í Park City á sunnudag
með því að raða sér í þrjú af
fjórum fyrstu sætunum. Thom-
as Sykora, sem vann síðasta
svigmót heimsbikarsins sl. vor,
var fyrstur og landi hans og
nafni, Thomas Stangassinger,
annar. Norðmaðurinn Kjetil
Andre Ámodt varð þriðji.
Sykora, sem hefur unnið þijú af
síðustu fimm svigmótum
heimsbikarsins, sagðist hafa æft
mjög vel í sumar og því þyrfti árang-
urinn ekki að-Tkorna á óvart. „Eg
hef aldrei æft eins vel og fyrir þetta
tímabil. Markmiðið hjá mér í vetur
er að vinna heimsbikarinn í svigi,“
sagði Sykora, sem er 28 ára. „Þegar
ég fór niður var Ijóst að landi minn
Stangassinger var með besta tímann
svo ég gat því tekið enn meiri áhættu
en ella - austurrískur sigur var
altént í höfn.“
„Það er eins og ég hafí fengið
góðan byr í seglin. Það er frábært
að bytja tímabilið svona vel,“ sagði
Stangassinger og virtist jafnánægð-
ur með annað sætið og Sykora það
fyrsta. Kjetil Andre Amodt kemur
sterkur til leiks. Hann vann heimsbi-
kartitilinn 1994 en átti síðan í
meiðslum síðustu tvö ár sem hann
er nú búinn að ná sér af.
Annar sigur Rieglers
Austurríska stúlkan Claudia Rie-
gler, sem keppir fyrir Nýja-Sjáland,
sigraði í svigi heimsbikarsins í Park^
City á laugardaginn. Hún var 0,07
sekúndum á undan Pernillu Wiberg
frá Svíþjóð. Austurríska stúlkan
Ingrid Salvenmoser var þriðja.
Riegler fór að ráðum Marc Girar-
dellis og skipti um ríkisfang fyrir
nokkrum árum því hún komst ekki í
unglingalandslið Austurríkis. Þar sem
móðir hennar er ný-sjálensk fékk hún
auðveldlega ný-sjálenskan ríkisfang.
Hún æfir í Salzburg í Austurríki og
er með einkaþjálfara og hafa foreldrar
hennar kostað þjálfun hennar.
Morgunblaðið/Ásdís
HRESSILEGUR hópur sundfélaga úr SH með sigurlaun sín eftir að hafa tryggt sér sigur annað árið í röð.
Sundfélag Hafnarfjarðar bar sigur úr býtum annað árið í röð
Valdimar Grímsson skoraði
fyrsta mark leiksins fyrir
Stjörnuna en KA-menn gerðu
■■■■■ næstu þijú. Valdi-
Stefán Þór mar jafnaði, en hann
Sæirmndsson lék stórvel í fyrri
Akuæyri halfleik °S skoraði
þá 7 mörk. Stjarnan
náði þriggja marka forskoti eftir
14 mínútna leik og hélt því til leik-
hlés. Ekki skipti máli þótt þrír leik-
menn Stjörnunnar hafi fengið reisu-
passann á síðustu 6 mínútum hálf-
leiksins, forskotið hélst því liðið lék
vel en KA-menn voru mistækir í
sókninni og stundum var fátt um
varnir. Staðan í leikhléi var 13:16.
KA byijaði með látum í seinni
hálfleik og skoraði þijú mörk í röð.
Þá komu þijú mörk í röð frá Stjörn-
unni og aftur þijú frá KA. Niður-
staðan úr þessu reikningsdæmi er
19:19 og 19 mín. til leiksloka. Eftir
þetta var leikurinn æsispennandi
en KA-menn höfðu þó 1-3 marka
forskot. Þoir náðu að stöðva Valdi-
mar sem skoraði fyrsta mark sitt í
seinni hálfleik af vítalínunni þegar
8,50 mín. voru til leiksloka og stað-
an 25:23. Duranona og Valdimar
skoruðu næstu mörk á víxl og
Valdimar minnkaði muninn í eitt
mark, 27:26 þegar 3,45 mín. voru
eftir. Ziza skoraði 28. mark KA og
Stjörnunni tókst aðeins að bæta við
einu marki á lokasekúndunum og
sigur heimamanna í höfn.
KA-menn eru nú í öðru sæti 1.
deildar með 12 stig, fjórum stigum
á eftir Aftureldingu en eiga leik til
góða. Liðið þurfti að hafa mikið
fyrir þessum sigri, bæði liðin léku
mjög vel á köflum. Duranona og
Sævar Árnason voru atkvæðamest-
ir KA. Duranona skoraði öll 10
mörk sín með langskotum.
Valdimar skoraði 11 mörk fyrir
Stjörnuna, þar af 5 úr vítakasti.
Ingvar Ragnarsson varði vel og
tvítugur leikstjórnandi, Sigurður-
Viðarsson (Símonarsonar) vakti at-
hygli fyrir góð tilþrif og skynsemi.
„ÉG er aö sjálfsögðu mjög ánægður með sigurinn. Það er alltaf erfitt
að halda titlum og það var Ijóst að hver maður yrði að gera sitt besta
og það tókst," sagði sigurreifur þjálfari SH, Brian Marshall, eftir að
Ijóst var síðdegis á sunnudag að Sundfélagi Hafnarfjarðar hafði tek-
ist að verja bikarmeistaratitilinn sem þeir hömpuðu í fyrsta skipti í
fyrra, en bikarkeppnin fór fram í Sundhöll Reykjavíkur að vanda. Eftir
hörkukeppni við Ægi skildu 530 stig liðin að. SH hlaut 27.742, A-
sveit Ægis fékk 27.212 stig og Keflvíkingar voru þriðju með 25.727 stig.
Pete Sampras heimsmeistari í þriðja sinn
Frábær skemmtun
PETE Sampras tókst hið ótrúlega,
að sigra Boris Becker og 15.000
frábæra áhorfendur á heimavelli í
úrslitaleik heimsmeistaramótsins í
tennis. Báðir léku eins og þeir gera
best en úrslitin 3-6, 7-6, 7-6, 6-7,
6-4 lágu ekki fyrir fyrr eftir fjög-
urra stunda keppni í fyrrakvöld.
Becker sigraði Sampras í riðla-
keppninni og hann fékk stuðning
eins og hann gerist bestur. Þessi
mikla aðstoð hjálpaði honum yfir
erfiðar hindranir en Sampras, sem
varð meistari 1991 og 1994, neitaði
að gefast upp. Efsti maðurinn á
heimslistanum hafði það sem þurfti,
fagnaði sigri og fékk um 88 milljón-
ir króna í verðlaun.
„En sá úrslitaleikur,“ sagði
Bandaríkjamaðurinn. „Fimm hrinur
á móti Boris á heimavelli hans.
Þetta var ekki auðvelt. Áhorfendur
studdu hann dyggilega en þeir voru
sanngjarnir. Þetta var frábær
skemmtun. Um það snýst málið.
Þetta var ótrúlegt. Tennis er ekki
spurning um peninga heldur um
áhugaverða leiki. Þetta er einn af
bestu leikjum sem ég hef tekið þátt
í og ég ætlaði ekki að gefast upp.
Ég barðist allan tímann.“
Becker lék eins og best hann
getur en það nægði ekki að þessu
sinni. „Þetta var leikur fyrir mig
og að fá tækifæri til að vera hluti
af honum telst til hápunkta á ferlin-
um.en ég get ekki leikið betur,“
sagði Þjóðveijinn. „Sigur eða tap
skipti ekki máli - ég gerði mitt
besta.“
Andrúmsloftið í höllinni í Hano-
ver var rafmagnað. Stuðningur við
Becker var skipulagður með hvatn-
ingarborðum um alla höll og áhorf-
endur hituðu taktvisst upp með sér-
stöku stuðningsliði á gólfinu undir
dynjandi tónist úr Rocky-kvikmynd-
unum. Áhorfendur gáfu tóninn,
Becker hafði forskot til að byija
með og fólkið fylgdi með á sömu
nótum. En Sampras lét ekki slá sig
út af laginu og náði þrennunni eins
og Becker og John McEnroe hafa
áður gert. Ilie Nastase varð fjórum
sinnum meistari og Ivan Lendl fimm
sinnum.
Því miður tókst okkur ekki ætlunar-
verkið,“ sagði Petteri Laine,
þjálfari Ægis. „Allt mitt fólk lagði sig
fram og gerði sitt
I besta en það er ljóst
Benediktsson að liðsmenn SH gerðu
skrifar betur en nokkurn óraði
fyrir og þess vegna er
sigurinn þeirra annað árið í röð. En
ég vil taka það skýrt fram að mínir
keppendur gerðu sitt besta í hverri
grein, það nægði bara ekki,“ bætti
Laine við.
Eins og vitað var fyrirfram þá stóð
slagurinn um bikarinn allan tímann á
milli SH og A-sveitar Ægis. Fyrri
keppnisdaginn skiptust félögin á um
að hafa forystuna og þegar keppni
hófst á sunnudaginn hafði SH aðeins
116 stig umfram Ægi. Hafnfirðingar
hófu síðan daginn af miklum krafti
og tókst ætlunarverk sitt, að ná góðri
forystu fyrir boðsundin, en þar var
ljóst að Ægissveitin væri sterkari.
„Við vorum aldrei hrædd um að við
myndum tapa þegar að boðsundunum
kom því forystan var það góð,“ sagði
Hjalti Guðmundsson, einn liðsmanna
SH. Það gekk eftir og SH hrósaði sigri.
„Á tímabili í vor heldum við að það
væri lítil von á að veija titilinn. Þegar
líða tók á sumarið og við sáum góðan
árangur í mótum sumarsins kviknaði
vonin að nýju og þegar við bættist
að hver einasti liðsmaður félagsins
lagðist á sömu sveif tókst ætlunar-
verkið,“ sagði Magnús Þorkelsson,
formaður SH.
Ekkert íslandsmet var sétt á mótinu
en sex aldursflokkamet voru slegin.
Örn Arnarson, SH, synti 200 m bak-
sund á 2.03,37 mín. og bætti gamalt
met sem var í eigu Eðvarðs Þórs Eð-
varðssonar. í sama sundi bætti Örn
einnig metið í 50 m baksundi er hann
synti á 28,44 sek. Árangur Arnar
veitir honum landsliðssæti. Þessi
árangur er einnig betri en Iágmarkið
EYDÍS Konráðsdóttir úr Keflavík var að vanda drjúg fyrir sína sveit
sem hafnaði í þriðja sæti.
fyrir Evrópumeistaramótið í sundi í
Rostock í næsta mánuði en Örn er
of ungur jtil þess að fá að keppa þar.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA, bætti
flögurra ára gamalt telpnamet Eydís-
ar Konráðsdóttur, Keflavík, í 200 m
baksundi. Kolbrún synti á 2.26,64
mín. og bætti gamla metið um tæpa
1 sekúndu. Gunnar Steinþórsson,
UMFA, setti síðan þijú sveinamet á
mótinu, í 200 m flugsundi, 2.44,40
mín., 100 m flugsundi, 1.10,82 mín.,
og loks í 100 m skriðsundi, 59,76 sek.
„Ég er ánægður með að byija á
sigri,“ sagði Brian Marshall þjálfari
SH en hann tók við þjálfun félagsins
í sumar af Klaus Júrgen Hoh sem
hafði verið þjálfari félagsins sl. fjögur
ár. „Það er gaman að koma til félags
eins og SH þar sem allir eru samstiga
í að ná árangri. Framfarir eru miklar
og við eigum nú tvo keppendur á
næsta Evrópumeistaramóti."
„Keppnin var jafnari en í fyrra og
því er sigurinn sætur,“ sagði Hjalti
sundmaður en hann synti nærri Is-
landmeti sínu í 100 m bringusundi.
„Ég hvíldi ekkert fyrir þetta mót því
ég legg megináhersluna á Evrópu-
meistaramótið í Rostock eftir tvær
vikur. Nú byija ég að hvíla og stefni
að góðum árangri."
Hin unga sveit Keflavíkur varð í
þriðja sæti og náði fleíri stigum en í
fyrra, eða 25.727. „Ég er mjög sáttur
við okkar hlut,“ sagði Eðvarð Þór
Eðvarðsson, þjálfari liðsins og fyrrum
sundkappi. „Við notuðum eingöngu
unga fólkið okkar í mótinu og kölluð-
um ekki til neina gamla kappa til að
smala stigum. Við náðum að halda
þriðja sætinu og krakkarnir sýndu
miklar framfarir og ég held að þau
eigi góða möguleika til að bæta sig
ennfrekar.“
Skagamenn höfnuðu í fjórða sæti,
UMSK í fimmta og lestina rak B-
sveit Ægis og féll hún í aðra deild.
Það var nokkurt skarð fyrir skildi í
B-sveit Ægis að Lárus Sölvason gat
ekki keppt vegna veikinda, en annars
var sveitin skipuð ungu og efnilegu
sundfólki líkt og A-sveitin, sem undir-
strikar stöðu félagsins, sem ætlar
eflaust að mæta enn sterkara til leiks
að ári.
„Ég hef séð miklar framfarir á þeim
fjórum árum sem ég hef verið á ís-
landi og meginástæðan fyrir því er
að sundfólkið æfir betur en það gerði.
Nú er svo komið að Islendingar fara
að eiga fleiri sundmenn sem geta náð
góðum árangri á alþjóðlegan mæli-
kvarða,“ sagði Laine, þjálfari Ægis.
Armann í 1. deildina
Armann bar sigur úr býtum í
2. deildarkeppninni í sundi sem
fór fram á í Sundhöll Reykjavíkur
á sama tíma 1. deildin. Ármenning-
ar fengu 21.692 stig en Selfyssing-
ar höfnuðu í öðru sæti með 21.390
stig. Þessar tvær sveitir voru í
nokkrum sérflokki. Þriðja sætið féll
í skaut Njarðvíkingum ogþað fjórða
KR.
„Þetta var hörkukeppni og sigur-
inn er árangur fjögurra ára þrot-
lausrar vinnu hjá félagsmönnum,"
sagði Hafþór Birgir Guðmundsson,
fyrrverandi þjálfari félagsins.
Keppni Ármenninga og Selfyss-
inga var jöfn alla helgina og mun-
aði oft og tíðum á milli 50 og 200
sitgum eftir hveija grein. „En
krakkamir bættu sig allir og voru
staðráðnir í að komast upp,“ sagði
Hafþór. Þegar kom að boðsundun-
um sem voru síðustu greinarnar
mátti ekkert fara úrskeiðis hjá lið-
unum í toppbaráttunni og því mikil
spenna ríkjandi. En bæði lið komust
klakklaust í gegnum þau og það
dugði Ármenningum til að ná 1.
deildar sæti. Litlu munaði að Sel-
fyssingar fylgdu Ármenningum eft-
ir upp í 1. deild en þeir fengu að-
eins 53 stigum færra en UMSK sem
hafnaði í næst neðsta sæti 1. deild-
ar, en reglurnar kveða á um að sé
næst efsta liðið í 2. deild með fleiri
stig en næst neðsta liðið í 1. deild
hafa þau deildarskipti.
Það kom greinilega fram í mótinu
að mikil uppbygging er að eiga sér
stað hjá Njarðvík og margir ungir
sundmenn þar sem gætu látið að
sér kveða á næstu árum.
SUND / BIKARKEPPNI SSI
TENNIS
HANDKNATTLEIKUR
HANDKNATTLEIKUR
SKIÐI