Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.11.1996, Qupperneq 8
ÍMmR tnmniiMiria—«■ HANDKNATTLEIKUR Ulf Scheivert, landsliðsþjálfari Dana, á von á jöfnum leikjum við íslendinga Bjartsýnn en smeykur Sigurgeir Guðlaugsson skrifar frá Danmörku „ÉG er nokkuð bjartsýnn á að við munum ná hagstæðum úr- slitum út úr þessum tveimur leikjum en ég verð þó einnig að játa að ég er örlítið smeykur því íslendingar eru ávalit mjög erfiðir heim að sækja og það getur ekkert liðbókað sigur fyrirfram gegn íslendingum í Reykjavík," sagði Ulf Schef- vert, landsliðsþjálfari Dana í handknattleik, skömmu áður en danska liðið hélt af stað til íslands í gær. Danir hafa ekki tapað stigi og eru efstir í riðlinum með stigi meira en íslendingar. „Ég tel næsta víst að pressan muni öll verða á íslenska liðinu á miðvikudag [á morgun] því ís- lendingar verða bókstaflega að sigra. Takist þeim það snýst dæmið hins vegar við og pressan flyst öll yfir á okkur - þá stöndum við frammi fyrir því að þurfa á sigri að halda í Alaborg á sunnudaginn," sagði Schefvert. „Annars tel ég nokkuð góðar líkur á því að það lið, sem hafnar í öðru sæti í þessum riðli, muni verða ann- að þeirra tveggja liða er komast áfram í umspil um sæti á heims- meistaramótinu og gæti það hugs- anlega átt eftir að hafa einhver áhrif á leik liðanna. Ég efast samt ekki um að þó nokkur taugatitringur muni gera vart við sig hjá báðum liðum því mikið er í húfi.“ Schefvert sagðist eiga von á jöfn- um viðureignum. „Það hefur oftar en ekki verið mjótt á mununum þeg- ar Danir og íslendingar hafa leitt saman hesta sína á handknattleik- svellinum og ég hef enga trú á öðru en að sama verði uppá teningnum á miðvikudag. Dagsformið á að öllum líkindum eftir að koma til með að ráða úrslitum hvorum megin sigur- inn lendir og það kæmi mér ekki á óvart þótt einungis eitt eða tvö mörk KNATTSPYRNA eigi eftir að skilja liðin að þegar upp verður staðið,“ sagði Schefvert enn- fremur. „Ég þekki mjög vel til íslenska liðsins og veit að það býr mikið í strákum á borð við Ólaf (Stefáns- son) og Patrek (Jóhannesson) en svo eru einnig eldri refir eins og Geir (Sveinsson), Valdimar (Grímsson) og Júlíus (Jónasson) inni á milli þannig að við munum þurfa að ná upp góðri stemmningu og eiga topp- leik til þess að ná að fagna sigri. Það verður allt lagt í sölumar á miðvikudaginn og þetta mun áreið- anlega verða hörkuleikur en ég tel jafnframt að það lið, sem að lokum mun standa uppi sem sigurvegari muni þurfa að hafa heilladísirnar á sínu bandi. Ég sagði það strax í Sevilla á Spáni í júní þegar dregið var í riðl- ana að þessir tveir síðustu leikir milli Danmerkur og íslands myndu verða hreinir úrslitaleikir um sæti í HM þannig að ég er búinn að bíða lengi eftir þessum viðureignum og hlakka mikið til. Ég á bæði góðar og slæmar minningar frá leikjum mínum á íslandi en það er alltaf jafngaman að sækja þetta fallega land heim. Á miðvikudaginn verður hins vegar hvergi gefið eftir og við munum leggja allt undir til þess að fara með sigur af hólmi en ég veit að Þorbjörn vinur minn Jensson er á sama máli þannig að það mun án nokkurs vafa verða barist til síðasta manns,“ bætti Schefvert jafnframt við en hann mun láta af störfum sem landsliðsþjálfari Dana í byrjun næsta árs og snúa sér að þjálfun í Svíþjóð. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Þorbjörn óhræddur ÞORBJÖRN Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik, óttast ekki viðureignirnar við Dani í Laugardalshöllinn annað kvöld og í Alaborg á sunnudaginn. Hann ætlar sér með sína menn til Japans, þar sem heimsmeist- arakeppnin fer fram í maí 1997. Hér er hann og Geir Sveinsson, fyrirliða landsliðsins, að leggja á ráðin á æfingu landsliðsins í Laugardalshöllinni í gærkvöldi. Mikill áhugi er fyrir leiknum og er reiknað með að uppselt verði á hann. Haraldur í byrjun- arliði Aberdeen HARALDUR Ingólfsson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Aberdeen um helgina en þá vann það Hibernian 1:0 í skosku úrvalsdeildinni. Dean Windass skoraði mínútu fyrir hlé en Haraldur fór út af um miðjan seinni hálfleik. „Þetta var erfiður leikur og mun erfiðari en fyrsti leikurinn minn sem var á móti Celtic,“ sagði Haraldur við Morgunblað- ið. „Aberdeen hefur gengið illa með Hibs og því var mikilvægt að sigra en ég hef oft leikið betur.“ Roy Aitken, þjálfari Aber- deen, var ánægður með sína menn. „Við vorum ákveðnir, sköpuðum okkur mörg mark- tækifæri og ávallt er ánægju- legt að halda hreinu.“ Hann hefur samt hug á að styrlya vörnina og viðræður standa yfir við varnarmanninn Geirmund Brendesæther hjá Brann. Þá hefur Eyjamaðurinn Hermann Hreiðarsson verið hjá félaginu undanfarna daga og átti hann að leika með varalið- inu í gærkvöldi. Patrekur góður með Essen PATREKUR Jóhannesson átti góðan leik í vörn og sókn þeg- ar Essen vann Hameln 26:25 í þýsku deildinni um helgina. Hann gerði tvö mörk, fiskaði tvö vítaköst og fékk góða dóma. „Það var gott að fá tvö stig eftir klúðrið á móti Schutterwald í liðinni viku,“ sagði Patrekur við Morgun- blaðið. „Við réðum ferðinni og undir lokin var staðan 24:19 en við slökuðum á það sem eftir var. En þetta er gott veganesti fyrir landsleik- inn við Dani.“ Dagur og Ólafur á toppnum Wuppertal vann Schwerin 24:16 og er með 22 stig eins og Schwartau á toppnum í 2. deUd. Ólafur Stefánsson var með sex mörk fyrir Wuppertal og Dagur Sigurðsson tvö mörk. „Eins og svo oft áður var ég tekinn úr umferð síðari hluta leiksins og það er frekar Ieiðinlegt en mér hefur gengið mjög vel að undanförnu og vonandi skilar það sér á mið- vikudag,“ sagði Ólafur. Dagur tók í sama streng. „Við komum vel stemmdir í Danaleikinn en vitum hveiju við eigum von á. Lykilmenn í danska liðinu leika hér í Þýskalandi og þeir hafa verið að gera góða hluti. Morten Bjerre, örvhenta skyttan hjá Hameln, lék mjög vel á móti Patreki og félögum og Claus Jacob Jensen hjá Dormagen er fjórði markahæsti leikmað- urinn í 1. deild. Flensburg er í fjórða sæti og hornaraenn liðsins eru i danska landslið- inu. Þá hafa miðjumenn Dan- anna verið að spila ágætlega, annar hjá Dormagen og hinn þjá Gummersbach." BCJ enn í efsta sæti BCJ Hamborg, lið Guðmundar Bragasonar í þýsku 2. deild- inni, er enn í efsta sæti norð- urriðilsins. Guðmundur og fé- Iagar unnu Bochum örugglega um helgina og gerði hann 10 stig og tók 9 fráköst. Donar í Lárus Orri gerði sjálfsmark I Þriðia sæti Lárus Orri Sigurðsson gerði sjálfs- mark fýrir Stoke er liðið tapaði 2:1 fyrir Southend á heimavelli. „Boltinn kom fyrir markið og ég hljóp að markinu til að hreinsa frá — hitti boltann ekki vel og hann fór í legg- hlífina og í eigið mark. Þetta var mjög slysalegt og Southend var þá komið í 2:0. Við minnkuðum muninn fljótlega og síðan fékk ég ágætis færi til að jafna, en markvörðurinn varði,“ sagði Lárus Orri, sem var fyrirliði liðsins annan leikinn í röð. „Þetta er annað markið sem ég geri fyrir liðið, en hitt gerði ég 1995 og það var ekki í eigið mark! Þetta er í fyrsta sinn á ferlinum sem ég geri sjálfsmark og vonandi verður það líka það síðasta,“ sagði Akur- eyringurinn. Þorvaldur Örlygsson og félagar hans í Oldham unnu Oxford 2:1 og eru í næst neðsta sæti 1. deildar. Þorvaldur lék á miðjunni hjá liðinu eins og hann hefur gert í undanfórn- um tíu leikjum. Hann sagðist ekki vera hræddur við stöðu liðsins í deildinni því enn væri mikið eftir af tímabilinu. „Millwall var með fjögurra stiga for- ystu í efsta sæti deildarinnar á þess- um tíma í fyrra en féll samt. Þannig að það er ekki hægt að örvænta strax. Ég tel að við séum með betra lið en staða þess í deildinni segir til um,“ sagði Þorvaldur. HERBERT Arnarson og félag- ar hjá Donar í hollensku 1. deildinni sigruðu tvívegis í síð- ustu viku. A fimmtudaginn lögðu þeir Cees Lubbers með 20 stiga mun og gerði Herbert þá 19 stig og á sunnudaginn vann Donar lið Voorburg einn- ig með um tuttugu stigum og gerði Herbert 8 stig í þeim leik. Donar er í 3. sæti deildar- innar. Larissa, lið Teits Örlygsson- ar, tapaði fyrir Panathinaikos um fyrri helgi með 19 stigum en var átta stigum yfir i hálf- leik. Ekkert var leikið í Grikk- landi um þessa helgi. ENGLAND: XXX 22X X22 2111 ITALIA: XXX 1 X X 11X 2X1X

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.