Morgunblaðið - 28.11.1996, Síða 2
2 B FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
Glímdu við spámennina
ENGLAND
november
1 Newcastle - Arsenal
2 Manch. Utd. - Leicester
3 Aston Villa - Middlesbro
4 Wimbledon - Nottingham For,
5 Sheffield Wed. - West Ham
6 Everton - Sunderland
7 Derby - Coventry
8 Blackburn - Southampton
9 Bolton - Barnsley
10 Grimsby - Crystal Palace
11 Q.P.R. - Sheffield Utd.
12 Portsmouth - Stoke
13 Bradford - W.B.A.
Árangur á
heimavelli
frá 1984
1. desember úrslit frá 1988
1 Roma - Fiorentina 3 3 1 12:7
2 Juventus - Bologna 1 2 0 4:2
3 Perugia - Vicenza 0 1 0 1:1
4 Piacenza - AC Milan 0 1 1 0:2
5 Atalanta - Napoli 1 4 2 7:10
6 Verona - Sampdoria 1 2 0 2:1
7 Udinese - Parma 1 1 1 1:1
8 Reggiana - Lazio 0 2 0 0:0
9 Lucchese - Lecce 1 0 0 1:0
10 Ravenna - Brescia 0 1 0 2:2
11 Palermo - Torino 0 0 0 0:0
12 Venezia - Pescara 2 1 0 4:1
13 Empoli - Chievo 0 0 0 0:0
Árangur á
heimavelli
Er Juventus besta
félagslið í heimi?
Einar Logi
Vignisson
skrifar frá
ítaliu
EVRÓPUMEISTARAR Juventus
urðu á þriðjudaginn heims-
meistarar félagsliða er liðið
sigraði Suður-Ameríkumeist-
ara River Plate 1:0 íTókýó. í
Evrópukeppninni vann liðið
sannfærandi sigur á Man-
chester United í síðustu viku
og í ítölsku fyrstu deildinni er
liðið í fjórða sæti en á leiktil
góða og gæti skotist í annað
sætið, aðeins stigi á eftir topp-
liði Vicenza. Hjá veðbönkum
þykir liðið líklegast til að
hampa Evrópumeistaratitlin-
um og einnig líklegast til að
verða ítalskur meistari. Það er
því erfitt að mæla á móti þeirri
staðhæfingu að Juve sé ekki
bara eitt besta lið í heimi, held-
ur jafnvel það besta.
Juventus hefur oftast allra liða
orðið ítalskur meistari, 23
sinnum, og ber eitt liða tvær
stjörnur á búningi sínum, en hver
stjarna táknar 10
titla, „scudetti". En
biðin eftir síðasta
titli varð löng á
mæiikvarða Juv-
entus, 9 ár, og eftir að Giovanni
Trappatoni, sem hafði landað
fjölda titla með liðinu á níunda
áratugnum og farið síðan til Inter
og gert þá að meisturum, hafði
mistekist að bijóta niður veldi AC
Milan var Marcello Lippi ráðinn
þjálfari liðsins. Hann tók svo sem
við ágætu búi af Trappatoni og
ekki vantaði peningana frekar en
fyrri daginn en engu að síður
þakka menn gengi Juve undanfar-
in tvö ár mikið kænsku Lippi.
Hann þykir ná vel til leikmanna,
ná að örva áhuga stórstjarna vel
auk þess að vera yfírburða skipu-
leggjandi. Hann veit líka nákvæm-
lega hvað hann vill og er óhrædd-
ur við að taka áhættu ef hann
telur sig hafa rétt fyrir sér. Það
þótti til dæmis undarleg ákvörðun
hjá stjórn Juventus að selja tvær
aðalstjörnur liðsins sem varð Evr-
ópumeistari síðastliðið vor,
Gianluca Vialli og Fabrizio Ravan-
elli. Vialli var reyndar með lausan
samning en Ravanelli var látinn
víkja til að fjármagna kaup á leik-
mönnum, sem Lippi taldi henta
betur fyrir leikskipulag liðsins,
þeim Alen Boksic og Zinedine Zid-
ane. Báðir hafa leikið stórvel, Juv-
entus þykir leika fastmótaðasta
boltann í ítöisku deildinni þrátt
fyrir að skipt hafi verið um menn
í fjórum lykilstöðum og Lippi var
á dögunum valinn besti þjálfarinn
í deildinni og voru það kollegar
hans í þjálfarastétt á Ítalíu sem
stóðu að valinu.
Jöfnuðu met
Real Madrid
Sigur Juventus á Manchester
United var merkilegur fyrir
margra hluta sakir. Ekki ríða
mörg lið feitum hesti frá Old Traf-
ford þótt United gangi reyndar í
gegnum arfaslakt tímbil nú um
stundir. Blaðamaður The Times
var ómyrkur í máli eftir leikinn:
„Leikurinn staðfesti það djúp sem
er á milli enskra og ítalskra liða,
leikmenn Juventus hafa einfald-
lega miklu meiri leikskilning, þeir
hreyfa sig betur án boltans og
Zidane og Del Piero smeygðu sér
á milli staðra miðjumanna United
að vild ... jafnvel þegar United er
upp á sitt besta á það ekki mikla
möguleika á móti þessu liði.“ ítal-
ir voru stoltir af að hafa náð að
niðurlægja Englandsmeistarana
og ekki spillti fyrir að með sigrin-
um jafnaði liðið met Real Madrid
í sigrum í Evrópukeppninni, 154
sigrar. Real Madrid náði ekki að
tryggja sér sæti í Evrópukeppninni
í vetur og ekki er að efa að Juve
á eftir að bæta metið nokkuð.
Flæöi frekar en svæöi
Juventus leikur svæðisbolta eins
og nánast öll ítölsk lið en Lippi
leggur áherslu á að leikurinn sé
fijáls og menn séu óhræddir við
að færa sig úr stöðum. Kaupin á
Úrúgvæmanninum Montero til að
leysa gömlu kempuna Vierchowo-
od af voru gerð til að auka hraða
og boltatækni varnarinnar en
Montero til stuðnings eru í öftustu
víglínu Torricelli, Ferrara og Pess-
otto eða Porrini, allt mjög hreyfan-
legir leikmenn og hrikalega harðir
í horn að taka. A miðjuna vantar
þessa dagana fyrirliðann og akker-
ið Antonio Conte en Deschamps
er vanur að leiða lið og tekur á
sig meiri vinnu. Við hlið hans hef-
Reuter
GEORGE Weah, LíberíumaAurinn í liði AC Milan, var kjörinn
knattspyrnumaður heimslns síðasta keppnistímabil. Hér er
hann í lelk með AC Milan ð móti Atalanta.
Mm
FOLX
■ GARY Pallister, miðvörður
Man. Utd., gat ekki leikið með
iiðinu gegn Leicester í deildar-
bikarkeppninni í gærkvöld þar sem
hann meiddist á baki í umferðar-
slysi, eftir æfingu í fyrradag. Hann
vonar að hann geti leikið með í
Evrópuleik gegn Rapid Vín í
næstu viku.
■ BRASILÍSKI miðvallarleik-
maðurinn Emerson, sem leikur
með Middlesbrough, er enn í
vandræðum. Hann fékk leyfi til
að skjótast til Portúgals um sl.
helgi og átti að vera kominn aftur
á mánudaginn. Kappinn kom ekki
aftur fyrr en í fyrradag.
■ ARSENE Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, er nú að
vinna að því að Denis Bergkamp
geri langan samning við Arsenal.
Bergkamp hefur verið ánægður
hjá Arsenal síðan hannn kom kom
frá Inter fyrir átján mánuðum.
■ ÞEGAR Arsenal lék gegn
Man. Utd. á dögunum á Old Traf-
ford, mætti fimm þúsund stuðn-
ingsmenn liðsins á heimavöll þess,
Highbury, til að sjá leiknum sjón-
varpað beint á breiðtjaldi. Reiknað
er með að átta þús. stuðningsmenn
verði á Highbury á laugardaginn
en þá verður sjónvarpað beint frá
leik Newcastle og Arsenal sem
fer fram í Newcastle.
■ GIACOMO Banchelli, miðherji
ítalska liðsins Cagliari, mun ekki
leika meira með liðinu á keppnis-
tímabilinu. Banchelli, sem er 23
ára, verður skorinn upp við meiðsl-
um á hné og þarf að taka sér
hvíld frá knattspyrnu í sex mán-
uði.
ur listamaðurinn Zidane náð sér
vel á strik, Jugovic hefur spilað
geysilega vel og Di Livio er ógn-
andi á kantinum. Frammi hefur
Boksic leikið hreint stórkostlega
og Del Piero er að jafna sig eftir
meiðsli, leikur betur með hveijum
leiknum og kann vel að meta það
að fá að leika frammi. Með því
að hann leikur frammi verða hinn
ungi Vieri og Padovano að sætta
sig við að verma bekkinn ásamt
frábærum leikmönnum á borð við
Lombardo, Tacchinardi og ungl-
ingunum Iuliano, Amoruso og
Ametrano. Kaupin á portúgalska
miðverðinum Dimas styrkja hóp-
inn enn frekar og leikmenn Ju-
ventus eru ekki uppáhaldsand-
stæðingar neinna þessa dagana ...
Tíu sigursælustu félags-
liðin í Evrópukeppni
Hér á eftir fer tafla yfir þau félagslið sem hafa náð bestum árangri
í Evrópumótunum. Taflan sýnir: Lið, sigrar, EM (Evrópukeppni
meistaraliða), EB (Evrópukeppni bikarhafa) og UEFA (Evrópu-
keppni félagsliða), fjöidi Evrópuleikja og vinningshlutfall í prósent-
um.
1. Juventus..................154 51 17 86 256 60,20
2. Real Madrid...............154 105 16 33 273 56,41
3. Barcelona.................150 37 47 66 282 53,19
4. BayemMúnchen..............118 60 19 39 210 56,19
5. Ajax......................112 60 18 34 188 59,60
6. Benfica...................111 70 20 21 223 49,78
7. Milan.....................108 63 17 28 198 54,50
8. Anderlecht................107 40 29 39 215 49,76
9. Inter.....................100 27 6 67 201 49,75
10. Liverpool................ 95 48 14 33 160 59,38
Slagur spámannanna:
Ásgeir - Logi 9:8
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegarí (vikur):
Hvað marga rétta í heild:
Meðalskor eftir 12 vikur:
8
Zí®
Slagur spámannanna:
Ásgeir - Logi 7:6
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta í heild:
Meðalskor eftir 12 vikur:
8
107