Morgunblaðið - 29.11.1996, Side 1
1
■ HVERNIG LIÐUR TIMIMM I HUGA MAMMSII\IS?/2 ■ MÝJAR VÍDPIR
KYMNA LfllMD OG ÞJÓÐ/3 ■ LISTAVERK BLÁSIM í GLER/4 ■ FYRIR-
SÆTUSTÖRF HEILLA/5 ■ FJÖLSKYLDUVÆNT VINNUUMHVERFI/6 ■
GLAS
VERÐUR
TIL
EITT hundrað árum eftir Krist
var þekkt aðferð til að móta
gler með munnblæstri. Gler-
listamennirnir Sigrún Ó. Ein-
arsdóttir og Seren S. Larsen eru
einu glerblásararnir hérlendis,
en þau beita sömu aðferðum og
forverar þeirra og nota svipuð
verkfæri og tíðkuðust til forna.
Saman hafa þau unnið eins og
einn hugur og ein hönd í fjórtán
ár.
Daglegt líf sótti þau heim og
fylgdist með hvernig glas verð-
ur til. ■
Morgunblaðið/Kristinn
SIGRÚN og Soren í smiðju
sinni í Bergvík á Kjalarnesi.
Langar neglur
með litlum skartgripum
LÍTILL, og nettur skartgripur hangandi í langri
nöglinni, er nokkuð sem á kannski eftir að verða
algeng sjón á næstunni. Þetta kemur fram í máli
Gnár Guðjónsdóttur, annars eiganda naglastofunn-
ar Neglur og list á Suðurlandsbraut 52. „Margar
konur hafa verið mjög hrifnar af því að undan-
förnu að láta festa litla skartgripi í neglurnar,"
segir hún, og bætir því við að hingað til hafi hún
keypt slíkt skart frá útlöndum. „Nú höfum við
hins vegar hafið samstarf við skartgripaverslun
Jens Guðjónssonar um að framleiða litla skartgripi
í neglur,“ segir hún.
Gná segir að það geti verið mjög fallegt að
hafa skartgripi í nöglum, séu þeir nettir. „Karl-
mönnum finnst það meira að segja fallegt,“ segir
hún og heldur áfram: „Skartgripirnir eru aðallega
settir í gervineglur. Það er gert þannig
að við borum gat í gegnum nöglina með
litlum handbor og setjum hring í gegn
og síðan fallegan skartgrip á hringinn,"
segir hún.
Krossarog
annað skart
Haukur Valdimarsson gullsmiður hjá
skartgripaverslun Jens segir að þeir séu
þegar byrjaðir að hanna og framleiða silf-
urhlekki sem fara í gegnum nöglina og
agnarlitla krossa og aðra skartgripi úr
messing eða kopar.
„Þá höfum við líka verið með lítil
demantsbrot í pínulítilli gullfattningu,
sem eru límd á nöglina,“ segir hann.
Haukur segir ennfremur að þar sem þeir
séu alltaf að huga að nýrri framleiðslu í
skartgripum hafi þeir ákveðið að prófa þetta.
„Þetta er þó meira til gamans gert, frekar en að
við höldum að það sé einhver stór markaður fyrir
þetta,“ segir hann.
Gná segir að reynsluna sýna að best sé að setja
Morgunblaðið/Golli
NAGLASKRAUT er að verða æ vinsælla.
naglaskartgripinn í hlið naglarinnar. Hún hefur
sjálf prófað að ganga með slíkt naglaskraut og
segir að það sé ekki óþægilegt, því það sé svo lít-
ið. Skartgripirnir í neglurnar kosta frá 2.700 krón-
um til 3.500 króna. ■