Morgunblaðið - 29.11.1996, Page 1

Morgunblaðið - 29.11.1996, Page 1
1 ■ HVERNIG LIÐUR TIMIMM I HUGA MAMMSII\IS?/2 ■ MÝJAR VÍDPIR KYMNA LfllMD OG ÞJÓÐ/3 ■ LISTAVERK BLÁSIM í GLER/4 ■ FYRIR- SÆTUSTÖRF HEILLA/5 ■ FJÖLSKYLDUVÆNT VINNUUMHVERFI/6 ■ GLAS VERÐUR TIL EITT hundrað árum eftir Krist var þekkt aðferð til að móta gler með munnblæstri. Gler- listamennirnir Sigrún Ó. Ein- arsdóttir og Seren S. Larsen eru einu glerblásararnir hérlendis, en þau beita sömu aðferðum og forverar þeirra og nota svipuð verkfæri og tíðkuðust til forna. Saman hafa þau unnið eins og einn hugur og ein hönd í fjórtán ár. Daglegt líf sótti þau heim og fylgdist með hvernig glas verð- ur til. ■ Morgunblaðið/Kristinn SIGRÚN og Soren í smiðju sinni í Bergvík á Kjalarnesi. Langar neglur með litlum skartgripum LÍTILL, og nettur skartgripur hangandi í langri nöglinni, er nokkuð sem á kannski eftir að verða algeng sjón á næstunni. Þetta kemur fram í máli Gnár Guðjónsdóttur, annars eiganda naglastofunn- ar Neglur og list á Suðurlandsbraut 52. „Margar konur hafa verið mjög hrifnar af því að undan- förnu að láta festa litla skartgripi í neglurnar," segir hún, og bætir því við að hingað til hafi hún keypt slíkt skart frá útlöndum. „Nú höfum við hins vegar hafið samstarf við skartgripaverslun Jens Guðjónssonar um að framleiða litla skartgripi í neglur,“ segir hún. Gná segir að það geti verið mjög fallegt að hafa skartgripi í nöglum, séu þeir nettir. „Karl- mönnum finnst það meira að segja fallegt,“ segir hún og heldur áfram: „Skartgripirnir eru aðallega settir í gervineglur. Það er gert þannig að við borum gat í gegnum nöglina með litlum handbor og setjum hring í gegn og síðan fallegan skartgrip á hringinn," segir hún. Krossarog annað skart Haukur Valdimarsson gullsmiður hjá skartgripaverslun Jens segir að þeir séu þegar byrjaðir að hanna og framleiða silf- urhlekki sem fara í gegnum nöglina og agnarlitla krossa og aðra skartgripi úr messing eða kopar. „Þá höfum við líka verið með lítil demantsbrot í pínulítilli gullfattningu, sem eru límd á nöglina,“ segir hann. Haukur segir ennfremur að þar sem þeir séu alltaf að huga að nýrri framleiðslu í skartgripum hafi þeir ákveðið að prófa þetta. „Þetta er þó meira til gamans gert, frekar en að við höldum að það sé einhver stór markaður fyrir þetta,“ segir hann. Gná segir að reynsluna sýna að best sé að setja Morgunblaðið/Golli NAGLASKRAUT er að verða æ vinsælla. naglaskartgripinn í hlið naglarinnar. Hún hefur sjálf prófað að ganga með slíkt naglaskraut og segir að það sé ekki óþægilegt, því það sé svo lít- ið. Skartgripirnir í neglurnar kosta frá 2.700 krón- um til 3.500 króna. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.