Morgunblaðið - 03.12.1996, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996
BÆKUR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar bækur
• LÚÐRASVEITEllu Stínu er
eftir Elísabetu Jökulsdóttur.
„Fáir höfundar hafa náð viðlíka
valdi á hinni vand-
meðförnu list ör-
sögunnar og Elísa-
bet Jökulsdóttir,
þessu formi þar
sem er í senn sögð
sagaog spunnið
Ijóð. í sögnnni Lúð-
rasveit Ellu Stínu
má heyra glaðleg-
an lúðraþyt og ein-
manalegan blús-
tón, skerandi mishljóma og undur-
fallegan samhljóm," segir í kynn-
ingu.
Elísabet Jökulsdóttir er þekkt
fyrir ljóð sín og leikrit, en mestra
vinsælda hafa sögur hennar notið,
eins og þær birtust í Galdrabók
Ellu Stínu (1993).
Útgefandi erMál og menning.
Lúðrasveit Ellu Stínu er 88 bls.,
unnin íPrentsmiðjunni Grafík hf.
Kápuna gerði HaraldurJónsson.
Verð: 1.880 kr.
• ÞOKUGALDUR er ný ungl-
ingabók eftir Iðunni Steinsdóttur
og fléttar höfundur þar tvær sögur
saman í eina svo
úr verður bók um
ungt fólk sem fer
sínar eigin leiðir.
í Þokugaldri
segir frá Valnýju,
sem er sextán ára
9 g nýflutt heim til
íslands eftir langa
dvöl í Svíþjóð. Hún
saknar vinanna og
henni líður illa á
nýja staðnum. Það er ekki fyrr en
hún villist í þoku uppi í fjalli og
hittir Friðrik sem hlutirnir fara að
breytast.
Útgefandi erlðunn. Þokugaldur
er 154 blaðsíður, prentuð íPrentbæ
hf. Verð hennar er 1.980 krón ur.
• INDÆLA Reykjavík - Sex
gönguleiðir um gamla vesturbæ-
inn er eftir Guðjón Friðriksson
sagnfræðing og
rithöfund. Fyrsta
bókin í þessum
flokki, sem fjallar
um Þingholtin og
Skólavörðuholtið,
kom út fyrir hálfu
öðru ári.
„í þessari stór-
fróðlegu bók er
haldið áfram á
sama hátt og geng-
ið um gamla vesturbæinn í Reykja-
vík, þar sem nánast hvert hús á
sína sögu og sérkenni, sem vert er
að skoða,“ segir í kynningu.
Höfundurinn, Guðjón Friðriks-
son, er m.a. höfundur tveggja binda
af Sögu Reykjavíkur. Bókin er
prýdd miklum fjölda mynda af hús-
um og kennileitum, sem Valdimar
Sverrisson hefur tekið saman.
Indæla Reykjavík er 192 bls.,
prentuð íPrenttækni hf. Verð henn-
arer 2.980 krónur.
• HÉR Á REIKIer eftir Gunnhildi
Hrólfsdóttur.
„Þar segir af þrettán ára stelpu,
Mettu, sem lendir
upp á kant við for-
eidra sína og um-
hverfið. Hún er vist-
uð gegn vilja sínum
til sumardvalar á
afskekktu sveita-
heimili þar sem hún
kynnist annars
gömlum búskap-
arháttum. Fljótlega
verður Metta vör
við eitthvað óvenju-
legt á reiki sem enginn skynjar nema
hún. Til að bjarga fólkinu á þessum
fallega stað frá yfirvofandi hættu
sýnir hún mikinn kjark,“ segir í
kynningu.
Útgefandi erMál ogmenning. Hér
á reiki er tíunda bók Gunnhiidar
Hrólfsdóttur. Bókin er 160 bls., unn-
in í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápu
gerðu Finnur Eiríksson ogHelgiSig-
urðsson. Verð: 1.680 kr.
Gunnhildur
Hrólfsdóttir
Iðunn
Steinsdóttir
Heimurinn er
botnlaust yrkisefni
Silfur
Forðum verandi á vertíð í Eyjum
í útvarpinu allt fram á þennan dag
en ég er enn á þeirri skoðun
að það hefði ekki átt við mig
að vera að elta uppi
silfur hafsins, nei. ..
hve mjög sem það kann
að hafa glitrað
er stirndi á torfu uppvið yfirborð
ég rugga mér í stólnum
litlum bát á þurru landi:
fyrir mig er nóg í ráðist
að ætla að fiska lífið
uppúr djúpunum, allskonar fiska
allskonar furðuleg kvikindi
en mér þykja síldarárin
vissulega skáldleg -
héðan úr stólnum -
því þrátt fyrir lögin öll
greini ég þögn
í þessum orðum: síldarár
síldarkóngur, síldarstúlka
sömu þögn
og stafar frá
grotnandi verksmiðju við sjóinn
„í FYRSTA hluta
bókarinnar er ég
helst að fjalla um
það sem er í kring-
um mig hér og nú.
Annar kaflinn er
meira eins og
myndaalbúm og sá
þriðji myndaalbúm
annarra," segir Jón-
as Þorbjarnarson
um nýútkomna
ljóðabók sína, Villi-
land. Bókin er
fjórða bók skálds-
ins. „Það er afskap-
lega stutt frá mann-
inum yfir í náttúr-
una og náttúran er
því á einhvern hátt samofin öll-
um ljóðunum án þess að vera
aðal viðfangsefni þeirra," bætir
hann við. Jónas segist vinna
jafnt og þétt í ljóðagerðinni og
líkir vinnu sinni við vinnu mál-
ara sem er með margar myndir
í vinnslu á sama tíma. „Ég vinn
í ljóðunum, sting þeim svo niður
í skúffu í mánuð og Iít svo á
þau aftur. Þá finnst mér þau
kannski ómöguleg og sé af
hverju og geri eitthvað í því.
Síðan sting ég þeim kannski
aftur niður og þannnig fer
þetta oft marga hringi.“ Stíll
Jónasar er oft náskyldur tal-
máli og segir hann
það vera honum
eðlilegt að yrkja á
þann hátt. „Ég
reyni að hafa þetta
sem óþvingaðast
en oft þarf ég að
hafa býsna mikið
fyrir því. Skrif-
borðið hjá mér
þarf oft að þola
mörg högg áður en
ég verð ánægður."
Hvalir koma
endurtekið fyrir í
ljóðunum og á for-
síðu bókarinnar er
mynd af hval á
sundi. Einnig ræðir
skáldið um Jónas í hvalnum i
einu Ijóðanna en á hann ein-
göngu við þann Jónas?
„Jónas er náttúrlega fræg
persóna og ég get notað hann
með tilvísun í annan Jónas.
Ég var að hugsa um að skýra
bókina Risarnir, með tilvísun í
hvali, enda finnst mér hvalir
vera tákn fyrir eitthvað sam
maður þarf að lúta.“
Villiland er ólík síðustu bók
hans að hans eigin sögn. Hann
segir umfjöllunarefnin í ljóða-
gerð vera óþijótandi og þegar
ein bók er búin finnst honum
hann vera búinn að gera einum
milljónasta hluta af veröldinni
skil. „Mér finnst heimurinn
vera botnlaust yrkisefni og
maður þarf ekki að líta nema
millímetra til hægri eða vinstri
til að finna eitthvað nýtt.“
Jónas
Þorbjarnarson
Samræður við
„drengj abækumar“
REGNBOGI í póstinum nefnist
skáldsaga sem Gerður Kristný
hefur sent frá sér. Fjallar hún
um unga konu sem hefur nýlok-
ið stúdentsprófi en leit hennar
að sjálfri sér „spannar ýmis
grátbrosleg atvik og hugleið-
ingar hennar um lífið og tilver-
una eru í senn kunnuglegar og
frumlegar", svo sem segir á
bókarkápu.
„Mig Iangaði frá upphafi að
semja bók um unga stúlku sem
veit ekki alveg hvað hún vill í
lífinu — nokkuð sem margir
kannast við. Ég gerði hana að
dálitlum töffara, auk þess sem
ég var alltaf ákveðin í að bókin
yrði samræður við
„drengjabækurnar", sem ég
hélt mikið uppá og losnaði ekki
svo auðveldlega við þegar ég
fór sjálf að skrifa," segir Gerð-
ur Kristný en menn á borð við
Halldór Laxness og Pétur
Gunnarsson setja svip sinn á
Regnboga í póstinum.
En úr hveiju skyldi söguhetj-
an vera sprottin, er hún kannski
þessi „dæmigerða íslenska
stúlka“? „Hún gæti vel verið
það,“ segir Gerður Kristný.
„Margt ungt fólk fer út í lönd
eftir stúdentspróf og þar getur
það lent í ýmsu.“
En skyldi höfundur hafa haft
hliðsjón af eigin reynslu við
skrifin? „Ég ræni sumu frá
sjálfri mér, það er til að mynda
ekki laust við að ég hafi komið
við í París og Kaupmannahöfn
eins og söguhetjan. Þegar öllu
er á botninn hvolft tekur maður
alltaf eitthvað frá sjálfum sér.“
Regnbogi í póstinum er
fyrsta skáldsaga Gerðar
Kristnýjar. Segir hún jarðveg-
inn fyrir unga rithöfunda á ís-
landi vera góðan, svo sem þau
Kristján B. Jónasson og Andri
Snær Magnason hafi komist að
raun um á ferðum sínum um
landið undanfarna daga. „Fólk
er spennt fyrir einhveiju nýju.
Það er langt síðan nýir rithöf-
undar af yngri kynslóðinni hafa
látið að sér kveða
og fjarskalega
langt síðan kven-
maður hefur komið
fram á sjónarsvið-
ið.“
Er Gerður
Kristný því
reiðubúin að halda
uppi merkinu á
komandi árum?
„Já, andskotakorn-
ið!“
IHUGA móður
minnar hef ég
lítið elst frá því
ég var tíu ára.
Hún minnist aldrei á hvað ég var
sniðug þegar ég litaði hárið á mér
með grænu skoii í áttunda bekk.
Ég hafði lesið bók þar sem brá
fyrir konu með grænt hár og mér
fannst það hljóta að fara mér
vel. Henni fannst það ekki neitt
sniðugt heldur þegar ég bað hana
litlu síðar um að benda mér á ein-
hvern góðan kvensjúkdómalækni
því mig langaði til að fara á pill-
una og sýndi þar með undraverða
ábyrgðarkennd þrátt fyrir ungan
aldur.
„Viltu ekki bíða aðeins áður en
þú byijar á því?“ spurði manna.
„Eftir hverju?"
Gerður
Kristný
Hún velti svarinu
eilítið fyrir sér.
„Ja, sagði hún
svo, „til dæmis eftir
að liturinn hverfi úr
hárinu á þér. Ekki
geturðu farið
svona.“
„Ég litaði nú bara
hárið á höfðinu á
mér grænt. Læknin-
um kemur það ekk-
ert við.“
Svo sendi mamma
mig til elsta kven-
sjúkdómalæknisins
sem hún fann í
Læknatalinu. Henni
hefur eflaust þótt
vissara að senda mig í hendurnar
á gæðalegum, eldri manni heldur
en á einhveijum ungum og nýút-
skrifuðum lækni.
Mér fannst læknirinn sem bað
mig um „að tyila mér upp á bekk-
inn“ svo hrumur að mér hefði
ekki kokið á óvart þótt stærð lóð-
arinnar sem hann fékk undir
læknastofuna hefði ráðist af því
hversu stórt svæði hann gæti far-
ið um með eld á einum degi. Samt
treysti ég honum fyrir því að koma
í veg fyrir að ég þyrfti að láta
ferma hjá mér fyrir þrítugsaldur-
inn.
Ur Regnboga í póstinum.
María, María
BJARNI Bjarnason sendi ný-
lega frá sér skáldsöguna Endur-
koma Maríu. Hún fjallar um Mar-
íu mey í samfélagi nútímans,
væntingar hennar til lífsins og
áhrif hennar á samferðamenn
sína. Hvernig vaknaði hugmyndin
að Endurkomu Maríu?
„ Verkið er svar við óhugnað-
arsögum eins ogDracuIa ogFran-
kenstein þarsem óhugnanlegur
persónur eru settar í normalt þjóð-
félag" segir Bjami og kimir. „Mér
þóttigaman að setja persónu sem
er tákn fyrir guðhræðslu, trúar-
traust, hreinleika oglieilbrigði í
nútímaþjóðfélag. Þetta er vanga-
velta um hvað myndigerast ef
María kæmi aftur, hvemig persóna
hún værí. Hún bjó í allt öðmvísi
þjóðfélagi á sínum tíma þar sem
konur höfðu ekki mikinn rétt og
gátu lítið valið. Ég er líka að skoða
kvenpersónu sem frelsara. Frels-
arar em oftast karlmenn, Búdda,
Múhumeð og Jesú. Það er oft talað
um að karleðlið sé úthverft ogaggr-
esíft en kveneðlið meira passíft og
innhverft Meðan Jesú spreðaði
kraftaverkum I kringum sig eins
og töframaður á sviði
þá gerast kraftaverkin
meira á Maríu, eða
undrin. “
Er verkið trúarlegs
eðlis?
„Ég er ekki vantrú-
aðurá trú eða trúaður
á vantrú. Fólk þarf
ekkiað hafa lesið Bibl-
íuna eða vera trúað til
þess að njóta verksins.
Það em margar skir-
skotanir í Biblíuna,
nöfn ogatburðiren
lesandi þarf ekkiað
þekkja til. Verkið er
ekki beinlínis trúarlegs eðlis en það
fer eftir þvíh vemig lesandinn sér
það. Það tjallar samt
íaðra röndina um leit
að einhverju að trúa
á. Égreyndiað byggja
verkið þannig upp að
allir eiga að geta haft
gaman af. Þeirsem
vilja kafa dýpra geta
farið útíkristna tákn-
fræði ogalmenna
táknfræði. Verkiðer
skrifað bæði fyrir vit-
undina og undirvit-
undina. “
Ástin erstórþáttur
í lífi Maríu en það er
erfitt að nálgast hana.
Hvað um ástina í verkinu?
„í öllum ástarsamböndum eru
Bjarni
Bjarnason