Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 1

Morgunblaðið - 05.12.1996, Side 1
 BLAÐ ALLR A__L A N D S M A N N A 1996 ■ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER BLAÐ HANDKNATTLEIKUR Morgunblaðið/Golli Stefán og Rögn- vald dæma á EM STEFÁN Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson eru meðal dómara sem dæma í Evrópukeppni kvenna- landsliða, sem hefst í Danmörku á morgun og stendur til 15. desember. Leikið verður í Bröndby, Vejle, Fredericia og Heming. Þjóðimar, sem taka þátt í keppninni, em: Danmörk, Ungveijaland, Króatía, Sviþjóð, Austurríki og Pólland, sem leika í A-riðli, í B-riðli leika Þýskaland, Rússland, Noregur, Rúmenía, Litháen og Úkraína. Koffín fellir ítalskan leikmann ÍTALSKI knattspyrnumaðurinn Cristiano Gagl- iarducci þjá 3. deildar liðinu Frosinone féll á lyfjaprófi eftir að sýni sem tekið var hjá honum eftir leik á dögunum reyndist innihalda koffín. Annað sýni frá leikmanninum staðfesti þetta einnig og nú stefnir í að hann verði settur í leikbann fyrir vikið. Koffín er náttúrulegt efni sem finnst m.a. í kaffi, te og kóladrykkjum og hefur örvandi áhrif. Áf þeim sökum er það á lista yfir ólögleg lyf. Þetta mál Gagliarducci er líkt máli lítt þekktr- ar þýskrar frjálsíþróttakonu sem féll á lyfja- prófi í fyrra eftir að hafa drukkið tvo kaffi- bolla. Eftir ítarlega athugun var hún hreinsuð af ásökunum um lyfjamisnotkun. Þýskafrjáls- íþróttasambandið sendi hins vegar frá sér yfir- lýsingu í haust þar sem það fór fram á að þýskt frjálsíþróttafólk drekki hvorki kaffi né te frá þvi að keppni byijar og fram yfír lyljapróf. Það er þvi að mörgu að hyggja er íþróttamenn veþ'a sér drykki og vilja fara að reglum. Mikill hagnaður af þáttasölu í sjónvarpi MANCHESTER United og Newcastle gætu hagnast um allt að 50 milljónir punda (um 5,6 milljarða kr.) á ári vegna þáttasölu i sjónvarpi (e. pay per view), samkvæmt breskri könnun. Tvær viðureignir í boxi hafa verið seldar með þessum hætti á Bretlandi og gaf salan góða raun en talið er að mun auðveldara sé að selja beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum á þennan hátt. Stuðningsmenn félaga eins og þess- ara fyrmefndu eiga oft í erfíðleikum með að komast á heimaleiki þeirra vegna þess að ekki er hlaupið að því að fá miða auk þess sem bú- seta fjarri borgunum setur gjarnan strik í reikn- inginn. Til þessa hafa áhugaverðir leikir gjaman verið sýndir í beinni útsendingu sjónvarpa og hafa félögin notið góðs af því en þáttasalan er talin gefa þeim enn meira i aðra hönd. Afturelding er með sex stiga forskot AFTURELDING vann FH 28:25 í Hafnarfirði í gærkvöldi og er með sex stiga forskot í 1. deild karla. Óvæntustu úrslitin urðu í Eyjum þar sem heimamenn unnu KA 34:23 og þar með skaust ÍBV í annað sætið. HK vann Stjörnuna 27:23, Selfoss hafði Gróttu 23:22 og Haukar unnu Fram 26:21. Á myndinni gerir Jón Freyr Egilsson i Haukum eitt af fjórum mörkum sínum. Reynir Þór Reynisson kemur engum vörnum við og samherji hans, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, fylgist örvænt- ingarfullur með. ■ Lalkimlr/C2 SKIÐI Kristinn er kominn með 16 FlS-stig á heimslistanum Kristinn Bjömsson frá Ólafsfirði heldur áfram að bæta sig í skíðabrekkunum. Hann keppti á alþjóðlegu svigmóti í Dombaas í Noregi sl. sunnudag og sigraði. Hann fékk fyrir árangur sinn 19,45 styrkleikastig (FlS-stig) og með þessum árangri er hann kominn með 16 FlS-stig á heimslistanum í svigi, en meðaltal tveggja bestu mótanna telst með á þeim lista. Fyrir tveimur árum náði Kristinn 11 FlS-stigum í risasvigi og var þá númer 42 á heimslistanum. Svigið hefur verið talin mun erfið- ari grein, þ.e.a.s. að fá færri FIS- stig auk þess sem miklu fleiri keppa í svigi en risasvigi. Árangur Krist- ins í sviginu ætti því að gefa honum sæti á meðal 100 bestu í þeirri grein. Heimslistinn kemur út á tveggja mánaða fresti og verður forvitnilegt að sjá hvar hann stend- ur á næsta lista sem kemur út um áramótin. Fyrir tímabilið var Kristinn með 22 FlS-stig í svigi þannig að hann hefur bætt sig um 7 FlS-stig sem verður að teljast gott, sérstaklega með tilliti til þess að hann sleit hásin daginn fyrir keppni á heims- meistaramótinu í Sierra Nevada I febrúar á þessu ári. Arnór Gunnarsson keppti einnig KRISTINN BJörnsson á sama móti og Kristinn, en féll úr keppni í fyrri umferð. Brynja Þorsteinsdóttir frá Akureyri og Sigríður Þorláksdóttir frá Isafirði kepptu í svigi í Dombaas á mánu- dag. Brynja lenti í 15. sæti og Sigríður í 16. sæti. Þær bættu báðar fyrri árangur sinn á FlS-list- anum. Stærsta mót vetrarins er heims- meistaramótið í Sestriere á Ítalíu í febrúar. Ekki er mikið um snjó hér á íslandi ennþá og þvi hafa skíðamenn ekki getað æft mikið hér heima, en þó hefur verið opið á skíðasvæðunum á Daivík og á Ólafsfirði undanfarnar vikur. KNATTSPYRNA: MANCHESTER UNITED AFRAM EN AC MILAN UR LEIK / C4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.