Morgunblaðið - 05.12.1996, Page 1
BLAÐ ALLR A__L A N D S M A N N A
1996
■ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER
BLAÐ
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Golli
Stefán og Rögn-
vald dæma á EM
STEFÁN Arnaldsson og Rögnvald Erlingsson eru
meðal dómara sem dæma í Evrópukeppni kvenna-
landsliða, sem hefst í Danmörku á morgun og
stendur til 15. desember. Leikið verður í Bröndby,
Vejle, Fredericia og Heming. Þjóðimar, sem taka
þátt í keppninni, em: Danmörk, Ungveijaland,
Króatía, Sviþjóð, Austurríki og Pólland, sem leika
í A-riðli, í B-riðli leika Þýskaland, Rússland,
Noregur, Rúmenía, Litháen og Úkraína.
Koffín fellir
ítalskan leikmann
ÍTALSKI knattspyrnumaðurinn Cristiano Gagl-
iarducci þjá 3. deildar liðinu Frosinone féll á
lyfjaprófi eftir að sýni sem tekið var hjá honum
eftir leik á dögunum reyndist innihalda koffín.
Annað sýni frá leikmanninum staðfesti þetta
einnig og nú stefnir í að hann verði settur í
leikbann fyrir vikið. Koffín er náttúrulegt efni
sem finnst m.a. í kaffi, te og kóladrykkjum og
hefur örvandi áhrif. Áf þeim sökum er það á
lista yfir ólögleg lyf.
Þetta mál Gagliarducci er líkt máli lítt þekktr-
ar þýskrar frjálsíþróttakonu sem féll á lyfja-
prófi í fyrra eftir að hafa drukkið tvo kaffi-
bolla. Eftir ítarlega athugun var hún hreinsuð
af ásökunum um lyfjamisnotkun. Þýskafrjáls-
íþróttasambandið sendi hins vegar frá sér yfir-
lýsingu í haust þar sem það fór fram á að þýskt
frjálsíþróttafólk drekki hvorki kaffi né te frá
þvi að keppni byijar og fram yfír lyljapróf. Það
er þvi að mörgu að hyggja er íþróttamenn veþ'a
sér drykki og vilja fara að reglum.
Mikill hagnaður
af þáttasölu í
sjónvarpi
MANCHESTER United og Newcastle gætu
hagnast um allt að 50 milljónir punda (um 5,6
milljarða kr.) á ári vegna þáttasölu i sjónvarpi
(e. pay per view), samkvæmt breskri könnun.
Tvær viðureignir í boxi hafa verið seldar með
þessum hætti á Bretlandi og gaf salan góða
raun en talið er að mun auðveldara sé að selja
beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum á
þennan hátt. Stuðningsmenn félaga eins og þess-
ara fyrmefndu eiga oft í erfíðleikum með að
komast á heimaleiki þeirra vegna þess að ekki
er hlaupið að því að fá miða auk þess sem bú-
seta fjarri borgunum setur gjarnan strik í reikn-
inginn. Til þessa hafa áhugaverðir leikir gjaman
verið sýndir í beinni útsendingu sjónvarpa og
hafa félögin notið góðs af því en þáttasalan er
talin gefa þeim enn meira i aðra hönd.
Afturelding
er með sex
stiga forskot
AFTURELDING vann FH 28:25
í Hafnarfirði í gærkvöldi og er
með sex stiga forskot í 1. deild
karla. Óvæntustu úrslitin urðu
í Eyjum þar sem heimamenn
unnu KA 34:23 og þar með
skaust ÍBV í annað sætið. HK
vann Stjörnuna 27:23, Selfoss
hafði Gróttu 23:22 og Haukar
unnu Fram 26:21. Á myndinni
gerir Jón Freyr Egilsson i
Haukum eitt af fjórum mörkum
sínum. Reynir Þór Reynisson
kemur engum vörnum við og
samherji hans, Sigurpáll Árni
Aðalsteinsson, fylgist örvænt-
ingarfullur með.
■ Lalkimlr/C2
SKIÐI
Kristinn er kominn með 16
FlS-stig á heimslistanum
Kristinn Bjömsson frá Ólafsfirði
heldur áfram að bæta sig í
skíðabrekkunum. Hann keppti á
alþjóðlegu svigmóti í Dombaas í
Noregi sl. sunnudag og sigraði.
Hann fékk fyrir árangur sinn 19,45
styrkleikastig (FlS-stig) og með
þessum árangri er hann kominn
með 16 FlS-stig á heimslistanum
í svigi, en meðaltal tveggja bestu
mótanna telst með á þeim lista.
Fyrir tveimur árum náði Kristinn
11 FlS-stigum í risasvigi og var
þá númer 42 á heimslistanum.
Svigið hefur verið talin mun erfið-
ari grein, þ.e.a.s. að fá færri FIS-
stig auk þess sem miklu fleiri keppa
í svigi en risasvigi. Árangur Krist-
ins í sviginu ætti því að gefa honum
sæti á meðal 100 bestu í þeirri
grein. Heimslistinn kemur út á
tveggja mánaða fresti og verður
forvitnilegt að sjá hvar hann stend-
ur á næsta lista sem kemur út um
áramótin.
Fyrir tímabilið var Kristinn með
22 FlS-stig í svigi þannig að hann
hefur bætt sig um 7 FlS-stig sem
verður að teljast gott, sérstaklega
með tilliti til þess að hann sleit
hásin daginn fyrir keppni á heims-
meistaramótinu í Sierra Nevada I
febrúar á þessu ári.
Arnór Gunnarsson keppti einnig
KRISTINN BJörnsson
á sama móti og Kristinn, en féll
úr keppni í fyrri umferð. Brynja
Þorsteinsdóttir frá Akureyri og
Sigríður Þorláksdóttir frá Isafirði
kepptu í svigi í Dombaas á mánu-
dag. Brynja lenti í 15. sæti og
Sigríður í 16. sæti. Þær bættu
báðar fyrri árangur sinn á FlS-list-
anum.
Stærsta mót vetrarins er heims-
meistaramótið í Sestriere á Ítalíu
í febrúar. Ekki er mikið um snjó
hér á íslandi ennþá og þvi hafa
skíðamenn ekki getað æft mikið
hér heima, en þó hefur verið opið
á skíðasvæðunum á Daivík og á
Ólafsfirði undanfarnar vikur.
KNATTSPYRNA: MANCHESTER UNITED AFRAM EN AC MILAN UR LEIK / C4