Morgunblaðið - 08.12.1996, Side 1
Ljósadýrð í
Disneylandi
ÞAÐ er ómaksins virði að koma við í
Disneylandi í Los Angeles, ef maður er á
ferð í nágrenninu á annað borð. Og þegar
þangað er komið er ómögulegt annað en
bíða fram undir lokun til þess að fylgjast
með skrúðgöngunni.
Fljótlega uppúr klukkan 19 fer fólk að
raða sér við aðalgötu „bæjarins“ til að
hafa sem besta yfirsýn yfir skrúðgönguna
sem hefst klukkan 20. Fullkominn endir
á góðum degi í Disneylandi.
Morgunblaðið/Hanna Katrín
fMtfguabfafrife
SUNNUDAGUR 8. DESEMBER 1996 BLAÐ C
Fleiri ármótasæti
til Berlínar
ÚRVAL/Útsýn hefur bætt við sætum í ára-
mótaferð ferðaskrifstofunnar til Berlínar, 28.
desember til 1. janúar. Um er að ræða beint
leiguflug og í upphafi voru í boði 40 sæti. Að
sögn Guðrúnar Sigurgeirsdóttur, hjá Úrval-
Útsýn hefur sætum nú verið fjölgað í eitt hundr-
að vegna mikillareftirspurnar.
Verð á mann í tvíbýli er 29.900 kr., auka-
gjald fyrir einbýli er 4.900. Innifalið er flug
og flugvallarskattur, akstur til og frá hóteli,
gisting með morgunverði og íslensk farar-
stjórn. í boði verður síðan m.a. skoðunarferð
um helstu merkisstaði Berlínar, gönguferð um
austurhluta borgarinnar og áramótafagnaður
með kvöldverði, dansi og lifandi tónlist. ■
Úrval/Útsýn komið með einkaumboð fyrir fimm stjörnu skemmtisiglingar í Karíbahafi
Lúxussiglingar eiga upp á
pallborðið hjá landanum
FERÐASKRIFSTOFAN Urval/Utsýn fékk ný-
lega einkaumboð á íslandi fyrir skipafélagið
Celebrity Cruises, sem sérhæft er í 5-stjörnu
lúxussiglingum um Karíbahaf. Jómfrúarferð
nýasta skemmtiferðaskipsins, Galaxy, eins af
sex í flota félagsins, verður 21. desember og
verða farþegar Úrvals/Útsýnar meðal þeirra
1870 farþega, sem fagna jólunum um borð.
Lagt verður upp frá Ft. Lauderdale í Flórída
til Key West, Playa del Carmen, Cozumel, Jama-
ica og Grand Cayman. Að sögn Lilju Jónsdótt-
ur, sölumanns, hafa skemmtisiglingar átt aukn-
um vinsældum að fagna meðal iandans sem og
annarra þjóða undanfarin ár. „Nýjungagirnin
ræður mestu auk þess sem æ fleiri geta veitt
sér slíkan munað vegna lækkandi verðs í kjöl-
far fjölgunar í skemmtiferðaskipaflotanum. Við
náðum hagstæðum samningum og getum nú
boðið Karíbahafssiglingar í 5-stjömu gæða-
flokki á einstöku verði,“ segir Lilja.
Miðað við tvo í klefa kostar vikusigling í
janúar frá tæpum 115 þús. kr. á mann. Okeyp-
is um borð fyrir börn innan 12 ára, ef gist er
í sama klefa og foreldrar. Innifalið er flug til
og frá Flórída, gisting eina nótt í Ft. Lauder-
dale, skattar og gjöld og allt um borð nema
GALAXY, nýjasta skrautfjöður Celebrity Cruises fer í jómfrúarferðina 21. desember.
drykkir og þjórfé. Lilja segir jómfrúarferðina nöfnum tjáir að nefna; leikhús, bókasafn, bíó,
nokkuð dýrari, enda sé meira við haft, en ella spilavíti, sundlaugar, heilsuræktarstöðvar svo
umjólin. „Hjá Celebrity Cruises er glæsileikinn fátt sé nefnt. Eftirspurn hefur verið meiri en
í fyrirrúmi og hefur félagið fengið fjölda verð- við áttum von á. Við erum t.d. þegar búin að
launa fyrir matreiðslu. í skipunum er allt sem selja í ellefu af fimmtán klefum í páskaferðBa."
FERÐA-
ÞJÓNUSTA
ÁALIMETINU
NÝLEGAR kannanir sýna að 79% þeirra
sem hafa aðgang að alnetinu telja upplýs-
ingar sem þar er að finna um ferðaþjón-
ustu, mjög mikilvægar þegar frí og ferða-
lög eru skipulögð. Jafnframt hefur kom-
ið fram að 71% aðila í ferðaþjónustu sem
kynna starfsemi sína á alnetinu, hafa
fengið viðskipti út á þá kynningu.
Ofangreint kemur fram í frétt frá Is-
lensku Internetþjónustunni sem rekur
Islandsgáttina á alnetinu. Undir hatti
gáttarinnar er Iceland Travel Net þar
sem íslensk ferðaþjónusta er kynnt á
erlendum vettvangi. Slóðin er
http://www.arctic.is.
Iceland Travel Net fær yfir tvær miiy-
ónir heimsókna á ári, eða að jafnaði um
sex þúsund á dag, víðsvegar að úr heimin-
um. í frétt íslensku Internetþjónustunnar
segir að stærstu aðilar í íslenskri ferða-
þjónustu séu með heimasíður á Icaland
Travel Net ásamt Ferðamálaráði íslands.
„Iceland Travel Net er vel þekkt á öllum
helstu leitarvélum á netinu, auk þess að
vera tengt við fjölda annarra ferðavefa.
Við leggjum áherslu á að það er ekki nóg
fyrir aðila í ferðaþjónustu að vera með
eigin heimasíðu á netinu, heldur skiptir
máli að vera rétt tengdur, þannig að þeir
sem leiti að upplýsingum, finni þær.“ ■
5 6 2 443 3
Öryggi - Þjónusta
AVIS bílaleigan
Sóltúni 5 Reykjavík