Morgunblaðið - 10.12.1996, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR10. DESEMBER1996 C 3
ÍÞRÓTTIR
HANDKNATTLEIKUR
IBV
mætti
ekki
Eyjamenn mættu ekki til leiks
gegn HK í fyrstu deildinni í
handknattleik í gærkvöldi. Leikur-
inn átti að hefjast klukkan 20 og
í gærdag var flogið til Eyja en ekki
síðari hluta dags. Leiknum var
frestað á sunnudaginn vegna
ófærðar en í gærkvöldi létu Eyja-
menn ekki vita að þeir kæmust
ekki og þeir Gísli Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson, dómarar,
flautuðu til leiks og Hinrik Magnús-
son skoraði fyrir HK, en hann er
yngsti leikmaður liðsins. Taflan á
C6 er miðuð við að HK vinni 3:0.
Urslitin á
ísafirði
standa
DÓMSTÓLL Körfuknattleiks-
sambandsins kom saman i
gær og var fyrir tekið mál
körfuknattleiksdeildar
UMFG gegn körfuknattleiks-
deild KFÍ vegna dóms héraðs-
dómsstóls ÍBI um að Dag-
bjartur Willardsson hafí verið
ólöglegur með UMFG er lið
félaganna mættust í úrvals-
deildinni á ísafirði þann 1.
nóvember. Dómsorð dómstóls
KKÍ eru að dómur sá er áfrýj-
að var sé felldur úr gildi og
úrslit ieiksins skuli standa.
Forsaga málsins er að
Grindvíkingar komust ekki
með allt lið sitt til ísafjarðar
og því varð liðsstjóri þeirra,
Dagbjartur Willardsson, að
leika með. Grindvíkingar
sigruðu en ísfirðingar kærðu,
sögðu Dagbjart hafa verið
félagsbundinn körfuknatt-
leiksliði Golfklúbbs Grinda-
víkur og hefði hann leikið
með félaginu. Héraðsdómstóll
ÍBÍ dæmdi ísfírðingum sigur
í leiknum en nú hefur dóm-
stóll KKÍ fellt þann dóm úr
gildi.
DómstóIIinn kemst að
þeirri niðurstöðu að einhver
úr GG hafi á sínum tima und-
irritað félagaskipti fyrir Dag-
bjart, að honum forspurðum,
og því séu þau félagaskipti
ekki gUd og leikmaðurinn þvi
verið löglegur með Grindvík-
ingum. I dómstóli KKÍ sátu
Gísli Gíslason, Helgi I. Jóns-
son og Ágúst Jóhannesson.
KR mætir
Njarðvík
STÓRLEIKUR 8-Uða úrslit-
anna í bikarkeppninni í körfu-
knattleik verður viðureign
KR-inga og Njarðvikinga á
Seltjarnarnesi, en dregið var
sl. sunnudag. Selfyssingar fá
íslandsmeistara Grindavíkur
í heimsókn, Skallagrímur
sækir KFÍ heim til Isafjarðar
og ÍR og Keflavík leika í
Seh'askóla.
18-liða úrslitum kvenna
leika: Keflavík-Grindavík, ÍS-
ÍR, Njarðvík-Skallagrímur og
ÍR-KFÍ.
Leikirnir eiga að fara fram
á fimmtudag og föstudag.
Haukamir of sterkir
fyrir nágranna sína
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Það er alltaf gaman þegar ná-
grannaliðin í Hafnarfírði,
Haukar og FH, eigast við í hand-
knattleiknum og
leikurinn í gær var
engin undantekning
þar á. Haukar voru
reyndar talsvert
sterkari og 28:24 sigur þeirra var
síst of stór. Engu að síður var gam-
an því bæði lið börðust eins og þau
gera best og harðast enda vill hvor-
ugt liðið tapa fyrir hinu. Sem dæmi
má nefna að þrátt fyrir tapaðan
leik tóku FH-ingar á öllu sem þeir
áttu á lokakaflanum, gerðu tvö síð-
ustu mörkin og Hálfdán Þórðarson
fékk að líta rauða spjaldið þegar
tvö sekúndubrot voru eftir, hans
þriðja brottvísun. Sem sagt ekkert
gefíð eftir í Hafnarfírði.
Haukar skutust í annað sætið í
deiidinni með sigrinum í gærkvöldi
og eru sjálfsagt ánægðir með það
þó svo þeir vildu örugglega vera
nær Aftureldingu en raun ber vitni.
Byijunin hjá þeim rauðklæddu lof-
aði góðu og allt stefndi í öruggan
sigur þeirra því fyrstu fjögur mörk-
in voru gerð í FH-markið. En hvít-
klæddir leikmenn FH gáfust ekki
upp, þéttu vörnina með þeim ár-
angri að í næstu sextán sóknum
Hauka tókst aðeins að gera þijú
mörk. Sókn FH varð grimmari og
þeir nýttu sér að Haukar breyttu
um stund um varnaraðferð, fóru
úr ágætri flatri vörn yfir í að láta
einn leikmann vera örlítið fyrir
framan. Þetta hentaði FH-ingum
greinilega betur því þeir komust í
9:7 áður en Haukar fóru á ný í flata
vörn og gerðu fjögur síðustu mörk-
in fyrir hlé, höfðu 11:9 yfir í leikhléi.
Sex fyrstu sóknir Hauka eftir
hlé gáfu mark á meðan FH skoraði
í fyrstu tveimur og misnotaði síðan
næstu sex. Staðan orðin 17:11 og
tókst FH aldrei að brúa það bil
þrátt fyrir mikla baráttu. Undir lok
leiksins var mönnum orðið heitt í
hamsi og hefðu annars ágætir dóm-
arar leiksins hæglega getað fækkað
eitthvað í báðum liðum með því að
vísa mönnum útaf. Þeir kusu hins
vegar að leyfa mönnum að takast á.
Haukar gerðu eina breytingu á
venjulegu byijunarliði sínu. Magnús
Sigmundsson byijaði í markinu, en
hann er fyrrum FH-ingur og hefur
sjálfsagt langað óskaplega mikið til
að leika gegn fyrrum félögum sín-
um. Magnús stóð sig vel, byijaði á
að veija vítakast og var FH-ingum
erfiður. Það er langt síðan Bjarni
Frostason hefur ekki komið við
sögu í leik með Haukum nema síð-
ustu fjórar mínútumar.
Annað sem vekur undrun hjá
Haukum er að Aron skuli leika
meira og minna á línunni. Hann
stóð sig reyndar vel en maður er
ekki vanur að sjá aðalleikstjórnanda
liðsins á línunni. Við hlutverki hans
tók Þorvarður Tjörvi Ólafsson og
átti fínan leik eins og þeir Rúnar
og Baumruk, sem lék sinn 200. leik
fyrir Hauka. Hann leysir skyttu-
hlutverkið hægra megin vel af
hendi. Einar Gunnarsson átti einnig
ágætan leik, bæði í vöm og sókn
og Gústaf nýtti sín færi vel.
Hjá FH voru þeir Sigutjón og
Sigurgeir sterkir í vörninni, stund-
um nokkuð harðhentir en traustir.
Lee varði vel á köflum og í sókn-
inni var Hálfdán sterkur, raunar
einnig í vörn, og Gunnar þjálfari lék
ágætlega. Guðmundur byijaði vel
en hvarf síðan og Guðjón lét ekkert
að sér kveða fyrr en undir lok leiks-
ins að hann gerði þijú mörk.
KNATTSPYRNA
West
Ham
jafnaði
Newcastle varð að sætta sig við
markalaust jafntefli gegn bar-
áttuglöðu liði Nottingham Forest í
gærkvöldi og var þetta fyrsta
markalausa jafntefli Newcastle í síð-
ustu 74 leikjum. Þar með fóru vonir
Newcastle um að komast í annað
sætið á eftir Arsenal út um þúfur.
Newcastle tókst ekki að skora í gær
þrátt fyrir að vera með þá Sherer
og Ferdinand í framlínunni en tals-
vert er síðan þeir hafa náð að leika
saman. David Batty var ekki með
þar sem hann var í banni og Asp-
rilla er meiddur.
Meistarar Manchester United
voru 2:0 yfir þegar 13 mínútur voru
til leiksloka á Upton Park en West
Ham gerði tvö mörk á tveimur mín-
útum og þar við sat.
Gestirnir náðu undirtökunum í
seinni hálfleik og fyrirliðinn Eric
Cantona átti hlut að máli í báðum
mörkunum. Fyrst gaf hann á Ole
Gunnar Solskjær, sem gerði fyrsta
mark sitt á útivelli, og síðan hóf
hann sókn sem lauk með marki frá
David Beckham stundarfjórðungi
fyrir leikslok.
En heimamenn gáfust ekki upp.
Varamaðurinn Florin Raducioiu frá
Rúmeníu minnkaði muninn eftir að
hafa losað sig við norska varnar-
manninn Ronnie Johnsen, fyrsta
mark hans í deildinni. Skömmu síðar
braut Peter Schmeichel á Michael
Hughes, vítaspyrna dæmd og Julian
Dicks skoraði.
Frakkinn Patrick Vieira tryggði
Arsenal 2:2 jafntefli við Derby þegar
hann gerði glæsilegt mark á síðustu
stundu við mikinn fögnuð áhorfenda
á Highbury í London. Fyrirliðinn
Tony Adams skallaði í net gestanna
á síðustu mínútu fyrri hálfleiks en
Dean Sturridge og Darryl Powell
svöruðu með góðum mörkum um
miðjan seinni hálfleik. Heimamenn
sóttu stíft síðustu mínúturnar og
uppskáru eins og til var sáð en tæp-
ara mátti það vart standa.
Sheffield Wednesday varð fyrst
Reuter
DAVID Glnola og Dean Saunders berjast um knöttinn í lelk Forest og Newcastle í gœrkvöldl.
til að sigra á Anfield á tímabilinu
en liðið vann Liverpool 1:0 og gerði
Guy Whittingham markið um miðjan
fyrri hálfleik. Heimamenn voru langt
frá sínu besta en gestirnir komu til
að sigra og létu verkin tala.
Wimbledon vann 3:1 í Sunderland
og hefur leikið 18 leiki í deild og
bikar í röð án taps. Efan Ekoku
gerði tvö mörk í fyrri hálfleik og
Dean Holdsworth innsiglaði sigurinn
undir lokin en Melville minnkaði
muninn skömmu áður.
„Strákarnir koma mér á óvart í
hverri viku með þessari ótrúlegu trú
á að þeir verði að standa sig,“ sagði
Joe Kinnear, framkvæmdastjóri
Wimbledon. „Við erum hreyknir af
árangrinum og leggjum áherslu á
að halda áfram á sömu braut því
við heyrum stöðugt að komið sé að
tapi. Þetta er sterkasta lið sem ég
hef haft hér í sjö ár og ef við verðum
í sömu stöðu þegar sex eða sjö leik-
ir verða eftir hef ég þá trú að erfið-
ast verði að sigra okkur.“
ítalinn Gianfranco Zola opnaði
markareikning sinn hjá Chelsea þeg-
ar liðið gerði 2:2 jafntefli við Ever-
ton. Zola skoraði úr aukaspyrnu
snemma leiks en Michael Branch og
Andrei Kanchelskis svöruðu með
tveimur mörkum fyrir hlé. Gianluca
Vialli jafnaði þegar 10 mínútur voru
liðnar af seinni hálfleik.
„Við náðum ekki að gera út um
leikinn og það kom okkur á óvart,“
sagði Ruud Gullit, knattspyrnustjóri
og leikmaður Chelsea, sem fékk
sjálfur tvö góð marktækifæri auk
þess sem Vialli og Zola áttu skot í
slá. „Þetta er ótrúlegt en nákvæm-
lega sama gerðist í leiknum við
Newcastle fyrir hálfum mánuði og
þarna höfum við látið fjögur stig
fara frá okkur. Liðið gerði allt rétt
en mönnum var fyrirmunað að
skora. Ég er sérstaklega ánægður
með frammistöðuna í seinni hálfleik
og sjá mátti af viðbrögðum áhorf-
enda að þeir kunnu að meta leik
okkar.“
Viaili tognaði á lærvöðva og verð-
ur frá næstu daga en Roberto Di
Matteo var ekki í byrjunarliði heima-
manna.
Steffen Iversen frá Noregi var í
byijunarliði Tottenham í fyrsta sinn
og fagnaði 2:1 sigri í Coventry.
Teddy Sherringham og Andy Sinton
skoruðu fyrir gestina en Whelan
gerði mark heimamanna.
■ Úrslit / C6
■ Staðan / C6