Morgunblaðið - 21.12.1996, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
• ft $
LOKAÞÁTTUR jóladagatals
Sjónvarpsins verður sýndur á
aðfangadag klukkan 11.45 og
aftur laust fyrir klukkan fjögur.
r 1
AD MORGNI aðfangadags er á dagskrá
teiknimynd um dverginn Davfð, sem verður
að finna gull dvergakonungsins og tryggja
að það lendi ekki í tröllahöndum.
Morgimblaðiö/Stefán Karlsson
SÖGUHETJAN f barnamyndinni Músinní
Mörtu, sem Sjónvarpið sýnir annan jóla-
dag, er send í sveit vegna óþekktar.
Magnús Ólafsson, Ragnhildur Rúriks-
dóttir með „litlu systur“, Jón Bjarni Guð-
mundsson, Sigurveig Jónsdóttir og Rfk-
harður Ásgeirsson f hlutverkum sfnum.
Tröllastelpa,
Pappírs-Pési
og Marta mús
BARNAEFNI í jóladagskrá
Sjónvarpsins hefst strax á að-
fangadagsmorgni með morg-
unsjónvarpi bamanna en þar
kynnir Rannveig Jóhanns-
dóttir jólaefni fyrir yngstu
bömin. Meðal efnis er ævin-
týri um fallega brúðu sem
öðlast líf á jólakvöldi og sam-
skipti hennar við Ola Lokbrá,
leikþáttur eftir Pétur Gunn-
arsson um tröllastelpuna
Bólu og leit hennar að jóla-
skapinu og ævintýri við tón-
list Tjækovskís um hnotu-
brjótinn sem var prins í álög-
um.
Klukkan 10.30 er á dagskrá
teiknimynd um dverginn
Davíð, sem verður að finna
gull dvergakonungsins og
tryggja að það lendi ekki í
tröllahöndum ef ekki á illa að
fara, og að sýningu hennar
lokinni, klukkan 11.45, er
komið að lokaþætti
jóladagatalsins
þar sem lýkur
leit þeirra Felix
og Gunnars að
Völundi,
en
þáttur-
inn
verður
endur-
sýndur
í lok barnadagskrár eftir há-
degið, laust fyrir klukkan
fjögur.
Teiknimynd um
Múmínsnáðann
Þeir Felix og Gunnar fara
ekki langt því að loknum
fréttum og veðri kynna þeir
bamadagskrá með íslensk-
um og erlendum myndum
meðan beðið er eftir að jólin
gangi í garð. Meðal efnis er
ævintýri um litla nom sem
fær jólasveininn í heimsókn
og leikin mynd um Pappírs-
Pésa og vini hans. Klukkan
níu á jóladagsmorgun kynnir
Rannveig Jóhannsdóttir
morgunsjónvarpið með
margvíslegu efni sem allt
tengist jólunum og
klukkan 10.30 fáum
^við að sjá teikni-
mynd um
Múmínsnáð-
ann og vuu
hans. Klukkan 17.25 verðui
sýnd leikna bandaríska æv-
intýramyndin Jólatréð hans
Villa þar sem leikbrúður
koma líka við sögu. f mynd-
inni er sagt frá leit nokkurra
fjölskyldna að hinu full-
komna jólatré og meðal leik-
enda er hinn kunni gaman-
leikari Leslie Nielsen sem
margir kannast við úr mynd-
inni Beint á ská.
Jólastundin okkar er á
dagskrá klukkan sex og þar
fær prófessor Irma til sín
marga góða gesti. Að henni
lokinni verður sýnd teikni-
myndin Gulleyjan sem er
byggð á sígildri sögu eftir
Robert Louis Stevenson.
Morgunsjónvarpið verður á
sínum stað annan í jólum og
þar verða meðal annars
myndir um gamlan bangsa
og brúðu, sem leita að barni
sem vill eiga þau og vera
þeim gott, og teiknimynd um
Tuma þumal og Þumalínu.
Snædrottningin
Þegar klukkan er gengin
fjórðung í fimm verður sýnd
bíómyndin Sagan endalausa
III en þar ratar Bastían
Baltasar Bux í hreint ótrúleg
ævintýri og rekst á ýmis
skringileg fyrirbæri eins og
grjótætu, talandi tré, hug-
lausan flugdreka og Iitla álfa.
Klukkan sex verður sýnd
glæný leikin íslensk bama-
mynd sem heitir Músin
Marta og Egill Eðvarðsson
gerði eftir smásögu Jennu
Jensdóttur. Leikendur era
Amljótur Sigurðsson, Rík-
arð Ásgeirsson, Sigurveig
Jónsdóttir, Jón Bjami Guð-
mundsson, Ragnhildur Rú-
riksdóttir og Magnús Ólafs-
son.
Að lokinni sýningu á
Músinni Mörtu er komið að
teiknimynd sem gerð er eftir
ævintýri H.C. Andersens
um Snædrottninguna ill-
skeyttu og glímu systkin-
anna Tomma og Ellu við
hana. Að loknum íréttum að
kvöldi annars í jólum er á
dagskrá jólaþáttur Sjón-
varpsins sem heitir Engla-
hár og eplalykt. Þátturinn er
ekki gerður sérstaklega með
böm í huga en eflaust hafa
einhver böm gaman af því að
sjá hann því meðal gesta
Gaua litla og Svanhildar
Konráðsdóttur, sem stjóma
þættinum, er jólasveinn og
auk þess ætla aðrir gestir að
rifja upp bemskujól sín.
Hreiðar hrein-
dýr, Óli lokbrá
og Kolli káti
DAGSKRÁ Stöðvar 2 á að-
fangadag hefst klukkan níu
með Fyrstu jólum Putta.
Þvínæst verður sýnd mynd
um Kristófer jólatré og Æv-
intýri Mumma fylgja að hen-
ni lokinni. Hreiðar hreindýr
verður á dagskrá korter yfir
tíu og að því búnu verður
sýnd teiknimynd um jóla-
sveininn og tannálfinn. Rétt
fyrir klukkan ellefu verður
sýnd mynd um Bíbí og félaga
og þvínæst er á dagskrá tal-
sett mynd um Benjamín og
jólasveininn.
Þegar klukkuna vantar
tuttugu mínútur í eitt verður
á dagskrá Tindátinn stað-
fasti, sem er ballett gerður
eftir ævintýri H.C. Ánder-
sen. Að loknum fréttum
dagsins tekur svo við talsett
teiknimynd í fullri lengd um
David Copperfield sem byg-
gð er á sígildri sögu eftir
Charles Dickens. Ekki má
heldur gleyma teiknimynd
um Óla lokbrá. í henni segir
frá stráknum Pétri sem fer í
mikla ævintýraferð með Óla
lokbrá að heimsækja jóla-
sveininn á Norðurpólnum.
Bærinn sem jólasveinn-
inn gleymdi á jóladag
Korter fyrir fjögur segja
Jim Henson og félagar þjóð-
sögur og ævintýr en sögu-
maður er leikarinn John
Hurt. Hlé verður síðan gert
á útsendingu hálftíma síðar.
Á jóladag hefst dagskráin
klukkan tíu með Bíbí og fé-
lögum og klukkustundu síð-
ar kemur Afi gamli á skjáinn.
Á hádegi verður sýnd teikni-
myndin Bærinn sem jóla-
sveinninn gleymdi og ís-
lenski þátturinn Nótt á jóla-
heiði verður sýndur fimm
mínútum fyrir hálfeitt.
Handrit þáttarins, sem gerð-
ur var 1995, er spunaverk-
efni Guðnýjar Halldórsdótt-
ur, sem leikstýrir, Margrét-
JÓLAMYNDIN Á síðustu stundu verður
sýnd á Stöð 2 annan jóladag.
i
ar Ömólfsdóttur, Agnes-
ar Johansen og Friðriks
Erlingssonar.
Klukkan fimm mín-
útur í fjögur verður
síðan sýnd endur-
gerð kvikmynd-
arinnar Krafta-
verk á jólum,
eöa Miracle on
34th Street, sem
fjallar um sex ára
stúlku sem hefur
sínar efasemdir
um jólasveininn.
V Annan dag jóla
hefst sjónvarp bam-
anna klukkan níu með
talsettri teiknimynd um
bangsa sem bjarga jólun-
um. Fimm mínútum fyrir
hálftíu eru sígild ævin-
týri á dagskrá og korteri
síðar er sýnd teikni-
myndin Á þakinu, sem
er með íslensku tali.
Bíbí og félagar verða
á skjánum fimm mín-
útur yfir tíu og teikni-
mynd Stevens Spiel-
berg um Risaeðlumar
er á dagskrá klukkan
ellefu. Talsetta teikni-
myndin Kolli káti verður
sýnd fimm mínútur yfir tólf
og að því búnu verður sýnd
jólamynd frá Disney sem
nefnist Á síðustu stundu.