Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 2

Morgunblaðið - 21.01.1997, Page 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ HLÍÐARDALSSKÓLI í Ölfusi. Um er að ræða tvð skólahús með heimavist, leikfimishúsi, verkstæðisbyggingum ásamt nokkrum ibúðarhúsum. Þessar eignir eru nú til sölu hjá Kjöreign, en verðhugmyndir eru 80-95 millj. kr. fyrir eignina í heild. Til greina kemur að selja eingöngu skólann sjálfan ásamt jarðhita og jarðnæði úr jörðinni Breiðabólsstað, en skólinn er í landi hennar. Hlíðardalsskóli í Ölfusi til sölu SA.MTÖK Sjöunda dags aðventista á íslandi hafa ákveðið að kanna grundvöll að sölu á Hlíðardals- skóla í Ölfusi, sem er í eigu þeirra. Um er að ræða tvö skólahús með heimavist, leikfímishúsi, verk- stæðisbyggingum ásamt nokkrum íbúðarhúsum. Eru þessar eignir nú til sölu hjá Kjöreign. Skólinn er byggður í landi lög- býlisins Breiðabólsstaðar, en þar er íbúðarhús ásamt gripahúsum og verkstæðisbyggingu. Jörðin er án fullvirðisréttar og er hún einnig til sölu. Um áratuga skeið var rekinn skóli á þessum stað, en skólahaldi er nú hætt og hafa húsin og að- staðan verið leigð út fyrir ýmiss konar samkomu- og ráðstefnu- hald. Elzta húsið er byggt árið 1950 og er það tvær hæðir, kjallari og rishæð. í húsinu var heimavist stúlkna og íbúð ásamt mötuneyti, saunu og fleiru. í húsinu eru því u.þ.b. 15 íbúðar- herbergi, skrifstofa skólastjóra, kapella, samkomusalur o.fl. Árið 1957 var byggt annað hús sem er tvær hæðir og kjallari en þar var drengjavist ásamt setustofum, íbúð o.fl. Afast húsinu er íþrótta- og samkomuhús byggt árið 1965 en þar eru jafnframt kennslustofur og bókasafn. Við íþróttahúsið er úti- sundlaug. Verkstæðisbyggingam- ar em tvær, steinsteypt bygging og stálgrindarhús. Mikill húsakostur Á staðnum eru tvö einbýlishús, annað er steinsteypt á einni hæð en hitt er timburhús, hæð og ris- hæð og er það ekki fullfrágengið. Einnig er þar parhús á einni hæð. Á bújörðinni er eldra einbýlishús, hæð og rishæð, og er það talsvert endumýjað. Einnig eru þar hest- hús og góð verkstæðisskemma. Ræktað land er milli 30 og 40 ha. en stærð alls þess lands er til- heyrir eignunum er talin vera 100 ferkílómetrar. Á jörðinni er jarð- hiti og em húsin og sundlaug hit- uð upp með einkahitaveitu. Nægjanlegt kalt vatn er til stað- ar. Að sögn Dans Wiium hjá Kjör- eign em húsin vel byggð upphaf- lega og viðhald þeirra hefur verið Fasteignasalan Miðborg tekin til starfa Bjartsýni á framtíðina Morgunblaðið/Ami Sæberg EIGENDUR fasteignasölunnar Miðborgar eru þrír lögfræðingar, þeir Björn Þorri Viktorsson hdl. og löggiltur fasteignasali, Pétur Órn Sverrisson hdl. og Karl Georg Sigurbjörnsson hdl. Miðborg hefur aðsetur að Suðurlandsbraut 4A. Ný fasteignasala, Miðborg ehf. tók til starfa í síðustu viku. Hún hefur aðsetur að Suðurlands- braut 4A í Reykjavík og em eig- endur hennar þrír lögfræðingar, þeir Björn Þorri Viktorsson hdl. og lögg. fasteignasali, Karl Georg Sigurbjömsson hdl. og Pétur Öm Sverrisson hdl. — Við útskrifuðumst saman úr lagadeild Háskóla íslands á sínum tíma og ákváðum nú á haustmánuð- um að hefja saman rekstur fast- eignasölu, segir Bjöm Þorri. Hann hefur á undanfömum ámm starfað hjá Eignamiðluninni, en Karl Georg hjá Húsakaupum. Pétur Öm hefur undanfarin ár sinnt lögfræðistörf- um tengdum sjávarútvegi. — Við höfum því góða reynslu og þekkingu á fasteignaviðskipt- um, segir Bjöm Þorri. — Við félag- arnir eram bjartsýnir á ástandið á fasteignamarkaðnum og teljum að batnandi efnahagsástand eigi enn eftir að blása auknu lífí í hann á komandi misseram, en markaður- inn hefur verið í ágætu jafnvægi á undanfömum mánuðum. Talsverð sala hefur verið í öllum gerðum fasteigna og eftirspurn almennt verið að aukast. Þannig hafa t.d. góðar minni íbúðir og eignir í millistærðarflokki selst mjög vel og einnig hefur orðið aukning í sölu stærri íbúðarhúsa. Þá hefur sala á atvinnuhúsnæði aukizt veralega og nú er svo kom- ið að eftirspurn eftir minna og millistóra atvinnuhúsnæði á sum- um svæðum er meiri en framboð. Öflugurtækja- og hugbúnaður Miðborg hefur aðsetur í björtu og snyrtilegu húsnæði á 3. hæð að Suðurlandsbraut 4A. Góð að- koma er að húsinu sem er lyftu- hús. Fyrirtækið ræður yfír öflugum nýjum tölvu- og tækjabúnaði frá Tæknivali hf. Einnig hefur Mið- borg yfír að ráða einni fullkomn- ustu stafrænu myndavél sem völ er á, en með þeim búnaði eru myndir af fasteignum settar beint inn í tölvukerfið án framköllunar. Að sögn Bjöms Þorra er fast- eignasölukerfí Miðborgar það allra öflugasta á markaðnum í dag, en það er hannað af Þorleifi St. Guð- mundssyni B.Sc. en hann hefur starfað hjá Eignamiðluninni um 16 ára skeið og mikil og góð reynsla komin á þetta kerfi þar. — Kerfíð er mjög sveigjanlegt og þægilegt í notkun og endurspeglar vel reynslu og þekkingu Þorleifs, sagði Bjöm Þorri. Á söluskrá Miðborgar eru á annað hundrað eignir af öllum stærðum og gerðum. Þar má sem dæmi fínna allt frá 40 ferm. íbúð í Valshólum til 6.000 ferm. iðnað- arhúsnæðis í Suðurhrauni og flest þar á milli. — Svo að fleiri dæmi séu tekin úr söluskránni, þá hefur Miðborg í einkasölu 2ja íbúða parhús við Skothúsveg í Reykjavík, en á því svæði er fágætt að fasteignir séu til sölu, segir Bjöm Þorri. — Einn- ig er glæsilegt einbýlishús á einni hæð við Vesturfold á söluskránni. Þá má geta þess að Miðborg býður til sölu fullbúið 2.700 ferm. frystihús á Stór-Reykjavíkursvæð- inu, fullbúið fyrir vinnslu nú þegar svo sem loðnufrystingu, svo ljóst er að af nógu er að taka. Þeir félagar segjast leggja áherslu á trausta og örugga þjón- ustu og telja að menntun þeirra og reynsla séu gott veganesti í því efni. Þróun í fasteignaviðskiptum sé með þeim hætti að þau verði stöðugt flóknari og umfangsmeiri og jafnframt séu sífellt gerðar meiri kröfur til þeirra sem viðskipt- in annast. Fasteiffnalán Landsbréfa til allt aö 25 ára Vextir af lánunum eru á bilinu 6,75 til 8,25%. Lánin henta t.d. þeim sem vilja skuldbreyta eldri lánum, kaupa stærri eignir eða vilja taka lán til framkvæmda. & Ráðgjafar Landsbréfa hf. veita allar frekari upplýsingar , LANDSBREF HF. SUDUHLANOSHRAin 7H. 10 8 R I Y K J A V I K , S I M I 0 3 5 7 0 I) II. B R £ F A S I M I 5 3!) 7 (I U 1 allgott. Veralegar endurbætur hafa þó ekki farið fram og má því reikna með talsverðum kostnaði fyrir nýja eigendur sem fer þó eftir væntanlegri nýtingu. Eignimar era boðnar ásamt landi til sölu í einu lagi en sterk- lega kemur til greina að selja ein- göngu skólann sjálfan ásamt jarð- hita og jarðnæði úr jörðinni Breiða- bólsstað. Verðhugmyndir era 80-95 millj. kr. fyrir eignina í heild, en engar veðskuldir era áhvílandi. — Hér er um mjög sérstakt tækifæri að ræða, sagði Dan Wii- um. — Fjarlægð frá útjaðri Reykja- víkur er 35 km og nánast öll leið- in malbikuð. Ýmsir nýtingarmögu- leikar era fyrir hendi svo sem skóla- og ráðstefnuhald, hótel- og veitingastarfsemi eða jafnvel ýmiss konar heilsurækt. Afhend- ing eignanna fer eftir samkomu- lagi, jafnvel strax. Fasteigna sölur í blabinu í dag Agnar Gústafsson bls. 9 Almenna Fasteignasalan bls. 9 Ás bls. 10 Asbyrgi bls. 17 Berg bls. 32 Bifröst bls. 4 Borgir bls. 3 Brynjólfur Jónsson bls 9 Eignamiðlun bls. 10-11 Eignasalan bls. 20 Eignaborg bls- 20 Fasteignamarkaður bls. 21 Fasteignamiðlun bls. 20 Fasteignasala Reykjav.-Huginn 3lS. 7 Fjárfesting bls. 14 Fold bls. 13 Framtíðin bls. 30 Frón bls. 30 Gimli bls. 27 Flátún bls. 17 Hóll bis. 16-17 Hóll Hafnarfirði bls. 5 Hraunhamar bls. 31 Húsakaup bls. 29 Húsvangur bls. 15 Kjöreign bls. 12 Laufás bls. 26 Mlðborg bis. 22-23 Óðal bls. 9 Skeifan bls. 6 Valhöll bls. 25 Þingholt bls. 8 I i J I í i i ; i: I i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.