Morgunblaðið - 28.01.1997, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
JHttgtmMoMfr
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 28. janúar 1997
Blað C
Ný viðhorf
og þekking
SVONEFNT rör-í-rör kerfí
krefst nýrrar þekkingar og við-
horfa bæði hjá pípulagninga-
mönnum og hönnuðum, segir
Sigurður Grétar Guðmundsson
í þættinum Lagnafréttir. Taka
þarf tillit til margra nýrra
þátta. / 4 ►
Þvingunar-
úrræði
HÚSFÉLAG eða einstakir
íbúðareigendur geta gert
þeim, sem gerast sekir um gróf
eða ítrekuð brot í fjölbýlishúsi
að flyljast burt. Sandra Guð-
jónsdóttir lögfræðingur íjallar
um þvingunarúrræði í fjöleign-
arhúsalögunum. / 22 ►
Mikil aukning
í smíði nýrra íbúða
á síðasta ári
Nýbygging
í Síðumúla
BYRJAÐ verður á að rífa
Síðumúlafangelsið í
þessari viku. f stað þess
á að rísa á lóðinni ný glæsileg
verzlunarbygging. Bygginga-
fyrirtækið Mótás stendur að
þessari nýbyggingu, sem verð-
ur á þremur hæðum og um
2.400 ferm. alls. Byggingin á
vafalaust eftir að setja tölu-
verðan svip á umhverfi sitt, en
áformað er að taka hana í
notkun næsta haust.
- Þetta hús á að vera mjög
glæsilegt, segir Bergþór Jóns-
son, framkvæmdastjóri Mótáss,
í viðtalsgrein hér í blaðinu í
dag. - Ég hika ekki við að
segja, að það eigi að bera af
öðrum húsum í grennd, enda
verður það mjög ólíkt þeim.
Flest hús á þessu svæði eru
byggð sem iðnaðarhús að
meira eða minna leyti og síðan
breytt í verzlunarhúsnæði.
UMSVIF í húsbréfakerfinu voru
mun meiri í fyrra en árið þar á und-
an. Þannig jukust húsbréfaumsókn-
ir byggingaraðila um 58,9% og um-
sóknir vegna notaðs húsnæðis um
18,9%.
Samþykkt skuldabréfaskipti voru
líka mun meiri, enda jókst húsbréfa-
útgáfan um nær 15%. Umsóknir
vegna nýbygginga einstaklinga
stóðu hins vegar að kalla í stað.
Þá vekur það athygli, að vanskil í
húsbréfakerfinu minnkuðu talsvert
á síðasta ári, þrátt fyrir það að
heildarútgáfa húsbréfa hafi aukizt
um 14,3 milljarða kr. á árinu.
Þetta má væntanlega þakka betra
efnahagsástandi, aukinni aðstoð við
skuldara með skuldbreytingum á
vanskilum og skilvirkari innheimtu.
Mun meiri hreyfing var á at-
vinnuhúsnæði í fyrra en áður. Mikl-
ar hræringar áttu sér stað í verzl-
unarrekstri i miðbæ Reykjavíkur.
Margar stórar eignir þar skiptu um
eigendur og mikil eftirspurn er nú
sögð eftir verzlunarhúsnæði á
svæðinu frá Hlemmi að Ingólfs-
torgi.
Að mati fasteignasala hefur þetta
ár farið vel af stað. Sala á fasteign-
um á höfuðborgarsvæðinu hefur
verið lífleg í janúar og það má
sennilega að nokkru þakka góðri tíð
og færð lengst af, þannig að fólk í
fasteignahugleiðingum hefur átt
auðvelt með komast til að skoða
eignir, sem það hefur áhuga á.
Að sögn Jóns Guðmundssonar,
formanns Félags fasteignasala, eru
góðar horfur framundan. - Aform
um frekari stóriðju samfara þeim
margfeldisáhrifum, sem þau leiða
af sér annars staðar í þjóðfélaginu,
hljóta að verða til þess að efla efna-
hagslíf í landinu og hafa jákvæð
áhrif á fasteignamarkaðinn um leið,
segir Jón.
- Allt kann samt að velta á því,
að skynsamlega sé staðið að kjara-
samningum, þannig að verðlag í
landinu fari ekki úr böndum.
Afgreiðslur í
húsbréfakerfinu
í jan.- des. 1996 f^,
Breyting
Innkomnar umsóknir 1996/1995
Notað húsnæði +18,9%
Endurbætur -11,3%
Nýbyggingar einstaklinga +1,0%
Nýbyggingar byggingaraðila +58,9%
Samþykkt skuldabréfaskipti
Notað húsnæði - fjöldi +21,6%
Notað húsnæði - upphæðir +14,2%
Endurbætur - fjöldi +11,4%
Endurbætur - upphæðir +14,9%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöldi +3,9%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæðir -1,1%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi +11,5%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir -1,0%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæðir +12,6%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð +14,8
- Fangelsið var upphaflega
byggt sem bílaverkstæði og
aldrei hugsað sem fangelsis-
bygging, segir Bergþór. -
Hluti af húsinu er steyptur, en
að öðru leyti er húsið reist á
súlum og veggir hlaðnir á milli
þeirra. Það er því létt verk að
rífa fangelsið, en ekki mikið ,
sem hægt er að nýta.
Bergþór kveðst vinna þarft
verk með því að rífa fangelsið
niður ogþurrka út minningu
þess. - Það hefur verið lítill
yndisauki af fangelsinu fyrir
umhverfið og það gefíð svæð-
inu drungalegan svip, segir
hann. - Þegar nýbyggingin er
komin upp, verður hún áreið-
anlega til mikillar prýði. /18 ►
Kynntu þér kosti
Fasteignalána
Fjárvangs hjá
ráögjöfum Fjárvangs
í sínia 5 40 50 60
Dæmi um mánaðariegar afboiganir af
1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs*
\fcxtir<%)10ár 15 ár 25 ár
7,0 11.610 8.990 7.070
7,5 11.900 9.270 7.500
8,0 12.100 9.560 7.700
Miðað cr við jafngrciðslulán.
*Auk vcrðbóta
[TTT^
FJÁRVANGUR
IÖGGIIT VERÐBRÍFAFYRIRTAKI
Laugavegi 170,105 Reykjavlk, slmi 540 50 60, slmbréf 540 50 61, www.fjarvangur.is