Morgunblaðið - 28.01.1997, Blaðsíða 18
18 C ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR1997
MORGUNBLAÐIÐ
Mótás byggir glæsilegt
verzlunarhús á lóð
Síðumúlafangelsins
Byggíngafyrírtækið Mótás hefur keypt
Síðumúlafangelsið til niðurrifs og hyggst
reisa verzlunarhús á lóðinni. Magnús
Sigurðsson fjallar hér um þessar fram-
kvæmdir í viðtali við Bergþór Jónsson,
framkvæmdastjóra Mótáss.
GANGUR í Síðumúlafangelsinu. Hurðimar fyrir litlum og gluggalaus-
um klefunum eru þungar og voldugar líkastar hurðum fyrir frystiklef
um og með slagbröndum að utanverðu.
VIÐ vegg inni í klefunum er járnrúm með svampdýnu og auk þess
lítið borð fest með skrúfum.
ANÆSTU vikum verður fang-
elsisbyggingin við Síðumúla 28
rifin til grunna og í stað hennar
mun rísa á lóðinni ný glæsileg
verzlunarbygging. Byggingafyrir-
tækið Mótás ehf. stendur að þessari
nýbyggingu, sem verður á þremur
hæðum og um 2.400 ferm. alls.
Þessi bygging á vafalaust eftir að
setja töluverðan svip á umhverfi
sitt, en áformað er að taka hana í
notkun næsta haust.
Góð verzlunarhæð verður á götu-
hæð við Síðumúla með bílastæðum
fýrir innan eyju. Jafiiframt verður
hægt að aka upp á bílaplan hægra
megin við húsið. Þar kemur önnur
hæð og hún verður einnig fyrir
verzlanir. Tveir þriðju af húsinu
verða því á jarðhæð. Þriðja hæðin
kemur svo þar fyrir ofan, en það
verður skrifstofuhæð. Hver hæð
verður 700-800 ferm.
Byrjað verður á að steypa húsið
upp í marz og ætlunin að ljúka því
verki í sumar, en vinnu við frágang
að innan á svo að Ijúka með
haustinu. - Þessi verzlunarbygging
verður all frábrugðin flestum bygg-
ingum við Síðumúla, segir Bergþór
Jónsson, framkvæmdastjóri
Mótáss. - Yfirleitt eru hús þar 3-4
hæðir og þar að auki með bakhúsi.
Nýbygging okkar verður með engu
bakhúsi heldur öll sýnileg, ef svo
má að orði komast.
Vönduð bygging að utan
og innan
- Húsið verður klætt með áli að
hluta og steinflísum að hlut og útlit
þess á að verða í senn fallegt og að-
laðandi. Jafnframt verður það mjög
viðhaldslítið, segir Bergþór enn-
fremur. - Þetta á því að verða nyög
glæsileg bygging og ég hika ekki
við að segja, að hún eigi að bera af
öðrum húsum þarna í grennd, enda
verður hún mjög ólík þeim.
Flest hús á þessu svæði eru
byggð sem iðnaðarhús að meira eða
minna leyti og síðan breytt í verzl-
unarhúsnæði. Við þetta hús verður
líka nóg af bílastæðum, en skortur á
þeim er vandamál við sum hin hús-
in.
Bílastæði við Síðumúla að ofan-
verðu eru yfirleitt þannig, að ekið
er inn að húsunum og síðan er
bakkað út á götuna út í umferðina,
þegar fólk ekur burtu. Þetta veldur
fólki óþægindum og skapar hættu í
umferðinni. Þetta leysum við með
því að setja eyju fyrir framan húsið
og höfum bílastæðin við húsið að
framanverðu þar fyrir innan. Þá
þarf ekki að aka aftur á bak út í um-
ferðina, þegar ekið er burt.
Arkitektamir Asgeir Ásgeirsson
og Ivon Stefán Cilia hjá Teiknistof-
unni hf., Armúla 6, hafa hannað
bygginguna. - Að mínu mati og
margra annarra hefur þeim tekizt
mjög vel til, segir Bergþór.
Lóðin kostaði tólf milij. kr. miðað
við staðgreiðslu, en eigandi hennar
var ríkissjóður. - Ég tel þetta verð
mjög ásættanlegt fyrir jafn góða
lóð á þessum stað, en lóðin er 2740
ferm., segir Bergþór. - Lóðin er
það stór, að athafnasvæðið er gott,
á meðan verið er að byggja. Þama
er því ekki verið að byggja í eins
miklum þrengslum og á lóð, sem
væri t. d. staðsett niðri í miðbæ.
Töluverður áhugi er á þessu húsi
og nokkrar fyrirspurnir hafa þegar
borizt um það. - Verð hefur ekki
verið ákveðið enn, en það mun að
sjálfsögðu skýrast strax á næst-
unni, segir Bergþór. - Minnstu ein-
ingar, sem hægt er að kaupa, eru
um 150 ferm., en ég geri ráð fyrir,
að húsið verði að mestu selt í stærri
einingum, sem verði um 300 ferm.
hver.
Bergþór lét auglýsa fyrirfram
eftir hugsanlegum kaupendum,
sem gætu þá átt þátt í því að hanna
húsið og komið sjónarmiðum sínum
á framfæri, áður en endanlegri
hönnun lýkur og framkvæmdir
hefjast. - Ef fyrirtæki láta hanna
húsnæði utan um starfsemi sína
fyrirfram, ætti það að vera ódýrara
og henta betur en að kaupa eldra
húsnæði og breyta því, segir hann.
- Þetta gæti því orðið bæði kaup-
endum og okkur í hag. Við það er
miðað, að húsnæðinu verði skilað
fullfrágengnu að utan en tilbúnu
undir tréverk að innan eða þá full-
búnu að öllu leyti.
Létt verk að rífa fangelsið
Aformað er að hefjast handa við
að rífa Síðumúlafangelsið í þessari
viku. Að sögn Bergþórs fékkst
mjög hagstætt tilboð í það verkefni
frá fyrirtækinu Jarðvélum, sem fær
að hirða það, sem nýtilegt er af hús-
inu.
- Húsið var upphaflega byggt
sem bílaverkstæði og aldrei hugsað
sem fangelsi, segir Bergþór. - Aft-
asti hlutinn er steyptur, en að öðru
leyti er húsið reist á súlum og vegg-
ir hlaðnir á milli þeirra.
- Það er því létt verk að rífa
fangelsið, en það er ekki mikið, sem
hægt er að nýta. Það er þá helzt
loftræstikerfið og eitthvað af hurð-
um og innréttingum, heldur Berg-
þór áfram. - Nokkrir kvikmynda-
gerðarmenn ætla þó hugsanlega að
hirða einhverja muni úr fangelsinu,
sem nota á við gerð kvikmyndar um
Geirfinnsmálið næsta haust.
Arbæjarsafni hafa einnig verið
afhentir nokkrir munir til varð-
veizlu. Þeirra á meðal er borðið úr
einum fangaklefanum. f því er hola
og sagan segir, að úr því hafi fang-
amir reykt hass. - Ég held, að allir
séu því fegnir, að húsið verði rifið
og annað reist í staðinn, segir
Bergþór. - Þó að þetta hús búi
vissulega yfir mikilli sögu, hef ég
engan heyrt halda því fram í fullri
alvöru, að ástæða væri til þess að
varðveita það eða hluta þess.
Hugmyndin um að kaupa fang-
elsið kviknaði fyrst hjá mér fyrr í
vetur, er ég hlustaði á útvarpsþátt
um það. Þar var m. a. rætt við
nokkra arkitekta, sem lögðu mikla
áherzlu á varðveizlu sögulegra
húsa. Þeir voru hins vegar allir á
einu máli um, að þetta hús ætti að
rífa og byggja annað í staðinn.
Sjálfur fann ég fyrir sterkri
ónotatilfinningu, þegar ég kom í
fyrsta sinn til þess að skoða fang-
elsisbygginguna. Hurðimar fyrir
litlum og gluggalausum klefunum
eru þungar og voldugar líkastar
hurðum fyrir frystiklefum og með
slagbröndum að utanverðu. Við
vegg inni í klefunum er járnrúm
með svampdýnu og auk þess lítið
borð fest með skrúfum og lítill stóll
við hliðina. Gangamir eru mjóir og
þröngir.
Þó að allt húsið væri væri hreint
og vel hirt, var stemningin ömurleg.
Dapurlegastm- finnst mér samt sá
harmleikur, að í þessu fangelsi hafa
saklausir menn mátt dúsa inniiok-
aðir svo að mánuðum skipti bak við
lás og slá.
Bergþór kveðst þvi vera að vinna
þarft verk með því að rífa fangelsið
niður og þurrka út minningu þess. -
Það hefiir verið lítill yndisauki af
fangelsinu fyrir umhverfið eðli
málsins samkvæmt og það gefið
svæðinu drungalegan svip, segir
hann. - Þegar nýbyggingin er kom-
in upp, verður hún áreiðanlega til
mikillar prýði fyrir umhverfi sitt.
Síðumúli er vaxandi verzlunargata
og margir húseigendur þar hafa
verið að endurbæta útlitið á húsum
sínum að undanfömu.
Hótel Vík við Síðumúla fékk t. d.
sérstök fegurðarverðlaun fyrir frá-
gang á sínum tíma, þegar sú bygg-
ing var gerð upp og henni breytt í
hótel. í heild tel, ég, að Múlahverfið
verði áfram mikið verzlunar- og
þjónustuhverfi, eins og það hefur
raunar lengi verið.
Lóðaskortur hjá borginni
Mótás var stofnað árið 1984 og
eru þeir Bergþór Jónsson og Fritz
Berndsen aðaleigendur þess.
Framan af lögðu þeir félagar eink-
um stundum á verktakastarfsemi
en undanfarin ár hafa þeir lagt
megináherzlu á íbúðarbyggingar
og er fyrirtæki þeirra nú búið að
byggja vel á þriðja hundrað íbúðir,
þar af langflestar í Reykjavík.
- Starfsmenn fyrirtækisins eru
nú fimmtán og hafa yfirleitt unnið
lengi hjá fyrirtækinu, segir Berg-