Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ í ALPAGREINUM M Keppnisbrautirnar
Heimsmeistaramótið í alpagreinum skíðaíþrótta árið 1997
fer fram víð bæinn Sestrieres á Ítalíu 2.-15. febrúar.
Keppt er í svigi, stórsvigi, risasvigi og bruni, auk
alpatvíkeppni, sem er keppni í svigi og br
Kristinn Björnsson og Arnór Gunnarsson
keppa í stórsvigi og svigi, 12. og
DAGSKRÁ
BANCHETTA BRAUTIN
r Brun karla: 3.299m, 914m fall
2. feb., Sunnud. • Opnunarhátíð <
3. feb., Mánud. • Risasvig karla
4. feb., Þriöjud. • Brunæfing karla
5. feb., Miðvikud. • Svig kvenna • Brunæfinq karla
6. feb., Fimmtud. • Tvíkeppni karla - brun • Tvíkeppni karla - svig
7. feb., Fðstud. * Brunæfing karia ý§j
8. feb., Laugard. • Brun karla ^
9. feb., Sunnud. • Stórsvig kvenna
10. feb., Mánud. • Brunæfing kvenna
11. feb., Þriðjud. • Risasvig kvenna k
12. feb., Miðvikud. • Stórsvig karla 1 • Brunæfing kvenna ’
13. feb., Þriðjud. • Tvikeppni kvenna - brun • Tvíkeppni kvenna - svig
14. feb., Föstud. • Brunæfing kvenna
15. feb., Laugard. • Brun kvenna
• Svig karla • Lokahátíð
Meðalhalli: 31%
f-Stórsvig karla: 1.492m, 450m fall
‘f Stórsvig kvenna: 1.394m, 400m
fSvig karla: 660m, 210mfall
•Tsvig kvenna: 616m, 180m fall
Meðalhalli: 34%
■ NÝLEGA fengu tveir íslenskir
kraftlyftingadómarar alþjóðleg
dómararéttindi. Það voru þeir
Hörður Magnússon og Jóhann
Möller. Island á nú þrjá dómara
með slík réttindi. Þriðji dómarinn
er Ólafur Sigurgeirsson, sem
fékk sín réttindi 1979. Hann sá
um þetta próf í umboði Alþjóða
kraftlyftingasambandsins.
■ Á ÞINGI Kraftlyftingasam-
bands íslands 31. janúar s.l. fór
fram kosning kraftlyftingamanns
ársins í kvenna og karlaflokki.
Auðunn Jónsson var kjörinn hjá
körlum og Guðrún Bjarnadóttir
hjá konum.
■ JÓHANN Haukur Hafstein,
skíðamaðurinn efnilegi úr Ár-
manni, verður eini íslenski kepp-
andinn á HM unglinga í alpagrein-
um sem fram fer í Austurríki í
næsta mánuði.
■ ANTOINE Rigaudeau, leik-
maður franska körfuknattleiksliðs-
ins Pau-Orthez, verður frá keppni
vegna meiðsla á olnboga það sem
eftir er keppnistímabilsins. Gríska
liðið Panathinaikos hafði sýnt
áhuga á að kaupa Rigaudeau, en
meiðsli hans gætu breytt því.
■ STEFFI Graf, tenniskona frá
Þýskalandi, gat ekki leikið til úr-
slita við Martinu Hingis frá Sviss
á opnu innanhúsmóti í Tokíó um
toúmt
FOLK
helgina vegna hnémeiðsla. Hún
fann fyrir meiðslum rétt áður en
hún átti að mæta Hingis í úrslita-
leiknum og varð því að gefa leik-
inn.
■ GORAN Ivanisevic frá Króa-
tíu sigraði á opnu tennismóti í
Zagreb á sunnudaginn. Hann
vann Greg Rusedski frá Bret-
landi í úrslitum 7-6 (7-4) 4-6 7-6
(10-8).
■ WARREN Schutte frá Suður-
Afríku vann á sunnudaginn fyrsta
atvinnumannamótið á ferlinum.
Mótið var eitt af mörgum í suður-
afrísku mótaröðinni og fór fram í
Durban. Schutte, sem er 25 ára,
lék 72 holur á 274 höggum.
■ ALEXEI Lalas hinn eftirminn-
legi knattspymumaður með höku-
toppinn í bandaríska landsliðsins í
knattspyrnu frá HM 1994 gerði
eina mark Bandaríkjanna í 1:1
jafntefli við Kína á laugardaginn.
Ekki nóg með heldur var Lalas
rekinn af leikvelli átta mínútum
fyrir leikslok er hann fékk annað
gula spjald sitt í leiknum.
■ JOSE Antonio Camacho þjálf-
ari Sevilla hefur lýst því yfír að
hann ætli sér að hætta þjálfun liðs-
ins. Dropinn sem fyllti mælinn að
hans mati var 3:2 tap fyrir Real
Sociedad á sunnudag, en hans
menn höfðu komist í 2:0. „Þetta
hefði ekki gerst hjá öðrum þjálf-
ara,“ sagði Camacho, sem um
tíma var líklegur til að taka við
þjálfun Real Madrid áður en Cap-
ello var ráðinn. Fregnir herma að
Carlos Bilardo fyrrum þjálfari
Argentínu verði næsti þjálfari
Sevilla.
■ PAOLO Maldini, varnar-
maðurinn sterki hjá AC Milan,
sagði fyrir helgi að hann hefði
ekkert tilboð fengið frá Chelsea
eða Man. Utd., eins og hafði kom-
ið fram í blöðum. „Eina liðið sem
ég hafði samband við, var Ars-
enal.“ Lundúnaliðið var tilbúið að
borga 10 millj. punda fyrir kapp-
ann.
■ NEVILLE Southall, mark-
vörður Everton, óskaði eftir því
við Bobby Gould, landsliðsþjálfara
Wales, að hann yrði ekki valinn
til að leika gegn Irlandi 11. febr-
úar í Cardiff.
UNDANÞÁGA
Þó svo golftíðin sé ekki hafin heyra á það minnst. Sé tekið
fyrir alvöru er ýmislegt að mið af almennum kennurum
gerast í tengslum við íþróttina. hefur oft verið gripið til að veita
Eins og veðrið hefur verið á mönnum undanþágu til að
suðvesturhomi landsins það sem kenna fáist ekki menntaðir
af er vetri hafa kylfingar getað kennarar.
leikið golf utan dyra
og þegar hefur
fara inn og æfa sig i rjolgwii leioDeinend-
fm ' BoM á mrfan
er í farvatninu eins kennarar eru of fáir
og væntanlegt hluta-
félag um Birgi Leif
Hafþórsson, íslandsmeistara úr
Leini, og hugsanlegt að svipað
verði gert varðandi atvinnu-
mennsku íslandsmeistara
kvenna síðustu átta árin, Karen-
ar Sævarsdóttur úr GS.
En því miður eru ekki ein-
göngu góðar fréttir úr golfheim-
inum og það eru blikur á lofti
vegna mikillar fækkunar mennt-
aðra golfkennara hér á landi.
Golfþing verður haldið eftir tæp-
ar þijár vikur og þar hljóta
menn að ræða þann vanda sem
ríkt hefur hér á landi varðandi
golfkennara. Það hefur lengi
verið talað um mikinn uppgang
golfíþróttarinnar og víst er að
stöðugt flölgar þeim sem iðka
goif og svo mikið síðustu árin
að golfkennarar hafa alls ekki
getað sinnt markaðnum undan-
farin ár, það er að segja yfir
hásumarið. Ekkert hefur samt
verið gert til að kippa þessum
málum í lag og nú er svo komið
að menntuðum golfkennurum
hefur fækkað úr fimm í tvo og
það sjá allir sem vilja sjá að eitt-
hvað verður að gera.
Stjóm Golfsambands íslands
(GSI) hefur verið hörð á því að
fara eftir bókstafnum, þ.e.a.s.
reglum St. Andrews, þannig að
enginn hefur fengið að kenna
eða leiðbeina kylfingum nema
missa áhugamannaskírteini sitt.
Víðast hvar er farið í kringum
þessar reglur, en GSÍ má ekki
Þegar horft er til annarra
Evrópulanda hljóta forsvars-
menn íþróttarinnar hér á landi
að ieggja sig í líma við að leysa
vandann. Það gengur auðvitað
ekki að iðkendum íjölgi stöðugt
en golfkennurum fækki að sama
skapi. Hugsanlegt er að fara í
kringum strangar reglur St.
Andrews með því að heimila
mönnum að gerast leiðbeinend-
ur án þess að þurfa að gerast
atvinnumenn.
Það hlýtur einnig að vera
umhugsunarefni að menntuðum
golfkennurum skuli fækka eins
mikið og raun ber vitni. Ástæð-
ur þessa eru sjálfsagt misjafnar
en trúlega spilar ijárhagur
manna stóran þátt í að þeir
hætta. Golftímabilið hér á landi
er stutt og golfkennarar hafa
lítinn tíma ár hvert til að afla
sér tekna. Amar Már Ólafsson
úr Keili og Phil Hunter úr GS
eru báðir famir til Þýskalands
og er sá fyrrnefndi ánægður
með breytinguna og segir allt
annað að starfa þar en hér á
landi. Sigurður Pétursson hefur
sagt upp starfi sínu hjá GR en
iíkiegt er að hann haldi áfram
kennsiu og verður hann þá ann-
ar tveggja menntaðra golfkenn-
ara, hinn er David Barnwell á
Akureyri.
Skúli Unnar
Sveinsson
Er HK-maðurinn HLYNUR JÓHANNESSON ánægðurmeð byrjunina ílandsliðinu?
Aldrei
færrimörk
HLYNUR Jóhannesson úr HK lék fyrsta landsleik sinn í hand-
knattleik sl. laugardag þegar Þýskaland og ísland léku æfinga-
leik f Ludwigshafen. Hlynur, sem verður 23 ára í haust, fór í
markið þegar átta mínútur voru til leiksloka og staðan 25:20
Þjóðverjum í vil. Hann fékk á sig sjö mörk, fimm eftir hraðaupp-
hlaup, eitt úr horni og eitt eftir gegnumbrot, en varði ekkert
skot. Hlynur lærði plötusmíði íVestmannaeyjum en er deild-
arstjóri framkvæmdasviðs íþróttahússins í Digranesi í Kópa-
vogi. Hann er í sambúð með Önnu Margréti Sigurðardóttur
og eru þau barnlaus en eiga þrjá ketti.
Eins og gengur eru menn oft
taugaóstyrkir fyrir leiki, ekki
síst landsleiki, og ekki er fyrir
hvern sem er að
Eftir koma inn í ger-
Steinþór samlega vonlausri
Guðbjartsson stöðu eins og
Hlynur gerði á
laugardag.
„Ég átti frekar von á að fá
tækifæri i seinni leiknum og kom
inn ískaldur og stressaður. Þetta
var geysilega erfitt en ég varði
einn bolta inn í netið og er reynsl-
unni ríkari. Reyndar hef ég aldrei
fengið svona fá mörk á mig í leik
en það var sárt að byija með tapi.
Samt sem áður var þetta stórt
skref og framhaldið verður auð-
veldara fyrir vikið.“
Hvers vegna valdir þú að leika
í marki?
„Ég byijaði í handbolta níu ára
gamall og hreifst þá mjög af
Simma (Sigmari Þresti Oskars-
syni, markverði ÍBV) auk þess
sem enginn annar vildi vera í
marki. Aðalatriðið var að vera
með, ég prófaði þetta og líkaði
það vel.“
Af hverju skiptir þú í HK?
„Ég lék með ÍBV 1994 þegar
liðið féll í 2. deild. Þann vetur
mættum við HK í bikarnum og
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
HLYNUR Jóhannesson afslappaður í blíðunni í Þýskalandi
um helgina, eftir fyrsta leikinn með handboltalandsliðinu.
ég varði 30 skot. Liðið fór upp
og fljótlega var haft samband við
mig, sennilega vegna frammistöð-
unnar í bikarleiknum. Ég hafði
fengið smjörþefinn af 1. deild og
vildi spila þar áfram.“
Áttirðu von á því að verða val-
inn í landsliðshópinn í haust?
„Ég var í 21s árs landsliðinu
og fór þá að gæla við að ná lengra.
Gummi og Beggi hafa verið lengi
og erfitt er að keppa við þá en
þegar Þorbjörn sagðist ætla að
bæta einum yngri manni í hópinn
taldi ég ekki að margir kæmu til
greina. Ég hafði staðið mig vel,
var með þriðju bestu markvörsl-
una í deildinni og þóttist eiga
möguleika. En það var meiri hátt-
ar þegar Þorbjörn hringdi í mig
og tjáði mér valið.“
Hvernig var að vera í hópnum
í sex leikjum en vera aldrei á leik-
skýrslu?
„Það er mjög gaman að vera í
hópnum og valið á mér og Gunn-
ari Viktorssyni sýnir að Þorbjöm
hefur trú á okkur. Hins vegar hef
ég gert mér grein fyrir því að ég
var ekki valinn til að spila mikið
en ég kem inn hægt og rólega.
Þannig öðlast ég reynslu og með
henni hverfur stressið. Eg fæ
aukið sjálfstraust sem þýðir betri
markvörslu en það verður engin
markvarsla án sjálfstrausts.
Markmaður má ekki bera virðingu
fyrir neinum mótheija.“