Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
MEISTARAMÓT ÍSLANDS í BADMINTON
ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1997 B 5
Vigdís þrefaldur meistari
Tryggvi Nielsen meistari í karlaflokki. Broddi og Árni Þór sigruðu ítvíliðaleik sjöunda árið í röð
Engin óvænt úrslit urðu
á íslandsmeistaramót-
*
inu í badminton. Ivar
Benediktsson sá meist-
ara síðasta árs í einliða-
leik veija titla sína og
þá Brodda Kristjánsson
og Áma Þór Hallgríms-
son sigra í tvíliðaleik
sjöunda árið í röð.
TRYGGVI Nielsen sigraði annað
árið í röð í einliðaleik meistara-
flokks karla og Vigdís Ásgeirs-
dóttir lék sama leik í einliðaleik
kvenna. Þau eru bæði úr TBR, en
mótið fór fram í húsnæði félagsins
við Gnoðavog. Sigrar þeirra komu
ekki á óvart fremur en að Broddi
Kristjánsson og Árni Þór Hall-
grímsson sigruðu í tvíliðaleik
karla sjöunda árið í röð. Þá urðu
Vigdís og Elsa Nielsen meistarar
þriðja árið í röð í tvíliðaleik
kvenna.
Það var aðeins í tvenndarleik
sem nýir meistarar voru krýndir
er Árni og Vigdís unnu auðveldan
sigur á Brodda Kristjánssyni og
Brynju Pétursdóttur, ÍA. Vigdís
varð þar með þrefaldur íslands-
meistari.
Tryggvi lagði Þorstein Pál
Hængsson 18:13, 15:2 í undanúr-
slitum í einliðaleik karla en Árni
og Broddi léku hinn leikinn og
hafði Ámi betur. Greinilegt var í
úrslitaleiknum að erfiður undanúr-
slitaleikur sat í Áma. Leikur hans
varð aldrei eins heilsteyptur og
þurfti og Tryggvi virtist hafa leik-
inn í hendi sér allan_ tímann.
Tryggvi komst í 3:0 en Árni gerði
fimm næstu stig áður en íslands-
meistarinn spýtti í lófana og gerði
10 stig í röð og komst 13:5 yfir
og virtist vera með unna lotu. Árni
spriklaði um stund og kom stöð-
unni í 13:12 en lengra komst hann
ekki og Tryggvi sigraði 15:12. Að
því undanskildu að Árni komst í
10:7 í 2. lotu hafði Tryggvi yfir-
höndina. í stöðunni 11:11 eyddi
Árni Þór síðustu kröftunum til að
snúa leiknum sér í hag en þrátt
fyrir gífurlega baráttu vann
Tryggvi stigið og lotuna stuttu síð-
ar.
Englnn möguleiki
„Ég bjóst við erfiðari leik,“ sagði
Tryggvi sem varð íslandsmeistari
í annað sinn aðeins tvítugur að
aldri. „Sennilega hefur leikurinn
við Brodda setið í Árna því hann
var augsýnilega þreyttur." Tryggvi
sagðist hafa byijað á því að leika
með stuttum sendingum en hafi
ekki gengið eins vel og því tekið
ákvörðun um að fara út í lengri
sendingar og smöss,_sú leikaðferð
hafí gengið betur. „Ég lék í heild-
ina vel, en það komu auðvitað slak-
ir sprettir hjá mér, enda erfitt að
halda einbeitingu allan tímann,
þetta var sætur sigur,“ sagði
Tryggvi.
„Eg átti bara aldrei mögu-
leika,“ sagði Árni Þór er hann
hafði jafnað sig eftir leikinn. „Mig
vantaði úthald til þess að eiga
einhvern möguleika á að sigra
Tryggva."
Vigdís ákveðin
Úrslitaleikur Vígdísar Ásgeirs-
dóttur og Elsu Nielsen varð aldrei
sá spennuleikur sem við hefði
mátt búast, en þær léku einnig
til úrslita í fyrra og þá hafði Vig-
Meistari í annad sinn
TRYGQVI Nielsen einbelttur á svlp í úrslitalelknum viö Árna Þ6r Hallgrímsson þar sem hann
tryggöl sér íslandsmeistaratitlllnn f annaö slnn.
Morgunblaðið/Ásdís
VIGDÍS Ásgelrsdóttlr varö þrefaldur meistarl um helglna og
er hér f úrslitalelknum f elnllöalelk.
dís betur. Vigdís var ákveðin frá
fyrstu uppgjöf til hinnar síðustu
og hafði stjórn á leiknum. Fyrri
lotan endaði 11:4 og síðari lotan
var jöfn til að byija með og um
tíma var jafnt 3:3 en þar með var
sagan öll hjá Elsu og Vigdís sigr-
aði 11:3.
„Það kom ekkert annað til
greina hjá mér en að taka bikarinn
með mér heim á ný/‘ sagði Vigdís
að leik loknum. „Ég ætlaði mér
að sækja og láta hana hlaupa og
það tókst, hún þreyttist fljótt og
þar með var takmarkinu náð. Nú
er stefnan sett á að koma að ári
og vinna í þriðja sinn og bikarinn
til eignar,“ bætti Vigdís við, en
hún er 19 ára gömul.
, Hörkuslagur
Árna og Brodda
UNDANÚRSLITALEIKUR
Brodda Kiistjánssonar og Árna
Þórs Hallgrímssonar verður
lengi í minnum hafður en hann
stóð yfir í eina og hálfa klukku-
stund. Þeir félagar, sem lengi
hafa verið fremstu badminton-
menn landsins, tókust hressi-
lega á. 1 fyrstu lotu sigraði
Ánii 18:13 en Broddi svaraði í
annarri lotu 15:5. í þriðju lotu
liafði Árni betur 15:7 en lotan
var jafnari en tölurnar gefa til
kynna.
„Vigdís lék mjög vel og ég átti
ekkert svar. í stöðunni 3:3 í síð-
ari lotunni var þrek mitt á þrotum
og hún þurfti ekki að hafa mikið
fyrir sigrinum eftir það,“ sagði
Elsa og var þreytt eftir átökin
enda eigi kona einsömul um þess-
ar mundir.
Sjöunda slgur Áma og Brodda
Enn einu sinni undirstrikuðu
þeir Árni Þór og Broddi að þeir
hafa yfírburði í tvíliðaleik karla
hér á landi. Leið þeirra í úrslitaleik-
inn var greið og er þangað var
komið mættu þeir Tryggva Nielsen
og Nirði Ludvigssyni. Fyrri lotan
var einstefna og 15:5 lokatölur. í
síðari lotunni bar á kæruleysi í
leik meistaranna í stöðunni 13:4
og Tryggvi og Njörður gerðu 4
stig í röð, en komust ekki lengra
og Árni og Broddi gerðu út um
leikinn.
Það sama var upp á teningnum
í tvíliðaleik kvenna er tvær bestu
badmintonkonur landsins, Vigdís
og Elsa sameinuðu krafta sína í
leik við Brynju Pétursdóttur, ÍA
og Erlu Björgu Hafsteinsdóttur,
TBR. Fyrri lotan fór 15:3, en um
stuttan tíma í síðari lotunni virt-
ist sem Brynja og Erla ætluðu
að leggja stein í götu Elsu og
Vigdísar. Þær fyrrnefndu léku af
krafti og komust yfir 6:4. Þá
sögðu meistararnir hingað og
ekki lengra og gerðu 11 stig í röð
og innsigluðu sigur annað árið í
röð.
Létt f tvenndarlelk
Árni og Vigdís urðu í samein-
ingu í fyrsta skipti íslandsmeistar-
ar í tvenndarleik og þurftu ekki
að hafa mikið fyrir sigrinum.
Broddi Kristjánsson og Brynja
Pétursdóttir voru þeim engin
hindrun.
Fyrri lotan fór 15:5, en i síðari
lotunni var um einstefnu að ræða.
Árni og Vigdís gerðu fyrstu nfu
stigin áður en andstæðingunum
tókst að gera eitt stig, en þar með
var sagan öll. Næstu sex stig féllu
í skaut Árna og Vigdísar og ís-
landsmeistaratitillinn um leið.
FOLK
■ BJÖRN Bjarnason mennta-
málaráðherra var heiðursgestur
íslandsmeistaramótsins í badmin-
ton og afhenti verðlaun í einliða-
leik karla og kvenna og tvíliðaleik
karla og kvenna.
■ SIV Friðleifsdóttir alþingi-
maður var einnig á meðal áhorf-
enda á mótinu og sá um að af-
henda verðlaun í tvenndarleik. Siv
er dóttir Friðleifs Stefánssonar
sem á sínum tíma var fremsti bad-
mintonmaður landsins.
■ EINAR Jónsson fýrsti íslands-
meistarinn í einliðaleik karla árið
1949 lét sig ekki vanta í hóp áhorf-
enda fremur en venjulega. Hann
hefur annað hvort verið þátttak-
andi eða áhorfandi að öllum ís-
landsmótum í badminton. Einar
sem er á 84. aldursári leggur enn
stund á badminton sér til heilsubót-
ar. Síðast varð hann íslandsmeist-
ari árið 1962 og þá í tvíliðaleik.
■ BRODDI Kristjánsson varð
íslandsmeistari í tvenndarleik í 15.
skipti á ferlinum á sunnudaginn
og í sjöunda sinn í röð með Arna
Þór Hallgrímssyni. Fimm sinnum
var meðleikari hans Þorsteinn
Páll Hængsson, tvisvar sigraði
hann með Jóhanni Kjartanssyni
og einu sinni með Guðmundi
Adolfssyni. Alls hefur Broddi orð-
ið 35 sinnum meistari frá árinu
1980 þegar fyrsti titillinn kom í
safnið.
■ ÁRNI Þór Hallgrímsson hefur
níu sinnum orðið íslandsmeistari í
tvenndarleik, því auk þess að sigra
í sjö skipti í röð með Brodda hef-
ur hann tvisvar sigrað með Ár-
manni Þorvaldssyni.
■ ÁRNI Þór, sem lék til úrslita
í einliðaleik að þessu sinni gegn
Tryggva Nielsen en tókst ekki
að sigra, hefur einu sinni sigrað í
einliðaleik, en það var árið 1991.
■ ELSA Nielsen og félagi hennar
í TBR Vigdís Ásgeirsdóttir unnu
tvíliðaleik kvenna í þriðja sinn í röð
þetta árið.