Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.02.1997, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ + KNATTSPYRNA Otrúlegur sigur Sampdoria á Milan í stórskemmtilegum leik á San Siro „Ævintýrið heldur áfram en við stefnum sem fyrr á annað sætið" SIGURGANGA Sampdoria heldur áfram í ítölsku knattspyrn- unni og liðið vann frækilegan sigur á AC Milan á San Siro um helgina þrátt fyrir að leikmenn þess væru manni færri mestall- an leikinn. Á sama tíma gerði Juventus jafntefli við Cagliari þannig að bilið á milli þessara liða á toppi deildarinnar er nú aðeinstvö stig. Bologna burstaði Verona 6:1 og skaust íþriðja sætið. |Jkki var liðin mínúta af leik Einar Logi Vignisson skrifar frá Italíu Sampdoria og AC Milan þeg- ar Roberto Mancini skoraði fyrsta markið eftir hroða- leg mistök Pagotto, markvarðar Milan. Leikmenn Samp virkuðu mjög frísk- ir og ógnuðu marki Milan oft í upphafi leiksins en á 22. mínútu urðu kaflaskil í leikn- um er Ferron, markverði gest- anna frá Genúa, var vísað af leik- velli fyrir að skella George Weah, sem var kominn einn inn fyrir vörnina. * Markahróknum Montella var skipt útaf fyrir varamarkvörðinn Sereni og eftir þetta tóku leik- menn Milan völdin á vellinum. Weah, sem verið hefur frá í einn og hálfan mánuð vegna meiðsla, sýndi hversu mikilvægur hann er liðinu og skot frá honum lentu í tréverkinu eða var bjargað á línu þar til hann jafnaði leikinn fyrir lok hálfleiksins með góðu marki eftir sendingu Savicevic. í byrjun síðari hálfleiks skoraði kappinn svo stórglæsilegt mark, þrumu- skot utan við teig og svo virtist sem stefndi í stórsigur Milan. En leikmenn Samp gáfust ekki upp og Mihajlovic jafnaði með skoti beint úr aukaspyrnu utan af kanti og má markið skrifast á Pagotto markvörð sem var afar illa staðsettur. Eftir mikil vam- armistök skoraði Carparelli svo sigurmark Sampdoria og allur vindur var úr Milan leikmönnum. Heilladísimar hafa algjörlega yfírgefíð lið AC Milan í vetur og á sunnudaginn var lánleysið al- gert. Hinsvegar er Óli lokbrá orð- inn fastamaður í vörn liðsins sem er ótrúlega sofandi og hefur verið með útsölu á mörkum nú eftir jól- in. „Þetta er ekki venjuleg óheppni," sagði Silvio Berlusconi eigandi Milan eftir leikinn. „En ég var mjög ánægður með leik liðs- ins mestan hluta leiksins og held að þetta fari að koma allt saman.“ „Skrýtinn leikur og heppnin var með okkur. Við komum til með að veita Juve harða keppni um meistaratitilinn," sagði Roberto Mancini en þjálfari hans Eriksson var öllu jarðbundnari: „Mancini er búinn að tala alltof mikið í dag en hann spilaði vel! Ævintýrið heldur áfram en við stefnum sem fyrr á annað sætið.“ Markalaust hjá Juve Montero, varnarmaður Juvent- us, fékk rauða spjaldið eftir hálf- tíma leik gegn Cagliari á útivelli og Juve náði ekki að knýja fram sigur í markalausum leik. „Þetta var nú ekki ljótt brot en sóknar- maðurinn var kominn einn innfyr- ir og ekki um annað að ræða fyr- ir dómarann en vísa mér af velli, svona eru reglurnar,“ sagði Mont- ero. Verona lagði Milan að velli í síðustu umferð en leikmenn liðsins voru heillum horfnir gegn Bologna og fengu á sig 6 mörk. Scapolo gerði tvö marka Bologna, bæði með hörkuskotum, og þeir Marocc- hi, Paramatti, Shalimov og besti maður vallarins, Svíinn Kennet Andersson, eitt mark hver en Zan- ini gerði eina mark Verona. Ettt það flottasta Parma komst upp að hlið Inter og Vicenza í 4.-6. sæti með enn einum 1:0 sigrinum, að þessu sinni gegn Piacenza. Chiesa gerði mark- ið með viðstöðulausu þrumuskoti og var afar ánægður með það: „Þetta er eitt flottasta mark sem ég hef gert og kom á mikilvægu augnabliki í leiknum." ■ ABEL Balbo skoraði bæði mörk Roma í 2:0 á Vicenza. Argentínu- maðurinn bætti þar með met hol- lenska markakóngsins Marco Van Basten; hefur nú gert 92 mörk í deildinni og er markahæsti erlendi leikmaðurinn frá því að útlendingar hófu innreið sína á ný i deildina 1981. ■ DINO Zoff hefur tekið við þjálfun . Lazio tímabundið. Skv. reglum þjálf- arafélags Ítalíu mega forsetar félaga ekki þjálfa jafnframt, þannig að Zoff sagði af sér þeirri tign - vænt- anlega tímabundið. ■ ZOFF sagðist ánægður með sigur Lazio, 3:2 á Udinese, en tók fram að margt þyrfti að laga í leik liðsins. ■ EIKE Immel sem staðið hefur upp á síðkastið á milli markstangana hjá Man. City tilkynnti í gær að hann ætli að halda heim til Þýska- lands er samningur hans við City rennur út í vor. Ætlar Immel að ganga til liðs við Waldhof Mann- • heim í 2. deild en með því leikur Bjarki Gunnlaugsson. ' ' ' Reuter GEORGE Weah geröl tvö glæslleg mörk fyrlr Mllan gegn Sampdorla, en varö engu að síöur aö sætta slg vlö tap. Annar markahrókur var einnig á skotskónum, Abel Balbo, en hann gerði bæði mörk Roma í 2:0 sigri á Vicenza. „Við höfum verið rosalega misjafnir í vetur,“ sagði Balbo. „Ég er ánægður með mörk- in og að hafa sigrað en þessi sigur merkir ekkert fyrir mér ef að við náum ekki hagstæðum úrslitum í næsta leik, gegn Sampdoria." Hitt Rómarliðið, Lazio, sigraði einnig, Guiseppe Signori skoraði tvö mörk og Pavel Nedved fallegt mark eftir einleik í 3:2 sigri á Udinese. Brasilíumaðurinn Amo- roso gerði bæði mörk Udinese sem náði ekki að nýta sér liðsmuninn en Favalli varnarmaður Lazio var sendur í sturtu í fyrri hálfleik. Napoli náði forystunni í lok fyrri hálfleiks gegn Reggiana með marki frá Aglietti en þýski varnar- maðurinn Dietmar Beiersdorfer jafnaði með skalla í síðari hálfleik pg var þetta fyrsta mark hans á Ítalíu en hann kom til Reggiana í haust frá Köln. Inter gerði markalaust jafntefli við Perugia og ekkert mark var heldur skorað í Flórens þar sem Fiorentina tók á móti Atalanta. Gabriel Batistuta brenndi af vítaspymu fyrir Fior- entina og er það fjórða spyman sem hann misnotar í vetur. Barcelona nægðiekki aðvera betri Leikmenn Real Madrid juku for- ystu sína á toppi 1. deildar á Spáni um helgina er þeir sigruðu Deportivo Coruna 3:2 því á sama tíma gerði aðalkeppinautur þeirra, Barcelona, aðeins jafntefli, 2:2, við Oviedo. Þessi niðurstaða Barcelona- liðsins vakti vonbrigði þjálfarans Bobby Robsons en leikmenn hans höfðu framan af leik alla burði til þess að gjörsigra andstæðinginn. Barcelona komst þó ekki í 2:0 fyrr en snemma í síðari hálfleik eftir að hafa átt mörg marktækifæri án árangurs í fyrri hálfleik. Lukkudís- imar sneru síðan baki við Barcelona og andstæðingarnir sóttu í sig veðrið og jöfnuðu við litla ánægju fjöl- margra áhorfenda á Nou Camp. Það var varamaðurinn Juan Pizzi sem skoraði fyrra mark heimamanna og brasilíski snillingurinn Ronaldo Reuter RONALDO, brasilíski snllllng- urinn hjá Barcelona, geröl 19. mark sltt í spænsku deildlnnl í vetur. Hér er hann í barðttu um knöttlnn vlö Rússann Vlktor Onopko hjð Real Ovledo. gerði annað mark leiksins og sitt nítjánda á leiktíðinni skömmu síðar. Oli Alvarez var ekki af baki dottinn fremur en félagar hans og jafnaði leikinn með tveimur mörkum, hið fyrra kom á 75. mínútu og hið síð- ara rétt undir lokin. „Við létum Oli vera frían í tvígang inni í teig og hann nýtti sér það. Við töpuðum tveimur mikilvægum stigum þótt við værum betri allan leikinn," sagði Robson sár að leikslokum. Real Madrid lenti í tvígang undir í viðureign sinni við Deportivo en lét það ekki á sig fá og hirti öll stigin er yfír lauk, lokatölur 3:2. Það var Brasilíumaðurinn Roberto Carlos sem lagði upp sigurmarkið er hann spretti úr spori með knöttinn upp vinstri vænginn og gaf fyrir markið á ungl- inginn Raul Gonzalez sem sendi áfram á Davor Sukor sem urðu ekki á nein mistök við að afgreiða knöttinn í mark Deportivo og innsigla sigur. „Án nokkurs vafa er lið Deportivo það besta sem leikið hefur við okkur á Bemabeu á yfírstandandi leiktíð," sagði Lorenzo Sanz forseti Real Madrid eftir leikinn. -

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.