Morgunblaðið - 04.02.1997, Side 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Keflavík bikarmeistari í þriðja sinn á fimm árum
Johnson gerði
gæfumuninn
KEFLAVÍK fagnaði tvöföldum
sigri á KR í bikarkeppninni í
Laugardalshöll á laugardaginn
- fyrst í kvennaf lokki, 64:63,
og síðan í karlaflokki, 77:66.
Damon Johnson átti frábæran
leik fyrir Keflavík og það gerði
gæfumuninn í karlaleiknum.
Hann gerði 33 stig og tók við
leikstjórn liðsins af Fali Harð-
arsyni, sem fékk fimmtu villu
sína í upphafi síðari hálfleiks,
og skilaði hlutverkinu með
glæsibrag. KR hafði frumkvæði
í leiknum allt þar til undir lokin.
Keflavík sýndi mikinn styrk á
lokakaflanum, gerði 14 síðustu
stigin og uppskeran var þriðji
bikarmeistaratitillinn á fimm
árum.
KR-ingar bytjuðu mun betur og
eftir þriggja mínútna leik var
staðan orðin 10:0 fyrir KR. Kefla-
víkingar voru í hinu mesta basli við
að koma boltanum niður, en fljót-
lega fundu þeir leiðina og náðu að
saxa á forskotið jafnt og þétt og
komust yfir í fyrsta sinn í leiknum
rétt fyrir leikhlé, 31:30. Vesturbæ-
ingar voru ekki á því að láta foryst-
una af hendi og Birgir Mikaelsson
gerði síðasta stig hálfleiksins úr
vítaskoti og tryggði KR eins stigs
forskot í hálfleik, 37:36.
KR hélt uppteknum hætti eftir
hlé og þegar tvær mínútur voru
liðnar var staðan 42:36 og Falur
fékk fimmtu villu sína. Þá fór um
keflvíska áhorfendur því Falur er
leikstjórnandi liðsins og slæmt að
missa hann útaf. En Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflvíkinga,
var öryggið uppmálað - lét Damon
Johnson taka við leikstjórninni og
þá fór Keflavíkurliðið loks almenni-
lega í gang. Guðjón Skúlason fór
að hitta úr þriggja stiga skotum
sínum og þegar síðari hálfleikur var
hálfnaður var staðan jöfn, 56:56.
KR-ingar náðu aftur forystunni og
þegar fjórar mínútur voru eftir var
Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari Keflvíkinga, hefur farið
vel af stað með liðið í vetur. Tveir
titlar þegar í höfn, Lengjubikarinn
í nóvember og nú bikarinn. „Við
spiluðum ekki eins vel og við eigum
vana til, sérsaklega í sókninni. En
við töluðum um það fyrir leikinn
að það skipti ekki máli hvemig við
spilum svo framarlega að við sigr-
um. Við vorum full rólegir í byijun,
kannski svolítið trekktir. Við bætt-
um vörnina til muna í síðari hálf-
leik og þá fór sóknarleikurinn líka
að ganga upp. Þetta var ekki okkar
leikstíll, en það er í lagi því þetta
undirstrikar bara hvað við getum.
Það var meiri hungur í bikarinn hjá
okkur en þeim.“
Fór ekki um þjálfarann þegar þið
misstuð Fal útaf í bytjun síðari
hálfleiks?
„Það var vissulega slæmt að
Það var sannkölluð
körfuboltahátíð í Laug-
ardalshöll á laugardag-
inn er Keflavík og KR
mættust í bikarúrslit-
um. Valur B. Jón-
atansson fylgdist með
leiknum og sá Keflvík-
inga vinna KR,
staðan 66:63 fyrir KR. Þá sögðu
Keflvíkingar, hingað og ekki lengra,
röðuðu niður boltum og gerðu 14
síðustu stig leiksins og innbyrtu
sigurinn.
Bestir
Keflvíkingar sönnuðu enn einu
sinni í þessum leik hve sterkir þeir
eru þegar á reynir. Þeir eru einfald-
lega bestir. Þó svo að þeir hafi ekki
verið að leika vel unnu þeir samt.
Gerðu það sem þurfti á örlaga-
stundu. Damon Jonson var yfir-
burðamaður á vellinum. Hann er
mikill stemmningsmaður og getur
leikið allar stöður. Hann er án efa
besti erlendi leikmaðurinn í úrvals-
deildinni. Guðjón Skúlason lék vel
í síðari hálfleik og gerði þá fjórar
þriggja stiga körfur. Albert Óskars-
son var sterkur í vöminni og skil-
aði sínu í sókninni. Keflvíkingar eru
vel að sigrinum komnir. Þeir eru
fæddir sigurvegarar og kunna að
höndla velgengnina.
Klaufar
KR-ingar voru klaufar að henda
frá sér sigrinum í lokin. Þeir gerð-
ust þá of bráðir og skutu úr vonlitl-
um færum í stað þess að sækja
meira inn í teiginn og leika af skyn-
semi. Varnarleikur liðsins var
missa Fal útaf svona snemma. En
Damon hefur þurft að taka við leik-
stjórninni áður í vetur, þegar Falur
var meiddur, og ég vissi að hann
gat það vel. Ég hef satt að segja
ekki séð betri leikstjórnanda í deild-
inni_ en Damon svo við vorum í
góðúm málum með hann inná. Hann
lék frábærlega í þessum leik og var
maðurinn á bak við sigurinn."
Þið eruð búnir að vinna þá tvo
titla sem í boði hafa verið, eruð þið
ekki með langbesta liðið?
„Jú, að minnsta kosti í dag. En
það er enginn kominn til með að
segja að það verði líka á morgun.
Það getur allt gerst í þessu. Við
verðum að spila hvem einasta leik
af fullum krafti. Þessi bikar hjálpar
okkur ekkert í næstu leikjum. Við
þurfum því að halda okkur á jörð-
inni því það er ekkert gefið í þessu,“
sagði þjálfarinn.
lengst af góður, en sóknarleikurinn
brást á örlagastundu. Ingvar Orm-
arsson var besti leikmaður liðsins.
Hermann Hauksson lék vel, sér-
staklega í fyrri hálfleik og sama
má segja um Geoff Herman.
Jonathan Bow var ekki sá burðarás
sem ætlast var til fyrirfram. Hann
var óheppinn með skot sín. Skotnýt-
ing hans utan af velli var 55% en
aðeins tvö af sjö skotum hans af
vítalínunni fóm ofaní. Birgir Mika-
elsson barðist vel í vörninni, skor-
aði ékki mikið en átti sjö stoðsend-
ingar.
Skotin röt-
uðu niður
á réttum
tíma
GUÐJÓN Skúlason, fyrirliði
Keflvíkinga, skoraði fímm
þriggja stiga körfur og þar af
íjórar í síðari hálfieik. Hann var
ánægður að leikslokum. „Við
höfum meiri reynslu og líklega
meiri breidd en KR og það hjálp-
aði okkur. Við vitum hvað þarf
til að vinna svona úrslitaleik,“
sagði fyrirliðinn.
„Við spiluðum ekki eins vel
og við getum best, KR-ingar
náðu að halda hraðanum niðri
og því fengum við ekki eins
opin skot og oft áður. En við
náðum að stilla okkur saman í
restina og Damon Jonson setti
KR-inga úr jafíivægi með góð-
um leik. Ég hitti ekki vel í fyrri
hálfleik en skotin fóru að rata
niður á réttum tíma. Það er allt-
af jafn gaman að sigra í svona
leilg'um. Þetta er það sem gefur
þessu gildi,“ sagði Guðjón.
Vantaði
í lokin
HRANNAR Hólm, þjálfari KR-
inga, var að vonum ósáttur við
úrsiitin. „Leikurinn var búinn
að vera í járnum allan tímann.
í lokin duttu boltamir ekki leng-
ur niður hjá okkur. Við ætluðum
að fara meira inn í teiginn í
sókninni, en af einhveijum
ástæðum hörfuðum við þaðan.
Við vorum búnir að leika mjög
agað í 35 mínútur, en það vant-
aði meira sjálfstraust í restina.
Þeir höfðu Damon Jonson en
ekki við. Hann var hreint frábær
og við réðum ekkert við hann.
Keflvíkingar létu Damon hafa
boltann og annaðhvort flakkaði
hann um með hann eða skaut
bara sjálur. Við vorum að spila
við besta lið landsins og emm
yfír meira og minna í 35 mínút-
ur og það er út af fyrir sig er
ágætt. Við lékum mjög vel, sér-
staklega í vörninni. Keflvíkingar
hafa unnið öll liðin í vetur, en
ég vona að við verðum aðeins
betri þegar á líður. Keflavík
hefur reynsluna umfram okkur
í svona leik,“ sagði Hrannar.
Sigurðurlngimundarson, þjáifari
Undirstrikar
getu liðsins
Kef
KEFLVÍKINGAR höfðu ástæöu tll aö fagna í Laugardalshöll ð laug
hafa unnlö þá tvo tltla se
DAMON Johnson var bestl leikmaður vallarins og var maöur-
Inn á bak viö slgur Keflvíklnga. Hér rennir hann sér í gegnum
vörn KR ðn þess aö Birglr Mikaelsson kæmi vörnum við.
Auðveldur
sigur ÍA
sl. sunnudagskvöld þegar liðið tap-
aði sannfærandi fyr-
Stefán Þór ir ÍA. Leikurinn var
Sæmundsson dapur en bestu
skrifarfrá menn vallarins, Ro-
Akureyri jan(j Bayless Og
Dagur Þórisson hjá ÍA, sýndu þó
skemmtileg tilþrif og skoruðu 59
af 86 stigum liðsins, eða litlu minna
en allt Þórsliðið sem gerði 65 stig.
Fyrri hálfleikur var lengst af jafn
en ljóst að lykilmenn brugðust hjá
Þór. Fred Williams var sá eini sem
lét að sér kveða en Bayless og
Dagur skomðu grimmt fyrir IA.
Undir lok hálfleiksins tóku gestirnir
sprett og náðu tíu stiga forystu \
fyrir leikhlé, 43:33.
í seinni hálfleik gekk ekkert upp k
hjá Þór. Fred var afar seinn í gang 1<
og þegar 4 mínútur voru eftir höfðu þ
Þórsarar aðeins skorað 17 stig í s
hálfleiknum og staðan 50:74. Bæði e
liðin slökuðu svo á vamarlejknum u
síðustu mínúturnar en sigur ÍA var þ
aldrei í hættu. v
Sem fyrr segir áttu Bayless og s
Dagur skínandi leik fyrir ÍA og all- e
ir leikmenn liðsins komust á blað.
Þórsarar náðu sér aldrei á strik og u
andinn í liðinu var jafn neikvæður s
og á áhorfendapöllunum, sem ekki a
kann góðri lukku að stýra. b
I