Morgunblaðið - 05.03.1997, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
HANDKNATTLEIKUR
Viðurkenndi
notkun lífs-
hættulegs lyfs
ÓNAFNGREINDUM íþróttamanni frá Austur-
Evrópu var visað frá Olympíuleikunum í Atl-
anta í fyrra eftir að hann hafði viðurkennt að
hafa tekið lyfið erythropoietin (EPO) sem er
á bannlista og lifshættulegt. Alþjóða ólympiu-
nefndin, IOC, sagði eftir leikana að tveir
íþróttamenn hefðu fallið á lyfjaprófi en gat
ekki um fyrrnefnda játningu. Hins vegar
greindi varaformaður læknanefndar IOC frá
þessu í danska sjónvarpinu i gærkvöldi, í við-
tali sem var tekið upp í október sem leið.
Umrætt lyf er talið hafa drepið 18 lyólreiða-
menn í Evrópu á undanförn-
um árum en notkun þess er
talin algeng hjá hjólreiða-
mönnum og öðrum sem
þurfa á miklu þoli að halda,
eins og ræðurum og skíða-
göngumönnum. Sérfræðing-
ar hafa sagt að íþróttamenn
sem lifa samkvæmt hugtak-
inu „betra að vera dauður
en í öðru sæti“ taki áhættuna
en efast ekki um afleiðingar
notkunarinnar.
Dregið í riðla
í EM í körfu
Varnarveggur
Morgunblaðið/Knstmn
VIKINGURINN Krlstín GuAmundsdóttlr reynlr skot úr aukakastl eftlr að flautað hafðl verlð tll
lelkhlés. Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfarl og aðaldrlffjöðrin hjá Fram, ver skot Krlstínar en
aðrar í varnarveggnum eru, frá vlnstri, Svanhlldur Þengllsdóttir, Hekla Daðadóttlr, Þórunn
Garðarsdóttlr, Stelnunn Tómasdóttlr og Ólöf María Jónsdóttlr. Víklngur slgraðl 19:15 og hef-
ur góða stöðu fyrlr síðari, eða annan, lelk liðanna á annað kvöld.
Frönsku
leikmennim-
ir fá umbun
FRÖNSKU landsliðsmenn-
irnir í knattspyrnu fá rúm-
lega tvær miljj. ísl. króna
hver fyrir að taka þátt i fjög-
urra þjóða móti í Frakklandi
í sumar, ásamt landsliðum
Englands, ítaliu og Brasilíu.
Aime Jacquet, þjálfari
franska landsliðsins, fékk
það i gegn hjá franska knatt-
spyrnusambandinu að leik-
menn hans fengju 675 þús.
krónur fyrir hvern leik.
Landsliðsmennirnir verða að
heiman í tæplega tvær vikur
í sumarfríi sínu vegna móts-
ins, sem verður í júní.
fHwgtmiritoMfe
1997
MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ
BLAD
Dregið hefur verið í riðla í Evrópu-
keppni landsliða í körfuknattleik
sem fram fer á Spáni 25. júní til
6. júlí. Eftirfarandi lið drógust
saman:
A-riðill: (spilað í Gerona) Grikk-
land, Bosnía, Rússland og Tyrk-
land.
B-riðill: (Gerona) Litháen, Sló-
venía, Frakkland og ísrael.
C-riðill: (Badalona) Júgóslavía,
Lettland, Italía og Pólland.
D-riðill: (Badalona) Króatía,
Úkraína, Spánn og Þýskaland.
■ Efstu þijú liðin í hverjum riðli
komast áfram í tvo sex liða riðla.
Tvö efstu liðin í þessum tveimur
riðlum leika síðan í undanúrslitum
keppninnar sem verður með út-
sláttarfyrirkomulagi.
SUND
Hafþór ráðinn
landsliðsþjálfari
Mörg verkefni framundan
„Mörg verkefni eru framundan. Stefnan er að auka sam-
vinnu á milli landsliðshópa. Eðvarð Þór Eðvarðsson og Sig-
urlína Þorbergsdóttir sjá um þjálfun unglingalandsliðanna,"
sagði Hafþór Guðmundsson. Meistaramótið innanhúss verð-
ur í Vestmannaeyjum um aðra helgi og J kjölfarið verður
landsliðið valið fyrir Smáþjóðaleikana á íslandi í júní. HM
í 25 metra laug verður i Sviþjóð í apríl og alþjóða unglinga-
mót í Lúxemborg um sama leyti en Evrópumót unglinga
og fullorðinna verðá í sumar.
Hafþór B. Guðmundsson hefur
verið ráðinn landsliðsþjálfari
í sundi fram yfir heimsmeistaramót-
ið í Perth í Ástralíu á næsta ári.
Hann á að leggja linurnar í allri
skipulagningu fram að Ólympíu-
mmm^mmmmmmmmmm leikunum í
Sydney
2000 o g
fara í allar
keppnis-
ferðir með
landsliðs-
hópum á
ráðningar-
tímanum en
um er að
ræða verk-
efnastarf
frekar en fast starf eins og Arnar
Birgisson, formaður landsliðsnefnd-
ar, orðaði það. „Við höfum yfir tak-
mörkuðu fjármagni að ráða og þetta
er fyrsta skrefið en takmarkið er
að landsliðsþjálfari verði í hluta-
starfi eða fullu starfí frá og með
næsta ári. Á undanförnum árum
hefur verið byggt upp gott ungl-
ingastarf sem hefur skilað sér í
meiri breidd og betri árangri en
áður og við viljum fylgja því starfi
eftir með þessari ráðningu."
Hafþór hefur verið viðloðandi
sund í rúma þtjá áratugi, fyrst sem
keppandi í félagsliði og landsliði,
og síðan sem stjórnarmaður og
þjálfari. Hann fór sem landsliðs-
þjálfari á Ólympíuleikana í Los
Angeles 1984, á Kalottkeppnina,
Evrópumeistaramótið og Smá-
þjóðaleikana í San Marino 1985 en
á þessum tíma var hann einnig
þjálfari KR. 1991 var hann þjálfari
hjá Ægi en 1991 til 1996 aðalþjálf-
ari hjá Ármanni auk þess sem hann
aðstoðaði Sundsambandið við þjálf-
un landsliðsins á tímabilinu. Frá
1993 hefur hann einnig verið kenn-
ari við íþróttakennaraskólann að
Laugarvatni en hann er með há-
skólapróf frá Kanada í íþróttafræð-
um.
Sundsambandið og Tó ehf., um-
boðsaðili fyrir Speedo-sundvörur,
hafa haft með sér samstarf undan-
farin ár og í gær undirrituðu Sævar
Stefánsson, formaður Sundsam-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
HAFÞÓR B. Guðmundsson,
nýráðlnn landsliðsþjálfari.
bandsins, og Torfi Tómasson samn-
ing sem gildir fram yfír Ólympíu-
leikana í Atlanta 2000. Sævar sagði
að meta mætti samninginn á um
fimm milljónir króna en Sundsam-
bandið fengi allan nauðsynlegan
fatnað og búnað frá fyrirtækinu.
ÞOLFIMI: HALLDÓR BIRGIR FÉKK GULL EFTIR FJÖGURRA ÁRA BARATTU / C4