Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 5. MARZ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
IÞROTTIR
Hreinn byrjarvel með
Dumbarton í Skotlandi
HREINI Hringssyni hefur gengið allt í haginn í Skotlandi und-
arnfamar vikur. Um helgina skoraði hann mark í sínum fyrsta
leik með Dumbarton þegar það gerði 1:1 jafntefli við Brechin í
2. deildinni og í gærkvöldi skoraði Hreinn á ný, að þessu sinni
gegn Clyde, en það dugði ekki því Dumbarton tapaði 2:1 á óti-
velli. í herbúðum Dumbarton er annar íslendingur, Heiðar Sigur-
jónsson sem leikið hefur með Þrótti, en hann bíður eftir leikheim-
ild frá íslandi.
KA lagði ekkert til
Handknattleikur
Víkingur-Fram 19:15
Víkin, fyrri eða fyrsti leikur í 8-liða úrslitum
1. deildar kvenna í handknattleik, þriðju-
daginn 4. mars 1997.
Gar.gur leiksins: 2:0, 2:3, 4:5, 8:5, 8:7,
9:7, 9:9, 10:9, 11:10, 11:12, 15:12, 18:13,
18:15, 19:15.
Mörk Víkings: Elísabet Þorgeirsdóttir 5,
Helga Brynjólfsdóttir 4, Guðmunda Krist-
jánsdóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 3,
Heiðrún Guðmundsdóttir 3, Heiða Erlings-
dóttir 1.
Varin skot: Helga Torfadóttir 13 (þaraf 3
til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Fram: Svanhildur Þengilsdóttir 6,
Guðriur Guðjónsdóttir 3, Þórunn Garðars-
dóttir 2, Hekla Daðadóttir 2/1, Steinunn
Tómasdóttir 1, Sigurbjörg Kristánsdóttir 1.
Varin skot: Hugrún Þorsteinsdóttir 15/2
(þaraf 0/2 til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Magnús Ó. Björnsson og Hilmar
I. Jónsson. Dæmdu allt of lftið en voru
lengstum samkvæmir sjálfum sér.
Áhorfendur: Ríflega 60.
Stjarnan-ÍBV 27:19
íþróttahúsið í Garðabæ:
Gangur leiksins: 5:0, 7:2, 9:3, 12:4, 15:6,
17:8, 20:11, 24:14, 24:17, 27:19.
Mörk Stjörnunnar: Sigrún Másdóttir 6,
Ragnheiður Stephensen_6/4, Rut Steinsen
5, Björg Gilsdóttir 3, Ásta Sölvadóttir 3,
Inga Fríða Tryggvadóttir 1, Herdís Sigur-
bergsdóttir 1, Margrét Theódórsdóttir 1,
Hrund Grétarsdóttir 1.
Varin skot: Sóley Halldórsdóttir 9/1 (þar
af þijú til mótherja), Fanney Rúnarsdóttir
4 (þar af tvö til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Sara Guðjónsdóttir 7/5, Ingi-
björg Jónsdóttir 6, Stefanía Guðjónsdóttir
1, Unnur Sigmarsdóttir 1, Þórunn Pálsdótt-
ir 1, Maria Rós Friðriksdóttir 1, Guðbjörg
Guðmannsdóttir 1, Elísa Sigurðardóttir 1.
Varin skot: Laufey Jörgensdóttir 10/1 (þar
af tvö til mótheija), Petra F. Bragadóttir 1.
Utan vallar: 2 mínútur.
Dómarar: Guðmundur Kristinn Erlendsson
og Ómar Harðarson réðu ekki við starfið.
Áhorfendur: Um 80.
2. DEILD KARLA
BREIÐABLIK- VÍKINGUR...........28:26
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VÍKINGUR 19 18 0 1 592: 389 36
BREIÐABLIK 19 16 0 3 585: 393 32
ÞÓR 17 14 2 1 508: 355 30
KR 18 13 O 5 534: 416 26
HM 17 8 2 7 436: 403 18
FYLKIR 16 7 2 7 379: 355 16
IH 17 6 2 9 388: 456 14
ÁRMANN 18 3 1 14 405: 565 7
KEFLAVlK 17 2 1 14 400: 542 5
HÖRÐUR 16 2 0 14 357: 515 4
ÖGRI 18 2 0 16 379: 574 4
Körfuknattleikur
KFÍ - Keflavik 91:107
íþróttahúsið Torfunesi, frestaður leikur úr
21. umferð úrvalsdeildar í körfuknattleik,
þriðjudaginn 4. mars 1997.
Gangur leiksins: 3:0, 8:16, 13:23, 25:35,
38:42, 47:48, 47:50, 67:67, 72:81, 82:96,
87:100, 91:107.
Stig KFÍ: Derrick Bryant 29, Chiedu Odu-
adu 20, Guðni Guðnason 14, Friðrik Stef-
ánsson 13, Baldur Jónasson 8, Magnús
Gislason 3, Ingimar Guðmundsson 2, Pétur
Sigurðsson 2.
Fráköst: 24 í vörn - 18 i sókn.
Stig Keflavíkur: Kristinn Friðriksson 32,
Damon Johnson 22, Falur Harðarson 19,
Guðjón Skúlason 14, Gunnar Einarsson 7,
Albert Óskarsson 6, Kristján Guðlaugsson
5, Birgir Öm Birgisson 2.
Fáköst: 23 I vörn - 6 í sókn.
Dómarar: Eggert Aðalsteinsson og An-
tonio Roberto Cuilio. Voru slakir.
yillur: KFÍ 19 - Keflavík 19.
Áhorfendur: Um 900.
UMFT - Haukar 102:106
íþróttahúsið á Sauðárkróki:
Gangur leiksins: 4:2, 15:11, 29:18, 38:28,
50:38, 62:51, 62:62, 73:68, 82:76, 89:84,
94:96, 99:99, 102:106.
Stig Tindastóls: Winston Peterson 31,
Ómar Sigmarsson 20, Arnar Kársson 19,
Cesare Piccini 18, Lárus Dagur Pálsson 9,
Skarphéðinn Ingason 5.
Fráköst: 29 í vörn - 7 í sókn.
Stig Hauka: Shawn Smith 27, Jón Amar
Ingvarsson 25, Pétur Ingvarsson 20, Sigús
Gizurarson 15, fvar Ásgrímsson 11, Daníel
Öm Ámason 4, Bergur Eðvarðsson 4.
Fráköst: 26 í vörn - 12 í sókn.
Dómarar: Kristján Möller og Sigmundur
Herbertsson vom slakir.
yillur: UMFT 23 - Haukar 21.
Áhorfendur: Um 230.
Fj. leikja U T Stig Stig
KEFLAVÍK 21 18 3 064: 750 36
UMFG 22 17 5 048: 918 34
ÍA 22 15 7 758: 673 30
HAUKAR 22 15 7 875: 798 30
UMFN 22 13 9 868: 811 26
KR 22 11 11 926: 833 22
SKALLAGR. 22 10 12 808: 874 20
ÍR 22 9 13 884: 884 18
KFÍ 22 9 13 819: 873 18
UMFT 21 7 14 729: 795 14
ÞÓR 22 6 16 792: 979 12
BREIÐABLIK 22 1 21 581: 964 2
NBA-deildin
Chicago - Milwaukee..........108:90
• Þetta var 21. heimasigur Chicago í röð
en liðið hefur leikið 28 leiki heima og að-
eins tapað einum. Scottie Pippen var með
25 stig fyrir meistarana og þar af 21 í
þriðja leikhluta en Michael Jordan skoraði
24 stig í fyrri hálfleik og 31 stig alls. „Eins
og hlutimir hafa gengið fyrir sig hjá okkur
virðist þetta auðvelt en við höfum bætt
hver annan upp eins og best verður á kosið
að undanfömu," sagði Jordan.
Golden State - Utah........104:111
Toronto - Boston...........103:107
• Þriðji útisigur Boston á tímabilinu. „Við
vomm innstilltir á sigur,“ sagði Todd Day
sem skoraði 15 af 27 stigum sínum í flórða
leikhluta. „Kannski eflir þetta okkur,“ bætti
hann við. Antoine Walker var með 21 stig
og 10 fráköst og Eric Williams 20 stig.
Carlos Rogers skoraði 17 stig fyrir Toronto
en Damon Stoudamire var með 11 stig og
17 stoðsendingar.
Sacramento - New Jersey.....108:95
Knattspyrna
UEFA-keppnin
Fyrri leikir í 8-liða úrslitum:
Geisenkirchen, Þýskaiandi:
Schalke - Valencia..................2:0
Thomas Linke (44.), Marc Wilmots (82.).
56.824.
Newcastle, Englandi:
Newcastle - Mónakó..................01
Sonny Anderson (59.). 36.215.
Brussel, Belgíu:
Anderlecht - Inter Mílanó..........1:1
Bmno Versavel (27.) - Maurizio Ganz (75.).
25.379.
Tenerife, Spáni:
Tenerife - Bröndby.................0:1
Ebbe Sand (29.). 21.000.
England
Úrvalsdeildin:
Sunderland - Tottenham..............0:4
Iversen 3 (2., 9., 62.), Nielsen (26.). 20.785.
• Þetta var aðeins annar sigur Tottenham
t stðustu tíu leikjum liðsins. Það var Norður-
landasamvinna - Norðmaður skoraði þijú
mörk, Dani eitt.
1. deild:
Barnsley - Swindon..................1:1
Redfeam (35.) - Thorne (41.). 8.518.
Birmingham - Wolves................1:2
Forster (70.) - Bull (1.), Godman (23.).
19.838.
Charlton - QPR.....................2:1
Leaburn (4.), Balmer (26.) - Dichio (3.).
10.610.
Crystal Palace - Bolton............1:1
Linighan (50.) - Blake (90.). 16.035.
Huddersfield - Oxford..............1:0
Makel (27.). 11.276.
Ipswich - Bradford.................3:2
Sedgley (18. - vítasp.), Sonner (87.), Greg-
ory (90.) - Sundgot (64., 74.). 9.367.
Oldham - Tranmere .................1:2
Banger (39.) - Brannan 2 (4., 58.). 5.417.
Reading - Norwich..................2:1
Morley (20.), Adams (86. - sjálfsm.) -
Adams (27. - vítasp.). 8.174.
Sheffield United - Port Vale.......3:0
Ward (62. - vítasp.), Taylor (79.), Fjörtoft
(82.). 14.950.
Ishokkí
NHL-deildin
NY Rangers - San Jose..........5:4
■ Eftir framlengingu.
Toronto - Boston...............4:2
Colorado - Vancouver...........5:1
EM ungiinga
íslenska unglingalandsliðið í íshokkí tapaði
fyrsta leik sínum á Evrópumeistaramótinu
sem hófst í Belgrad í Júgóslavíu ! gær-
kvöldj. Mótherjamir í þessum fyrsta lands-
leik Islands í íshokkí vora Spánveijar og
sigmðu þeir nokkuð öragglega, 11:6. Ágúst
Torfason gerði 3 mörk og þeir Ingólfur Ólæs-
en, Sigurður Sveinbjamarson og Haraldur
Hannesson eitt mark hver. Eggert Hannes-
son átti þijár stoðsendingar og Haraldur
Vilhjálmsson eina. ísland leikur í D-flokki
Evrópumótsins en þar leika einnig auk Spán-
veija Júgóslavía, Tyrkland og fsrael.
í kvöld
Handknattleikur
Úrslitakeppni kvenna:
Kaplakriki: FH-KR......ki. 18.15
Strandgata: Haukar-Vaiur.kl. 20
1. deild karla:
Ásgarður: Stjaman - KA...kl. 20
Kaplakriki: FH - Fram....kl. 20
Selfoss: Selfoss-HK......kl. 20
Hlíðarendi: Valur-Grótta.kl. 20
Varmá: UMFA-ÍR...........kl. 20
Vestm.: ÍBV-Haukar.......kl. 20
2. deild karla:
Akureyri: Þór-Fylkir.....kl. 20
„NOKKUR umíjöllun hefur verið í
fjölmiðlum um brotthvarf Vernharðs
Þorleifssonar júdómanns tii Noregs,
þar sem hann ætlar að hasla sér
völl og keppa fyrir Noregs hönd.
Vernharður segir m.a. eina af ástæð-
unum vera að hann fái ekki nægilega
fyrirgreiðslu af hálfu íþróttahreyf-
ingarinnar á íslandi og þess vegna
verði hann að leita til annarra landa.
Inn í þessa umræðu hefur blandað
sér formaður KA á Akureyri, Sig-
mundur Þórisson, og gagnrýnt Júdó-
samband íslands fyrir það að gera
ekki nægilega vel við Vernharð Þor-
leifsson. Vegna þess sem að framan
er nefnt vill JSÍ láta eftirfarandi
koma fram:
1. Fyrir Ólympíuleikana í Atlanta
stóð Ólympíunefnd íslands með þá-
verandi formann, Júiíus Hafstein, í
broddi fylkingar ásamt JSÍ og Vern-
harði, fyrir söfnun í sérstakan sjóð
sem átti að styðja við bakið á Vern-
harði til þess að hann gæti undir-
búið sig sem best fyrir ÓL í Atlanta.
Styrkur afreksmannasjóðs sem eyrn-
armerktur var Vernharði rann einnig
í þennan sjóð. Þetta verkefni tókst
vel og var heildarumfang sjóðsins
áætlað um kr. 2,5 milljónir. Þegar
upp var staðið reyndist útlagður
kostnaður eingöngu vegna Vern-
harðs vera um kr. 2,8 milljónir. Rétt
er að upplýsa lesendur að KA á
Akureyri lagði ekkert til í þetta verk-
efni. TJr þessum sjóði fékk Vernharð-
ur laun mánaðarlega, húsaleigustyrk
og allur æfinga- og keppniskostnað-
ur var einnig greiddur úr sjóðnum.
Hvorki fyrr né síðar hefur nokkur
íslenskur keppandi í júdó fengið aðra
eins fyrirgreiðslu af hálfu íþrótta-
hreyfíngarinnar sem Vernharður
þetta tímabil, en það náði frá júlí
1995 tii og með ágúst 1996.
2. Áður en fyrmefndur sjóður
kom til hafði Vemharður verið á
styrk hjá Ólympíusamhjálpinni, þ.e.
á síðari hluta árs 1994. Hafði hann
alia möguleika á að halda áfram á
þeim styrk fram yfír ÓL í Atlanta
en afþakkaði styrkinn með því að
hverfa frá æfíngamiðstöð á Spáni
þar sem hann var staðsettur án þess
að kveðja kóng né prest.
3. Eftir ÓL í Atlanta sótti JSÍ um
styrk úr afreksmannasjóði vegna
Vernharðs með bréfí til sjóðsins,
dags. 2. september 1996. Vemharður
hafði að vísu ekkert æft frá ÓL en
JSÍ átti ekki von á öðru en að hann
hæfí æfingar fljótlega. Annað kom
þó í ljós, Vemharður lýsti því yfir
að hann væri hættur að keppa í júdó,
var því erfítt um vik fyrir JSÍ að
halda áfram að vinna að fjáröflun
fyrir Vemharð.
4. JSÍ heyrði ekkert í Vernharði
fyrr en að fréttir bámst um að Jón
Arnar og Guðrún Arnardóttir fengju
myndarlegan styrk frá afreksmanna-
sjóði, var það í desember 1996. Strax
eftir áramótin sótti JSI um styrk úr
sjóðnum og var það gert í fullu sam-
ráði við Vemharð og félag hans, KA,
enda hafði formaður KA þá þegar,
þ.e. 8. janúar, óskað skriflega eftir
því við JSí. í því bréfí staðfestir for-
maður KA að Vernharður sé byrjað-
ur að æfa og var það í fyrsta skipti
frá því á ÓL í Atlanta að slík stað-
festing lá fyrir. Það er rétt að það
komi fram hér að reglur afreks-
mannasjóðs kveða á um það að ein-
ungis þeir sem stunda æfingar og
keppni geta fengið styrk úr sjóðnum.
í reglum sjóðsins kemur einnig fram
að styrkir em veittir til að greiða
kostnað af æfinga- og keppnisferð-
um, dvöl í æfingabúðum og greiðslu
vinnutaps viðkomandi íþróttamanns.
5. Afreksmannasjóður ÍSÍ stað-
festi styrkinn með bréfi þann 22.
janúar sl. og um sé að ræða 4 ein-
greiðslur eða samtals kr. 720 þús-
und. Sá peningur myndi duga honum
fyrir öllum ferðakostnaði vegna
keppnisferða og æfínga sem nauð-
synlegt er að taka þátt í á ári hveiju.
Nokkmm dögum síðar hafnaði Vem-
harður styrknum þrátt fyrir að bæði
forseti ÍSÍ, Eliert B. Schram, og
þáverandi formaður Óí, Júlíus Haf-
stein, væru tilbúnir að vinna að íjár-
öflun fyrir Vernharð. Hugmyndir
vom um að stofna sjóð sem greiddi
Vemharði iaun mánaðarlega eins og
fyrir Ó1 ’96 svo og allan kostnað við
æfíngar og keppni. Reynt er að gera
JSÍ tortryggilegt með því að segja
að JSÍ ætli sér 25% úr sjóðnum. Ur
þessum sjóði átti að greiða hluta
þess kostnaðar (25%) sem lendir á
JSÍ vegna þessa, eins og t.d. aðstoð-
armanns (þjálfari) og fleira. Þetta
er sámbærilegt og gert er með Jón
Arnar nema að úr hans sjóði er allur
kostnaður greiddur vegna aðstoðar-
manns hans.
6. Eitt af skilyrðum fyrir þátttöku
Júdósambandsins í þessari íjáröflun
var sú sjálfsagða krafa að Vernharð-
ur hæfí æfingar strax og stundaði
þær af reglusemi alveg eins og vinnu-
veitandi ætlast til þess að launþegi
mæti til vinnu ef greiða á honum
laun, svo og að landsliðsþjálfari JSÍ
fylgdist með framvindu mála hjá
Vemharði enda er það verkefni sér-
sambandanna að fylgja eftir æfíng-
um og keppni þeirra einstaklinga sem
fá styrki með þeim hætti sem hér
um ræðir. Vernharður hafði ekkert
æft frá því á leikunum í Atlanta og
aðeins mætt á 2 æfingar frá áramót-
um. Meiðsli áttu sinn þátt í því, en
engum dylst sem til þekkir að Vern-
harður hefði átt að sýna meiri áhuga
þegar málin voru komin í þann far-
veg sem að framan greinir.
Að framansögðu vill JSÍ aifarið
hafna því að það hefði ekki verið
tilbúið að leggja sitt af mörkum fyr-
ir Vernharð Þorleifsson. Bæði JSí og
aðrir í íþróttahreyfíngunni voru til-
búnir til aðstoðar og er stjórn JSÍ
ekki í neinum vafa um að vel hafí
til tekist. Hvort það hefði nægt Vern-
harði er ekki hægt að segja um.
Aftur á móti vekur þetta mál þá
spumingu hve íþróttaforustumenn
eiga að ganga langt til þess að þókn-
ast afreksmönnum. Mörg dæmi inn-
an íþróttahreyfingarinnar blasa við
þar sem félög og sérsambönd eru svo
stórskuldug vegna kostnaðar við af-
reksíþróttir, þ.e. launagreiðslur til
íþróttamanna, þjálfara, æfinga og
keppnisferða o.s.frv., að í sumum
tilfellum er um hreina uppgjöf að
ræða. I þessum efnum ættu afreks-
íþróttamennirnir að líta sér nær.
Öllum sem til þekkja þykir miður
hvernig mál Vemharðs hafa þróast.
Hann tók þá ákvörðun að yfirgefa
ísland þrátt fyrir að fyrir lægi vilji
margra til að taka á hans málum.
Allir sem störfuðu með honum munu
sakna hans, honum fylgja hlýjar
kveðjur og óskir um velgengni á
nýjum slóðurn."
Reykjavík, 4. mars 1997.
Virðingarfyllst,
Sljórn Júdósambands íslands.
ÍR-ingar anda léttar
ÍR-INGAR önduðu léttar þegar þeir
heyrðu úrslit úr leik KFÍ og Keflavíkur
í gærkvöidi því þá varð ijóst að þeir
náðu síðasta sætinu í úrslitakeppninni
sem hefst um helgina. Keflvíkingar, sem
unnu KFÍ í gær, munu mæta ÍR í 8-liða
úrslitunum, Grindvíkingar taka á móti
Skallagrímsmönnum, Skagamenn taka
á móti KR-ingum og Haukar fá Njarð-
víkinga í heimsókn. KFÍ, Tindastóll og
Þór halda sætum sínum í úrvalsdeild-
inni en Breiðablik feUur í 1. deild.
KNATTSPYRNA
Mónakó
lagði
IMewcastle
Brasilíumaðurinn Sonny Anderson tryggði
Mónakó sigur á Newcastle á St. James’
Park í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum UEFA-
bikarkeppninnar. Markið kom á 59. mín., þá
lék hinn 19 ára Thierry Henry upp að enda-
mörkum og sendi knöttinn fyrir mark Newc-
astle - Anderson var á réttum stað og sendi
knöttinn í netið, fram hjá Shaka Hislop. Þetta
er sætur sigur fyrir franska liðið, sem hefur
ekki tapað fjórum leikjum sínum heima í
keppninni.
Newcastle lék án ensku landsliðsmiðherj-
anna Alan Shearer og Les Ferdinand og Kól-
umbíumannsins Faustino Asprilla. Liðið fékk
fá marktækifæri, enda áttu leikmenn þess í
erfiðleikum með að fóta sig á miðjunni, þar
sem Mónakómaðurinn Ali Benarbia réð ríkjum,
var hreint út sagt frábær.
Varnarleikmaðurinn Thomas Linke var hetja
Schalke, þegar liðið lagði Valencia að velli,
2:0. Linker kom liðinu á bragðið rétt fyrir leik-
hlé þegar hann skallaði knöttinn í netið eftir
fyrirgjöf Olaf Thon. Þá lék Linker mjög vel í
vörninni, hafði gætur á besta leikmanni Va-
lencia, Machado Leandro. Belgíumaðurinn
Marc Wilmots skoraði seinna markið á 82. mín.
Varamaðurinn Maurizio Ganz tryggði Inter
Milanó jafntefli gegn Anderlecht í Brussel,
1:1. Hann skoraði markið fímmtán mín. fyrir
leikslok og tveimur mín. áður en dómarinn
flautaði leikinn af átti hann skot sem hafnaði
á tréverkinu á marki Anderlecht. Ganz skor-
aði mark sitt eftir að markvörðurinn Geert
De Vlieger hafði varið „hjólhestaspyrnu“ frá
Marco Branca. Bruno Versavel skoraði mark
heimamanna.