Morgunblaðið - 05.03.1997, Blaðsíða 4
ÞOLFIMI / ISLANDSMOTIÐ
Morgunblaðið/Halldór
H ALLDÓRI Birgl Jóhannssynl frá Aerobic Sport tókst loks, eftlr fjögurra ára baráttu, aö hreppa gulllö í karlaf lokkl.
Gull efflir flög-
urra ára baráttu
Morgunblaðið/Halldór
ÁSDÍS Pétursdóttir úr Ármannl endurtók leiklnn frá í fyrra og vann elnstakllngskeppnlna.
KNATTSPYRNA
Kevin Keegan telur að Manchester United verði Evrópumeistari
Andy Cole á efftir
að springa út
MIKIÐ fjör á var fjölum
Laugardalshallarinnar þegar
íslandsmótið ■ þolfimi fór
fram. Rúmlega þúsund áhorf-
endur horfðu á þrjátíu kepp-
endur spreyta sig í einstakl-
ings-, para- og hópakeppni.
Ásdís Pétursdóttir úr Ármanni
endurtók leikinn frá ífyrra og
sigraði einstaklingskeppni
kvenna en Halldór Birgir Jó-
hannsson frá Aerobic Sport
tókst loks, eftir fjögurra ára
baráttu, að hreppa gullið í
karlaflokki.
Nokkrar breytingar hafa orðið
á reglum sem dómarar vinna
eftir, en þær lúta að því að auka
frelsið í æfingum og
leyfa fimleikum að
Stefánsson k°ma meira inn'
skrifar Keppendur eru
dæmdir eftir list-
fengi, tækni og erfiðleikaæfingum
auk þess að eiga möguleika á bón-
us fyrir listfengi en geta einnig
fengið refsistig, til dæmis fyrir að
stíga á línu eða taka sér of Iangan
tíma í æfinguna, sem skal vera i
tvær mínútur. Áður var ekkert
hámark á erfíðleikaæfingum, sem
gerði það að verkum að æfingarn-
ar margar hverjar voru hlaðnar
erfiðum æfingum á kostnað mýkt-
ar og frumlegheita. Nú skal gera
16 erfiðleikaæfingar og er ætlunin
með því að leyfa keppendum að
skapa meira.
„Ég bjóst alls ekki við sigri því
mér gekk ekki of vel, var þreytt
en náði samt að komast í gegnum
æfinguna og var ánægð með það.
Ætli ég hafi ekki æft of mikið en
lært jafnframt mikið af því,“ sagði
Ásdís eftir mótið. „Ég ætla að taka
mér hvíld nú en er alls ekki hætt.
Það var líka gaman að sjá mörg
ný andlit á þessu móti og það hef-
ur fjölgað í þolfiminni, sem er af
hinu góða.“
Leið Halldórs að sigri á íslands-
móti hefur legið uppávið en það
hefur tekið sinn tíma því fyrir fjór-
um árum náði hann fjórða sæti,
árið eftir því þriðja, í fyrra hafnaði
hann í öðru sæti en í ár loks í hinu
langþráða fyrsta. „Þetta var hörð
keppni en ég hef æft af kappi í
fjögur ár og uppskar loks erfiði
þess,“ sagði Halldór. „Ég hef
eflaust notið reynslunnar og haft
hana umfram keppinauta mína því
ég keppti á heimsmeistaramótinu
í haust og sú reynsla kemur sér
mjög vel í móti sem þessu. Það
gefur aukið sjálfstraust, sem skipt-
ir miklu við að koma fram og skila
sínum æfingum svo að ég var
nokkuð bjartsýnn fyrir mótið.“
Kevin Keegan sagði við ensku
sjónvarpsstöðina ITV um
helgina að hann ætti ekki eftir að
koma nálægt knattspymuliðum,
afskiptin af knattspymu yrði ekki
meiri en taka þátt í sjónvarpslýsing-
um á stöðinni. „Ég lít björtum aug-
um til framtíðarinnar án knatt-
spyrnu. Ég átti góð fimm ár [hjá
Newcastle] en allt á upphaf og endi.
Framtíðin er áhugaverð og á þess-
ari stundu segi ég að nú sé nóg
komið en aldrei skal segja aldrei.
Lífið heldur áfram og það á vel við
mig að þurfa ekki að vakna til að
fara út á völl rétt eins og ég naut
þess í byrjun hjá Newcastle."
Hann sagðist ekki eiga eftir að
fara á St. James’ Park, með einni
undantekningu, ágóðaleik fyrir Pet-
er Beardsley. „Gera má ráð fyrir
að leikurinn verði í lok næsta tíma-
bils og ef ég mæti aftur á völlinn
verður það aðeins fyrir hann vegna
þess sem hann er.“
Undanfarna tvo mánuði hefur
Keegan slappað af á Flórída og
Spáni en ummæli hans í sjónvarps-
þættinum sýna að hann á erfitt
með að slíta sig frá knattspyrn-
unni. „Ég held að Manchester Un-
ited sigri Porto og fari alla leið og
ég vona það svo sannarlega," sagði
hann um helstu mótheija sína til
langs tíma en fyrri leikirnir í átta
liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu verða á morgun. „Áhangendur
Manchester United hafa heldur ekki
séð það besta til Andy Cole. Rjóm-
inn flýtur ofan á og ef til vill verð-
ur hann í sviðsljósinu í Evrópu."
Sem kunnugt er seldi Keegan
Cole til United fyrir tveimur árum
og hann kom stuðningsmönnum
Newcastle oft á óvart en hann hef-
ur enn ekki sagt alla söguna. Fyrir
skömmu undirritaði hann samning
um útgáfu sögu sinnar, samning
sem færir honum 500.000 pund
(tæplega 58 millj. kr.), en bókin á
að koma út í haust.
■ FORRÁÐAMENN franska liðs-
ins Marseille gera sér vonir um að
fá Kevin Keegan sem þjálfara liðs-
ins. Keegan og Robert-Louis
Dreyfus, formaður Marseille, eru
kunningjar.
■ RUUD GuIIit, knattspyrnustjóri
Chelsea, mun ekki leika meira með
liðinu í vetur. Hann ökklabrotnaði
í leik gegn Derby sl. laugardag og
verður í gifsi í mánuð.
■ GIANFRANCO Zola lék ekki
með Chelsea í Derby um helgina
en verður með á móti Blackburn í
kvöld. Mikið álag verður á liði
Chelsea á næstunni, sex leikir á
18 dögum.
■ ARSENAL íhugar að bjóða 12
milljónir punda í hollensku bræð-
urna Ronald og Frank De Boer.
■ SOUTHAMPTON hækkaði til-
boð sitt í vamarmanninn Steve
Harkness, bauð 1,3 millj. punda en
Liverpool hafnaði því.
■ HOLLENSKI vamarmaðurinn
Michel Vonk, sem Sheffield Un-
ited keypti á 500.000 pund fyrir
15 mánuðum meiddist á æfingu og
leikur ekki meira á tímabilinu. Hann
var nýbyijaður aftur eftir uppskurð
í nóvember.
■ STEVE Staunton, vamarleik-
maður Aston Villa, er meiddur á
ökkla og leikur líklega ekki með lið-
inu gegn Leicester í kvöld.
■ LAUREN Viaud, miðvallarleik-
maður Mónakó, er við æfingar hjá
Everton.
■ SOUTHAMPTON hefur keypt
miðheijann Mike Evans frá Plymo-
uth á 500 þús. pund.
■ MIKE Sheron, miðheiji Stoke,
er efstur á óskalista QPR, sem er
tilbúið að borga tvær millj. punda
fyrir hann.
■ DAVID Ginola hjá Newcastle,
segist ekki hafa komið til liðsins,
til að verma varamannabekkinn.
Barcelona, Inter Milanó, París
St Germain og Marseille vilja fá
hann til sín.
■ PRESTON hafnaði í gær boði
frá Aston Villa, sem var tilbúið að
borga 600 þús. pund fyrir vamar-
leikmanninn Sean Gregan, 22 ára.
■ HOWARD Kendall, knatt-
spymustjóri Sheff. Utd., ætlar að
ræða við gríska miðvallarleikmann-
inn Temur Ketsbain, sem Ieikur
með AEK Aþena.
■ WALTER Zenga, fyrrverandi
landsliðsmarkvörður Ítalíu, sem hef-
ur leikið með 2. deildarliðinu
Padova, er á fömm til Bandaríkj-
anna.
■ ZENGA gengur til liðs við New
England Revolution í Boston. Með
liðinu leikur Alexei Lalas, miðvörður
bandaríska landsliðsins.
■ TVEIR fyrrverandi landsliðs-
menn Italíu, era Ieikmenn með liðum
í bandarísku deildinni, þeir Roberto
Donadoni og Giuseppe Galderisi.
■ ZENGA, sem var leikmaður með
Inter í tólf ár - lék 58 landsleiki,
skrifaði undir tveggja ára samning.
Hann fer vestur um haf síðar í þess-
um mánuði.
■ SEBASTIAN Rozental, lands-
liðsmaður Chile, er kominn til Kali-
fomíu, til að gangast undir aðgerð
vegna meiðsla á hné. Rozental er
leikmaður með Glasgow Rangers.
■ FRANSKI miðheijinn Franck
Histilloles hjá Bordeaux, sagði frá
því í gær að hann væri búinn að
skrifa undir þriggja ára samning við
Metz. Histillolles, sem er 24 ára,
fótbrotnaði í Evrópuleik gegn AC
Milan fyrir ári og hefur ekki leikið
með liði Bordeaux síðan.
■ JOHAN Cruyff, fyrram þjálfari
Barcelona, hefur hafnað þjálfaratil-
boði frá America í Mexikó, sem
hefði gefið honum 122 millj. ísl. í
árslaun.