Morgunblaðið - 25.03.1997, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.03.1997, Qupperneq 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • JHsrgtraMa&tb Ástæður erfiðleika MEIRI hluti þeirra, sem leita eft- ir aðstoð Húsnæðisstofnunar, búa við breyttar aðstæður, segir Grétar J. Guðmundsson í þættin- um Markaðurinn. Tveir af hverj- um þremur eiga í erfiðleikum vegna atvinnuleysis, tekjulækk- unar eða veikinda. / 2 ► Óhreinar loftrásir LOFTRÁSIR safna í sig óhrein- indum, sem hreinsa þarf öðru hverju, segir Bjarni Ólafsson í þættinum Smiðjan. Knýjandi þörf er á ákveðnum fyrirmælum um slíka hreinsun. Þetta er vanrækt- ur þáttur í heilsugæzlu og þrifn- aði hér á landi. / 10 ► Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 25. marz 1997 Blað C Þorláks höfn Ei IFTIRSPURN er eftir I bæði íbúðarhúsnæði og I atvinnuhúsnæði á Þor- lákshöfn, en atvinnuástand er þar gott. í sumar verður unnið deiliskipulag að stóru íbúðar- og iðnaðarsvæði til að auka framboð á lóðum í bænum. Þetta kemur fram í viðtali við Sigurð Jónsson, bygginga- fulltrúa á Þorlákshöfn, hér í blaðinu í dag. í bænum eru nú lausar lóðir innan hafnarsvæð- isins til umsóknar fyrir hafn- sækna starfsemi og við Bása- hraun eru til staðar heppileg- ar einbýlishúsalóðir. Að sögn Laufeyjar Ásgeirs- dóttur, sölumanns hjá Lög- mönnum, Suðurlandi, sem reka umfangsmikla fasteigna- sölu, gekk sala fasteigna á Þorlákshöfn vel á síðasta ári. Verð á fasteignum í bænum er viðunandi og tiltölulega betra en á Selfossi. En það er samt töluverður verðmunur á nýjum íbúðum á Þorlákshöfn og á höfuðborg- arsvæðinu. Þannig eru þar til sölu 90 ferm. íbúðir með sér inngangi og nær 30 ferm. bfl- skúr á afar hagstæðu verði í 4ra íbúða sambýli. Verð á íbúðunum á neðri hæð er 6,5 millj. kr. og 7,1 millj. kr. á efri hæð. Þessar íbúðir eru full- gerðar að utan sem innan og búnar fullkomnum innrétting- um og heimilistækjum af beztu gerð. Ég er sannfærð um, að þetta er mun hagstæðara verð en á höfuðborgarsvæðinu, seg- ir Laufey. / 14 ► Tími endurbóta og viðhalds framundan NÚ er að ganga í garð sá árstími, sem fólk þarf að fara að undirbúa viðhald og endurbætur á húsum sín- um og íbúðum á sumri komanda. Þar skiptir fjármögnunin að sjálf- sögðu miklu máli, ef um meiri háttar framkvæmdir er að ræða. í fyrravor voru lánamöguleikar í húsbréfakerfinu til þessara hluta rýmkaðir á þann veg, að lágmarks- fjárhæðin varð 500.000 kr. að öðrum skilyrðum uppfylltum, ef lánið er tekið til 15 ára, en 727.000 kr., ef lánið er til 25 ára. Báðar þessar lág- marksfjárhæðir taka síðan breyt- ingum í samræmi við byggingarvísi- tölu. Þessi breyting átti að gera íbúðar- og húseigendum auðveldara um vik með að ráðast í nauðsynlegt viðhald á eignum sínum og var búizt við nokkurri aukningu á húsbréfaum- sóknum í þessu skyni í kjölfarið. Reynslan hefur samt verið sú, að ekki hefur orðið vart við neina aukn- ingu að ráði. Á síðasta ári voru sam- þykkt skuldabréfaskipti í húsbréfa- kerfinu vegna 185 umsókna um end- urbætur á íbúðarhúsnæði og var það 19 umsóknum fleira en á árinu 1995. Alls námu samþykkt skuldabréfa- skipti í þessu skyni tæplega 295 millj. kr., sem var um 38 millj. kr. meira en árið 1995. Þar munaði mestu um október., en í þeim mán- uði voru samþykktar 34 umsóknir. Áhrifin af þessari breytingu virð- ast því vera mjög óveruleg í hús- bréfakerfinu. Hafa ber hins vegar í huga, að ýmsar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki eru farin að veita langtímalán til endurbóta og við- haldsaðgerða og líklegt, að margir íbúðar- og húseigendur kjósi heldur að nýta sér þann möguleika. Vextir af slíkum lánum eru að vísu hæm en í húsbréfakerfinu, en á móti kemur, að lántakendur þurfa ekki að taka á sig afföll eins og af húsbréfunum. Það segir sig sjálft, að gott við- hald skiptir miklu máli fyrir sölu- möguleika fasteigna og þá um leið fyrir verðgildi þeirra. Kaupendur gera nú meiri kröfur um gott ástand eigna en eitt sinn var, enda er fram- boð á fasteignum gott og kaupendur hafa því úr miklu að velja. Samþykkt skuldabréfaskipti vegna endurbóta 1995 og 1996 FIÁRVANGUR lOGGILT VERÐBBÉFAFYRIHTAKI Laugavegi 170,105 ReykjavTk, slmi 540 50 60, slmbréf 540 50 61, www.Ejarvangur.is Kynntu þér kosti Fasteignalána Fjárvangs hjá ráðgjöfum Fjárvangs ísíma 5 40 50 60 Dæmi um mánaðarlegar afborganir af 1.000.000 kr. Fasteignaláni Fjárvangs,|‘ \fcxtir(%) lOár 15 ár 25 ár 7,0 11.610 8.990 7.070 7,5 11.900 9.270 7.500 8,0 12.100 9.560 7.700 Miðað cr við jafngreiðslulán. *Auk verðbóta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.