Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 6
6 B SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær Félags- og fræðslusvið Tónlistarskólinn á Akureyri Laust er til umsóknar starf skólastjóra Tón- listarskólans á Akureyri. Skólastjóri hefuryfirstjórn á starfi skólans og er yfirmaður allra starfsmanna hans. Hann hefurforystu um að móta listræna stefnu skólans og berfaglega ábyrgð á starfsemi hans. Skólastjóri ber ábyrgð gagnvart sviðsstjóra félags- og fræðslusviðs, á öllum stjórnunarað- gerðum og tekur ákvarðanir í samræmi við það. Laun skv. kjarasamningi STAK og launanefnd- ar sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veita formaður skóla- nefndar, Jóhann Sigurjónsson, í síma 462 2310 og rekstrarstjóri skólans, Gunnar Frímannsson, í síma 462 1788 og starfsmannastjóri Akur- eyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar í Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 23. apríl. Ráðgjafardeild Á ráðgjafardeild Akureyrarbæjar eru eftirtalin störf laus til umsóknar: 100% stada félagsráðgjafa. Um er að ræða m.a. störf við fjárhagsaðstoð, félagslega ráðgjöf og barnavernd með sér- stakri áherslu á unglingamál. Starfið er laust frá 1. júní n.k. 100% stada félagsráðgjafa. Um er að ræða m.a. almenna og sérhæfða ráð- gjöf til fatlaðra og fjölskyldna þeirra. Starfið er laust frá 1. júní nk. 70% staða sálfræðings. Verksvið er greining og meðferð fatlaðra ein- staklinga, barna og fullorðinna. Óskað eftir ráðningu sem fyrst eða eftir samkomulagi. 100% staða ritara. Starf ritara felst í allri móttöku á deildinni, ásamt símsvörun og annarri hefbundinni rit- araþjónustu. Starfið er laust frá 15. ágúst nk. Laun vegna allra starfanna eru skv. kjarasamn- ingi STAK og Akureyrarbæjar. Upplýsingar um störfin veitir Guðrún Sigurðardóttir deildar- stjóri í síma 460 1420. Einnig veitir starfs- mannastjóri Akureyrarbæjar upplýsingar um launakjör í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð vegna allra starfanna fást á starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknarfrestur ertil 21. apríl n.k. Starfsmannastjóri Hjálparstorf Vinalínan óskar eftir sjálfboðaliðum Rauði kross íslands óskar eftir sjálfboðaliðum til að svara í síma hjá Vinalínunni. Vinalínan er símaþjónusta fyrir alla sem eru 18 ára og eldri, eiga í vanda eða vantar einhvern til þess að deila með sorgum og gleði. Sjálfboðaliðar svara í síma öll kvöld kl. 20-23. Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands annast rekstur Vinalínunnar. Kynningarfundur verður haldinn í Þverholti 15, 2. hæð, 9. apríl kl. 20.30. Undirbúningsnámskeið fyrir nýja sjálfboðaliða er fyrirhugað 12.-13. apríl. Nánari upplýsingar eru veittar hjá sjálfboða- miðstöð Rauða kross íslands í síma 551 8800 og hjá starfsmanni Vinalínunnar í síma 561 6464. RAUÐI KROSS ÍSLANDS Lyfjakynnar tb NOVARTIS Novartis er nýtt lyfjaíyrirtæki sem stendur á traustum grunni. Novartis er stofnað með samruna Ciba og Sandoz. Novartis er eitt stærsta lyfjafyrirtæki veraldar og leggur höfuðáherslu á rannsóknir og þróun nýrra lyfja. Umboðsaðili Novartis á íslandi, Thorarensen Lyf ehf. auglýsir þess vegna eftir framtakssömu og dugmiklu fólki til starfa sem lyfjakynnar. Leitað er eftir einstaklingum með háskóla- menntun á sviði lyfjafræði, hjúkrunarfræði, líffræði eða skyldra greina. Við bjóðum áhugavert starf fyrir framtaks- saman einstakling hjá framsæknu fyrirtæki. Gott starfsumhverfi og góður starfsandi. O •8 Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu okkar, Vatnagörðum 18,104 Reykjavík. Nánari upplýsingar veita Björn Aðalsteinsson og Gunnar V. Guðmundsson í síma: 568 6044. Umsóknarfrestur er til 14. apríl. T HORARENSEN LYF DayStarter Batterier A/S leita að sjálfstæðum umboðs- manni á íslandi Vegna sölu á einstæðum, viðhaldslausum raf- geymum fyrir bifreiðir, dráttarvélar, vörubíla, vinnuvélar, lyftara, báta o.s.frv. Fimm ára ábyrgð á rafgeymum í einkabifreiðir, þriggja ára ábyrgð vegna vinnuvéla. Áætlaðar árstekjur eru 300 þúsund danskar krónur eða meira. Þú ert nú þegar góður sölumaður og sérð með þessu tækifæri á góðum tekjum í framtíðinni. Þú faerð verndað svæði sem umboðsmaður fyrir ísland allt og munt sem sjálfstæður um- boðsmaður á þessu svæði setja þig beint í samband við vörubílstjóra, verktaka, bændur o.s.frv. vegna sölustarfa. Þú verður að eiga þess kost að hafa lítinn lager af rafgeymum og krefst það fjárfestingar í rafgeymum fyrir um 50 þúsund danskar krónur. Gott væri að fá heimilisfang þitt uppgefið. Við krefjumst þess ekki að þú sért með aðstöðu í borginni og einnig er önnur starfsemi við hliðina á þessu ekki fyrirstaða svo lengi sem hún er samrýmanleg vörunni. Ef þú hefur áhuga á þessu hafðu þá samband við okkur í síma 0045 33966 5140. DayStarter Batterier A/S Kiplings Alle 48, 2860 Soborg, Danmörku Sími: 0045 3966 5140, Fax: 0045 5360 0494 REYKJAVÍKURBORG auglýsir eftir forstöðumanni Ljósmyndasafns Reykjavíkurborgar Laus er til umsóknar staða forstöðumanns Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Starfið felst í stjórnun og rekstri safnsins í umboði menning- armálanefndar Reykjavíkurborgar. Hlutverk forstöðumannsins Forstöðumaður ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri safnsins og starfsmannastjórn, hann ber ábyrgð á Ijósmyndaeign safnsins og hefur yfirumsjón meðframkvæmd safnstefnunnar. Þetta felur í sér skráningu, forvörslu, örugga varðveislu Ijósmyndaefnis, heimildaöflun um það, viðskipti vegna þess, sýningahald, inn- lend og erlend samskipti. Þá er safninu ætlað að afla samtímaheimilda í myndum um starf- semi Reykjavíkurborgar sérstaklega og vera borgarstofnunumtil ráðuneytis í Ijósmynda- efnum. Kröfur gerðar til umsækjanda: Stjórnunarhæfileikarog reynsla, þ.á m. affjár- málastjórn. Menntun ertengist viðfangsefnum safnsins er nauðsynleg, æskilegt er að hún sé á háskólastigi. Þekking á og reynsla af safnastarfi æskileg. Sjálfstæði í vinnubrögðum. Lipurð og hæfni í samvinnu og samskiptum. Kunnátta í erlendum tungumálum. Borgarráð skipar forstöðumann að fenginni tillögu menningarmálanefndar Reykjavíkur. Kjör verða samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Næsti yfir- maðurerframkvæmdastjóri menningar-, upp- eldis- og félagsmála. Undirmenn eru starfs- menn Ljósmyndasafnsins. í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu um- sækjandi mætir öllum ofangreindum kröfum. Skrifleg umsókn sendist framkvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og félagsmála á skrif- stofu borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 2. maí nk. Borgarstjórinn í Reykjavík. Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Traust þjónustufyrirtæki á höfuðborgar- svæðinu óskar að ráða í eftirtalin störf: Móttaka og síma- varsla Um er að ræða líflegt en jafnframt krefjandi starf þar sem mannleg samskipti skipta miklu máli. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á tölv- um, vera jákvæður, opinn og hafa gaman af mannlegum samskiptum. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Fulltrúi Um er að ræða tvískipt starf þar sem 80% af vinnutíma fer í að sinna viðskiptavinum og veita faglega ráðgjöf. 20% af vinnutíma er gjaldkerastarf. Umsækjandi þarf að vera talna- glöggur, hafa góða framkomu og hafa gaman af mannlegum samskiptum. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf. 60% hlutastarf Starfið felst í gagnaskráningu, verkefnaum- sjón, auk erlendra og innlendra samskipta. Góð íslensku-, tölvu- og enskukunnátta nauð- synleg. Góð kunnátta í Norðurlandamáli æski- leg. Starfið krefst samviskusemi og nákvæmni. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðar- mál. Umsækjendur vinsamlegast tilgreini hvaða starf er sótt um. Umsóknum skal skilað til afgreiðslu Mbl. fyrir 14. apríl næstkomandi merkt: „G - 60".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.