Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 06.04.1997, Qupperneq 14
14 B SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 MORGUNBLAÐIÐ DÆGURTÓNLIST Súrefhi til Tungkins GRÓSKA í íslenskri danstónlist virðist loks ætla að skila sér í aukinni útgáfu. Súrefni, ein efnilegasta hljómsveit sinnar tegundar hér á landi, sendir frá sér stuttskífu í vikunni. Á disknum verða fimm lög, en útgáfan er í takmörkuðu upplagi og helst hugsuð til að kynna sveitina. Dægur- jass MARGIR muna eftir Spike Lee myndinni M'o’ Better Blues, eða í það minnsta eft- ir tónlistinni úr myndinni, sem kom út á samnefndum geisladiski um líkt Ieyti og myndin var frumsýnd. Ekki staldraði sá diskur þó lengi við í verslunum, því hann var innkallaður. Fyrir skömmu var greitt úr deilum og diskurinn endurútgefinn, en þó hann hafi ekki verið fáanlegur þekkja allmargir tónlistina af honum, sem notið hefur hylli. Má þar nefna titillag myndarinnar, sem íslenskt Kynning Súrefnismenn. -ST' -v Fyrs/a feíemta S5 Súrefni rekur ættir til Hafnaríjarðar og er tveggja ára gömul eða þar um bil. í dag er Súrefni dúett og landfræðilegt jafn- vægi í sveitinni, annar liðs- manna býr í Hafnar- firði en hinn í Kópavogi, en áður voru Súr- efningar allt upp í sex og þá trommur, bassi og rafgítar í hópnum; eins konar samkrull af rokki og danstónlist. Þeir Súrefnismenn segja hið besta mál að vera bara tveir eftir, það þýði að allur rekstur sveitarinnar er ein- faldari, aukinheldur sem tónlistarstefnan sé mark- vissari „Þegar við vorum flórir þá voru til að mynda íjórar tónlistarstefnur í gangi“, segja þeir og bæta við að ekki sé síst þægilegt að nú er öll tónlist fram- leidd með tölvum, þó víða sé notast við raunveruleg hljóð unnin í hljóðsmala. Súrefnismenn segja að af lögunum fimm séu fjögur glæný, en eitt hálfsárs fljóti með. Upp- tökum lauk um miðjan mars, en þeir tóku plöt- una upp og unnu í heimahúsi, „sem sparar vissulega peninga“. Þeir segja að diskurinn sé gefinn út fyrst og fremst til þess að kynna sveit- ina, hér heima og erlend- is, enda ekki miklar líkur á að íslensk danstónlist eigi eftir að ná metsölu á við poppfroðu. „Okkur fannst ekki ástæða til að gefa út breið- skífu núna, það er ágætt að byrja á því að láta vita af okkur, að við séum til,“ segja þeir og bæta við að útgáfan verði vonandi til þess að þeir fái meira að spila opin- berlega. „Við vilj- um gjam- an gera meira af því að troða upp og þá í félags- mið- stöðvum og skól- um, enda eru áheyr- endur þar opn- ari fyrir nýrri tón- list en til dæmis á Gauknum og álíka stöðum. Við höfum reyndar spilað á Gauknum og það voru merkilegir tónleikar, því við fengum ekki að klára; eigandinn kom og bað okkur um að hætta,“ segja þeir og skella upp- úr. „Okkur fannst það mjög sniðugt þegar fólk kom til okkar og spurði hvort við gætum ekki spilað eitthvað með Bubba.“ Þeir félagar hafa spilað nokkuð und- anfarið í samvinnu við Hljómalind og þá með erlendum listamönnum sem hingað hafa komið að spila á hennar vegum. „Með því móti höfum við náð okkur í reynslu og komist í sam- bönd sem við getum von- andi nýtt okkur síðar,“ segja þeir glaðbeittir, „en við ætlum að einbeita okkur að íslandi eins og er, láta vita af okkur og sjá til með framtíðina." hljómsveit gerði breiðskífu og tónleikaferi! út á með góðum árangri. Músíkin er flutt af Branford Marsalis og kvartett hans með Ter- ence Blanchard sem sér- stakan gest, eins og heyra má á áðurnefndu titillagi, þar sem hann blæs af list. Fleiri lög eru á disknum eftirminnileg, til að mynda jassfléttur eftir Marsalis sjálfan eftir Árno Motthíosson Þungir Liðsmenn Machine Head. Þungarokkið lifir ÞUNGAROKKIÐ hefur nánast útaf dáið, eða virð- ist í það minnsta lagst í djúpan dvala. Liðsmenn rokksveitarinnar Machine Head eru á öðru máli eins og heyra má á geysiöflugri skífu þeirra sem kom út fyrir skemmstu. Segja má að niðurlæging þungarokksunnenda hafi verið algjör þegar aðstandendur Doning- ton-rokkhátíðarinnar lýstu því yfir að framvegis yrði hún eins og hver önnur popphátíð (og þá við hæft að Metallica troði upp). Því hefur og verið haldið fram að þungarokkið hafí dagað uppi eins og hver önnur risaeðla, en liðsmenn bandarísku rokksveitarinnar Machine Head eru á öðru máli eins og heyra má á plötu þeirra félaga The More Things Change ... Bæði er að tónlistin er eins hörð og forð- um, ef ekki harðari og svo hitt að þeir félagar eru að vinna nýjar hugmyndir úr gömlum efnivið. Fyrsta skífa Machine Head, Burn My Eyes, seld- ist í yfir 400.000 eintökum fyrir tveimur árum og í kjölfarið lagðist sveitin í ferðalög; hélt í fimmtán mánaða tónleikaför. Robb Flynn, leiðtogi sveitarinn- ar, segir hana hafa styrkst í trúnni á hart og kraft- mikið rokk i þeirri för, og því haldið í hljóðver stað- ráðin í að herða enn á keyrslunni. Drjúgur tími fór í lagasmíðar og útsetningar, því þeir félagar vildu vera vissir um að hvert lag hljómaði eins vel og unnt var. Að sögn Flynns er það ekki síst fyrir það hve þeim hefur farið fram sem hljóðfæraleikurum að platan nýja er vel heppnuð, og svo hitt að þeir hafi veri ófeimnir við tilraunamennsku þrátt fyrir hefðbundið yfirbragð. „Þetta er þyngsta rokkskífa sem komið hefur út,“ segir hann hróðugur, „en við erum enn þyngri á tónleikum, eins og mun sannast á tveggja ára tónleikaferð sem hefst í vor.“ JASSSKOTIIMN SALSASPUIMI gera nútímalega plötu sem sótti innblástur til þessa tíma blundaði lengi með þeim fé- lögum og þar kom að þeir þóttust reiðubúnir og hófu leit að samstarfsmönnum. Upphaflega ætluðu þeir að- eins að fá til leiks fjóra til fimm liðsmenn, en þegar upp var staðið voru hljóðfæra- leikarar orðnir á annan tug- inn og þar á meðal menn eins og George Benson, Vincent Montana, Roy Ay- ers, Eddie Palmieri og Tito Puente. Ekki má svo gleyma söngkonunni India, en lag af plötunni sem hún syngur hefur notið mikillar hylli undanfarið. Gagnrýnendur hafa tekið plötunni fagnandi, að minnsta kosti þeir sem þekkja bak- grunn tónlistarinn- ar, en sumum hef- ur þótt hún full þung fyrir dans- gólfið. Þeir félagar kæra sig þó koll- ótta; „við höldum bara áfram þang- að til menn fatta tónlistina," segir Gonzalez, „og þá erum við farnir að pæla í einhvetju allt öðru.“ TVEIR helstu spámenn bandarískrar danstónlistar eru þeir félagar Louie Vega og Kenny Gonzalez. Þeir eru líklega þekktastir undir nafninu Masters at Work, en vinsældir þeirra í því gervi gerðu þeim kleift að gera þá plötu sem þá lang- aði helst eins og heyra má á skíf- unni Nu Yoric- an Soul. Vega og Gonzalez hófu samstarf fyrir bráðum sex árum og náðu snemma hylli fyrir endurhljóðbland- anir, meðal annars fyrir Madonnu og Michael Jack- son, en með þeim blundaði löngun tii að setja saman breiðskífu byggða á uppáhaldstónlist tónlist eða Nu Yorican Soul. Slík tónlist varð til á áttunda áratugnum þegar snjallir hljóðfæraleikarar streymdu til New York úr Karíbahafí, ýmist frá Kúbu eða Puerto Rico, og hófu að gera til- raunir með flókinn jasskot- inn salsaspuna í bland við poppaða soul-tónlist. Vega þekkti þennan tíma vel, því faðir hans, Hector LaVoe, var nafn- togaður salsa- söngvari á þeim tíma. Hugmyndin um að Salsastemmning „Little" Louie Vega og Kenny „Dope“ Gonzalez.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.