Morgunblaðið - 06.04.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MANIMLIFSSTRAUMAR
SUNNUDAGUR 6. APRÍL 1997 B 31
LÆKNISFFUEÐI/Er lambib Dollý einstakt í sinni röb?
Afklónum, kindum
og mönnum
SÚ FRÉTT að tekist hafi að klóna eða einrækta lamb úr frumu fullorðinn-
ar kindar hefur að vonum vakið mikla athygli um allan heim. Einnig
hefur borið á ýmiss konar misskilningi um það hvað einræktuner og hver
sé munurinn á einræktuðum einstaklingi og eineggja tvíbura. Á rannsókna-
stofnun í Skotlandi tókst að framkvæma eftirfarandi: Úr júgri fullorðinn-
ar kindar var tekin ein fruma. Frumukjarninn, sem inniheldur erfðaefnið
(kjarnsýrur eða DNA), var tekinn úr frumunni og komið fyrir í eggfrumu
annarrar kindar, en kjarni þeirrar eggfrumu hafði áður verið fjarlægður.
Þegar eggið fór að skipta sér og mynda fósturvísi var því komið fyrir í
legi enn annarrar kindar sem í fýllingu tímans bar heilbrigðu lambi,
Dollý. Erfðafræðilega er Dollý nákvæmlega eins og móðirin, sem erfðaefn-
ið var tekið úr, og hún á sér engan föður. Það er einmitt þetta sem ger-
ir lambið Dollý einstakt, eða reyndar alls ekki einstakt, vegna þess að það
er nákvæm eftirlíking móður sinnar og þar með einræktaður einstakling-
ur eða klón. Eineggja tvíburar eru allt annars eðlis, þeir eru að vísu erfða-
fræðilega eins, en erfðaefni þeirra er blanda sem komin er frá tveimur
einstaklingum, föður þeirra og móður. Eineggja tvíburar verða til við það
að frjóvgað egg skiptir sér óeðlilega þannig að úr verða tvö fóstur.
Ekki má gleyma því að einrækt-
un er algengt fyrirbæri í nátt-
úrunni. Hjá fjölmörgum frumstæð-
um lífverum og ýmsum af þeim
þróaðri tíðkast það sem kallast kyn-
■■■■■ laus æxlun en hún
heitir öðru nafni
einræktun eða
klónun. Einrækt-
un er því ekki nýtt
fyrirbæri í náttúr-
unni en hún er ný
þegar um spendýr
er að ræða og það
sem gerir Dollý
svo merkilega er að hún var ein-
ræktuð úr júgurfrumu úr fullorðnu
dýri. Ekki var vitað hvort slíkt
væri unnt og svo mikið er víst að
það er af ýmsum ástæðum býsna
merkilegt. Allar frumur líkamans
eru vissulega komnar af upphaf-
legu, frjóvguðu eggfrumunni sem
hélt áfram að skipta sér og þróast
í ýmiss konar sérhæfðar frumur svo
sem kirtilfrumur, vöðvafrumur eða
taugafrumur, en ekki var vitað
hvort sérhæfðar frumur, eða erfða-
efni þeirra, gætu horfið til baka til
þess ástands sem gerir frumu að
eggfrumu. Öldrun er talin byggjast
m.a. á því að erfðaefni hverrar
frumu spillist smám saman eftir því
sem árin líða og því kom mörgum
á óvart að Dollý virðist vera full-
komlega heilbrigt lamb sem ekki
ber nein merki öldrunar. Þær
skemmdir sem talið er að verði
hægt og hægt á erfðaefninu þegar
einstaklingurinn eldist virðast því
geta gengið til baka. Hér verður
þó að fara varlega og ekki draga
of víðtækar ályktanir, móðir Dollýar
er í fyrsta lagi ekki mjög gömul (6
ára), eftir er að sjá hvernig Dollý
reiðir af og fleira, sem við ekki
skiljum ennþá, gæti komið í ljós.
Rannsóknimar sem leiddu til fæð-
ingar Dollýar, og hafa staðið í
mörg ár, voru styrktar af fyrirtækj-
um sem hyggjast nota þessa tækni
við framleiðslu landbúnaðarafurða
og lyfja. Þessi tækni á sér sennilega
lítil takmörk. í landbúnaði verður
t.d. hægt að velja dýr sem skara
fram úr öðrum dýrum varðandi
mjólk, kjöt eða ull og einfaldlega
einrækta þúsundir einstaklinga sem
eru nákvæmlega eins og upphaflega
dýrið. Hægt verður að búa til og
einrækta í stórum stíl dýr sem
mynda verðmæt prótein í kjöti eða
mjólk eða dýr sem eru með sjald-
gæfa sjúkdóma og verða síðan not-
uð sem tilraunadýr í leit að lækn-
ingu; til að nefnd séu örfá dæmi
um hugsanlegt notagildi þessarar
tækni. Ekkert bendir til annars en
að hægt sé að beita þessari tækni
við einræktun manna en þar koma
til sögunnar siðfræðileg vandamál
sem eru mikið rædd þessa dagana
og erfitt getur reynst að leysa.
í frægri skáldsögu Aldous Hux-
ley (Brave new world) frá því um
1930 er lýst fjöldaframleiðslu á
mönnum sem allir eru eins og er
þar um að ræða eins konar ein-
ræktun. I nýlegri kvikmynd
(Multiplicity) eru einræktuð nokk-
ur ný eintök af sama manni og í
sögu og kvikmynd um Júragarðinn
er fornt erfðaefni notað til að ein-
rækta útdauð dýr. Þetta eru fáein
þekkt dæmi um það að lengi hafa
verið uppi hugmyndir um einrækt-
un, einnig einræktun manna. Nú
er skyndilega komin í gang mikil
eftir Magnús
Jóhannsson
V
VERÐUR farið að einrækta húsdýr í stórum stíl?
umræða um það hvort réttlætan-
legt sé að leyfa einræktun manna
eða hvort banna eigi með öllu slík-
ar tilraunir. I mörgum löndum eru
lög sem banna einræktun manna
en ekki alls staðar, t.d. eru engin
slík lög í Bandaríkjunum. Flestir
hljóta að vera sammála um að það
sé siðfræðilega óveijandi að ein-
rækta fólk sem einungis er ætlað
að vera geymsla fyrir varahluti,
ef „eigandinn“ þarfnast nýrra líf-
færa, en líffæri sem er flutt á milli
einstaklinga sem eru erfðafræði-
lega eins (tvíburar eða klónar) er
ekki hafnað. Slíkir einstaklingar
væru þrælar, sviptir öllum mann:
réttindum og mannlegri reisn. í
ýmsum öðrum tilfellum er ekki eins
augljóst hvað er rétt og hvað rangt.
Fáein dæmi eru barn eða ung-
menni sem ferst í slysi, ófrjósemi
karls eða konu sem vilja eignast U
barn eða lesbískt par þar sem önn-
ur konan vill ganga með klón af
hinni konunni.
ika Bambaataa útbreiddur í flestum
úthverfum New York borgar og
fjöldi danshópa sem einbeitti sér
að því að ná árangri í breikdansi
hafði myndast. Upp úr því fóru
nokkrar klíkur að sýna breikdans á
skemmtistöðum í New York og árið
1981 var kvikmyndin „Wild Style“
gerð um Hip Hop lífsstíl unglinga
í Bronx, um breikdans, rapp og
veggjamálverk. Eftir það varð ekki
aftur snúið, breikdans var orðinn
vinsæll í allri New York. Nætur-
klúbburinn Roxy í New York varð
miðstöð breikdansara, þar voru
haldnar breikdanskeppnir þar sem
breikdansarar skoruðu hver annan
á hólm. Um þetta leyti fór umheim-
urinn einnig að verða var við breik-
dans og fljótlega fóru tónlistarmenn
og kvikmyndagerðarmenn að mæta
á Roxy í leit að hæfileikafólki í
tónlistarmyndbönd og kvikmyndir.
Svo virtist sem hugmyndir Afrika
Bambaataa hefðu orðið að veru-
leika, unglingar sem höfðu haldið
áfram að dansa náðu nú árangri.
Á íslandi var breikdans tísku-
bylgja sem hvarf jafnfljótt og hún
kom. Breikdansarar sneru sér að
öðrum áhugamálum og eru þó
nokkrir þekktir fyrrverandi breik-
dansarar á íslandi. Breikið hvarf
þó ekki alls staðar eins og á ís-
landi, það lifði í úthverfum stór-
borga þar sem Hip Hop lífsstíllinn
og áhrif hugmynda Afrika Bamba-
ataa höfðu náð að skjóta sterkum
rótum. Þar var haldið áfram að
breika, mála og rappa, og hefur
danstegundin verið í stöðugri þróun
síðan. I löndum eins og Bandaríkj-
unum, Frakklandi og Bretlandi
starfa enn dansskólar og danshópar
sem kenna og sýna breikdans eða
Hip Hop eins og það er nú kallað.
Af ýmsu má dæma að breikið sé
að sækja í sig veðrið aftur hvað
vinsældir varðar. Fyrrverandi ís-
lenskum breikdönsurum ætti því
ekkert að vera að vanbúnaði að
sækja dúkinn upp á háaloft, setja
upp grifflurnar og drífa sig aftur
niður í miðbæ að dansa.
ORUGGUR • ÞÆGILEGUR • SPARNEYTINN
Með Sivift verður aksturinn
áreynslulaus.
Og líttu á verðið:
Ótrúlegt verð: frá 980.000 kr. 3-dyra.
• Áreiðanlegur og ódýr í rekstri.
Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum.
* Öryggi í fyrirrúmi.
þægindi
upphituð framsæti
rafstýrðar rúðuvindur
tvískipt fellanlegt aftursætisbak
samlæsingar
rafstýrðir útispeglar
útvarp/segulband
öryggi
tveir öryggisloftpúðar
hemlaljós í afturglugga
styrktarbitar í hurðum
krumpsvæði framan og aftan
skolsprautur fyrir framljós
þurrka og skoísprauta á afturrúðu
dagljósabúnaður
SWIFT1997
*
SUZUKI
SUZUKI
AFL OG
ÖRYGGI
Prufukeyrðu Suzuki í dag.
Taktu nokkrar beygjur, finndu þcegilegan gír.
Mjúkur og léttur - eins og akstur á aö vera.
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf. Laufásgötu 9, sími 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla og búvélasalan hf.
Miðási 19, sími 471 20 11. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, sími 421 12 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Elías “
r Elíasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50.
t
Vt
<
\