Morgunblaðið - 11.04.1997, Qupperneq 1
■ ÞRÍVÍDDARHÖIMNUIM/2 ■ HANDBOLTASYSTKINI FRÁ SELFOSSI /3
■ LÍFSGÆÐI FATLAÐRA/4 ■ SKÁLPIÐ SEM HLÓ AÐ HUGSUIMUM SÍN-
UM/5 ■ LISTíHLÍÐASKÓLA/5 ■ VIÐHORFEVRÓPSKRAUNGLINGA/6 ■
Morgunblaðið/Júlíus
1. Lesturinn kveikir áhuga á
bókum.
2. Barnabækur eru fullorðn-
um áhugaverðar.
3. Myndskreytingar í bókum
eru oft góðar.
4. Barnið telur að lesarinn
sé töframaður.
5. Lesturinn skapar góðar
minningar.
6. Hann styrkir samband
barna og foreldra.
7. Hann skapar frið á heimil-
inu.
8. Lesturinn er þjálfun í ein-
beitingu.
9. Góðar bækur kenna mun-
inn á góðu og vondu, réttu
og röngu.
ATHYGLIN óskipt, innlifunin fljúgandi.
SLÖKKTU á sjónvarpinu," kallar mamman
pirruð um leið og skvaldrið í eldhúsinu
deyr út. Tennurnar verða aftur
hvítar á baðinu og börnin
með tannburstann í
munninum þrýsta út
síðustu sögunum af
afrekum dagsins.
í herberginu
sveiflar stúlkan
sér upp á skrif-
borð og dansar
líkt og Esmeralda
úr Hringjaranum.
„Uppí rúm!“
skipar mamman og
börnin hoppa í rúm-
inu. Ansi endingar-
LÍNA langsokkur.
LESTUR FYRIR BORN
Töfrandi
stund spunnin
úr bók á heimilinu
góðir gormar! „Lestu þessa,“ segir stúlkan og
otar smábók að mömmunni. „Nei,“ segir stráksi
og ætlar að stökkva úr rúminu og ná í aðra.
„Veriði róleg,“ segir mamman „ég held auð-
vitað áfram með Línu, hún fer í kaffiboð til
Önnu og Tomma með úfið hárið.
Lína langsokkur lifnar í huga barnanna og
kemst aftur í fína kaffiboðið. Hún missir fljót-
lega stjórn á sér og stelur konfektmolum með
tungunni af ijómatertu, stráir sykri yfir stofu-
gólfið og kveður fínar kjaftakerlingarnar í kút-
inn með sögum.
Töfrandi kyrrð breiðist yfir íbúðina og köttur-
inn gægist undan rúminu. Ljós skín úr augum
mömmunnar og munnar barnanna opnast.
Apann Níels ber við gluggann. Bókin er þunga-
miðjan. Frammi drýpur úr krana og vatnsdropi
splundrast en enginn tekur eftir því nema
kötturinn með trýnið í matarskálinni.
Mamman er töframaður. Hún lífgar bókstaf-
ina með orðum sínum og varpar myndum á
hugartjald barnanna. Lína hefur óhamið hug-
myndaflug og sköpunargáfu og hún fylgir fínu
frúnum úr kaffiboðinu til að segja þeim síðustu
söguna: „Malla sópaði aldrei ruslinu undir rúm-
in!“
Mamman les í friði. Henni finnst gaman og
vill helst ekki hætta. Kjaftakerlingarnar eru
orðlausar og mamman hlær og börnin líka.
Heimur Línu grípur athyglina alla og Astrid
Lindgren er göldrótt.
Lestrarstund á heimilinu er lokið, þráðurinn
er dreginn inn í draumaveröldina og nú spinna
börnin sofandi. ■