Morgunblaðið - 18.04.1997, Page 1
BLAÐ B
FOSTUDAGUR 18. APRIL 1997
FLOTVIIMNUBUNINGAR OG FRYSTIHUSAFÓT/2 ■ HÚN ER ELPSMIÐ-
UR/2 rn HÖNNUNARDAGAR/3 ■ SPENDÝR Á NORÐURSLÓÐUM/4
HEILLAÐUR AF EUROVISION/5 ■ SAFNAÐ í GÖMLU GRIPAHÚSI/6 ■
UIMDUR
SPEN-
DÝRA
HVÍTÚLFAR eru ekki
sterkbyggðir. Þeir eru
grannar og langleggjað-
ar hlaupatíkur. Græn-
lenskir sleðahundar
draga þung hlöss og eru
sterkari - úlfar eru hins-
vegar kænni gagnvart
bráð sinni. Myndin sýnir
ylfinga, en hvítúlfar lifa
m.a. í Alaska, á freðmýr-
um Kanada og N- og
NA-Grænlandi. En
hvernig tekst spendýrum
að aðlagast kuldanum og
fæðunni á norðurhjaran-
um?
íslensk tíska
ÁLFKONA, skógardís, blómálfur, bergdrottning og
fyrirsætur á íslenskum járnskóm ætla að leika listir
sínar á Mýrdalsjökli fyrir tískuþáttinn Stylissimo! á
MTV. Tískusýningin er haldin mánudaginn 28. apríl,
daginn eftir Elite-fyrirsætukeppnina í Borgarleikhús-
inu.
Skóli Johns Casablancas á íslandi skipuleggur
keppnina og tískusýninguna og verður átta metra
langur og þriggja metra breiður sýningarpallur
byggður á jöklinum. Sýningin verður haldin
ef veður leyfir og segir Kolbrún Aðal-
steinsdóttir framkvæmdastjóri skólans að
flytja þurfi tugi manns upp á jökul svo
hún geti orðið að veruleika.
Kolbrún vill leggja áherslu á hið dul-
magnaða og óvenjulega og til dæmis
munu Sjóklæðagerðin og Sigríður
Sunneva sýna fatnað. Hún segir enn-
fremur að íslenskir hönnuðir geti komið
niður í Skóla Johns Casablancas eftir helgi
og komið með allt sem þeir eiga, eina peysu,
eða bara hvað sem er.
Hvað, hvaðan og hvers vegna?
Elite-fyrirsætukeppnin verður í Borgarleik-
húsinu sunnudaginn 27. apríl og segir Kolbrún
jákvætt að þurfa ekki að halda hana á vínveitinga-
stað. Keppendurnir munu koma fram í jakkafötum
með karlmannshatta og fötum frá Sjóklæðagerðinni, auk
þess sem staðið verður fyrir ýmsum uppákomum. Þátta-
gerðarmenn MTV munu taka Elite-keppnina upp og ætla
sér að reyna að komast til botns í íslenskum tískuheimi
með viðtölum; hvaða fatnaður er vinsælastur, hvaðan
hann er, úr hveiju og hvers vegna. Þá verða nemendur
förðunarskóla Face útskrifaðir við sama tækifæri. Dómar-
ar í fyrirsætukeppninni koma frá Elite í Lundúnum, Milanó
og New York og kynnir verður fyrirsætan Geir Magnússon
sem Kolbrún segir njóta velgengni í starfi erler.dis. ■
SJÓKLÆÐAGERÐIN er
áberandi í tískuheiminum
um þessar mundir.
Freyja Ragnarsdótt-
ir, starfsstúlka hjá
fyrirtækinu, situr
fyrir í frysti-
húsastakk.