Morgunblaðið - 18.04.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. APRÍL1997 B 3
DAGLEGT LÍF
Morgunblaðið/Þorkell
SÝNINGARFÓLK í buxum frá Joe Boxer, stökkum og stígvélum frá Sjóklæðagerðinni.
Nema hvað sýningin var ekki í New
York heldur á íslandi.
íslendingar fjölmenntu líka í flug-
skýlið sem í tilefni stundarinnar var
fært í nýjan og óneitaniega glæsileg-
an búning. „Hvað höfum við að gera
með sérstaka ráðstefnuhöll?“ spurðu
prúðbúnir gestir.
Undlrföt og sjógallar
Sýningin var flott. íslenskt sýn-
ingarfólk tók sig vel út í glaðlegum
Joe Boxer undirfötum og náttfötum
- og í 66°Norður göllum frá Sjó-
klæðagerðinni. Það er langur vegur
á milli undirfata og náttfata banda-
rísks tískuhönnuðar og íslenskra
frystihúsagalla og flotvinnubúninga.
Forvitnin var vakin.
„Nick Graham rakst inn í verslun-
ina hjá okkur fyrir tilviljun og vildi
í kjölfarið fá að nota 66°Norður
fatnað á sýningunni," segir Kristín
Halldórsdóttir, hönnuður hjá Sjó-
klæðagerðinni. „Það var auðsótt
mál, það eina sem við gerðum var
að laga tilbúin föt til þess að þau
pössuðu sýningarfólkinu betur.“
Það var sérstaklega hvíti frysti-
húsagallinn frá 66°Norður sem Gra-
ham vildi sýna; stakkar, buxur,
svuntur og sloppar ásamt stígvélum.
Síðan bættist flotvinnugallinn á
óskalistann eftir að hann hafði
spurnif af því að poppstjarnan Björk
Guðmundsdóttir hefði fengið sér
einn slíkan. „Björk keypti galla og
bað afgreiðslufólkið um að setja ytra
byrðið í poka. Síðan gekk hún út í
innra byrðinu," segir Kristín, „og
það fréttist af henni í gallanum á
skemmtistað um kvöidið."
Flotvinnugailarnir frá Sjóklæða-
gerðinni skiptast í tvennt, flot- og
hitafóðrið er svokailað innra byrði
og því er sem sagt hægt að renna
frá ytra hlífðarbyrðinu. „Við erum
óneitanlega að sjá nýjar hliðar á
vörunni," segir Kristín. „Nú erum
við að hanna nýtt innra byrði með
meiri hreyfivídd, en efnið setur
hönnuninni nokkrar skorður hvað
það varðar. Við erum að velta því
fyrir okkur að selja svona innra byrði
sér, það getur reynst vel í útilegur
- og greinilega víðar.“
Frystlhúsagallar tll
Bandaríkjanna
Nicholas Graham kom aftur við
hjá Sjóklæðagerðinni áður en hann
hélt vestur um haf eftir vel heppn-
aða sýningu. Með honum var hópur
bandarísks tískufjölmiðlafólks sem
eftir viðskipti dagsins á eftir að
spranga um á heimaslóðum í útivist-
arfatnaði frá 66°Norður og hlífð-
arfatnaði sem til þessa hefur nær
eingöngu sést í íslenskum frystihús-
um.
Sjóklæðagerðin framleiðir sjó-
fatnað, regnfatnað fyrir börn og
fullorðna, almennan vinnufatnað og
útivistar- og flísfatnað fyrir börn og
fullorðna. Framleiðslan hefur áður
hlotið náð fyrir augum tískunnar,
skemmst er að minnast Kraftgall-
anna sem sýndu unglingum fyrir
nokkrum árum að hægt er að vera
töff án þess að vera kalt. Sjóhattarn-
ir eru líka teknir upp við ólíklegustu
tækifæri. „Nú er vinnufata„lookið“
líka í tísku," segir Kristín. „Þarþykja
flottustu fötin vera úr „beaver“efni
sem er 50% nælon og 50% bómull.
Þetta er mjög slitsterkt og við eigum
gott úrval af svona fatnaði."
Merklð hjálpar
Útflutningur nemur 10-12% af
veltu Sjóklæðagerðarinnar og segir
Markús Þórarinsson, fjármálastjóri
fyrirtækisins, að stefnt sé að því að
hann verði 60-70 milljónir króna í
ár. „Við höfum getið okkur gott orð
erlendis fyrir sjóklæðnaðinn. Um-
boðsmenn okkar vita að það er hægt
að treysta gæðunum enda er klæðn-
aðurinn prófaður við erfíðustu að-
stæður af íslenskum sjómönnum,"
segir Markús. „Við erum líka með
mikla þróun í útivistarfatnaði. Þar
sem samkeppnin hörð en merkið
66°Norður hefur rutt brautina. Við
notum eingöngu bestu efnin og fatn-
aðurinn hefur gengið í gegnum
ströng próf hér, til dæmis hjá björg-
unarsveitum landsins.“
Fyrirspumir varðandi útivistar-
fatnað, regngalla og annað, hafa
borist víða að úr heiminum. „Það eru
íslendingar alls staðar. Þeir eiga svo
böm sem aftur eiga regngalla frá
okkur,“ segir Kristín. „Við höfum til
dæmis fengið upphringingu alla leið
frá Ástralíu þar sem foreldrar leikfé-
laga íslenskra barna í 66°Norður
regngöllum vildu kaupa eins galla.“
Kristín segir eftirspurn frá Bret-
landi eftir 66°Norður útivistarfatnaði
hafa tekið mikinn kipp eftir að BBC
sýndi sjónvarpsþátt frá íslandi fýrr
í vetur. Þar var meðal annars sýnt
frá jöklaferð þar sem þátttakendur
vom klæddir fatnaði frá Sjóklæða-
gerðinni. „Það er eins og heimurinn
sé að uppgötva að það sé ekki nóg
með að það búi fólk á norðurhjara,
heldur sé það líka að búa til eitthvað
sniðugt.“
Morgunblaðið/Ásdís
Bamastólar
sem vaxa
ÞÓRDÍS Zoéga hefur hannað barna-
húsgögn sem GKS mun sjá um að
framleiða og selja.
Hún leggur áherslu á að um sé
að ræða íslenska hönnun og íslenska
framleiðslu sem unnin sé í samvinnu
við leikskólakennara. „Þessi hús-
gögn hafa verið notuð í fjórum nýj-
um leikskólum sem Reykjavíkurborg
opnaði á síðasta ári og þau hafa
fengið vöruvottun Iðntæknistofnun-
ar.“ Þórdís segir allar útlínur mjúkar
og að stólarnir séu unnir úr gegn-
heilu beyki.
Þórdís segir að börnin sitji mjög
vel í stólunum, hið sama gildi um
fullorðna, og því eigi hann að geta
þjónað tilgangi sínum þótt þau vaxi.
Sethæð stólanna er 41 sentímetri
og hægt er að fá slá framan á hann
fyrir minni börn segir Þórdís loks.
Hönnunardagar 1997
Herra Ed
og gormastólar
STURLA Már Jónsson hefur hannað
nýja gerð eldhúsinnréttinga sem
vann til 1. verðlauna í samkeppni
Reykjavíkurborgar. Innréttingarnar
eru í félagslegar leiguíbúðir borgar-
innar og ætlað að vera auðveldar í
samsetningu. Þá er hægt að skipta
út einstökum skápeiningum.
Framleiðslan var boðin út og var
Axis hlutskarpast að Sturlu sögn.
„Þessi útfærsla er í sjálfu sér ekki
frábrugðin venjulegri innréttingu úr
í útliti. En ég tók tillit til ýmissa
þátta sem skipta máli í leiguíbúð til
dæmis viðhalds og einnig tæknilegra
atriða á borð við raf- og vatnslagnir
sem þarf yfirleitt að leggja inn í
veggi. Þær er nú hægt að leggja
bakvið innréttinguna sjálfa, utan á
vegginn."
Sturla segir að með þessu móti
sé notandinn alls ekki bundinn af
lögnum sem fyrir eru og geti fært
innréttinguna eftir hendinni. Inn-
réttingarnar eru úr plasthúðuðum
drapplitum spónaplötum í stað hvítra
og höldur eru sérhannaðar og fram-
leiddar á íslandi.
Hurðir eru sprautulakkaðar með
sérstöku lakki og þær má taka af
og sprauta aftur þegar þær eru orðn-
ar slitnar. ■
VINNUATHVARF, tölvuborð 21. aldar,
byltingarkenndar kommóður, skóla-
húsgögn, stóll með traktorsfjöðrum
og sófasettið Herra Ed eru meðal
muna á hönnununardögum hús-
gagna og innréttinga sem haldnir eru
í sjötta sinn og hefjast í dag.
Um er að ræða samstarfsverkefni
Samtaka iðnaðarins og iðnaðarráðu-
neytisins með aðild Forms íslands, Arki-
tektafélags Islands og Félags húsgagna-
og innanhússarkitekta og markmiðið er að
vekja á athygli á helstu nýjungum í hönnun
og framleiðslu húsgagna- og húsbúnaðar hér-
lendis.
Framleiðendur hafa tilnefnt ákveðin verk
verða vérðlaun afhent opnunardaginn. Hátíðin er opin boðsgestum í
dag en sýningarsalir framleiðenda og seljenda verða opnir almenn-
ingi um helgina. Þátttakendur eru 11; Á. Guðmundsson, Axis hús-
gögn, BC sýningarhópur FHÍ á Kjarvalsstöðum, Brúnás innréttingar,
Desform, Trésmiðjan eldhús og bað, Epal, GKS, Ingvar og Gylfi, Penn-
inn og Trésmiðjan Borg.
Kynntar verða innréttingar og húsgögn fyrir stofnanir og heimili
og hafa hönnunardagar oft skilað sér í viðskiptasamböndum. íslensk
skrifstofuhúsgögn hafa haldið markaðshlutdeild sinni, skv. upplýsing-
um frá Samtökum iðnaðarins, meðan aðrar greinar hafa dregist sam-
an í samanburði við innflutning. Þá hefur innlend framleiðsla unnið á
á innréttingamarkaði með vaxandi markaðshlutdeild undanfarin ár.
hke m
Nýr tónn í eldhúsið
komið að húsgögnin minna mjög
á sjöunda áratuginn. Auglýsinga-
teiknara hjá Sjöunda himni fannst
þau minna á ameríska fjölskyldu
að horfa á þátt Ed Sullivan og
nafnið festist strax við hann,“ seg-
ir Kristinn. Aðspurður hvort heitið
eigi ekki að vera íslenskt segir
Kristinn að hann sé fyrst og fremst
að hanna fyrir erlendan markað
og hafi kynnt umrædd húsgögn í
Þýskalandi nýverið.
„Sjöundi áratugurinn hefur ver-
ið áberandi að undanförnu og
maður verður ósjálfrátt fyrir hug-
hrifum sem skila sér síðan í formi
og litum.“ Sófinn er heilbólstraður
með strýtulöguðum mahoní-fótum
og rauðu áklæði með rússkinsá-
ferð.
Gólfið í kartöflugeymslunum
var steypt í síðustu viku og segir
Kristinn hugmyndina þá að hafa
rökkur, botnlýsa sýningargripina
og spila óhefðbundna tónlist.
Gallerí í
kartöflu-
geymslu
KRISTINN Brynjólfsson hús-
gagnahönnuður sýnir sófa og stól
undir nafninuHerra Ed, eða Mr.
Ed í nýju gall-
eríi sem Des-
form opnar
fyrir íslensk
húsgögn í
Ártúns-
brekku í dag.
Galleríið er
til húsa þar sem
áður voru kartö-
flugeymslur Reyk-
víkinga. „Nafnið á
Herra Ed er þannig til