Morgunblaðið - 08.05.1997, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
-t
flbnngniilifftfeife
C
1997
FIMMTUDAGUR 8. MAÍ
BLAÐ
Sigfús og Júlíus í Val
Sigfús Sigurðsson og Júlíus Gunnars-
son hafa báðir gengið til liðs við
1. deildarlið Vals í handknattleik. Sigfús
er sterkur línumaður og lék með Selfyss-
ingum sl. vetur. Júlíus er vinstrihandar
skytta og lék með Hildesheim í þýsku
2. deildinni í vetur. Þeir léku báðir með
Val um árabil og hafa verið islandsmeist-
arar með félaginu. Þeir ættu því að þekkja
vel til á Hlíðarenda.
Brynjar Harðarson, formaður hand-
knattleiksdeildar Vals, sagði að búið væri
að ganga frá langtíma samningi við þá
félaga. Hann sagðist ánægður með að
hafa fengið Sigfús og Júlíus aftur til Vals.
Valsmenn hafa misst einn leikmann frá
síðasta tímabili, Skúla Gunnsteinsson,
sem er orðinn þjálfari Aftureldingar.
Brynjar sagði að Valsmenn væru í viðræð-
um við Arnar Pétursson úr ÍBV. íslands-
meistarar KA hafa sýnt áhuga á að fá
Arnar í sínar raðir og það hafa FH-ingar
einnig gert.
Boris samnings-
bundinn Val
Boris Akbachev, aðstoðarlandsliðs-
þjálfari, er samningsbundinn Val að sögn
Brynjars. Eins og kom fram í blaðinu í
gær eru KA-menn á höttunum eftir Bor-
is og vilja fá hann sem aðstoðarþjálfara
meistaraflokks og til að sjá um yngri
flokka félagsins. Brynjar Harðarson, for-
maður handknattleiksdeildar Vals, sagði
að Boris væri_ með þriggja ára samning
við félagið. „Ég hef ekki heyrt neitt frá
KA um þetta mál og hef ekki trú á því
að Boris fari norður. Hann er búinn að
vera hjá okkur í tíu ár og unnið gott starf.
Við leggjum því áherslu á að halda honum
enda er hann samningsbundinn félaginu,“
sagði Brynjar.
T ugir erlendra
keppenda á
svifdrekamót
TUGIR útlendinga koma til landsins í sumar til keppni
á fyrsta alþjóða svifdrekamótinu, sem haldið verður
hérlendis. Þrjátíu erlendir keppendur hafa þegar skráð
sig til keppni og að sögn forráðamanna mótsins er
ekki ólíklegt að talsverður íjöldi bætist í þann hóp.
íslendingamir sem keppa á umræddu móti verða um
þijátíu. Mótið heitir Celtic Cup og er alþjóðlegt sem
fyrr segir. Það hefur áður verið haldið nokkmm sinn-
um, í Skotlandi, írlandi og Wales.
Eitt mót í svifdrekaflugi hefur þegar verið haldið
hérlendis í vor, 3. og 4. maí, þar sem flogið var frá
Hafrafelli fyrri daginn og frá Helgafelli í Mosfellsdal
þann síðari. „Við eram kallaðir vorboðarnir í Mosfells-
sveitinni, ekki síður en lóan,“ sagði Jón Rósmann
Mýrdal við Morgunblaðið, en hann og Árni Gunnars-
son urðu efstir og jafnir. Næst verður keppt á alþjóða-
mótinu, en það fer fram 4. til 6. júlí. „Þá verður keppt
á svæðinu frá Laugarvatni austur að Búrfelli en svæð-
ið S kringum Búrfell hefur einmitt verið okkar' aðal-
svæði undanfarin ár,“ sagði Árni í gær.
Einari ekki boðið
að þjálfa UMFA ' j
í FRÉTT í blaðinu sl. sunnudag var sagt að Kristján i
Arason, Bjarki Sigurðsson og Einar Þorvarðarson
hefðu allir neitað boði um að þjálfa lið Afturelding- i
ar. Einar, sem þjálfaði liðið í vetur, vill koma því á i
framfæri að sér hafí aldrei verið boðið að halda áfram i
með liðið, þó svo forráðamenn félagsins hafí haldið
öðru fram. „Ég var kallaður á fund og spurður að i
því hvað ég ætlaði mér að gera í framhaldinu. Ég
kvaðst ekkí vera kominn til að ræða það og þegar
ljóst var að félagið vildi ræða við aðra iíka sagði það
sig sjálft að ég hafði ekkert meira þama að gera.
Mér var því aldrei boðið starfið." j
KNATTSPYRNA
Rangers meistari 9. árið í röð
Metiðjafn-
aðíDundee
Rangers tryggði sér Skotlandsmeistaratitilinn í knattspyrnu
níunda árið í röð þegar liðið vann Dundee United 1:0 á
Tannadice Park í Dundee í gærkvöldi. Aðeins Celtic hafði náð því
að verða meistari níu ár í röð, afrekaði það 1966 til 1974, en
Rangers hefur fagnað titlinum 48 sinnum síðan byrjað var að leika
um hann 1890.
Daninn Brian Laudrup tryggði Rangers endanlega áfangann
þegar hann skoraði með skalla 11 mínútum eftir að flautað var
til leiks, 20. mark hans á tímabilinu. Gestirnir áttu leikinn, ma.
átti Paul Gascoigne skot í stöng og Charlie Miller annað sem strauk
slána en liðið í þriðja sæti slapp með eins marks tap.
Celtic átti möguleika á að ná Rangers að stigum en veik von
varð að engu þegar liðið gerði markalaust jafntefli í Kilmarnock.
Þegar ein umferð er eftir er Rangers með 80, stig, Celtic 72 og
Dundee United 60 stig.
Leicester áfram í úrvalsdeild
Deildarmeistarar Leicester tryggðu sæti sitt í ensku úrvalsdeild-
inni næsta tímabil þegar þeir unnu Sheffield Wednesday 1:0 í
gærkvöldi. Varnarmaðurinn Matthew Elliot var hetja heima-
manna, skoraði þegar fjórar mínútur voru eftir af viðureigninni.
Þetta var fyrsti sigur Leicester í síðustu 10 leikjum í deildinni.
Leicester, sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni í fyrra eftir auka-
keppni, er með 44 stig og úr fallhættu. Nottingham Forest er
fallið og sjö lið til viðbótar eru á hættusvæði.
Þegar tímabilið hófst á liðnu sumri lagði Martin O’Neill, knatt-
spyrnustjóri Leicester, áherslu á að aðalatriðið væri að halda fengn-
um hlut, réttinum að leika á meðal þeirra bestu. Ætlunarverkið
tókst og gott betur, Iæicester verður í Evrópukeppni félagsliða í
haust en vonir Sheffield Wednesday um Evrópusæti dofnuðu við
tapið í gærkvöldi.
■ Úrslit / C8
Reuter
Meistarabikarinn enn einu sinni til Rangers
GLASGOW Rangers fagnaðl skoska melstaratltllnum eftlr 1:0 slgur á Dundee United á
Tannadice Park C gærkvöldl. Danlnn Brlan Laudrup geröl elna mark lelkslns í fyrrl hálflelk.
Hér lyftlr Rlcherd Gough, fyrlrllðl Rangers, blkarnum eftlrsótta.
KAPPAKSTUR: ÞEYSIREIÐ UM ÞRÖNGAR GÖTUR FURSTADÆMISINS / C4