Morgunblaðið - 18.05.1997, Síða 1
mmm
: ,
■
Danmörk
ÓDÝWR 1
bílaleigubílar
fyrlr íslendingaj
” Vikugjald
Opel Corsa dkr. 1.795
Opel Astra dkr. 1.995
Opel Astra st. dkr. 2.195
Opel Vectra dkr. 2.495
Innif. ótakmarkaður akstur, tryggingar
Fáið nánari verðtilboð
Nýkominn sumarhúsalisti
sem er ókeypis
Fjölbreytt úrval sumarhúsa
um alla Danmörku.
International Car Rental ApS
Uppl. á íslandi, sími 456-3745.
Bændaferð til Garda-vatnsins
FARIN verður ferð á vegum
Bændaferða að Garda-vatni á Ital-
íu dagana 23. október til 1. nóvem-
ber.
Flogið verður með Flugleiðum til
Lúxemborgar og þaðan verður ek-
ið til Suður-Þýskalands og gist þar
eina nótt. Daginn eftir verður hald-
ið áfram suður á bóginn að Garda-
vatninu þar sem gist verður í 7
nætur. Farnar verða skoðunarferð-
ir flesta dagana.
Ekið verður frá Garda-vatninu
alla leið norður til bæjarins
Obernai í Alsace í Frakklandi. Það-
an verður svo ekið að morgni 1.
nóvember til Lúxemborgar og
komið til Keflavíkur um miðjan
dag.
Ferðin með flugi, skatti, akstri
erlendis, gistingu í 9 nætur, morg-
unverðarhlaðborði og kvöldverði
alla dagana við Garda-vatnið kost-
ar 58.000 kr. á mann.
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 BLAÐ C
Þetta 6 manna sumarhús frá
DanCenter kostar dkr. 8.728/
ca. ísl. kr. 30.500 á viku í júni.
VerðUsti með þúsundum aunarra
sumarhúsa um alla Danmörku
sendist til yðar án endurgjalds.
Höfum verölista meö sumarhúsum, orlofs-
hverfum sem sendist án endurgjalds.
Sími 456-3745, fax 456-3795
n
Sólin laðar og flestir sólarlandafarar sumarsins leggja leið sína til Benidorm á Spáni
Betri efnahagur
þýðir fleiri bókanir
BENIDORM á Spáni er greinilega
vinsælasti sumarleyfisstaðurinn í
ár líkt og í fyrra en fast á eftir
koma Mallorca, Costa del Sol og
Portúgal. Talsmönnum nokkurra
ferðaskrifstofa bar saman um að
pantanir væru fleiri og bærust fyrr
en á sama tíma í fyrra. Helstu
ástæðumar telja þeir þær að verð
hafi staðið í stað og að efnahagur
fólks sé betri.
► Samvinnuferðir/Landsýn. Að
sögn Kristínar Sigurðardóttur,
sölustjóra, er tæplega 40% aukning
á bókunum miðað við sama tíma í
fyrra. Um er að ræða yfir 22.000
bókanir í hópferðir og rúmlega
15.000 í áætlunarferðir það sem af
er. „Skýringin er lágt verð hjá okk-
ur í hópferðirnar, fleiri áfangastað-
ir og aukinn sætafjöldi," sagði hún.
„Flestir fara til Benidorm, Portú-
gaþog Mallorca."
►Úrval/Útsýn. Vinsælustu stað-
irnir eru að sögn Guðrúnar Sigur-
geirsdóttur, framleiðslustjóra,
Portúgal og Mallorca. Þangað fer
leiguflug einu sinni í viku. „Ferðir
til Gardavatnsins á Ítalíu eru ein af
nýjungunum sem við bjóðum upp á
núna og þær eru mjög eftirsóttar.“
Hún sagði að bókanir hefðu borist
fyrr en í fyrra og um greinilega
aukningu væri að ræða. „Það er
bara orðinn þáttur af fjölskyldulíf-
inu að eyða sumrinu saman á sól-
arströnd," sagði hún.
►Plúsferðir. „Sólin laðar,“ segir
Laufey Jóhannsdóttir, fram-
kvæmdastjóri. „Benidorm er vin-
sælasti sumardvalarstaðurinn, síð-
an Mallorca en fast á eftir kemur
flug og bíll til Danmerkur, þangað
er umtalsverð aukning.“ Laufey
segir að fleiri bókanir hafí borist en
á sama tíma í fyrra, ástæðuna tel-
ur hún vera langan vetur og meiri
tiltrú á efnahagslífínu.
►Heimsferðir. Andri Már Ing-
ólfsson, framkvæmdastjóri, segir
ferðaskrifstofuna hafa bókað 40%
fleiri ferðir til Costa del Sol en á
sama tíma í fyrra. Þangað er flog-
ið vikulega í sumar. „Gott orð hef-
-ur farið af staðnum og er það lík-
lega helsta ástæða aukningarinn-
ar. Benidorm er svo annar af okk-
ar aðaláfangastöðum. í júlí og
ágúst bjóðum við viku-
lega uppá Parísarferðir
og þær eru mun betur
bókaðar núna en í
fyrra.“ mmmmí
►Flugleiðir. Barcelona
og St. Petersburg í
Flórída eru fjölsóttustu sólarstað-
irnir, að sögn Jóhanns Gísla Jó-
hannssonar, sölufulltrúa. Þá eru
Danmörk og Bretland mjög vinsæl
sem og flug og bíll um Evrópu.
„Bókanir eru fleiri en í fyrra og er
það sennilega bættu efnahagsá-
standi að þakka auk þess sem verð-
ið hefur staðið í stað,“ sagði Jó-
hann.
Unga fólkið
sækir á óhefð
bundin mið
►Ferðaskrifstofa stúd-
enta. „Viðskiptahópur
okkar er aðallega ungt
fólk og einstaklingar
mmmmm sem ferðast einir,“ segir
Kolbrún Garðarsdóttir,
sölustjóri hjá Ferða-
skrifstofu stúdenta. „Austur-Evr-
ópa er mjög vinsæl, það er áber-
andi hve margir sækja þangað.
Unga fólkið er líka farið að sækja
lengra en í þessar hefðbundnu
Evrópuborgir. Þetta eru krakkar
sem eru búnir að ferðast mikið
með foreldrum sínum á hefð-
bundna ferðamannastaði og sækja
því á önnur mið.“
FARIÐ UM
FIMM LÖND
S-AMERÍKU
►FERÐ um fímm lönd Suður-
Ameríku verður farin á vegum
Úrvals-Útsýnar í nóvember. Far-
arstjdrar eru Ásta R. Jóhannes-
dóttir og Einar Örn Stefánsson.
Flogið er 12. nóvember frá
Keflavík til London og þaðan til
Sao Polo. 13. nóvember er komið
á áfangastað í Santiago og þar
gist í fjórar nætur eins og á öðr-
um áfangastöðum.
Andesfjöllin verða ekin til
Mendoza og margt skoðað. 19.
nóvember er flogið til Bueonos
Aires. 23. nóv. er flogið til Igu-
azu og dvalið á hóteli sem stend-
ur í nánd við Iguazu fossa.
í Rio de Janeiro verður styttan
Kristur frelsari skoðuð en hún
stendur á Corcovado tindi í 700
metra hæð. Ferðin spannar með
öðrum orðum Chile, Argentínu,
Uruguay, Paraguay og Rio de
Janeiro í Brasilíu.
Á 18. degi ferðarinnar er hægt
að fljúga beint heim um London
eða að fljúga til baðstrandarbæj-
arins Recife í Brasilíu til dvalar
til 6. desember. Verð á mann í
tvíbýli er 359.950 krónur. Ferðin
með Recife kostar 398.950 krón-
ur f tvíbýli.
pers Lonely Heaits Clu
Oaníel fleúsl Haraldsson * KK
sson * flri lonsson • Rno.u Julíussoo • Sigorjðn Biink Sinfón
Miðasaln í Háskólabíói • Sími: 552 2140
Miðaverð: 2.500 kr.
www.apgis.is/peppeis