Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 C 3 ■
um eins kílómetra fjarlægð. Húsið
var þó á endanum byggt og það
gert með hefðbundnum fjáröflunar-
leiðum, sem fólust í því að heldri
borgarar keyptu sér bás á svölun-
um og lögðu þannig til þó nokkuð af
fjármunum til móts við borgina.
Hver og einn gat svo innréttað og
skreytt bás sinn eins og honum datt
í hug og má ennþá sjá þess merki
þar sem reynt hefur verið að halda
við skreytingunum eftir fremsta
megni. Þetta sameignarkerfi í leik-
húsum á Italíu viðhélst alveg fram
á þessa öld og enn þann dag í dag
eru til fjölskyldur sem eiga áskrift-
arkort í fjölskyldubásnum.
Borgarleikhúsið var fyrsta leik-
húsið á Ítalíu til að hafa bjöllulag á
salnum, en hið hefðbundna leikhús
hafði hingað til verið byggt með
skeifulaga sal og þótti það nokkuð
djarft hjá Bolognabúum að sam-
þykkja þessa nýjung.
Undir salargólfinu er ennþá
varðveitt vindan sem notuð var til
að lyfta salnum í sömu hæð og svið-
ið þegar dansleikir voru haldnir í
húsinu en til langs tíma voru leik-
húsin einnig aðal-hátíðarsalirnir.
Vindan er sú eina sinnar tegundar
sem varðveist hefur og er ennþá
nothæf.
__W-. -cýBft
t- Parma. Reggio •Ferrara.
c O) : , * .Modena
' > i a n .BOLOCNA
R°magn a*«avenna
Forli Rjmini
Það var í þessu leikhúsi sem
Kristján Jóhannsson söng Otello
eftir Giuseppe Verdi nú í haust við
mjög góðar undirtektir og hér varð
Ruggero Raimondi, sem er kennari
Ólafs Árna Bjarnasonar tenórs,
frægur sem Don Giovanni. Það er
hægt að heimsækja leikhúsið og fá
leiðsögn um leyndardóma þess, ef
þess er óskað.
Kirkjur og torg
Aðaltorgið í Bologna er eitt af
fegurstu torgum Italíu og eru íbú-
arnir virkilega stoltir af því. Við
torgið stendur kirkja heilags
Petronio sem er dýrlingur Bologna.
Þetta er gífurleg bygging sem haf-
ist var handa við að byggja hinn 7.
júní 1390. Kirkjan er síðasta gotn-
eska byggingin sem byggð var í
Evrópu. Hún var hugsuð sem tákn
veldis Bologna gegn stórborgar-
veldi kirkju heilags Péturs í Róm,
og voru kirkjur og hús jöfnuð við
jörðu til að hægt væri að koma
hinni nýju kirkju fyrir. Kirkjan er
132 metra löng, 57 metra breið og
þar sem hún er hæst er hún 44
metrar. í kirkjunni eru 22 kapellur
hver annarri fegurri.
Önnur kirkja sem vert er að
skoða er kirkja heilags Stefans sem
stendur við piazza santo Stefano.
Sagan segir að erkibiskupinn
Petronio hafi á 5. öld viljað byggja
þarna eftirlíkingu af helgidómnum
á Golgata og voru byggingar þessar
lengi kallaðar heilaga Jerúsalem.
Byggingarnar eru 7 helgidómar og
klaustur sem bættist við á 10. öld.
Við viðhald árið 1880 hvarf klaustr-
ið og kirkjunum fækkaði í fjórar, þó
í daglegu tali sé ennþá talað um
kirkjumar sjö. Kirkja heilags Stef-
ans er mjög ólík öðrum kirkjum
sem hægt er að sjá um alla Ítalíu
þar sem hún er mjög lítið skreytt,
næstum því fátækleg að sjá en í því
liggur einnig fegurð hennar.
Aðrar kirkjur sem vert er að
skoða eru t.d. S. Giacomo Maggiore
sem stendur við via Zamboni, Santa
Maria dei servi sem er við strada
Maggiore, S. Giovanni in Monte við
samnefnda götu, S. Francesco, sem
stendur við piazza Malpighi, svo að-
eins einhverjar séu nefndar.
Tortellini og lasagna
Bologna er ekki bara fræg fyrir
kirkjur og fagrar byggingar. Mat-
urinn er eitt af því sem einkennir
borgina og þekkja eflaust flestir Is-
lendingar „pasta bolognese“, sem
er hin heimsfræga kjötsósa sem
sett er út á pastað og innfæddir
Bolognabúar gera eftir kúnstarinn-
ar reglum.
Það sem kannski færri vita er að
það er í Bologna sem tortellini og
lasagna verða upphaflega tál. Hvað
tortellini varðar þá eru til ótal sög-
ur um uppruna þess en talið er
nokkuð víst að það hafi fyrst komið
fram á sjónarsviðið á 10. öld. La-
sagna er fyrst getið í ritum á 14.
öld.
Til að bragða á hinum ýmsu rétt-
um sem einkenna Emilia-Romagna
héraðið eru „osteriurnar“ rétti
staðurinn. Osteria er nokkurs kon-
ar krá sem hefur alla jafna upp á að
bjóða mat og vín á mjög vægu
verði, en saga þeirra nær aftur fyr-
ir miðaldir. Þær hafa verið sam-
komustaðir stúdenta um aldirnar
og er oft mjög glatt á hjalla á kvöld-
in og skiptir þá engu hvaða dagur
vikunnar er. I dag eru um 200 krár
og vínbarir í Bologna og fjölgar
þeim ef eitthvað er.
Þetta er einungis örlítið brot af
því sem Bologna hefur upp á að
bjóða og sýnir að það er alveg þess
virði að heimsækja hana. Þeir sem
það gera uppgötva þá hæðimar
sem umlykja borgina og hvert íbú-
arnir flykkjast um helgar, göngu-
leiðina til san Luca, hin óteljandi
söfn sem í borginni eru og svo mæt-
ti lengi telja. Af þessu má sjá að
Italía hefur fleiri gersemar heldur
en Mflanó, Feneyjar, Flórens og
Róm.
iý
yfirsést
einangruninni, og hafa bæjaryfir-
völd áhuga á að borgin myndi eins
konar brú milli austurs og vesturs.
Adríahafsborgin hefur upp á
margt að bjóða. Piazza dell’Unita
er hjarta borgarinnar en það er
stórt og líflegt torg við ströndina og
þar ríkir skemmtileg kaffi-
húsastemmning. Torgið, sem ein-
nig er ráðhústorg, er byggt í ný-
klassískum stíl.
Urmull af litlum antíkbúðum
Ekki langt frá Piazza dell’Unita
er elsti hluti bæjarins og ættu unn-
endur gamalla hluta að finna þar
eitthvað við sitt hæfi því í Via Rett-
ori og Via della Beccherie er urmull
af litlum antíkbúðum. Dómkirkjan
San Giusto er ekki langt undan en
hún var byggð á 14. öld.
Morgunblaðið/Ómar
RÁÐHUSIÐ stendur við Piazza
dell’Unita torgið.
FLORIDA
Uppáhaldsveitingastaður Margrétar Waage er China Grill
Eitt af því sem gerir
China Grill einstakt er
það sem kallast kynning
eða „presentation" af
þeim réttum sem boðið
er uppá. Hver réttur er
skreyttur á þann hátt að
gestir upplifa ósvikna list
í matargerð eins og hún
gerist best.
Hvað varðar forrétti
mæli ég hiklaust með
„China Grill Tristar" en
það eru 3 forréttir sem
matreiðslumeistari
kvöldsins velur og er þá
tekinn þriðjungur af
þeim 3 forréttum sem
mælt er með og borið
fram sem einn forréttur.
I mínu tilfelli var um að
ræða ljúffeng laxahrogn,
„sushi rolls“, og „temp-
ura“ og það varð enginn
fyrir vonbrigðum með
valið.
Einn af uppáhalds að-
alréttum mínum á China
Grill heitir „Spicy Tuna“
og á lítið skylt við þann
túnfisk sem ég kaupi
stundum í dós og nota
sem álegg á brauð. Tún-
fiskurinn á China Grill er
skorinn í þunnar sneiðar
og síðan grillaður „medi-
um rare“ og fyrir vikið
myndast þunnur stökkur
hjúpur sem einkar gam-
an er að bíta í. Kjötið á
túnfisknum er rautt svip-
að og um nautakjöt væri
að ræða og eru gæðin
slík að hver munnbiti
bókstaflega bráðnar í
munninum. Einnig er
heimilt að nota stór pip-
arkorn sem stráð er á
túnfiskinn, en það er
gestanna að ákveða
hversu mikið notað er af
piparkornunum. Mjög
gott er að borða hrís-
grjón blönduð grænmeti
með túnfisknum.
Ef stemmning er fyrir
hendi er upplagt að enda
velheppnað kvöld á
China Grill með espresso
kaffi og ábæti sem hægt
er að deila á 4 gesti.
„Tiramisu" er einkar gott
með kaffinu en einnig má
fá ís og súkkulaðiköku."
Hér kemur svo heimilis-
fangið:
China Grill
404 Washington Avenue
Miami Beach, FL 33139
(305)-534-2211
60 West 53 Street
New York, NY10019
(212)-333-7788.
meðal annars boðið upp á
„la jotta“ súpu sem er ein-
kennandi fyrir Trieste.
Blómlegt
menningarlff
SKRUÐGARÐURINN við Miramare-höll, höllin sést í baksýn.
Rómantísk ævintýrahöll
Það er vel þess virði að skoða
Miramare-höllina sem var byggð
árið 1860 samkvæmt ósk austur-
ríska prinsins og erkihertogans
Ferdinand Maximilian af Habs-
burg. Hann naut hallarinnar ekki
lengi því hann var skipaður keisari
í Mexikó 1864 og tekinn þar af lífi
19 júní 1867. Höllin hefur yfir sér
rómantískan blæ þar sem hún
stendur á kletti úti við ströndina
umlukin stórum og fallegum skrúð-
garði.
í um 15 km norður af Trieste er
áhugaverður dropasteinshellir,
Grotta Gigante. Talið er að hann sé
svo stór að sjálf Péturskirkjan í
Róm gæti rúmast í honum.
Matarmenning Triestebúa
spannar allt frá hefðbundnu ítölsku
eldhúsi yfir í slóvenska sérrétti,
pylsur og súrkál. Vert er að smak-
ka hvítvínið, Vitovska, sem fram-
leitt er í nágrenninu.
Einn af þekktustu matsölustöð-
um bæjarins er Antica Trattoria
Suban, við Via Comici, en þar er
Trieste er þekkt fyrir
kaffihúsin sín og má þar
nefna „Caffe Tommaseo“
sem hefur verið starfrækt
síðan 1830. Þangað kem-
ur fólk úr öllum stéttum
þjóðfélagsins til að njóta
veitinganna og ýmissa listviðburða
sem þar fara fram.
Borgarbúar eru miklir leikhús-
unnendur og geta þeir valið milli
fjölda leikhúsa. Það elsta heitir
Teatro Comunale Giuseppe Verde
sem var stofnað 1801.
Þurfi maður á kyrrð og hreinu
lofti að halda er hægt að fara í
göngutúra um fjalllendi Val Ros-
andra sem er friðað náttúrusvæði
rétt fyrir utan Trieste.
Þýtt og stytt úr Politken/HBB.
MÉR dettur í hug
að segja þér frá
uppáhaldsstaðn-
um mínum á Flórída, en
þangað hef ég farið
nokkru sinnum og heim-
sótt systur mín sem býr
þar,“ segir Margrét
Waage.
„Staðurinn heitir
China Grill og var upp-
runalega opnaður í New
York og er óhætt að
segja að hann hafi fest
sig fljótt í sessi þar í
borg. Fyrir tveimur ár-
um var ákveðið að opna
samskonar stað á South
Beach Miami. South
Beach Miami hefur á
undanförnum árum orðið
einn vinsælasti ferða-
mannastaður í Banda-
ríkjunum, þar sem fólk
víða úr heiminum kemur
saman og nýtur góðs
veðurs sem og úrvals
góðra veitingastaða.
Margir myndu ætla að
nafnið á staðnum gæfi til
kynna að austurlensk
matargerð réði þar ríkj-
um, en það sem uppá er
boðið á lítið skylt við þá
dæmigerðu austurlensku
matargerð sem svo
margir þekkja. Lítið er
um sósur og olíur í þeim
réttum sem í boði eru,
því hráefnið á China Grill
er fyrsta flokks og því er
það maturinn sjálfur sem
nýtur sín án allra óþarfa
sósa o.s.frv. Hugmyndin
sem liggur að baki því að
snæða á Ghina Grill felst
í því að allir við hvert
borð deili matnum sín á
milli og eru prjónar oft-
ast notaðir við þá athöfn.
T.d. ef 4 fara saman á
China Grill þá er upplagt
að panta 2 forrétti og 2
aðalrétti því að hver
skammtur er stærri en
gengur og gerist á öðr-
um veitingahúsum. Hver
og einn hefur sinn eigin
disk og er svo matnum
deilt á diskana og þá hef-
st það sem China Grill
kallar listina að deila eða
„the art of sharing“.
Það fyrsta sem ég kom
auga á þegar á staðinn
var komið er hversu hátt
SYSTURNAR Margrét og Kristín Waage á
China Grill á Flórída.
GRIÐARLEG stemmning er oft þegar líða tekur á
kvöldið og mannlífið Qölskrúðugt.
Allir við borðið
deila með sér
matnum
er til lofts og setur það
mikinn svip á staðinn.
Mjög skemmtileg tónlist
er spiluð sem eykur á
vellíðan þeirra sem á
staðnum eru. Barinn er
stór og iðulega þéttsetinn
og geta þeir sem vilja
snætt á barnum. Eldhús-
ið á China Grill er lokað
milli 1 og 2 á nóttunni og
fyrir vikið verður oft gríð-
arleg stemmning þegar
líða tekur á kvöldið.