Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 4
T
*r_ <T
4 C SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997
£ ____
FERÐALÖG
MORGUNB L AÐIÐ
VARASÖM hola könnuð af for-
manni Landsbjargar.
INNI í Gígjukvísl. FJARLÆGÐ manna frá jökul-
klettum á að vera í samræmi
við hæð jakans.
LEÐJUPOLLUR sem getur verið erfitt að losa sig úr nema
tapa stígvélinu.
MorgunDiaoid/naiiaor KoiDems
MERKI Almannavarna ríkisins og Vegagerðarinnar um hættur á Skeiðarársandi.
SVFÍ dreifir myndbondi um hættuna ó Skeiðarársandi
Pollur eða djúpur pyttur?
„SÁUM við Ólaf, sem fylgdi á eftir
nokkrum klyfjahestanna, skyndi-
lega hverfa ásamt hesti sínum ofan
í pytt, sem var hulinn sandskán, og
munaði minnstu að við hinir værum
ekki komnir þar ofan í líka. Ólafí
tókst samt að hafa sig upp úr, og
■ fékk einnig borgið hestinum
óskemmdum,“ segir í ferðasögu
Bretans E.T. Holland yfir Skeiðar-
ársand árið 1861. Holland lýsir
kviksyndi og sandfenjapyttum eftir
hlaup og eldgos. Núna er sama-
hætta á ferðum.
Jakabráðnunin á Skeiðarársandi
er ör og heimamenn áhyggjufullir
um að ferðamenn sýni ekki næga
gætni miðað við aðstæður. Pað
hrynur nefnilega af jökulbrúnum og
kviksyndi myndast í sandinum.
Valgerður Sigurðardóttir hjá
Slysavarnafélagi íslands kannaði
aðstæður á Skeiðarársandi ásamt
öðru fagfólki og segir hún að undir
„saklausum" pollum geti leynst
djúpar gryfjur. „Stundum er ísskán
yfir hyljum og yfir henni sandur og
því engin leið að bera kennsl á hætt-
una,“ segir hún „nema réttum ráð-
um sé beitt.“
Hún ráðleggur öllum að stika sig
áfram með stöfum, vera aldrei ein-
ir síns líðs og sleppa börnum aldrei
lausum. „Barn gæti ætlað að busla
í litlum polli, en hann er kannski
tveggja metra djúpur pyttur,“ seg-
ir hún.
Hún segir að sumir ferðamenn
búist við að jökulstálið við jökuljað-
arinn líkist klettavegg sem óhætt sé
að ganga undir. En Slysavarnafé-
'lagið hefur varað fólk við: Mjög
varasamt! Því með hlýnandi veðri
eykst bráðnun og hrun úr jöklinum
þar sem hlaupið rauf skarð, nefnt
Gígjukvísl.
Sigurður Bjarnason ferðabóndi
hefur verið að leiðbeina ferðamönn-
um á Skeiðarársandi og telur brýnt
að upplýsingum sé miðlað um hætt-
urnar því hér séu nýjar og áður
ÞARNA var kviksyndi, nú er gígurinn eftir og vatnið horfið.
óþekktar aðstæður fyrir nútíma ís-
lendinga. Hann segir að eina helg-
ina hafi verið taldar 40 rútur á leið
í Gígjukvísl.
Myndbnnd um hættuna
Slysavarnafélag Islands hefur
látið gera myndband um hætturnar
á Skeiðarársandi sem sýnt verður
og dreift núna um Hvítasunnuna.
„Það verður sýnt í sjónvarpi, á hót-
elum, í rútum, gististöðum og veit-
ingahúsum í sumar,“ segir Valgerð-
ur Sigurðardóttir. Hún telur réttu
leiðina að auka þekkingu almenn-
ings á orsökum slysa fremur en að
banna aðgengi.
Almannavarnaráð og Vegagerðin
virðasv. sömu skoðunar því á þeirra
vegum hafa verið reist íjölmörg
skilti sem vara við kviksyndi og
sandbleytu.
GIL milli jaka minnka og jarðvegurinn á milli er tvísýnn.