Morgunblaðið - 23.05.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 C 5
'■t. -
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Júlíus
i leikmadur vallarins, í baráttu um knöttinn við Gunnlaug Jónsson.
Oryggið á odd-
inum á Skaga
ÍA og Leiftur gerðu markalaust
jafntefli á Akranesi í gærkvöldi
og má segja að úrslitin hafi
verið eftir gangi leiksins. Liðin
voru í sárum eftir fyrstu um-
ferðina, ætluðu greinilega ekki
að halda á sömu braut, lögðu
áherslu á vörnina og tóku enga
áhættu. Fyrir vikið fóru menn
frekar rólega í sakirnar og
uppskáru samkvæmt því.
Bæði lið urðu fyrir áfalli í fyrstu
umferð, fengu þrjú mörk á
sig, og var ljóst í fyrri hálfleik að
■■^■1 þau ætluðu að setja
Steinþór fyrir lekann. Vladan
Guðbjartsson Tomic var tekinn úr
skrifar bytjunarliði ÍA og
frá Akranesi tók Sigursteinn
Gíslason stöðu hans á miðjunni en
Sturlaugur Haraldsson fór í vinstri
bakvörðinn. Auðun Helgason var
miðvörður hjá Leiftri í staðinn fyrir
Júlíus Tryggvason, Andri Marteins-
son var hægri bakvörður og Baldur
Bragason á hægri vængnum en
Pétur B. Jónsson var varamaður
og Arnar Grétarsson lék ekki með
vegna meiðsla. Þá var Þorvaldur
Jónsson dreginn á flot, en mark-
vörðurinn, sem var hættur, spilaði
í staðinn fyrir Cardaklija sem tók
út leikbann. Skagamenn stilltu upp
kerfinu 4-3-3 en Leiftur 4-4-2 og
voru menn frekar fastir í stöðum
sínum.
Spilið var ekki upp á marga fiska
í hálfleiknum. Skagamenn fengu
opnari færi en gagnsóknir Leifturs-
manna voru fleiri sem og skotin.
Hins vegar er varla hægt að tala
um sóknarleik því hann var tilviljun-
arkenndur hjá báðum og ómarkviss.
Heldur meiri hraði var í leiknum
eftir hlé og voru heimamenn mun
aðgangsharðari en þeir lentu yfir-
leitt í öngstræti þegar kom upp að
marki mótherjanna. Sem fyrr hugs-
uðu norðanmenn fyrst og fremst
um að veijast og þeir gerðu það
vel en annað var aukaatriði.
Vörn ÍA var oft flöt í fyrri hálf-
leik en hún lagaðist þegar Gunn-
laugur Jónsson fór í miðvarðarstöð-
una eftir hlé. Baráttan var mest á
miðjunni og þar höfðu Ólafur Þórð-
arson og Sigursteinn í nógu að snú-
ast en eina lífsmarkið frammi var
hjá Haraldi Ingólfssyni. í heild var
eins og liðið væri í öðrum gír og
kæmist ekki upp úr honum eða
þyrði ekki að fara hraðar. Slíkt
getur ekki verið vænlegt til árang-
urs en ljóst er að mikið meira býr
í Skagaliðinu en það hefur sýnt til
þessa.
Leiftur lærði af leik Skallagríms
í fyrstu umferð og tók varnarleik
nýðiðanna sér til fyrirmyndar með
góðum árangri. Allt annað var að
sjá til liðsins og munaði mestu um
Auðun í miðvarðarstöðunni. Slobod-
an Milisic var einnig traustur, Dav-
íð djöflaðist á miðjunni og Þorvald-
ur var sá sem ógnaði frammi. Liðið
gerði í raun vel að fara af Skagan-
um með stig eftir hrakfarirnar í
Borgarnesi í vikubyrjun en samt
virðist þó nokkuð vanta upp á liðs-
heildina.
„Ég stefni að sigri í hverjum leik
og því er ég alltaf óánægður þegar
það gengur ekki eftir,“ sagði Ivan
Golac, þjálfari ÍA, við Morgunblað-
ið. „Hins vegar lenda stærri félög
eins og AC Milan í meiri áföllum
og aðalatriðið er að taka framförum
og byggja upp sjálfstraustið. Við
lékum mun betur en í Eyjum, reynd-
um að sækja og skapa opin svæði
en vörn Leifturs var þétt fyrir og
gerði okkur lífið leitt. Samt sem
áður þurfum við ekki að örvænta,
deildin virðist ætla að verða jöfn
og spennandi og sem fyrr stefnum
við á toppinn. Andinn í hópnum er
góður en við vitum að við verðum
stöðugt að leggja meira á okkur,
meira í ár en í fyrra.“
Kristinn Björnsson, þjálfari Leift-
urs, var ánægður með stigið. „Þetta
var mikið betra hjá okkur núna en
síðast. Þá urðum við fyrir áfalli og
mér fannst við missa allt sjálfs-
traust. Því var ég smeykur fyrir
þennan leik en lagði áherslu á að
byggja upp sjálfstraustið á ný. Það
tókst og ég er ánægður með stigið.
Það er hroki að ætla að koma hing-
að og segjast ætla að leggja meist-
arana, því þeir eru sterkir og verða
það áfram.“
‘ð að sætta sig við eitt stig
mdirtökunum í leiknum. Þeir héldu bolt-
inum meira innan liðsins og léku oft
aglega á milli sín, án þess þó að skapa
lér umtalsverð marktækifæri. Á móti
rörðust Framarar vel og beittu nokkuð
íættulegum skyndisóknum. Ur einni
ilíkri náðu þeir forystu með stórglæsilegu
rrumuskoti „gamla mannsins" Péturs
trnþórssonar, langt utan af velli. Eftir
>að sóttu liðin nokkuð jafnt, en pressan
>ar reyndar nokkuð mikil á mark Fram-
ara undir lok hálfleiksins. Þá náðu þeir
að bjarga marki tvisvar í röð á hreint
undraverðan hátt eftir skot Guðna Rún-
ars Helgasonar. Fyrst Ólafur Pétursson
með frábærri markvörslu og síðan fór
skot Guðna himinhátt yfir af stuttu færi.
I seinni hálfleik tóku Eyjapeyjar nær
öll völd á vellinum. Sóknir þeirra buldu
á marki Framara en allt viitist stranda
á lokasnertingunni eða markverði heima-
manna. Greinilegt var, að Eyjamenn
fundu sig fremur illa á hinum grjót-
harða Valbjarnarvelli og því misfór-
ust margar sendingar sem lukkast
hefðu í venjulegu árferði. Það var
síðan hinn eitilharði baráttujaxl
þeirra, Ingi Sigurðsson, sem jafnaði
leikinn um seinni hálfleikinn miðjan
eftir að hafa komið inn á tíu mínút-
um áður.
Við það sat, þrátt fyrir að bæði
lið fengju umtalsverð tækifæri til
að bæta við mörkum. Bæði komst
Helgi Sigurðsson tvívegis inn fyrir
vörn Eyjamanna án þess að gera sér
mat úr því og eins þótti Tryggva
Guðmundssyni sér vera brugðið inn-
an vítateigs án þess að nokkuð væri
dæmt.
Framarar mættu með mjög breytt
lið frá því í fyrsta leiknum gegn
Keflvíkingum. Þrír leikmenn, sem
þá hófu leikinn, vermdu varamanna-
bekkinn í gærkvöldi og kom mörgum
á óvart. En það virtist gefast nokk-
uð vel og annað stigið var þeirra
eftir erfiðan leik. Ásgeir Elíasson,
þjálfari liðsins, var samt sem áður
ekkert allt of ánægður í leikslok.
„Nei, ég er ekki fyllilega ánægður,
en liðið er að minnsta kosti á upp-
leið,“ sagði hann eftir leikinn. „Við
vorum kannski heppnir að fá ekki
fleiri mörk á okkur, en hefðum
sömuleiðis getað nýtt einhver af
okkar færum betur.“ En hvers vegna
þessar miklu breytingar? „Mótið er
þannig uppbyggt, að tveir dagar eru
iðulega á milli leikja. Þegar svo er
gefur augaleið, að ég verð að rótera
dálítið með mannskapinn svo liðið
leiki af fullri getu. Þess vegna gerði
ég þessar breytingar á milli leikja
og mun væntanlega gera áfram,“
sagði Ásgeir.
Bjarni Jóhannesson, þjálfari Eyja-
manna, var heldur ekkert allt of
sáttur. „Við áttum í erfiðleikum, þar
sem þeir bökkuðu mikið og vörðust
af krafti. Við vorum of seinir í gang,
áttum í erfiðleikum með þennan
hrikalega harða völl sem boðið var
upp á, og náðum þess vegna í endan-
»#\Á 11. mín. áttu
■ \M Framarar ágæta
sókn upp hægri kantinn. Eftir
talsvert þóf tókst Eyjamönnum
að hreinsa frá. Þar var Pétur
Arnþórsson mættur og setti
sannkallað þrumuskot með
hægri fæti af rúmlega þijátíu
metra færi, neðarlega í hægra
hornið án þess að Gunnar Sig-
urðsson markvörður fengi neitt
við ráðið. Frábært mark.
■ 4[ Eftir nokkuð þunga
■ I sókn Eyjamanna
sendi Sverrir Sverrisson hættu-
lega sendingu fyrir markið á 72.
mínútu. Varnarmaður Framara
virtist ráða vel við sendinguna
en rakst á klaufalegan hátt í
boltann þannig að hann fór
framhjá ólafi markverði og fyr-
ir markið. Þar var Ingi Sigurðs-
son mættur f markteignum og
skoraði mjög örugglega með
vinstri fæti í autt markið.
um aðeins að kroppa í eitt stig. En
það er betra en ekki neitt, sérstak-
lega eins og byijunin hefur verið á
deildinni."
Borgamesi
„Við vorum mun betri í fyrri hálfleik
og það hefði ekki verið ósanngjarnt að
við hefðum gert eitt til tvö mörk,“ sagði
Sigurður Grétarsson, þjálfari Vals, í
leikslok. „En þau komu í síðari hálfleik
og mér fannst við eiga þau skilið,"
bætti hann við. Það voru orð að sönnu
því þrátt fyrir að fyrstu 15. mínútur
síðari hálfleiks hafi verið tíðindalitlar
voru Valsmenn skarpari og líklegri til
að skora. Eftir mörkin var sem Vals-
menn gæfu nokkuð eftir en án þess þó
að veruleg hætta skapaðist við mark
þeirra. Ef eitthvað var voru Valsmenn
nær því að bæta við mörkum en Skalla-
grímsmenn að komast á blað. Síðari
hálfleikur var þó heldur bragðdaufari
en sá fyrri og eflaust hafa flestir áhorf-
endur verið fegnir þegar flautað var af
í gærkvöldi, enda farið að kólna í veðri.
„Ég er nokkuð ánægður með leikinn
í heild, okkur tókst það sem við ætluðum
okkur; að halda þeim niðri og sigra,“
sagði Sigurður, þjálfari Vals, að leik
loknum. „Taugarnar eru alltaf svolítið
trekktar á meðan menn eru að ná sér
í fyrstu stigin, en þetta var allt í Iagi.“
„Við misstum alveg af þeim eftir
mörkin tvö og tókst aldrei að skapa
verulega pressu á þá,“ sagði Valdimar
0:1
Á 63. mínútu tók
Sigurbjörn Hreiðars-
son innkast frá hægri á mótsd
við miðjan vítateig Skallagríms.
Hann kastaði stut inn á Bjarka
Stefánsson er lék einn og óá-
reittur inn í vítateig og er hann
kom til móts við markteigshorn-
ið skaut hann með föstu skoti
með hægri fæti með jörðinni í
fjærhomið á þess að Friðrik
Þorsteinsson fengi vörnum við
komið. Kæruleysi í vörn heima-
manna.
0:2
iGuðmundur Brynj-
lólfsson tók auka-
spymu rétt við homfánann
hægra megin á 70. mínútu og
sendi fasta sendingu fyrir mark-
ið þar sem ívar Ingimarsson
var fyrstur að átta sig og skall-
aði af stuttu færi í markið án
þess að „sofandi“ vamarmenn
Skallagríms hefðu uppi varnir.
Skallagrímsmaður er hann gekk
vonsvikinn af leikvelli. „Við verðum
að gera mikið betur í næstu leikj-
um, það er aldeilis á hreinu.“
r
Islenska mótaröðin
IP
LANDSBRF.F H.F.
Annað mót íslensku mótaraðarinnar verður haldið dagana 3I. maí og I. júní í Grafarholti.
Leikinn verður 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki karla og kvenna.
Þátttökurétt hafa allir kylfingar með grunnforgjöf I0.4 og lægra í karlaflokki
og 20,4 og lægra í kvennaflokki.
Landsbréf veita vegleg verðlaun í báðum flokkum.
Athugið að glæsileg aukaverðlaun, írlandsferð, er veitt í flokki karla
með grunnforgjöf 4,5 og hærra.
Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist Golfklúbbi Reykjavíkur (s. 587-2216)
eða skrifstofu GSÍ (s. 568 6686, fax 568 6086)
í síðasta lagi fyrir kl. 24.00 föstudaginn 23. maí.
T