Morgunblaðið - 23.05.1997, Qupperneq 6
6 C FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKSTURSÍÞRÓTTIR
Sama hjarta
í nýjum jeppa
Þorsteinn Einarsson varð íslands- og bikarmeistari ítorfæru
árið 1993 í flokki götujeppa. Hann hefur nú smíðað nýjan jeppa
og keppir íflokki sérútbúinna jeppa á völundarsmíð, sem nefn-
ist Inga eins og fyrra ökutæki hans. Valur Vífilsson og Jónsstaðar-
bræður voru smíðameistararar jeppans, sem verður með 750
hestafla þrautreyndri keppnisvél. Þorsteinn vann til margra titla
í torfæru og sandspyrnu með sömu vél á árum áður.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Allt nýtt nema hjartað
ÞORSTEINN Einarsson er stoltur eigandi nýs ökutækis á
bryggjunni í Grindavík. Fyrir framan jeppann er lítið brot af
þeim varahlutum og búnaði sem keppendur í torfæru þurfa
að ferðast með ð torfærumót.
Eg seldi allt nema „hjartað" úr
gamla jeppanum, vélina og
sjálfskiptinguna og nota hana í
nýja tækið. Allt ann-
Gunnlaugur að er nýtt,“ sagði
Rögnvaldsson Þorsteinn í samtali
skrifar við Morgunblaðið
sem hitti hann að
máli á heimaslóðum hans í Grinda-
vík. Þar rekur hann vélsmiðju og
er með þrettán manns í vinnu sem
þjónustar bátaúgerð staðarins, og
er einnig með smurstöð og bílaverk-
stæði.
Þorsteinn dró sig í hlé frá torfær-
unni eftir marga góða sigra og er
eini maðurinn sem hefur gift sig á
torfærusvæði. Eiginkona hans er
Inga Reynisdóttir og bundust þau
hvort öðru á torfærukeppni í Jós-
epsdal árið 1993. „Ég tók tveggja
ára hvíld frá torfærunni og þá
stækkaði fyrirtækið mitt um helm-
ing, sem segir meira en mörg orð
um hvað torfæran er tímafrek
íþrótt. En ég kem aftur með jeppa
sem á að geta verið í toppslagnum
og þar vil ég vera,“ sagði Þorsteinn.
Jeppi hans er um 1.400 kg og
byggður úr stáli 52, sem er sterk-
ara en efni en menn hafa notað
hingað til. „Burðarvirkið er mjög
létt með álagspunktana á réttum
stöðum. Ég hefði getað smíðað mun
léttari og dýrari jeppa, en ég vil sjá
hvernig torfæran þróast á næstu
árum. Hvort peningar koma inn í
íþróttina eður ei. Fyrr legg ég ekki
út í meiri fjárfestingu eða smíða
eitthvert ævintýratæki. En það eru
ýmsar hugmyndir á teikniborðinu
ef hlutimir þróast í rétta átt,“ sagði
Þorsteinn, „Ég geri mér grein fyrir
því að margir aðrir ökumenn eru í
betri akstursæfingu, en ég bý að
reynslu fyrri ára og er líkamlega í
góðu ásigkomulagi. Myndi stinga
marga yngri kappana af í sprett-
hlaupi, þó að ég sé 38 ára gamall.
Það tekur nýliða oftast heilt ár að
ná áttum í torfæru, skilja hama-
ganginn sem fylgir þessari íþrótt.
Eg ætlaði að hætta, en gat það
ekki. Ég á enn ellefu ár eftir..."
Kollkeyri mig tæpast
„Vissulega hefur lífsviðhorf mitt
breyst frá því ég byijaði að keppa.
Ég keyri ekki eins og glanni, ek
af skynsemi, kannski eins og Einar
Gunnlaugsson er þekktur fyrir að
gera. Gísli og Haraldur eru kannski
kaldari, þegar þarf að taka áhættu.
Ég kollkeyri mig tæpast, fer á seigl-
unni og tel að styrkur jeppans og
vélarafl eigi eftir að skila mér í eitt
af fimm efstu sætunum í fyrsta
mótinu. Síðan tekur toppurinn von-
andi við. Ég ók gamla jeppanum í
sérútbúna flokknum áður en ég
hætti, var þá yfirleitt í þriðja til
sjöunda. En núna er ég með tæki
til að stríða þeim stóm að einhveiju
ráði,“ sagði Þorsteinn.
Hvevju
spá
þeir
gömlu?
Nokkrir ökumenn sem náðu
góðum árangri í torfæm í
sérútbúna flokknum á árum áður
spáðu í möguleika núverandi kepp-
enda í íslandsmótinu. Þetta em
þeir Arni Kópsson, Þórir Schiöth
og Bergþór Góðjónsson.
Bergþór
Guðjónsson
Ég held að Gísi G. Jónsson og
Haraldur Pétursson verði að beij-
ast um titilinn, en Gísli hafi þetta
í ár. Haraldur er búinn að vinna
tvö ár í röð og Gísli er hungraður
í titilinn. Síðan verður Einar Gunn-
laugsson að krafsa í þá. Mér líst
vel á Dodge Ram Rafns Harðars-
sonar, en finnst synd að hann verði
með Chevrolet-vél, það er til mikið
af góðum Dodge-vélum. Rafn þarf
ekki svona stóra vél í torfæruna.
En það er gott að það er að koma
bílalag á torfærujeppana," sagði
Bergþór Guðjónsson. 1. Gísli G.
Jónsson, 2. Haraldur Pétursson,
3. Einar Gunnlaugsson.
Árni Kópsson
„Einar Gunnlaugsson verður á
toppnum á nýja jeppanum. Ég sé
ekki að nýir menn verði í topp-
slagnum eða komi á óvart og Gísli
G. Jónsson og Haraldur Pétursson
munu etja kappi við Einar. Það er
hinsvegar kominn tími á titil hjá
Einari og hann þarf að taka sig á
í ár,“ sagði Ámi Kópsson.
1. Einar Gunnlaugsson, 2. Gísli
G. Jónsson, 3. Haraldur Pétursson.
Þórir Schiöth
„Helgi Schiöth á eftir að koma
mönnum í opna skjöldu á nýjum
jeppa. Hann kemur að vísu á sein-
ustu stundu í fyrsta mótið og óljóst
hvort hann gerir nokkuð þar, en
yfir heilt keppnistímabil verður
hann góður. Éinar siglir sinn sjó,
bilanalaust á góðum jeppa. Annars
er ómögulegt að spá, það eru
margir góðir," sagði Þórir.
1. Helgi Schiöth, 2. Einar Gunn-
laugsson, 3. Gísli G. Jónsson.
Giftist í torfæru
ÞORSTEINN gifti sig I mlðrl torfærukeppni árlð 1993. Eigln-
kona hans er Inga Reynisdóttlr og kepptl hún í kvennakeppni
í torfæru strax að lokinni athöfnlnni.
Andstæðingamir fá
enga jólapakka í ár
ÞAÐ verða mörg ný og öflug ökutæki í torfærumótum ársins.
Fyrrum íslandsmeistari, Akureyringurinn Einar Gunnlaugsson,
hefur smíðað nýjan jeppa og sams konar jeppa hefur Eyfirðingur-
inn Helgi Schiöth smfðað. Hann hafði reyndar hönd í bagga með
smíði beggja bílanna. Þá mætir fyrrum íslandsmeistari, Þorsteinn
Einarsson á nýju tæki og Rafn Harðarson sömuleiðis, ef tekst að
Ijúka smíðavinnu f tæka tfð. Þá hefur Sigurður Þ. Jónsson smfðað
nýtt tæki úr götujeppa sem hann ók í fyrra. Allir aka þessir kappar
í flokki sérútbúinna jeppa, en einnig verður keppt í flokki götujeppa.
Islandsmeistarinn, Haraldur Pét-
ursson, mætir á endurbættum
jeppa með fjöðrun sem var sérsmíð-
uð fyrir ökutæki hans af hollensku
fyrirtæki. „Nýja fjöðrunin lofar
góðu. Það er eina nýjungin hjá
mér, ég hef farið flatt á því áður
að breyta of miklu í einu og læt
þessa nýjung nægja,“ sagði Harald-
ur Pétursson í samtali við Morgun-
blaðið. „Vél og drifbúnaður er sá
sami og í fyrra, þannig að jeppinn
á að vera traustur. Mótið verður
sterkara í ár, en síðustu ár. Ég
held að Gísli og Einar verði erfið-
ustu andstæðingarnir, en spurning
hvað Sigurður Axelsson, Þorsteinn
Einarsson, Helgi Schiöth og Gunnar
Egilsson gera. Þorsteinn og Helgi
eru á nýjum jeppum og verður fróð-
legt að sjá hvernig þeir standa sig,“
sagði Haraldur.
Gísli G. Jónsson var í nokkrum
vanda í vikunni. Hann hafði ekki
fengið auglýsingar á bifreið sína
og óljóst hvort þessi ökumaður sem
hefur verið í fremstu röð keppir á
íslandsmótinu. „Ég mæti alltént í
fyrstu keppni á Akureyri, en ég er
ekki tilbúinn að leggja allt mitt
undir. Þátttaka í torfærunni hefur
kostað fjölskyldu mína mikið sið-
ustu ár og án auglýsinga keppi ég
ekki heilt keppnistímabil, það er
alveg ljóst," sagði Gísli.
Einar Gunnlaugsson er hins veg-
ar í þægilegri stöðu, mætir á nýjum
jeppa, sem hann hefur prófað af
kappi síðustu helgar. „Ég hef snið-
ið vankantana af jeppanum, stífað
loftpúðafjöðrunina af, fannst hún
fullmjúk. Ég kem mjög vel undirbú-
inn til leiks, hef yfirfarið vél og
drifbúnað í skjóli vetrar," sagði
Einar, „núna þarf að draga fram
keppnisskapið og aka gryfjurnar á
heimavelli mínum af fullu kappi.
Eftir að hafa sigrað þijú ár í röð í
keppninni á Akureyri missti ég af
sigri í fyrra. Það var jólagjöf til
strákanna en þeir fá enga pakka í
ár,“ sagði Einar glettinn.
Tíundi þrátt
fyrir mistök
Karl Gunnlaugsson varð í tí-
unda sæti í iiðakeppni í
mótorhjólakappakstri á Pembrey-
brautinni í Wales á sunnudaginn.
Hann ók breyttu Honda mótor-
hjóli ásamt Craig Jackson og
Terry Wales, en þeir kepptu gegn
38 öðrum liðum í keppni þar sem
liðin aka samfleytt í sex klukku-
tíma.
Karl náði besta aksturstíma
þeirra félaga, ók hlykkjótta
brautina best á 1.07 mínútum,
en Pembrey-brautin er 1,5 mflna
löng. Nokkrir ökumenn féllu
harkalega af mótorhjólum sínum
og rotaðist einn keppandinn. Karl
slapp þó við siík óhöpp, en lenti
í vandræðum í viðgerðarhléum.
„Ég held að við hefðum getað
orðið 2-3 sætum ofar, ef mistök
á viðgerðarsvæðinu hefðu ekki
orðið í tvígang. Um tíma hélt ég
að ég yrði bensínlaus, þar sem
of lítið bensín hafði verið sett á
hjólið. Þurfti ég að fara aukaferð
á viðgerðarsvæðið til áfyllingar,"
sagði Karl.
„Þá hefðum við getað sioppið við
aukahlé vegna ökumannsskipta
með betra skipulagi um miðja
keppnina, en það er atvik sem
verður bara að læra af. Ég var
ánægður að ná að aka hraðast í
okkar liði, en þeir bestu fóru 2-3
sekúndum hraðar. Þessi braut er
geysilega erfið, mjög hlykkjótt
og því fékk maður hvergi hvíld í
brautinni. Meðalhraðinn var í
kringum 130 km á klukkustund,
en á beinasta kafla brautarinnar
náðum við 2450 km hraða," sagði
Karl. Hann mun keppa í nokkrum
kappakstursmótum á árinu, hefur
þegar ekið í tveimur mótum á
Bretlandseyjum og keppir næst á
Bishopscourt í Engiandi. Þá
hyggst Karl keppa í 500 manna
Enduro-mótorhjólakeppni í Wales
í sumar.