Morgunblaðið - 30.05.1997, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 1997
BLAÐ B
■ ANDATRÚ Á ÍSLANDI/2
UR ALLTAF EINN/3
■ HJÁLPARTÆKI
Arng’unnur Ægisdóttir
fyrirsæta hjá Eskimo models.
■ EFNISMIÐLAR/2 ■ GRÍNISTINN STEND-
■ í BALLETT TIL ÞESS AÐ FÁ ÚTRÁS/6
HANDA ÖLLUM /6 ■ MYNDASAGAN/8
Gervilega
ofurskutlan hámóðins
OFURKROPPARNIR í Strandvörðum eru áhrifavaldar í ís-
lenskri næturlífstísku, þótt enginn vilji kannast við það. Hall-
dóra María Steingrímsdóttir snyrtifræðingur nefnir því til
sannindamerkis að helsta viðurkenning sumra unglings-
stúlkna á hver annam felist í að þykja ofurskutla.
„Strandvarðagellurnar hafa mjög mikil áhrif. Með undrahald-
aranum komst í tísku að sýna barminn og hið sama gildir nú um
bakhlutann, stælta leggi og mjótt mitti, allt á að sjást.“ Halldóra
segir líka móðins að minna á dúkku. „Ekta Barbí-skór eru mjög
áberandi núna og það er að mörgu leyti jákvætt að leyfa loftinu að
leika um tær og fætur. Einnig finnst mér þessi tíska hvetja til þess
að hugsa vel um líkamann og að spáð sé í rétt mataræði."
Augabrúnir setja svip á andlitið sem fyrr og eiga enn að vera
mjóar. „Það er að segja eins og hver og einn þolir, því það klæðir
ekki alla. Þær sem eru dökkar en vilja vera með aflitað hár geta slíkt hið
sama við augabrúnir, nema augun séu brún.“ Viðeigandi augnskuggi er hvít-
ur og sanseraður, ljósblár eða skærgrænn og einnig eru dekkri litir notaðir
með, til þess að stækka augun sem mest. Sanserað og ljóst stækkar, matt og
dökkt minnkar, segir hún. Varirnar eru lillabláar og dúkkubleikar á þeim
sem yngri eru en þær eldri nota appelsínugula og brúnbleika tóna. „Hárið
er frekar óekta, aðalatriði að það sé ekki í upprunalegum lit og uppsett,
líkt og á Bardot á sínum tíma. Sagt er að nefið sýnist minna ef hárinu er
lyft upp í hnakkann og í stuttu máli á það að vera lítið en augun og var-
irnar stórar. Hægt er að teikna út fyrir varirnar með blýanti en alls
ekki í sama lit og varaliturinn sjálfur." Neglurnar eru óekta en mál-
aðar eins og raunverulegar neglur, bleikar með hvítri rönd, til
þess að ýkja þær örlítið. „Konur sem eru með sveppi í tánöglum
en vilja vera í opnum skóm, geta fengið gervineglur á tærnar á
snyrtistofum. Það er um að gera að vera svolítið djarfur og leika
sér. Það tilheyrir sumrinu," segir Halldóra loks.
ÚLFUR
OG ÖRN
MYNDASAGAN á blað-
síðu 8 er endurbirt frá
liðnum föstudegi vegna
mistaka í myndgrein-
ingu. Lesendur og höf-
undar eru beðnir afsök-
unar og sagan heldur
áfram.
Aflmiklir
sumarhestar
SPORTLEGIR bflar
spretta upp eins og
gorkúlur og á hverju
götuhorni. Við stýrið
sitja stelpur og
strákar, hestöflin
skipta hundruðum og
krónurnar milljónum.
LOTUS Esprit, 218
hestöfl, ágerð 1987.
Morgunblaðið/Golli
VV Grillað lambakjöt
VV Leiktæki fyrir bðmin
,V Svalabræður skemmta
Ar Steinar Viktorsson með þátt q
sinnIbeinnifráEddufelliá ■
-&EÚ
frá kl 16:00 til 19:00
Ótróleq tilboð:
tV Þurrkryddaðar qrillsneiðar frá Goða kr. 599,- pr. kq
>V Heimaís frá Kjörís, tveir fyrir einn.
iV Brazzi frá Sól, tveir fyrir einn.
Tilboð þessi qilda aðeins m«ðan lukkustund stendur yf ir.
AÐALSTÖÐIN