Morgunblaðið - 01.06.1997, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 1. JÚNÍ 1997 E 3
Akureyrarbær
Grunnskólar Akureyrar
Starfsfólks vantar í
eftirtaldar stöður
Grunnskóla á Suðurbrekku —
sem er sameinaður úr Barnaskóla Ak. og
Gagnfræðaskóla Ak.:
Forstöðumaður skólavistunar.
Óskað er eftir kennara eða öðrum uppeldis-
menntuðum starfsmanni.
Þroskaþjálfa vantar vegna fatlaðra nemenda
í kennslu og skólavistun.
Upplýsingar hjá skólastjórum í símum
462 4172 og 462 4241.
Lundaskóli:
Þroskaþjálfa/leikskólakennara vegna fatlaðra
nemenda í kennslu og skólavistun.
Starfsmenn í blönduð störf.
Upplýsingar hjá skólastjóra og forstöðu-
manni vistunnar í síma 462 4888.
Glerárskóli:
Deildarþroskaþjálfa til að annast unglingavist-
un fyrir faltaða nemendur.
Þroskaþjálfa og leikskólakennara í almenna
skólavistun.
Upplýsingar hjá skólastjóra og forstöðu-
manni vistunnar í síma 461 2666.
Síðuskóli:
Þroskaþjálfa vegna stuðningsbarna í kennslu
og skólavistun.
Upplýsingar hjá skólastjóra og forstöðu-
manni vistunnar í síma 462 2588.
Giljaskóli:
Þroskaþjálfa vegna stuðningsbarna í kennslu
og skólavistun.
Starfsfólk í skólavistun og í blönduð störf.
Upplýsingar hjá skólastjóra í forstöðu-
manni vistunnar í síma 462 4820.
Einnig fást upplýsingar hjá starfsmanna-
deild Akureyrarbæjar í síma 462 1000.
Umsóknareyðublöð fást á starfsmanna-
deild í Geislagötu 9 og þeim á að skila á
sama stað.
Umsóknarfrestur er til 16. júní.
Starfsmannastjóri
Fiæðslumiðstöð
T Revtóavíkur
Sálfræðingar
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða
til starfa tvo sálfræðinga að sálfræðideild sem
er önnur tveggja deilda á þjónustusviði.
Starfið felst í að meta stöðu nemenda og veita
starfsfólki grunnskóla Reykjavíkur (kennurum,
skólastjórnendum og öðru starfsfólki), nem-
endum og foreldrum ráðgjöf og stuðning.
Markmiðið með þjónustunni er að gera öllum
nemendum fært að nýta sér þá þjónustu sem
grunnskólinn býður.
Flver sálfræðingur veitir ákveðnum skólum
þjónustu. Þeir vinna í teymum með öðrum sál-
fræðingum hverfisins, ásamt deildarstjóra,
og veita þannig hver öðrum faglegan stuðning.
Sálfræðingar hafa jafnframt samvinnu við
annað starfsfólk á þjónustusviði og fagfólk
á öðrum stofnunum.
Leitað er að sálfræðingum sem hafa áhuga
á skólamálum og á faglegum nútímalegum
vinnubrögðum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum SSÍ við
Reykjavíkurborg.
Frekari upplýsingar veitir Gabriela Sigurðar-
dóttir, deildarstjóri sálfræðideildar, í síma
535 5000.
Umsóknarfrestur er til 20. júní 1997.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Leikskólar Reykjavíkurborgar
óska að ráða eftirtalið starfsfólk í neðangreinda
leikskóla:
Engjaborg v/Reyrengi
Aðstoðarleikskólastjóri.
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Auður
Jónsdóttir í síma 587 9130.
Holtaborg v/Sólheima
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu og 50% stöðu eftir há-
degi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Guðbjörg
Guðmundsdóttir í síma 553 1440.
Kvistaborg v/Kvistaland
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu og 50% eftir hádegi,
sem fyrst.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Flelga Hall-
grímsdóttir í síma 553 0311.
Völvuborg v/Völvufell
Leikskólakennari og annað uppeldismenntað
starfsfólk í 100% stöðu frá 1. september nk.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Regína Vigg-
ósdóttir í síma 557 3040.
Eldhús
Kvistaborg v/Kvistaland
Matráður, sem fyrst.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri, Flelga Hall-
grímsdóttir í síma 553 0311.
Nóaborg v/Stangarholt
Matráður frá 1. ágúst nk. eða eftir samkomu-
lagi.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri Soffía
Zophoníasdóttir í síma 562 9595.
Dagvist barna
Flafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552 7277
Tæknival
Tœknival hf. er 14 ára gamalt framsœkið tölvufyrirtœki
með u.þ.b. 200 starfsmenn. Fyrirtœkið býður
viðskiptavinum sínum heildarlausnir í iðnaði,
sjávarútvegi og verslunarrekstrL
Launafulltrúi í hlutastarf
Við leitum að töluglöggri og drífandi
manneskju til að aðstoða við launaútreikning
nokkra daga í senn tvisvar í mánuði.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu með
marktæka reynslu af launabókhaldi ásamt
annarri tölvuvinnslu. Ahersla er lögð á
nákvæmni í vinnubrögðum, eljusemi í starfí
og létta lund.
I boði er áhugavert starf hjá öflugu og
framsæknu fyrirtæki með góðan liðsanda.
Áhersla er lögð á að starfsmenn eigi kost á að
auka sína þekkingu og vaxa í þroskandi
starfsumhverfi. Vinnustaðurinn er reyklaus.
Vinsamlega athugið að fyrirspurnum varðandi
ofangreint starf verður eingöngu svarað hjá STRÁ.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 6. júní n.k.
Ráðning verður sem fyrst.
Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á
skrifstofunni sem opin er frá kl. 10-16, en
viðtalstímar eru frá kl. 10-13.
STRÁI ehf.
STARFSRAÐNINGAR
GUÐNÝ HARÐARDÓTTIR
Morkinni 3,108 Keykjavík, sími: 588 3031, bréfsími 588 3044
Sparisjóðsstjóri
— Akureyri —
Fyrirhuguð er sameining Sparisjóðs Akureyrar
og Arnarneshrepps og Sparisjóðs Glæsibæjar-
hrepps, en báðir sjóðirnir hafa aðsetur á Akur-
eyri. Gert er ráð fyrir að sameiningin taki gildi
frá og með 1. júlí 1997, en starfsemin verður
sameinuð í nýju húsnæði við Skipagötu 9
í október 1997.
Leitað er að sparisjóðsstjóra fyrir hinn sam-
einaða sjóð, bæði til að taka þátt í undirbúningi
við að sameina starfsemi sjóðanna og til þess
að annast reksturinn eftir að sameiningu er
lokið.
Kröfur um hæfni
Viðkomandi þarf að hafa metnað og vilja til
þess að takast á við krefjandi starf, sem meðal
annars snýr að samskiptum við viðskiptavini,
markaðsmálum, starfsmannastjórnun og sam-
skiptum við aðrar lánastofnanir. Æskilegt er
að viðkomandi hafi menntun á sviði viðskipta
og rekstrarfyrirtæja auk reynslu á sviði fjár-
mála og stjórnunar.
í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upp-
lýsingar um menntun og fyrri störf. Upplýsing-
ar um starfið veitir Sigurður Jónsson í síma
565 1233. Farið verður með allar upplýsingar
sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður
svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur
sem að ofan greinir, er boðið að senda inn um-
sókn til KPMG Endurskodunar hf. fyrir
13. júní 1997.
Löggiltir endurskoöendur
Bæjarhraun 12 Sími 565 1233
220 Hafnarfjörður Fax 565 1212
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra,
Austurlandi
Lausar stöður
á Egilsstöðum
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra,
Austurlandi, auglýsir eftirfarandi stöður
á Egilsstöðum, lausar til umsóknar:
Forstöðumaður Verndaða vinnustaðarins,
Stólpa, 100% staða.
Forstöðumaður ber ábyrgð á allri starfsemi Stólpa, þ.e. innra starfi
og rekstri, samskiptum út á við og að unnið sé í samræmi við stefnu
Svæðisskrifstofu Austurlands. Markmið Stólpa er að veita fólki
með föltun verndaða vinnu, starfshæfingu og sérstaka liðveislu til
að auka möguleika til atvinnuþátttöku á almennum vinnumarkaði.
Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu í stjórnun og i atvinnulifinu,
ásamt þekkingu/menntun i störfum með fatlað fólk. Staðan er laus
frá 1. september nk. en æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
í byrjun ágúst.
Hæfing/iðja, 100%staða.
Starfiö felst í aö veita fötluöu fólki verklega og félagslega leiösögn
og þjálfun meö þaö aö markmiði aö auka möguleika á virkri þátttöku
í samfélaginu, ásamt því að taka þátt í skipulagningu og áætlanagerö.
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérþekkingu, s.s. þroskaþjálfun,
iöjuþjálfun eöa sambærilega menntun og/eöa reynslu af starfi meö
fötluðu fólki. Staðan er laus frá 11. ágúst nk. eða eftir samkomulagi.
Sambýli, um er að ræða heilar stöður
eða hlutastöður.
Störfin felast í umönnun og stuðningi við íbúa varðandi daglegt
líf, tómstundir og tengsl við samfélagið. Æskilegt er að umsækjendui
hafi reynslu af störfum með fötluðu fólki og/eða menntun, s.s.
þroskaþjálfun eða sambærilega menntun. Stöðurnar eru lausar
frá 1. sept. nk. eða eftir samkomulagi.
Launakjör eru ýmist samkvæmt kjarasamning-
um ríkisstarfsmanna eöa Alþýðusambands
Austurlands. Skriflegum umsóknum skal skilað
til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra, Austur-
landi, pósthólf 124, 700 Egilsstöðum, fyrir
20. júní nk. og getur umsóknin gilt í allt að 6
mánuði. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veita Gunnar, s. 471 1090,
Þorbjörg, s. 471 2274, Unnur Fríða s. 471 1833.
„Au pair"
Noregur (Ósló)
Fjölskylda í Ósló leitar að „au pair" til að passa
tvo stráka, tveggja og þriggja og hálfs árs.
Þarf að geta byrjað sem fyrst.
Hefurðu gaman af að vera í sólinni við sjóinn?
í júlí dveljumst við í sumarhúsinu.
Hafirðu áhuga, vinsamlega sendu umsókn
með uppl. til Mbl., merkta: „Ósló — 97/98."