Morgunblaðið - 19.06.1997, Side 1
FJÁRMÁL EIB 1 - Æm WÆ' J TORGID
Besti lánasamn- i y' Uppspretta fyrir 4 ■ vfaHKi % Li jwfíp v WM Moody’s metur £/
ingur Flugleiða /4 ^dékm.iL atvinnulífið/6 l«F xí lánshæfið/8
VIÐSKIFTI AIVINNULÍr
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1997 BLAÐ li
Stálsmiðjan
Stjórn Stálsmiðjunnar hf. ákvað
á fundi sínum í gær að sækja um
skráningu fyrir Stálsmiðjuna á
Verðbréfaþingi íslands í haust.
Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um útgáfu á nýju hlutafé
í félaginu en hluthafar fyrirtæk-
isins eru 65 talsins. /2
Plastos
Öll hlutabréf í útboði Plastos-
Umbúða hf. seldust upp á einum
klukkutíma í gærmorgun eftir
að það hófst hjá verðbréfadeild
Búnaðarbankans. Um var að
ræða nýtt hlutafé í fyrirtækinu
að nafnvirði 17,5 milljónir króna
sem voru seld á tæpar 43 milljón-
ir króna eða á genginu 2,45.
Svarar það til um 20% af heildar-
hlutafé fyrirtækisins. /2
Auðlind
Hluthöfum Hlutabréfasjóðsins
Auðlindar hf. fjölgaði um 3.300
á siðasta rekstrarári, l.maí
1996-30. apríl 1997, og er Auð-
lind nú þriðja fjölmennasta hluta-
félag landsins með tæplega sjö
þúsund hluthafa. Eignir sjóðsins
hækkuðu um 266% á síðasta ári
og námu rúmlega fjórum millj-
örðum króna í lok reikningsárs-
ins. /3
SÖLUGENGI DOLLARS
Ráðherrafundur Evreka í London
íslendingar
meðí3nýjum
verkefnum
Morgunbladid. London.
ÍSLENDINGAR eru þátttakendur í
þremur nýjum rannsóknarverkefn-
um sem samþykkt verða á ráðherra-
fundi Evreka, rannsóknaráætlunar
Evrópuríkjanna, í London í dag. Tvö
verkefnanna eru á sviði sjávarútvegs
og fjalla annarsvegar um viðskipta-
kerfi fyrir fiskmarkaði og hins vegar
hámörkun gæða og nýtingar í fisk-
vinnslu. Þriðja verkefnið fjallar um
vistvænismat í byggingum. íslend-
ingar voru fyrir þátttakendur í níu
verkefnum innan Evreka.
Viðurkenning og meðmæli
Evreka-áætluninni var hleypt af
stokkunum árið 1995 að frumkvæði
Frakka til að styrkja samkeppnis-
stöðu atvinnulífs í Evrópu gagnvart
Japan og Bandaríkjunum. Aætlunin
miðar að því að koma á samstarfi
milli fyrirtækja og rannsóknarstofn-
ana í aðildarlöndunum og nú starfa
yfir 5 þúsund fyrirtæki og rannsókn-
arstofnanir í 26 löndum að verkefn-
um innan áætlunarinnar. Evreka
veitir þó ekki neina nýsköpunar eða
rannsóknarstyrki heldur felur þátt-
takan í sér ákveðna viðurkenningu
og meðmæli með verkefnunum og
ættu þau því að eiga greiðari aðgang
að hvers kyns rannsóknar- og þróun-
arstyrkjum opinberra aðila í sínu
landi, en ella væri.
Verkefnið um viðskiptakerfi fyrir
fiskmarkaði verður unnið í sam-
starfi Marstars hf. og belgísks fyrir-
tækis sem er sérhæft í þróun á tölvu-
kerfum fyrir uppboðsmarkaði. Hug-
myndin er sú að þróa kerfi sem held-
ur utan um allar upplýsingar um
fiskinn allt frá því hann veiðist og
þangað til hann lendir á borði neyt-
andans. Gert er ráð fyrir að kaup-
andinn geti fengið samræmdar upp-
lýsingar um meðferð aflans og geti
þannig gengið að gæðunum vísum.
Oddi hf. á Patreksfirði er aðili að
verkefninu um nýtingu og gæði í
fiskvinnslu ásamt spænsku sjávar-
útvegsfyrirtæki sem hefur víðtæka
reynslu í vöruþróun.
Aðilar frá öllum Norðurlöndunum
eru samstarfsaðilar í Evreka- verk-
efninu sem fjallar um vistvænismat
bygginga. Þar verður t.d. reynt að
meta samspil ljóss, lofts og hita í
byggingum og áhrif þess á líðan
þeirra sem búa eða starfa í þeim.
Slíkt matskerfi hefur verið í notkun
í Bretlandi um nokkurra ára skeið
og jafnframt hafa Norðmenn^ unnið
að uppbyggingu á slíku kerfi. íslend-
ingar búa við nokkra sérstöðu í þess-
um efnum t.d. vegna hitaveitu og
ólíkra byggingarefna og veðráttu.
Rannsóknarstofnun byggingariðnað-
arins er aðili að verkefninu.
Af hálfu íslands sitja fundinn í
London þeir Finnur Ingólfsson, iðn-
aðarráðherra og Sveinn Þorgrímsson,
deildarstjóri í iðnaðarráðuneytinu.
m
Peningabréf
- jöfn og örugg ávöxtun
Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði,
sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga.
Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupum.
Yfir tveir og hálfur milljarður í öruggum höndum. Láttu lausaféð vinna fyrir þig.
J>
Aðeins eitt símtal... nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar
í öllum útibúum Landsbanka íslands.
Nafnávöxtun sl. 5 daga 6,74%
Nafnávöxtun sl. 20 daga 6,75%
Nafnávöxtun sl. 30 daga 6,78%
i
SUDURLANDSBRAUT 24, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 5 3 5 2000, BRÉFASÍMI 535 2001 ESTJaoíO
y LANDSBREF HF.
hx. -
Löggilt veröbréfafyrirtæki.
Aöili aö Veröbréfaþingi íslands.
B
QQ