Morgunblaðið - 19.06.1997, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 19.06.1997, Blaðsíða 6
6 B FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ _ VIÐSKIPTI Velta Miðlunar og dótturfélaga á árinu 1996 var 185 milljónir og fjórðungur vegna útflutnings Miðlun ínýtthúsnæði með nýja stefnu MIKILL vöxtur hefur verið í starf- semi Miðiunar ehf. undanfarna mánuði og hefur félagið nú flutt starfsemi sína í nýtt 1200 fer- metra húsnæði að Tunguhálsi 19, Reykjavík, að því er fram kemur í frétt. Fyrirtækið var áður til húsa að Ægisgötu og Mýrargötu í Reykjavík. Ný stefna með áherslu á tvö svið Miðlun ehf. hefur starfað að margskonar upplýsingaþjónustu á íslenskum markaði í 14 ár. í frétt frá Miðlun kemur fram að nýverið hafi fyrirtækinu verið mótuð ný stefna sem byggir í meginatriðum á að þróa færni, vörur og þjónustu á tveimur sviðum. Þessi svið eru fjölmiðlavöktun og vísivörur. Jafn- framt verði stefnt að því að auka starfsemi félagsins á erlendum mörkuðum. í fréttinni segir að fjölmiðla- vöktun felist í að vakta og endur- vinr.a fjölmiðlaefni. Þannig fylgj- ast lesarar Miðlunar með fréttum Áherslan lögð á flölmiðlavöktun og vísivörur en aðrir rekstrar- þættir hafa verið seldir. og umfjöllun um fyrirtæki og ein- staklinga í blöðum og ljósvaka- miðlum og senda viðkomandi. Vísivörur er samheiti fyrir starf- semi sem hefur að markmiði að miðla upplýsingum um fyrirtæki, vörur, þjónustu og vörumerki. Sem dæmi má nefna Gulu línuna, þjón- ustuskrána AtilÖ, Netfangaskrá og Iceland Export Directory. Aukin starfsemi á alnetinu Fram kemur að starfsemi fé- lagsins muni á næstu árum bein- ast að því að styrkja forystu og vöxt á ofangreindum starfssviðum meðal annars með aukinni starf- semi á Internetinu. í ljósi þessarar stefnu hafí Miðlun ehf selt óskilda starfsemi s.s. útgáfu North Atl- antic Fishing News, Auglýsinga- mælingar og hlutabréf í Framtíð- arsýn ehf. Þá segir að lögð sé áhersla á að styrkja núverandi starfsemi félagsins á erlendum mörkuðum og leita nýrra. í þeim tilgangi hafir verið stofnuð rekstrareining- in YellowTel Inc. Til þess að nýta færni félagsins á sviði fjölmiðla- vöktunar hefur verið hafin útgáfa á The Beacon sem sé alþjóðleg fjölmiðlavöktun sérfræðirita sem miðlað er með tölvupósti. Hagnaður af rekstrinum Þá segir í fréttinni að velta fé- lagsins og dótturfélaga á árinu 1996 var 185 milljónir kr. Fjórð- ungur af sölu eða um 43 millj. urðu til vegna útflutnings á þjón- ustu YellowTel Inc og annarri þjónustu félagsins. Hagnaður varð af rekstri félagsins á árinu 1996. Fastir starfsmenn voru um 30. íspakk ehf. í nýtt húsnæði HEILDVERSLUNIN íspakk ehf., sem er tíu ára um þessar mundir, hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði að Sundaborg 1. Þá hef- ur fyrirtækið tekið við dreifingu og sölu á ílátum undir matvæli fyrir plastverksmiðjuna Reykja- lund. Á meðfylgjandi mynd eru eigendur fyrirtækisins, Einar Þ. Þórhallsson og Andrea Þ. Rafnar í afmælisfagnaði þess sem haldinn var sl. föstudag. íspakk ehf. er umboðs- og heildverslun, sem flytur inn um- búðir, vörumerkingakerfi og út- stillinga- og auglýsingavörur. Að sögn Einars Þ. Þórhallssonar, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, leggur það áherslu á að bjóða heildarlausnir á umbúðasviði á hagstæðu verði og leitar stöðugt að nýjum og betri umbúðalausn- um fyrir viðskiptavini sína. Helstu viðskiptavinir Ispakks eru sjávar- útvegs- og iðnfyrirtæki auk heild- og matvöruverslana en helstu birgjar eru bæði meðal innlendra og erlendra framleiðenda. Nú nýlega gerði fyrirtækið samning um sölu og dreifingu á ílát fyrir matvæli, sem framleidd eru af plastverksmiðjunni Reykjalundi. Starfsmenn Ispakks eru nú fimm talsins og nam velta síðast- liðins árs um 100 milljónum króna. Einar segir að horfurnar í rekstri fyrirtækisins séu mjög góðar á þessu ári og útlit sé fyrir veltuaukningu, ekki síst vegna samningsins við Reykjalund. Á MYNDINNI sést Helgi Baldursson, framkvæmdastjóri Orku ehf., afhenda Richard A. Hansen, deildarstjóra hjá Vegagerðinni, einn Champion 720A VHP veghefil, sem mun síðan fara á Hvammstanga. Vegagerðin fær 4 nýja veghefla Tekju- rýrnun kirkju- garða 40% ALLT bendir til þess að tekjurým- un kirkjugarða hafi orðið rúmlega 40% á sl. níu árum og samkvæmt því þykir ljóst að rekstur kirkju- garða stefnir í hallarekstur á næstu árum ef ekkert verður að gert. Þetta kom fram á aðalfundi Kirkjugarðasambands íslands sem var haldinn nýverið á Hótel Höfn í Hornafirði þar sem um 30 fulltrú- ar kirkjugarða víðsvegar að af landinu funduðu um málefni kirkjugarða. „Á fundinum var m.a. gerð grein fyrir störfum nefndar, sem dóms- og kirkjumálaráðherra skipaði seint á síðasta ári og hefur það verkefni að kanna tekjurýrnun kirkjugarða á sl. árum og gera til- lögur um úrbætur. Nefndin hefur ekki skilað áliti, en fram kom á fundinum, að samkvæmt gögnum sem nefndin hefur viðað að sér, bendir allt til þess að tekjurýrnun kirkjugarða hafí orðið rúmlega 40% á sl. níu árum og samkvæmt því er ljóst að rekstur kirkjugarða stefnir í hallarekstur á næstu árum ef ekkert verður að gert. ítarleg skýrsla tekin saman Nefndin mun væntanlega Ijúka störfum í lok mánaðarins og mun þá leggja fyrir ráðamenn ítarlega skýrslu um tekjurýrnunina, ásamt rekstraráætlunum fyrir stærstu kirkjugarða landsins næstu fimm árin, en í þeim áætlunum sem þeg- ar liggja fyrir, kemur fram að mikið vantar upp á tekjuhliðina, ef garðamir eiga að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum á næstu árum. Skýrsla nefndarinnar, ásamt fylgiskjölum, verður vænt- anlega lögð til grundvallar þegar stjórnvöld taka ákvörðun um úr- bætur í þessu brýna máli allrar þjóðarinnar, segir í kynningu. Iceland Business Endurbætt vefútgáfa NÝLOKIÐ er endurgerð og viðbót- um við vefsíður viðskiptatímaritsins Iceland Business, að því er fram kemur í frétt frá útgefandanum Iceland Review. Á vefnum er að finna allar umfjallanir um íslensk fyrirtæki sem birst hafa í tímaritinu en auk þess er þar að finna margs konar aðrar hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem vilja ná viðskiptasam- böndum við íslensk fyrirtæki. Þá eru á vefnum heimilisföng og símanúmer helstu fyrirtækja lands- ins og fjöldi tengla við aðra vefi. Einnig eru þar ýmsar tölulegar upplýsingar og einnig viðskipta- fréttir af daglegri fréttasíðu Iceland Review á netinu. Slóðin er: www.centrum.is/icerev/ib NÝLEGA afgreiddi Orka ehf. fjóra Champion 740A og 720A veghefla til Vegagerðarinnar frá Champion Road Machinery Ltd. í Kanada. Einnig eru á leiðinni tveir veghefl- ar til verktaka. Heflarnir eru ríf- lega 18 tonn hver og eru búnir öllum búnaði til hæginda fyrir stjórnendur heflanna og eru með tæknilega fullkomnustu heflum í dag. Champion Road Machinery er í fremstu röð hefilframleiðenda heimsins og framleiða þeir nú sex hefla á dag og gera ráð fyrir að fara upp í átta hefla á dag í lok ársins, segir í frétt. Volvo AB keypti í mars Champion Road Machinery og mun reka það áfram undir sömu stjórn og það hefur verið og með óbreyttu umboðsmannakerfi, nema í þeim löndum þar sem Champion hefur ekki verið áður. Sömuleiðis munu Champion um- boðsmenn taka við vörum til sölu frá Volvo í þeim löndum, þar sem það á við. Orka efh. hefur haft umboð fyrir Champion veghefla í 20 ár og hefur nú fjögur ár í röð fengið viðurkenningu sem einn besti umboðsaðili Champion Road Machinery í Evrópu Um helmingur veghefla á íslandi er af þessari gerð. Samkeppnisráð Kvörtun Nettó hf. vísað frá SAMKEPPNISRÁÐ hefur vísað frá kvörtun Nettó hf. yfir notkun KEA Nettó á orðmerkinu Nettó. Sam- keppnisstofnun barst erindi dagsett 15. febrúar 1997 frá Nettó hf. þar sem talið var að notkun KEA Nettó á orðmerkinu Nettó gæti valdið ruglingi milli fyrirtækjanna. I erindi Nettó segir að verslunin hafí byijað starfsemi sína 11. nóv- ember 1988 á Laugavegi 30 í Reykjavík. Áður en starfsemin hófst hafi öll leyfi verið fengin til starfseminnar, félagið hafi verið skráð í hlutafélagaskrá og nafnið lögskráð hjá Einkaleyfastofunni. Samspil yngri og eldri réttar í niðurstöðum samkeppnisráðs segir að Nettó hf. hafi verið skráð í hlutafélagaskrá í nóvember 1988 og fyrirtækið hafi skráð orðmerkið Nettó í Vörumerkjaskrá árið 1994. KEA hafi rekið fyrirtæki undir nafninu KEA Nettó frá árinu 1989. Síðan segir orðrétt: „Að mati sam- keppnisráðs getur 9. grein vöru- merkjalaga komið til álita í tilvikum sem þessum. Af ákvæðum 10. gr. vörumerkjalaga er hins vegar ljóst að ákvæðum 9. gr. verður aðeins beitt af dómstólum. 10. greinin hljóðar svo: „í tilvikum þeim er um ræðir í 8.-9. gr. geta dómstólar, ef það telst sanngjarnt, ákveðið að annað merkjanna eða bæði megi eingöngu nota á sérstakan hátt, t.d. þannig að þau séu af ákveðinni gerð, staðarnafni bætt við eða þau með öðrum hætti skýrt aðgreind." Það er því ekki hlutverk sam- keppnisyfirvalda að skera úr um hvort vörumerkjaréttur hafi stofn- ast, um einkarétt til þess að nota vörumerki eða um samspil yngri og eldri réttar og er því óhjákvæmi- legt að vísa erindi Nettó hf. frá samkeppnisráði."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.