Morgunblaðið - 19.06.1997, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 1997 B 5
VIÐSKIPTI
*
MiIIjarðalánveitingar til Islendinga vegna sameigínlegrar áætlunar EFTA og ESB
Gjöful upp-
spretta til
eflingar
atvinnulífi
Evrópski fj árfestingarbankinn (EIB) hefur á
undanfömum árum lánað íslenska ríkinu 5,8
milljarða króna vegna uppbyggingar í sam-
*
göngumálum. I vikunni var undirritaður
rammasamningur milli bankans og Reykja-
víkurborgar um allt að tveggja milljarða lán
til viðbótar vegna fjármögnunar holræsa-
framkvæmda. Kjartan Magnússon ræddi
við Claes de Neergaard, aðstoðarbankastjóra
EIB, um starfsemi bankans og lánveitingar
hans hingað til lands.
EVRÓPSKI fjárfestingar-
bankinn (European In-
vestment Bank, EIB) var
stofnaður í kjölfar undir-
ritunar Rómarsáttmálans árið 1958
og veitir fjárfestingarlán í samræmi
við markmið Evrópusambandsins.
Hann veitir aðallega lán til verkefna
sem varða byggðaþróun, samgöng-
ur, orkuflutninga, umhverfismál o.fl.
Bankinn veitir einnig lán á grund-
velli sameiginlegrar áætlunar ESB
og EFTA um að auka hagvöxt og
atvinnu á Evrópska efnahagssvæð-
inu. Með áætluninni var þáverandi
EFTA þjóðum gefinn kostur á að
fjármagna verkefni með lánum frá
bankanum. Var ákveðið að veija
allt að einum milljarði ekna (ECU)
eða 80 milljörðum króna í þessu
skyni. Nú hafa þijár af EFTA þjóð-
unum, sem undirrituðu samkomu-
lagið í byijun, Svíar, Austurríkis-
menn og Finnar, gengið í bandalag-
ið. Núverandi EFTA þjóðum standa
lánin þó enn til boða og var ákveðið
að framlengja lánsheimildina til árs-
loka 1997. Nú þegar hefur bankinn
lánað um 75% af þessum eina millj-
arði ekna en áformað er að fyrir
árslok verði búið að nýta a.m.k. 90%
af heimildinni.
Islendingar fengu fyrsta lán sitt
frá Evrópska fjárfestingarbankan-
um fyrir tveimur árum og var það
í tengslum við þessa áætlun. Láninu
var varið til að fjármagna hluta
framkvæmda við Vestfjarðagöng.
Bankinn hefur einnig lánað fé til
hafnarbóta, flugvallarframkvæmda
og til samgöngumannvirkja á höf-
uðborgarsvæðinu. Evrópski fjárfest-
ingarbankinn hefur nú samtals lánað
ríkinu 5,8 milljarða króna til verk-
efna á íslandi.
Samstarfið hagkvæmt fyrir
EFTA þjóðirnar
Á mánudag kom Claes de Neerga-
ard, aðstoðarbankastjóri bankans,
hingað til lands til að undirrita
rammasamning um allt að tveggja
milljarða króna lán til Reykjavíkur-
borgar vegna fjármögnunar hol-
ræsaframkvæmda. Með samningn-
um skuldbatt bankinn sig til að eiga
tveggja milljarða króna lánsfé til-
tækt fyrir borgina ef hún þurfi á
því að halda.
Neergaard hefur m.a. umsjón með
lánveitingum bankans á Norðurlönd-
um og ræddi hann við íslenska ráða-
menn um hvemig til hefði tekist.
Það liggur þvi beint við að spyija
Neergaard um það hvort framhald
verði á umræddum lánveitingum til
EFTA ríkjanna. Hann segir að enn
hafi ekkert verið ákveðið í því sam-
bandi en gera megi ráð fyrir því að
EFTA löndin vilji halda þessu sam-
starfi áfram enda sé það þeim hag-
stætt. „Ég tel að vel hafi tekist til
með lánveitingar til íslendinga fram
að þessu og er meðal annars stadd-
ur hér á landi til að ræða við ís-
lenska ráðherra um hugsanlegt
framhald. Formleg beiðni um slíkt
yrði að koma frá EFTA og hún
kæmi þá væntanlega fram í haust.
Persónulega er ég áhugasamur um
að svo verði enda tel ég mikilvægt
að viðhalda hinu góða sambandi sem
myndast hefur á milli EFTA og
ESB,“ segir Neergaard.
Miklar breytingar framundan
með myntsamstarfinu
- Hvernig gengur Evrópska fjár-
festingarbankanum að undirbúa hin-
ar miklu breytingar sem fyrirsjá-
anlegar eru í peningamálum álfunn-
ar með Evrópska myntbandalaginu
(EMU)?
Sú vinna er óneitanlega umfangs-
mikil en gengur vel í öllum aðalatrið-
um. Við höfum þegar breytt stefnu
okkar í lánveitingum til að auðvelda
innreið evrósins en bankinn ætlar
sér að verða í fararbroddi þegar það
kemur til sögunnar. Tæknilega verð-
ur það ekki erfítt enda vinnur bank-
inn nú þegar með marga gjaldmiðla.
Því er slíkur undirbúningur líklega
einfaldari fyrir okkur en hefðbundna
viðskiptabanka, sem hafa fjölmarga
iáns- og ávöxtunarkosti.
- Telur þú að það póiitíska umrót
og breytingar, sem orðið hafa í Evr-
ópu á síðustu vikum, muni hafa telj-
andi áhrif á þessa þróun?
„Nei það tel ég ekki. Stjómar-
skiptin í Bretlandi og Frakklandi og
skjálfti vegna efnahagsaðgerða í
Þýskalandi munu ef til vill tefja
hana og hafa einhveijar hliðarverk-
anir en þessir atburðir munu varla
leggja stóran stein í götu myntsam-
starfsins.“
- En nú virðast fleiri þjóðir hafa
efasemdir um þetta samstarf, það
Morgunblaðið/Árni Sæberg
CLAES de Neergaard, aðstoðarbankastjóri Evrópubankans.
Morgunblaðið/Ásdís
LÁNSSAMNINGURINN milli Reykjavíkurborgar og EIB undirritað-
ur af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, borgarsljóra og Neergaard.
hlýtur t.d. að vera athygiisvert fyrir
þig sem Svía að fylgjast með því
að landar þínir eru í biðstöðu gagn-
vartþví.
„Ég get ekki tjáð mig fyrir hönd
Svíþjóðar en mér sýnist Svíar hvorki
vera jákvæðir né neikvæðir gagn-
vart samstarfinu í augnablikinu.
Meginástæðan er sú að almennings-
álitið í Svíþjóð er um þessar mundir
neikvætt gagnvart ESB og mynt-
samstarfinu. Þegar finnski forsætis-
ráðherrann tjáði sig um afstöðu
Svía til samstarfsins harmaði hann
að þeir hefðu tekið „norrænu línuna“
í þessu máli. Mér vitanlega er engin
slík lína til. Finnar hafa ákveðið að
taka þátt í samstarfinu en Danir
ekki þótt þeir hagi sér eins og þeir
séu þátttakendur. Norðmenn og ís-
lendingar eru ekki aðilar að ESB
þannig að það er ekki hægt að tala
um neina sameiginlega afstöðu
Norðurlandanna í þessum efnum.“
Lánveitingar til einkaaðila vel
hugsanlegar
- Fram að þessu hefur bankinn
eingöngu veitt framkvæmdalán til
opinberra aðila hér á landi. Getur
bankinn hugsað sér að láta til sín
taka á fleiri fjárfestingarsviðum og
lána til einkaaðila ef af frekari sam-
starfi við íslendinga verður?
„Ég tel að það séu næg verkefni
fyrir hendi við innviðauppbyggingu
hérlendis, einkum varðandi sam-
göngubætur og umhverfismál. Einn
tilgangur ferðar minnar hingað er
þó að athuga hvort rétt sé að lána
til fleiri sviða, t.d. til orkuvera eða
annars iðnaðar. Við lánum einnig
til einkaaðila og þeir notfæra sér
þjónustu okkar í ríkari mæli. Fyrir
tuttugu árum lánaði bankinn nær
eingöngu til opinberra aðila en nú
fara 55% af lánveitingum til einka-
aðila eða eru tryggð af einkabönk-
um. Við lánum einnig til áhættu-
verkefna en reynum að tryggja
okkur eins og hægt er í slíkum til-
vikum með ábyrgðum frá trygg-
ingafyrirtækjum eða bönkum.
Bankinn starfar því á fleiri sviðum
en margir halda og er í raun gjöful
peningauppspretta, sem starfar í
mörgum ólíkum atvinnugreinum og
löndum."
Meginhluti lánveitinga til
fátækari ríkja
- Nú eru framundan miklar
breytingar á banka- og fjármála-
kerfi Evrópu. Verður þörf fyrir slík-
an fjölþjóðlegan fjárfestingar-
banka, sem Fjárfestingarbanki Evr-
ópu er, um alla framtíð eða munu
einkabankar smám saman taka við
hlutverki hans?
„Engar umræður hafa átt sér stað
um að draga úr starfsemi bankans.
Meira en 2/3 af lánum hans eru
veitt til fátækari ríkja sambandsins
og honum hefur sérstaklega verið
falið að styðja uppbygginguna í
Austur- og Mið-Evrópu með sérstök-
um lánveitingum. Þeir, sem telja að
ESB sé orðið svo stórt og velmegun
þar svo mikil að ekki sé lengur þörf
á fjölþjóðlegum fjárfestingarbanka,
verða að hafa í huga að einn megint-
ilgangur hans er að auka hagvöxt
í landfræðilegum og hagfræðilegum
jöðrum þess. Einkabankar sinna
þessu hlutverki reyndar líka og það
má ekki gera of lítið úr því. ÉIB
reynir hins vegar að sinna því sem
aðrir bankar sinna ekki og við fjár-
mögnum einungis ákveðinn hluta
af hveiju verkefni þannig að einka-
bankar geta einnig tekið þátt í þeim.
Við fjármögnum mest helming af
kostnaði verkefnis en að meðaltali
erum við í kringum 30-35%.“
Neergaard segir að lokum að það
hafí verið afar ánægjulegt fyrir sig
að koma til íslands og fá þannig
tækifæri til að ræða við íslenska
ráðamenn og bankamenn augliti til
auglitis. „Fjárfestingarlán Evrópu-
bankans til EFTA ríkjanna bera þvi
glöggt vitni að gott samstarf hefur
tekist á milli EFTA og ESB. Við
getum vitaskuld ekki veitt íslending-
um og Norðmönnum jafngóða þjón-
ustu og ef þeir væru innan ESB en
þó nægilega góða til að fá áhuga-
verð verkefni fjármögnuð af Evr-
ópska fjárfestingarbankanum.“
SHARP XG-3795E
Skjóvárpí
til myndframsetningar
-úr tölvu eba af myndbandi
SHARP kynnir enn eina nýjung. Mjög léltur og með-
íærilegur skjávarpi með íjarstýringu og innbyggðum
k hátölurum. Er ætlaður ráðstemusölum, stofnunum,
fyrirlækjum skólum o.fl. Kynning i verslun okkar og eóa 8
með heimsókn til þín. Leitið upplýsinga.
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
SHARR.. leiðandi framleiðandi með „LCD"'tækni \
'Liquid Crisfcr/ Display