Morgunblaðið - 19.06.1997, Page 8

Morgunblaðið - 19.06.1997, Page 8
tutém ...og þú ferð i fríið! ^tpr/y^y^ravdliletAI VIÐSKIPn AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 1'9. JÚNÍ 1997 Morgunblaðið/Jim Smart AGNAR Erlingsson frá Det norske Veritas afhendir Högna Bergþórssyni frá Trefjum vottunar- skjalið sl. fimmtudag, 12. júní. Trefjar ehf. fá alþjóðavottun fyrir skipshurða- framleiðslu hjá Det norske Veritas Eykur moguleika erlendis SKRIFSTOFA flokkunarfélagsins Det norske Veritas (DNV) á ís- landi, hefur afhent plastverksmiðj- unni Trefjum ehf. í Hafnarfirði vottunarskírteini fyrir skipshurða- framleiðslu sína. DNV, sem er um 130 ára gamalt alþjóðlegt skipa- flokkunarfélag að uppruna, hefur um áratuga skeið m.a. vottað fram- leiðslu birgja í skipaiðnaði. Þessi búnaður Trefja ehf. er hinn fyrsti á íslandi sem fær slíka alþjóðavott- un frá DNV. Það má því segja að um viss_ tímamót sé að ræða hjá DNV á íslandi eins og hjá Trefjum ehf. að því er segir í frétt frá fyrir- tækinu. Trefjar ehf. hafa til margra ára verið einn stærsti framleiðandi hluta úr plasti hérlendis. Fyrirtækið er einkum þekkt fyrir framleiðslu sína á smábátum úr trefjaplasti og hefur um nokkurra ára skeið þjónað íslenskum skipshurðamarkaði. Hurðirnar eru viðurkenndar af Sigl- ingastofnun íslands til notkunar um borð í íslenskum skipum. Vottunin hjá DNV gerir Treijum ehf. kleift að bjóða vöruna á erlendum mörkuðum með tiivísan til aþjóða- vottunar DNV. Undirbúningur fyrir vottunina hefur staðið yfir í nokkurn tíma en hún hófst með lokaverkefni nem- enda í Tækniskóla íslands. Nú í ársbyrjun fóru fram útreikningar og prófanir á styrkleika hurðanna. Útreikningar voru allir yfirfarnir og samþykktir af_ tækniliði aðal- skrifstofu DNV i Ósló og prófanir voru framkvæmdar hérlendis af Treijum ehf. eftir ströngustu kröf- um DNV. Hurðimar fást í fjórum mismun- andi stærðum og í ýmsum útfærsl- um og er ætlun Trefja ehf. að markaðssetja vöruna erlendis. Við- urkenning DNV er forsenda er- lendrar markaðssetningar. Fyrst og fremst tryggir hún viðskiptavinum gæði vörunnar og einnig koma skipshurðimar fram í alþjóðlegum vörulistum DNV yfir vottaðan bún- að. Þórdís G. Arthursdóttir ráð- inn ritsljóri hjá Nesútgáfunni ÞORDÍS G. Arthursdóttir hefur tekið við starfi ritstjóra hjá Nesútgáf- unni, sem meðal annars gefur út Around Iceland, Á ferð um ísland, Aro- und Reykjavík, Around the Faroe Islands og Golfhand- bókina. Þórdís mun einnig sjá um efnisöflun fyrir allt upplýsingaefni útgáfunnar hér á landi og í Færeyjum. Þórdís hefur áralanga reynslu innan ferðaþjónustunnar, m.a. sem leiðsögumaður til fjölda ára, formaður Ferða- málasamtaka Vesturlands 1995-97, hún átti sæti í stjóm Ferðamálasamtaka íslands um árabil og er varamaður í Ferðamálaráði og framkvæmdastjóm Ferðamálaráðs íslands. Þórdís var ferðamálafulltrúi Akraness frá 1990- 1997, jafnframt var hún framkvæmdastjóri Átaks Akra- ness 1991-1996, en það em hagsmunasamtök rúmlega 100 fyrirtækja á Akranesi. Eiginmaður Þórdísar er Hannes Þorsteinsson, golfvailararkitekt og líffræð- ingur, og eiga þau tvo syni. Sigrún Anný Jónasdóttir ráðin gæðastjóri Alpan hf. • SIGRÚN Anný Jónasdóttir hefur verið ráðin í stöðu gæðastjóra hjá Alpan hf. á Eyrarbakka. Um er að ræða nýja stöðu hjá ALPAN hf. en fyrirtækið stefnir að ISO 9002 vottun á næsta ári. Anný er fædd 1957. Hún er iðnrekstrarfræðingur á útvegssviði frá Tækniskóla íslands árið 1989 og með rekstrar- og viðskiptanám frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Is- lands frá 1996. Anný starfaði áður hjá Hraðfrystihúsi Stokkseyrar, síðar við fjármálastjórnun hjá Hásteini ehf. Stokkseyri og nú síðast við bókhald hjá Höfn Þríhyrningi hf. Anný hefur setið í hreppsnefnd Stokkseyrarhrepps síðan 1994. Hún er gift Björgvini Steinssyni stýrimanni og eiga þau tvær dætur. Fjármála- og skrifstofustjóri hjá Ásbirni Ólafssyni • KJARTAN Stefánsson hefur verið ráðinn í stöðu fjármála- og skrifstofustjóra hjá heildverslun Ásbjörns Olafssonar ehf. Kjartan er stúdent frá Verzlunarskóla íslands og viðskiptafræðingur af Fjármálasviði Viðskipta- skorar Háskóla íslands. Hann starfaði áður sem fram- kvæmdastjóri Bandalags íslenskra farfugla. Sambýlis- kona Kjartans er Magndís M. Sigurðardóttir og eiga þau tvö börn. Markaðsstjóri Ferðamálaráðs • HAUKUR Birgisson markaðsfræðingur hefur verið ráðinn markaðs- stjóri Ferðamálaráðs íslands. Haukur hlaut BA Hons-Honorus gráðu í markaðsfræðum, þar sem ferðamál vom hans sérsvið, frá Strathclyde University í Skotlandi árið 1991. Hann var markaðsfulltrúi innflutnings- deildar Eimskips hf. 1991-1993 og hefur síðan þá verið framkvæmda- stjóri Norrænu ferðaskrifstofunnar ehf. Haukur er kvæntur Áslaugu Maríu Magnúsdóttur hagfræðingi og eiga þau einn son. Magnús Ásgeirs- son, sem verið hefur markaðsstjóri Ferðamálaráðs undanfarin ár hefur verið ráðinn til starfa hjá Flugleiðum í París. Torgið Moody’s metur lánshæfið ÞAÐ ER sama hvert litið er. Alls staðar virð- ast vera góð teikn á lofti í efnahagslífinu. Nú síðast berast fregnir af því að bráðlega geti orðið ódýrara fyrir ríkið að skulda. Er þá átt við tilkynningu bandaríska matsfyrir- tækisins Moody’s Investors Service um að það hefði ákveðið að endurskoða mat sitt á lánshæfi íslendinga með hugsanlega hækkun fyrir augum. Slík tíðindi eru ánægju- leg og órækt vitni um þann bata sem orðið hefur í efnahagslífinu á síðustu misserum. Forsendan fyrir þessari endurskoðun er sú að þjóðarbúskapurinn standi í blóma þar sem íslendingar haldi áfram að uppskera ávöxt aukins frjálsræðis í efnahagslífinu. Bent er á aukinn hagvöxt, hækkandi raun- tekjur, lága verðbólgu, stöðugt gengi og öfluga fjárfestingu erlendra aðila. Enn frem- ur er bent á stranga fiskveiðistjórnun, sem búist er við að leiði af sér styrkari grund- völl fyrir efnahagslífið og útflutning á kom- andi árum. Hættumerki eru þó einnig sjáanleg í efna- hagslífinu og bendir Moody’s á að stórar fjárfestingar og mikil einkaneysla geti hugs- anlega leitt til ofþenslu í efnahagslífinu og þar með vaxandi verðbólgu og aukinna er- lendra skulda. Það var í lok 9. áratugarins sem hin sér- hæfðu erlendu matsfyrirtæki, Moody’s og Standard & Poor’s, fóru að gefa íslandi gaum og gáfu þau landinu þá einkunn óum- beðið. í tengslum við skuldabréfaútgáfu rík- issjóðs á Bandaríkjamarkaði árið 1993 (svo- nefnd Yankee-bréf) var óskað eftir því við þessi fyrirtæki að þau gæfu ríkinu formlega lánshæfiseinkunn sem þau og gerðu í árs- byrjun 1994. Eftir það tók verulega að rofa til í efnahagslífinu og á síðasta ári hækkuðu bæði fyrirtækin ísland um eitt þrep í ein- kunnabók sinni. ísland nýtur nú góðs vitnisburðar þessara fyrirtækja og það að annað þeirra a.m.k. ætli nú að hefja endurskoðun með hugsan- lega hækkun í huga hlýtur að teljast enn frekari traustsyfirlýsing fyrir íslendinga. Endurskoðunin fer þannig fram að fulltrúar fyrirtækisins kynna sér ástand og horfur í íslensku efnahagslífi og felur hún m.a. í sér viðræður við fulltrúa íslenskra stjórnvalda. Ólafur ísleifsson, framkvæmdastjóri al- þjóðasviðs Seðlabankans, segir það í sjálfu sér ekki koma á óvart að Moody’s hafi tek- ið lánshæfiseinkunnina til endurskoðunar. „íslenska ríkið hefur verið að styrkja stöðu sína á erlendum lánamörkuðum og lánskjör hafa farið batnandi. Að undanförnu hafa lánskjör ríkissjóðs farið nærri kjörum lántak- enda í hærri einkunnaflokki. Þannig má segja að markaðurinn hafi fyrir sitt leyti hækkað matið. Hækkun um eitt þrep myndi skila okkur upp í AA-flokk sem er næsti einkunnaflokkur ofan við A-flokkinn þar sem við nú sitjum í efsta þrepi.” En hvaða máli skiptir lánshæfiseinkunnin fyrir þjóðarbúið. Ólafur bendir á að hún hafi veruleg áhrif á kjör ríkissjóðs á erlend- um lánamörkuðum. Þar sem um gífurlegar upphæðir er að ræða hafa bætt kjör veruleg- an sparnað í för með sér fyrir ríkissjóð. Langtíma erlend lán íslendinga voru um 258 milljarðar um síðustu áramót, þar af skuldaði ríkissjóður 131,5 milljarða. Lang- tíma erlend lán námu um síðustu áramót 54,1% af útílutningstekjum þjóðarinnar. Vaxtagreiðslur af langtíma erlendum lánum námu 8,4% af útflutningstekjum á síðasta ári og hafa farið lækkandi. Á árinu 1995 námu vaxtagreiðslur þessar 9,6% af útflutn- ingstekjum, 10% árið 1994 og árið 1993 var þetta hlutfall rúm 11%. Af ofanrituðu sést að islendingar hafa almennt náð betri tökum á fjármálum sínum á undanförnum árum og þjóðarskútan er á réttri leið hvað þetta snertir. Nauðsynlegt er þó að hafa í huga að í raun hafa heildar- skuldir ríkisins ekki lækkað heldur hefur uppgangur i efnahagslífinu gert það að betri greiðanda. Nýafstaðin efnahagslægð er áreiðanlega ekki hin síðasta sem íslending- ar munu kynnast og því er mikilvægt að góðærið verði nýtt til að greiða niður skuld- ir og styrkja efnahag landsins. KjM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.