Morgunblaðið - 20.06.1997, Síða 1
('?5*VS :><-»■
S.
tii
í T
Stui
dv/<
trúlrnenska
■ SÓLIN, HEIMSPEKIN OG BÖRNIN/2 ■ SAMKYNHNEIGD ER EKKI BARA
KYNLÍF/3 ■ ENGINN ER FULLKOMINN/4 ■ BRÚÐULEIKSÝNING HELGU
ARNALDS/6 ■ ÍSLENSKUR TÍSKULJÓSMYNDARI í MÍLAN
Klukkan
sem segir eilí
SKILUR þú klukkuna afi,“
spurði Álfgrímur í Brekku-
kotsannál Halldórs Laxness og
svo: „Af hverju segir klukkan
altaf ei-líbbð ei-líbbð ei-líbbð?“
Klukkan í stofunni í Brekku-
koti var merkilegt kvikindi. Hún
tifaði hægt og virðulega. Sekúnd-
urnar í sigurverkinu voru eins og
kýr sem fóru ævinlega eins hægt
og unnt var að ganga. Sekúnd-
urnar í öðrum klukkum voru
hinsvegar eins og óðfara pöddur.
Eilífðin bjó í klukku afa Alfgríms
og hún gat jafnvel sagt til um
giftingar og mannslát. Eða
hvað?
„Eg trúi því nú ekki
nema mátulega,"
svarar afinn, hann
Björn sálugi í
Brekkukoti.
Sagan er tími og maðurinn er
tímavera. Aftur á móti eru áhöld
um hvort tíminn sé punktur á
beinni línu, hvort hann sé eilíf
hringrás eða spírall sem stefnir
manninum hærra. En óumdeilan-
lega mælir klukkan hvað tíman-
um líður og er til dæmis Ur-
smíðafélag Islands orðið sjötíu
ára gamalt.
í Þingholtsstræti 9 í Arbæjar-
safni vinnur úrsmiður á sunnu-
dögum að viðgerðum í sumar,
tilefnið er afmæli úrsmiða,
eða úrmakara
eins og Laxness
nefnir þá í sögu
Alfgríms. Þar má
meðal annars sjá
vinnustofu Magn-
úsar Benjamínsonar,
gamlar stofuklukkur og
armbandsúr, vasaúr, vekjara-
klukkur o.s.frv.
Klukkur hafa löngum verið sett-
ar í öndvegi á heimilum manna,
eins og þær búi yfir einhverju
leyndarmáli. Á nítjándu öld varð
heimilisklukkan tákn velmegunar
á betri bæjum og á þessari öld
varð úrið almenningseign.
Stafræn úr virtust á
tímabili ætla að verða
allsráðandi en gamla
góða skífan náði yfir-
höndinni á ný og nú
er til dæmis þýska
sigurverkið Lange &
Söhne að ná sér á strik
eftir fimmtíu ára niður-
sveiflu.
Mannlegu samfélagi er í
raun raðað saman efth-
stundatöflu og einstak-
lingamir háðir úrinu
því nánast allt er
klukkan eitthvað.
Aðeins í sumar-
fríinu leyfist að
leggja úrinu og
gott að grípa
tækifærið!
FRANSKT „taffelur", kom fra Sjobuð en er ur danarbui Knstjans
læknis Jónssonar frá Ármóti. Kom til íslands árið 1911.
VINNUSTAÐAKLUKKUR
KLUKKA Sigurjóns í Álafossi.
>V Grillað lambakjöt
uV Leiktæki fyrir börnin
A Svalabræður skemmta
öV Steinar Viktorsson með þátt
sinn í beinni frá Norðurbrún á flÐALSTÖDIN
>V Einn lukkulequr qostur fer matarkörfu að vorðmsti kr. 5000,-
909x909
Við verslun (|ii Norðurbrún
frá kl 16:00 til 19:00 í daq
Ótrúleq tilboð:
xV Þurrkryddaðar qrillsnoiðar frá Goða kr. 599,- pr. kq
íV Heimaís frá Kjörís, tveir fyrir einn.
>V Brazzi frá Sól, tveir fyrir einn.
Tilboð þessi qilda aðeins meðan lukkustund stendur yfir.
msm\
- náttvrulegagott
-L