Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.06.1997, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 B 5 DAGLEGT LÍF ITJKOMTNN OLF ARA HJONABAND rahúsprestur og Þórhallur Heimisson aðstoðarprestur Morgunblaðið/Ásdís rborðið.. ÞÓRHALLUR í hvítum sokkum við sparifötin. 5Ósa og sokkar og verður alltsaf einkennilega sam- anherpt til munnsins þegar við er- um að dytta að og laga hérna heima. Mér fínnst ég vera að svíkj- ast um þegar ég leyfi mér að hvíla mig stundarkorn og ég er löngu hættur að brydda upp á samræð- um þegar hún er í þessum ham,“ segir Þórhallur. Smekkur þeirra hjóna á húsbún- aði er mjög áþekkur. Þó segist Ingileif hafa þvertekið fyrir að hengja vopnasafn eiginmannsins upp á vegg og tindátarnir hans hvíla í friði í kjallaranum. Venus frá Míló, ástfólgin keramikstytta Þórhalls, sem Ingileifu finnst lítt til prýði, fær náðarsamlegast að standa í gluggakistunni, en henni er þannig fyrirkomið að gardínan dregur verulega úr tilvist hennar. „Ég er bara svo smekkleg,“ segir Ingileif af stakri hógværð og Þór- hallur kinkar þegjandi kolli. Til marks um hve gott sé fyrir Þórhall að eiga hana að bendir Ingileif á að hún forði honum ítrekað frá að verða sér til skammar í klæða- burði. „Annars er Þórhallur alveg þokkalega smekklegur þegar hann fer út á meðal fólks að öðru leyti en því að hann hefur tekið sérstöku ástfóstri við þykka, hvíta bómullar- sokka með röndum og vill skarta þeim við hvers kyns klæðnað,“ seg- ir Ingileif, sem enn verður að gæta þess að Þórhallur sleppi ekki út á sokkunum. Einnig segir hún að honum sé ekki treystandi til að búa dæturnar þrjár út því samsetning- in verði jafnan harla kyndug. Matartilstand Þau eru sammála um að verka- skiptingin á heimilinu sé til fyrir- myndar að flestu leyti. Þórhallur hefur matreiðsluna yfirleitt á sinni könnu, enda er matur honum eink- ar hugleikinn. Ingileif segir að hann sé aldrei meira í essinu sínu en þegar hann getur haldið uppi samræðum um mat og matargerð. Sjálfri finnst henni umræðuefnið ekki skemmtilegt og algjör óþarfi að skipuleggja innkaup fyi’ir stór- hátíðir líkt og allt verði uppurið þegar nær dregur. Þórhallur segir að fyrirhyggjan hvað þetta varði sé líklega vegna þess að hann er alinn upp í sveit þar sem slík innkaup voru stórmál. „Mér sárnar alltaf hve Ingileif getur verið ófáguð og tillitslaus þegar ég hef lagt mig all- an fram við matargerðina. Ég ber kannski á borð afar gómsætan rétt með hvítlaukssósu og allt hvað eina, og síðan sest hún snæðingi og sprautar tómatsósu yfir allt saman.“ Þar sem Þórhallur stundar fjar- nám í Danmörku þarf hann oft að skreppa utan. Tilstand kringum mat er þá ekki mikið hjá Ingileifu og dætrunum, sem lifa einkum á léttum pastaréttum og morgun- korni úr pökkum. „Óskaplega af- slappað," segir Ingileif dreymin á svip. Vandlætingin leynir sér ekki í svip Þórhalls, sem segir að sér virðist dæturnar alltaf banhungr- aðar þegar hann komi heim. Helgistundir húsbóndans Þeim hjónum finnst gott að eiga af og til sínar stundir hvort frá öðru. Ingileif segh’ að Þórhallur verði alltaf bai-nslega glaður þegar hún þarf að skreppa frá og hann geti leigt sér hasarmyndir. „Þetta eru science fiction myndir, Ingi- leif,“ leiðréttir Þórhallur og finnst hún tala af lítilli virðingu um áhuga sinn á vísindaskáldskap. „Helgi- stundir mínar eru frá klukkan sex á morgnana þar til Ingileif og stelpurnar fara á fætur með til- heyrandi brambolti og látum. Fram að því nota ég tímann til að lesa, hlusta á útvarpið og íhuga landsins gagn og nauðsynjar. Ingi- leif er mjög fyrirferðarmikil á morgnana. Hún fer til dæmis aldrei út úr húsi án þess að gleyma einhverju, sem hún uppgötvar ekki fyrr en hún er sest upp í bíl.“ Aðspurð segjast Ingileif og Þórhallur geta tínt eitt og annað til sem þau hafi látið pirra sig í ár- anna rás. Ingileif nefnir sérkenni- legt verklag Þórhails þegar hann á þvottadaga, en hann segir slíkan pirring einkum helgast af því að eiginkona hans sé með afbrigðum stjómsöm eins og öllum sem til þekki sé kunnugt um. ATJAN ARA HJONABAND Ismolar og golfkúlur SÓLVEIG og Torfi kynntust fyrir tuttugu árum í Kaup- mannahöfn. Hún var sautján ára í sumarvinnu, en hann, tuttugu og eins árs í sumarfríi, sem vai'ð öllu lengra en til stóð í upphafi. „Vitaskuld vegna þess hversu hon- um þótti ég ómótstæðileg," segir Sólveig örugg með sig. Torfi ber ekki á móti því og segir að sér hafi þótt stúlkan einkar fögur, skemmtileg og hress, stundum jafnvel hressari en góðu hófi gegndi. „Hún var óttaleg skellibjalla og allt öðru vísi manngerð en ég, sem var öllu hæglátari,“ segir Torfi, sem tveimur árum síðar leiddi Sólveigu upp að altarinu. Þá höfðu þau búið í nokkra mánuði heima hjá foreldrum Sólveigar. „Ég man að mömmu þótti Torfi heldur druslulegur í allri umgengni og ráðlagði mér að skóla hann til fyrr en seinna. Stundum náði fataslóð- in af honum frá útidyrum og upp í herbergi, en hann hafði lengi verið hjá ömmu sinni, sem taldi ekki eftir sér að tína upp eftir hann föt- in og brjóta þau saman,“ segir Sólveig, sem fór að ráðum móður sinnar og kenndi Torfa betri siði. Lætur vel að stjórn Núna segir hún að hann sé til fyrirmyndar og eftirbreytni að þessu leyti og það sé sér að þakka að hann er löngu orðinn jafnvígur á öll heimilisstörf. „Hann finnur þó aldrei hjá sér einlæga hvöt til að skipta um á rúmunum, þvo gardín- urnar eða þess háttai'. Ég þarf ít- rekað að benda honum á að slík verk þurfi að inna af hendi endrum og sinnum.“ „Sólveig er einstaklega heppin að eiga mig fyrir eiginmann því ég læt mjög vel að stjórn og er afar meðfærilegur í alla staði. Ég er alltaf tilleiðanlegur að gera það sem hún segir mér, jafnvel þótt sjálfum líði mér ágætlega þótt ekki sé allt þrifið í hólf og gólf. í fyrstu var mér svolítið ami að stjórnsem- inni og þörf hennar á nákvæmri skipulagningu, en núna finnst mér þetta hinn mesti kostur," segir Torfi, sem á árunum áður kvartaði sáran yfir smámunasemi eiginkon- unnai'. Gallarnir urðu kostir Torfi telur að hann hafi smám saman gert sér grein fyrir og met- ið það í fari Sólveigar, sem honum þótti einu sinni vera gallar og efa- lítið sé líkt farið með hana varð- andi hann. Sólveig tekur undir og nefnir dæmi. „Mér leiddist oft hversu Torfi gat verið þegjanda- legur og tómlátur á mannamótum. Seinna áttaði ég mig á því að hon- um fannst ekki taka því að tala nema hann hefði eitthvað að segja, sem er auðvitað mun betra en að blaðra tóma vitleysu í tíma og ótíma.“ Annað sem Sólveig lét fara fyrir brjóstið á sér var hversu treglega henni gekk að fá Torfa til að dansa við sig auk þess sem hann hélt aldrei takti þegar hún loks gat dregið hann út á gólf. „Þetta er líka allt að lagast, núna vill Torfi ólmur dansa og ég læt mér í léttu rúmi liggja þótt fótafimi hans sé kannski ekki upp á marga fiska.“ Torfi segist yfirleitt vera sáttur við fatastíl konu sinnar. „Einu sinni tók hún þó upp á því að ganga sífellt í stórum og víðum mussum, sem mér þóttu lítt þokkafullar. Ég vil helst að hún klæðist kvenlegum fatnaði.“ Sól- veig skýtur inn í að honum þætti áreiðanlega ekki verra ef hún tæki sér Dolly Parton til fyrirmyndar að þessu leyti. „í gamla daga fannst mér óþarfa afskiptasemi þegar Sólveig var að skipta sér af klæðaburði mínum. Núna er ég hins vegar feginn að þurfa ekkert að hafa áhyggjur af fatakaupum og slíku, enda tækist mér trúlega varla að kaupa mér flík einsam- all,“ segir Torfi og lítur þakklátur á Sólveigu, sem þegar hefur hafið frásögnina af því þegar hún rétt gat afstýrt að hann færi út i hvorki meira né minna í þremur grænum litum. „Buxurnar, vestið og jakkinn - allt í hrópandi fjar- skyldum gi-ænum litum ... og það sem meira var, hann var hinn ánægðasti með sig í múndering- unni.“ Þau hjónin eru sammála um að þeim hafi tekist bærilega að að- laga sig hvort öðru með tilheyr- andi kostum og göllum, enda nenni hvorugt að gera mikla rellu út af smámunum. Torfi hryllir sig þó enn þegar hann minnst þeirrar áráttu Sólveigar að bryðja ísmola eins og henni væri borgað fyi'ir. „Ég og blessuð börnin þrjú mátt- um sitja undir þessu kvöld efth' kvöld um alllangt skeið. Ég reyndi mitt besta til að afbera ískrið sem tiltækið hafði í fór með sér, því Sólveig var að hætta að reykja og ég vildi alls ekki verða til að hún byrjaði aftur. Allt gekk þetta nú yíh' og hún hefur löngu látið af ósiðnum. Kannski er ég óvenju viðkvæmur því að þótt ég sé ekk- ert að múðra fer í mínar fínustu þegar Sólveig borðar hrökk- brauð.“ Krúttlegir þumalputtar Fyrst minnst er á áráttu finnst Sólveigu tilhlýðilegt að geta um einstakt umburðarlyndi sitt gagn- vart Torfa þegar hann væflast með golfkylfu um allt húsið og fjöl- skyldan er hnjótandi um litlar hvít- ar kúlur á ólíklegustu stöðum. „Torfi segir oft að ég sé stjórnsöm en tilfellið er að hann stjórnar því sem hann vill stjórna á sinn lúmska hátt. Núna hefur golfbakterían heltekið hann og hann ætlar sér að fá mig með í golfið. Ég ólst upp við golf og varð ónæm fyrir bakterí- unni þannig að honum verður ekki kápan úr því klæðinu þótt hann sveifli kylfunni sem mest hann má hér innandyra. Þá vil ég frekar hlaupa með honum, mér finnst líka alltaf svo sætt og krúttlegt hvernig hann heldur þumalputtunum upp í loftið þegar hann hleypur." Sólveig Pólsdóttir leikkona og bókmenntafræðingur og Torfi Þ. Þorsteinsson vinnslustjóri Morgunblaðið/Ásdís SÓLVEIG bryður kaldan klakann. TORFI sleppir varla golfkylfunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.