Morgunblaðið - 20.06.1997, Side 4

Morgunblaðið - 20.06.1997, Side 4
4 B FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997 DAGLEGT LIF MORGUNBLAÐIÐ FJOGURRA ARA SAMBUÐ flstríður Þórftardóttir viftskiptafræftingur og Björn Þór Sigbjörnsson dagskrórgerðarmaður. Þótt ekki hrykkti í stoðum hjónabandsins er oft eitt og annað smálegt sem stöðugt er þrætuepli milli hjóna. Valgerð- ur Þ. Jónsdóttir bað þrenn pör að upplýsa hvað einkum er þeim til ama í fari maka sinna í dagsins önn og amstri. Morgunblaðið/Ásdís ÁSTRÍÐUR í öðrum heimi með naglaþjölina. BJÖRN Þór fylgist með gangi heimsmála. Naglasnyrting og fréttafíkn DAGINN eftir að Ástríður Þórðardóttir og Björn Þór Sigbjömsson kynntust á dansleik fyrir rúmum fjórum árum flutti hann með tannburstann sinn inn til hennar og nokkrum mánuð- um síðar hófu þau formlega samúð. Allt var svo gaman og skemmtilegt og þau höfðu lítið sem ekkert hvort út á annað að setja. Að vísu segir Björn Þór að fljótlega hafí komið í ljós mikið óyndi í Astríði í morg- unsárið og jafnan liði hálftími frá því hún risi úr rekkju þar til hún yrði aftur sama geðþekka stúlkan, sem heillaði hann svo mjög á ball- inu forðum. Birna Þór fínnst þessi löstur Astríðar ekkert tiltökumál enda sé hann blessunarlega laus við að vakna með henni á morgnana. Sjálfur er hann kominn á ról klukk- an hálffímm á virkum dögum til að undirbúa morgunútvarp Rásar 2, sem fer í loftið klukkan sex. Þótt Ástríður geti vel sætt sig við óvenjulegan vinnutíma Bjöms Þórs segir hún svefnvenjur hans og svefnþörf með ólíkindum og sér gangi treglega að sýna honum um- burðarlyndi í þeim efnum. „Eg verð alltaf hálffúl þegar ég kem heim úr vinnunni og Björn Þór sef- ur enn á sínu græna,“ segir Ástríð- ur og bætir við að þá sé hann ekki beinlínis spriklandi af kæti fremur en hún á morgnana. Af svefnvenjum og fréttafikn „Smám saman hefur mér lærst að vænlegast er að hringja í Ástríði og spyrja hana hvenær hún komi heim. Síðan stilli ég bara vekjara- klukkuna samkvæmt því og lúlla rólegur áfram,“ segir Björn Þór og brosir blíðlega til Ásti-íðar, sem finnst mál tO komið að leggja orð í belg. „Hann talar eins og ég sé al- gjör gribba, sem fari hamförum þegar ég kem að honum sofandi. í rauninni verð ég bara pínulítið súr í bragði. Hitt pirrar mig enn meira að hann skuli endilega þurfa að hlusta á útvarpið í rúminu og fjasa yfír því að ég vilji hafa ljós og lesa fyrir svefninn." „Maður verður nú að fylgjast með, Ástríður mín,“ segir Björn Þór. Ástríður segir Björn Þór fréttafíkil, sem stundum lesi dag- blöðin, hlusti á útvarp og horfír á sjónvarp samtímis. „Það er sama á hverju gengur, hann haggast ekki á fréttatímum útvarps og sjón- varps. Mér fínnst þessi árátta oft leiðinleg, sérstaklega ef við erum að fara út og hann lætur mig bíða lon og don eftir sér,“ segir Ástríður og finnst karlremba komin í Björn Þór þegar hann skýtur inn í að henni farist einstaklega vel að sinna praktískum verkum meðan hann íhugi ýmis vandamál í víðara samhengi. „Hann er þá að hugsa um hungursneyðina í heiminum, stjórnmálaástandið í Rússlandi og þess háttar, eða alténd eitthvað þar sem hann fær engu um ráðið,“ út- skýrir Ástríður góðfúslega. f samkeppni við naglaþjöl Stöðug naglasnyrting Ástríðar er Birni Þór svolítið til ama. Hann segir hana draga fram naglaþjölina í tíma og ótíma, setja upp fjarræn- an svip og beita þjölinni af miklum móð með tilheyrandi urgi, sem smjúgi gegnum merg og bein. „Þegar naglaþjölin er annars vegar er mér lítill gaumur gefínn, gæti allt eins verið lítil fluga á vegg. Einbeitingin verður slík að hún hvorki sér mig né heyrir," segir Björn Þór og finnst leitt að þurfa að lúta í lægra haldi fyrir nagla- þjöl. I byrjun sambúðar ríkti ósam- komulag um verkaskiptinguna á heimilinu. Hver átti að gera hvað, hvenær og hvernig segja þau að hafí oft orðið að heilmiklu rifrildi, jafnvel svo að þau yrtu ekki hvort á annað í marga daga. Björn Þór segist þó hafa reynt, en ekki tekist, að vinna bug á þvermóðsku Ástríð- ar, enda sé hún langræknari en hann og líklega sé hann meiri tuð- ari. Ástríður jánkar staðhæfíng- unni og segir Björn Þór geta tuðað heilt kvöld hafi hún til dæmis gleymt að setja sultukrukku inn i ískápinn. „Þótt okkur þætti báðum óskaplega barnalegt að vera í fýlu ef annaðhvort okkar vaskaði ekki upp þegar hitt ætlaðist til þess eða eitthvað álíka, gátum við ekki unnið bug á þessu fyrr en við lögðum drög að nákvæmri verkaskiptingu." Verklýsing Ástríðar Aðspurð hver hafí hafí samið verklýsinguna segir Björn Þór að höfundurinn heiti Ástríður Þórðardóttir. „Eins og ég sagði áð- an er hún svo góð í þessu praktíska j\ ... og ég læt líka einkar vel að |(M stjóm. Mér fínnst eini ljóðurinn á j'J/ fyrirkomulaginu sá að Ástríður ríf- ur sig upp á laugardagsmorgnum f..;: og byrjar að skúra og ryksuga VÍ': einmitt á meðan ég sötra morgun- ,7 kaffið, les dagblöðin og ræð kross- ■; gátuna í Lesbókinni. Þrátt fyiir . ríkjandi samkomulag fæ ég alltaf hálfgert samviskubit.“ Ástríður segir að yfirleitt fari | smekkur þeirra á húsbúnaði saman, en hún hafi þurft að veita Birni Þór svolitla tilsögn í klæðaburði. „Hann á þó ennþá haUærislegasta bindasafn í gjörvöllum vesturbænum, en sem betur fer er hann sjaldan með bindi. Mér finnst hann líka hafa fremur óþroskaðan tónlistarsmekk, þótt ég sé ekkert að amast við lögum eins og Fjólublátt Ijós við barinn, sem honum finnst svo gaman að hlusta á.“ Björn Þór segir að líklega myndu lærðir menn segja að Ástríður hafí þróaðri smekk á tón- list en hann en þess beri að geta að af þeim 600 diskum sem til séu á heimilinu séu tíu í mestri notkun og það séu ekki diskar með gömlu góðu íslensku popplögunum TRÚLEGA hafa flestir einhvern tíma haft á orði að eitt og annað fari í taugarnar á þeim. Orðatiltækið er auðskilið, þótt oft geti verið harla erfítt að henda reiður á hvað veldur þessari óáþreifanlegu tilfinningu sem margir fínna fyrir gagnvart samferðamönnum sín- um. Háttalag, athafnir, kækir, smekkur, útlit og klæðaburður eins getur farið óbærilega í taugarnar á öðrum án þess að persónuleg óvild komi við sögu eða kynni af viðkomandi séu ýkja náin. Umburðarlyndi er fólki misjafnlega í blóð borið. Enginn er fullkominn og fáir geta verið þannig að öllum líki. Jafnvel í hjóna- böndum, þar sem dyggðirnar þrjár; ást, sátt og samlyndi, ráða ríkjum og málamiðlanir eru í hávegum hafðar, getur ýmislegt smá- ræði í fari hvors hjónanna um sig orðið hinu til mikillar skapraunar, þótt að öðru leyti hafi þau lítið sem ekkert hvort upp á annað að klaga. Umvandanir, ábend- ingar, aðfinnslur og nöldur í \ áratugi duga stundum skammt. Makinn læt- ur slíkt sem vind um I eyru þjóta og heldur uppteknum hætti; með- vitaður eða ómeðvitaður. ''' Sem betur fer sjá margir spaugilegu hliðina á því sem þeim finnst vera ábótavant í fari, fasi og gjörðum sinna nánustu. í i góðra vina hópi gera þeir stundum góðlátlegt grín að I ýmsu sem endalaust er i þrætuepli í samskiptum við maka og stöðugri viðleitni til að koma þeim í skilning um að tiltekin framkoma sé þeim ekki þóknanleg, bein- línis óviðeigandi innan hcimilis sem utan, eitt og annað sé allsendis smekk- laust og sumt jaðri við tillits- leysi á hæsta stigi. Af einskærri forvitni um annarra manna hagi hefur blaðamaður Daglegs lífs um langt skeið lagt eyrun við um- ræðum og umkvörtunum af þessu tagi. Stundum hafa alls konar heimilisleyndarmál komið upp á yfirborðið, t.d. er sú árátta margra karla að setja ekki setuna á salernisskálinni í lárétta stöðu, vandamál sem ekki virðist hægt að leiða til lykta á mestu fyrirmyndarheimilum, líkt og tann- Meðferftin á tannkremstúp- unni getur orftift endalaust ógreiningsmól innan veggja heimilins. kremstúpan sem sumir, bæði karlar og konur, læra aldrei að kreista á réttan hátt. Karlar kvarta líka sár- an yfir vand- ræðaganginum í eiginkonum sínum þegar þær eru að búa sig upp, þá upplýstist að ein afar fín frú, sem þó japlar sýknt og heilagt á tyggigúmmí, lætur ekki, þrátt fyrir miklar fortölur bónda síns, af þeim ósið að setja tugguna frá sér á það sem hendi er næst hveiju sinni. Þrenn pör, sem ekki taka sig of hátíðlega, létu tilleiðast að segja frá einu og öðru f fari maka sinna sem einkum fer í taugarnar á þeim. Ingileif Malmberg sjúk INGILEIF, ófáguð, við mata Tómats hvítir: UM miðjan níunda áratuginn blómstraði ástalífið í guð- fræðideild Háskólans og gat af sér nokkur hjónabönd. Tuttugu og þriggja ára guðfræðinemi, Þór- hallur Heimisson, kom þar auga á sína útvöldu, Ingileifu Malmberg, sem vai' þremur árum yngri. Hon- um fannst hún kvenna fríðust og föngulegust og þar sem hann er ekki vanur að tvínóna við hlutina hófst hann þegar handa við að vekja athygli hennar. Ingileif segist varla hafa komist hjá því að taka eftir þessum stóra, rauðhærða strák, enda hafi sjaldn- ast verið lognmolla í kringum pilt- inn. „Þórhallur talaði óskaplega mikið og ég furðaði mig á hvað hann þurfti sífellt að tjá sig um allt mögulegt. Hann er enn við sama heygarðshomið og ræðir yfirmáta kumpánlega við alla hvar sem hann kemur. Ég verð alltaf óþolinmóð þegar við erum að versla og hann er óðar kominn í hrókasamræður við afgreiðslufólkið og annað bláó- kunnugt fólk.“ Þórhalli varð ekkert ágengt á mælskunni. Þegar honum fannst fokið í flest skjól fór hann að leggja eina og eina rós á borð Ingileifar í lesstofu Háskólans og þá rofaði loks til. „Þetta voru bara svona ódýrar rósir á sérstöku tilboðs- verði,“ segir hann afsakandi. Með samanbitnar varir Brátt máttu þau ekki hvort af öðru sjá og innan árs létu þau pússa sig saman. Þórhallur segir að Ingileif eigi enn til að vera ótta- lega fámál og hún slíti sér ekkert út við að segja brandara. „Stund- um er eins og hún heyri ekki þegar ég reyti af mér brandarana, en síð- an getur hún hlegið að þeim mörg- um dögum síðar.“ Ingileif finnst að sér vegið og segir að líklega hafi hún bara öðruvísi húmor „ .. .fín- legri og ekki alveg svona gaigopa- legan.“ „Ingileif er hamhleypa til verka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.