Morgunblaðið - 20.06.1997, Síða 6
6 B FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1997
MORGUNBLADIÐ
DAGLEGT LÍF
Ævintýri
íslenskra brúða
í balískri leikhúshefð
Brúðuleiksýningin Sólarsagan eftír Helgu Arn-
alds verður frumsýnd í Norræna húsinu á morg-
un. Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir forvitnaðist
um brúðuleikhúsið og ferð Helgu til Balí.
Morgunblaðið/Þorkell
HELGA Arnalds flytur Sólarsöguna fyrir börnin á leikskólanum Múlaborg. Hér
talar hún við ósýnilega mús.
HELGA Amalds hefur um
fjögurra ára skeið rekið
brúðuleikhúsið 10 fingur. I
byrjun þessa árs heimsótti
hún vöggu brúðuleikhúss-
ins, eyjuna Balí í Indónesíu,
og þegar heim kom samdi
hún brúðuleiksýningu fyrir
böm undir áhrifum frá bal-
ískri skuggaleikhúshefð.
„Ferðin til Balí veitti mér
innblástur til að semja
bamasýningu sem byggist á
þjóðsögum um sólina frá
ýmsum löndum,“ segir
Helga. „Mennimir og dýrin
á jörðinni syngja á hverjum
moigni svo jörðin fer að
hringsnúast af gleði og sólin
kemur upp. En langt úti í
geimnum er önnur pláneta
þar sem hnetukóngurinn
býr ásamt einkadóttur
sinni, Plágu prinsessu, sem
hann sér ekki sólina fyrir.
Hún fær allt sem hún vill, er
orðin voðalega feit og frek
og fer aldrei fram úr rúm-
inu. Þegar prinsessan á af-
mæli veit hnetukóngurinn
ekkert hvað hann á að gefa
henni því hún á allt. Hann
fer í langt ferðalag og kem-
ur niður á jörðina, þar sem
allir em að bíða eftir sólinni.
Þegar hún kemur upp
ákveður hann að stela henni
og gefa prinsessunni í af-
mælisgjöf. Þá þurfa bömin í
salnum að finna ráð til að
bjarga sólinni og það hefur
yfirleitt tekist hingað til!“
Helga segist hafa verið
beðin um að skemmta börn-
um í heimahúsi á öskudag-
inn og spann hún þá upp
söguna sem hún hafði feng-
ið hugmynd að áður. Hún
hefur síðan flutt sýninguna
nokkrum sinnum og sagan
hefur smám saman þróast.
Sólarsagan verður sýnd
um helgar í Norræna hús-
inu í sumar og frumsýning
verður laugardaginn 21.
júní, þann dag sem sól er
lengst á lofti. Hallveig
Thorlacius samdi handritið
ásamt Helgu, leikstjóri er
Helga Braga Jónsdóttir og
Eyþór Amalds samdi tón-
list.
Óvænt ferð til Balí
Helga fór til Ástralíu með
brúðuleikhúsið sitt í janúar
síðastliðnum. „Þegar ég
kom þangað vom nokkrir
vinir mínir búnir að kaupa
pakkaferð til Balí og ég
ákvað að slást í fór með
þeim“, segir Helga.
„Mig hafði lengi langað
að koma til Balí vegna þess
að þar stendur vagga
brúðuleikhússins. Skugga-
leikhúshefðin þar er nokkur
þúsund ára gömul og er
elsta leikhúsform í heimin-
um sem enn er stundað.
Þetta er nokkurs konar
helgiathöfn, skemmtun sem
hefur jafnframt trúarlega
þýðingu. Hápunktur ferðar-
innar var þegar ég hitti I
Wayan Nartha, einn helsta
brúðuleikarann á Balí. Ég
sat hjá honum drjúga stund
og hann útskýrði fyrir mér
sögurnar og táknin.“
Þær góðu hægra megln
Að sögn Helgu eru
skuggaleiksýningar á Balí
meðal annars fluttar við há-
tíðahöld í tilefni af barns-
fæðingum, afmælum og
brúðkaupum. Allt sem til
þarf er olíulampi, skermur
og flatar brúður úr kálfs-
skinni, sem Helga segir að
séu algjör listaverk. Yfir-
leitt em sagðar sömu sög-
urnar sem allir þekkja, Ma-
habrata og Ramajana, en
þær era indverskar að upp-
runa og tengjast hindúatrú.
Sögurnar fjalla um guðina,
sem em ýmist góðir eða
vondir og hafa allskyns
veikleika eins og mennimir.
Sýningar hefjast iðulega á
því að Kayonan, lífsins tré,
birtist og persónurnar
koma fram sitthvoramegin
við það, þær góðu hægra
megin og þær vondu vinstra
megin.
Brúðuleikarinn segir sög-
umar og stjórnar brúðun-
um og sjö til fjórtán manna
hljómsveit spilar undir. I
Wayan Nartha er af fjórðu
kynslóð brúðuleikara í sinni
fjölskyldu og er búinn að
velja einn af sjö sonum sín-
um til að taka við af sér, en
á Balí þykir það mikill heið-
ur. Þegar brúðumeistarinn
kemur í þorp þar sem hann
á að sýna sest hann fyrst
niður með fólkinu og spyr
frétta.
Síðan fléttar hann atburði
og persónur úr bæjarlífinu
inn í söguna og áhorfendur
taka eftir hverju fráviki og
lesa í það. Þeir skemmta sér
konunglega og auðvitað
best yfir kjaftasögunum um
nágrannana.
Tímalaus töfraeyja
„Samkvæmt tímatali
Balíbúa eru 210 dagar í ár-
inu,“ segir Helga, „og þegar
ég spurði meistarann hvað
hann hefði starfað lengi við
brúðuleikhús sagðist hann
hafa gert það í 42 ár, síðan
1963! Þeir nota okkar ártöl
en telja samt árin ennþá
eftir gamla tímatalinu og
það ruglar mann alveg í
ríminu. Það sem einkenndi
Balí var líka algert tíma-
leysi og mig dreymdi mjög
sterka drauma sem voru
næstum því raunverulegri
en veraleikinn. Það var töfr-
um líkast að horfa út í kol-
svarta nóttina, þegar líf
færðist í skógana og tunglið
skein skært. Balíbúar trúa á
allskonar vætti sem fara á
stjá þegar rökkva tekur og
maður fann sterkt fyrir ein-
hvers konar óútskýranleg-
um öflum.
Á Balí er mjög mikið af
listamönnum og handverks-
fólki, en þar ríkir auðmýkt
gagnvart listsköpun og fólk-
ið telur sig hafa þegið hæfi-
leikana frá guðunum. Þarna
voru allir svo jákvæðir og
lausir við streitu. Þegar
HELGA heimsótti brúðumeistarann I Wayan Nartha í ferð sinni til Balí.
Morgunblaðið/Porkell
í Sólarsögunni segir frá
Plágu prinsessu, sem fær
sólina í afmælisgjöf frá
kónginum föður sinum.
Hollendingar gerðu Balí að
nýlendu sinnu ákváðu þeir
að leyfa eyjarskeggjum að
varðveita menningu sína og
siði. Balíbúar lifa nú aðal-
lega á ferðaþjónustu, en
mér virtist það þó ekki hafa
haft slæm áhrif, það hefur
tekist að flétta túrismann
saman við hina gömlu
menningu."
Ung listgrein á íslandl
Helga lauk námi í brúðu-
leikhúsfræðum í Barcelona
árið 1990 og starfaði að því
loknu á Spáni í eitt ár. Hún
hefur sett upp þrjár eins-
mannssýningar hér á landi
síðan hún stofnaði brúðu-
leikhúsið 10 fingur árið
1993. í íyrra lagði hún leið
sína til Tékklands, þar sem
hún lagði stund á fram-
haldsnám í leikstjórn fyrir
brúðuleikhús og setti meðal
annars upp sýningu sem
byggð var á íslenskri þjóð-
sögu.
Síðar á þessu ári hyggst
Helga setja upp fullorðins-
sýningu í Tjamarbíói,
ásamt tékkneska leik-
myndahönnuðinum Petr
Matásek, Hallveigu Thor-
lacius handritshöfundi, leik-
urunum Helgu Brögu Jóns-
dóttur og Hinriki Olafssyni
og söngkonunni Ingveldi Yr
Jónsdóttur. Verkið er byggt
á sögunni um Arthúr kon-
ung, en sagan er skoðuð frá
sjónarhóli systur Arthúrs,
Morgan Lefai.
Helga segir að brúðuleik-
hús sé tiltölulega ung list-
grein á íslandi, eigi hér að-
eins um 45 ára sögu og ekki
sé til staðar sterk hefð til að
byggja á. Nánast allir sem
starfi við brúðuleikhús á Is-
landi séu því brautryðjend-
ur. Hún bætir við að orðið
brúðuleikhús sé ef til vill
svolítið villandi. Erlendis sé
farið að nota orðið „figure
theater" því það sé notað yf-
ir ákveðna hugsun í leikhúsi
og ekki séu endilega alltaf
notaðar brúður.
Ævlntýrl fyrir alla
„Mér finnst gaman að sjá
hvernig farið er að flétta
brúðuleikhúsi inn í leiksýn-
ingar fyrir fullorðna," segir
Helga, „en allir vita að börn
eru mjög móttækileg fyrir
því. Það opnar leið inn í æv-
intýri og ég held að full-
orðnir njóti þess engu síður
þegar þeir leyfa sér það.
Þess vegna verður Sólar-
sagan í Norræna húsinu
kærkomið tækifæri fyrir
pabba og mömmur og
prinsana og prinsessurnar
þeirra til að njóta þess að
fara saman í leikhúsið." ■
Ljósmynd/Hannes Guðmundsson