Morgunblaðið - 08.07.1997, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fHOfgttttMftMfr
Blýmengun
á heimilum
BLY er í einhverjum mæli í
flestum húsum, segir Ragnar
J.Gunnarsson í grein um
blýmengun á heimilum. Af
blýmengun getur stafað háski,
ekki hvað sízt fyrir börn. Blý
getur verið í málningu og lakki
og borizt inn utan frá. / 16 ►
Viðhald er
nauðsyn
ÞAÐ er ekki nauðsynlegt, að
allir íbúðareigendur séu
sérfræðingar í lögnum, segir
Sigurður Grétar Guðmundsson
í þættinum Lagnafréttir. En
þeir þurfa að gera sér grein
fyrir því, að lagnir þurfa
umhirðu og viðhald. / 22 ►
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þriðjudagur 8. júlí 1997
Blað C
Þátta-
skil í
Spönginni
ÞÁTTASKIL eru orðin í
Spönginni svonefndu í
Grafarvogi með fyrstu
verzlunarbyggingunni á
svæðinu. Þar er að verki Jó-
hannes Jónsson, kaupmaður í
Bónus. Byggingin er um 600
ferm. og í henni verður rekin
hefðbundin Bónusverzlun.
Hún er byggð úr forsteyptum
einingum, en þakið er úr lím-
tré.
Spönginni er ætlað mikið
hlutverk í framtíðinni, Svæðið
er rúmir 4 hektarar og þar er
áformað að byggja verzlunar-
og þjónustuhúsnæði, sem
verði um 8000-10000 ferm. að
gólffleti, en einnig er gert ráð
fyrir íbúðum á svæðinu.
Mjög hröð uppbygging á
sér stað í Grafarvogshverf-
unum og gert er ráð fyrir, að
innan skamms verða íbúar
þar orðnir um 20.000. í
Spönginni eiga íbúar á þessu
svæði að geta fengið alla
þjónustu á einum stað.
Spöngin liggur miðsvæðis í
norðurhluta byggðarinnar á
þessu svæði í góðum tengsl-
um við vegakerfíð, en er ekki
síður vel sett gagnvart helztu
gönguleiðum og opnum
svæðum innan byggðarinnar.
„Eg tel, að Spöngin eigi
mikla framtíð fyrir sér,“ seg-
ir Jóhannes. „Aðkoma að
Bónusverzluninni er mjög
þægileg og þar eru þegar 100
bflastæði, sem eru malbikuð
og fullfrágengin." / 2 ►
Ávöxtunarkrafa
húsbréfa sjaldan
verið lægri en nú
ÁYöXTUNARKRAFA húsbréfa hef-
ur lækkað mjög að undanfórnu. Hún
var 5,45% í lok síðustu viku og hefur
ekki verið lægri frá því í júní í fyrra.
Lækkun ávöxtunarkröfunnar nú má
rekja til vaxtalækkananna að undan-
fornu.
Ávöxtunarkrafan skiptir miklu
máh, því að hún ræður þeim afföllum,
sem er á húsbréfunum á hverjum
tíma. Þetta hefur því áhrif á fast-
eignamarkaðinn, því að það er hag-
stæðara að kaupa og byggja, þegar
ávöxtunarkrafan er lág, þar sem hús-
bréfin eru þá þeim mun verðmætari,
sem fást út á eignirnar.
Sem dæmi má nefna, að afföll af 1.
millj. kr. í húsbréfum til 25 ára er um
65.200 kr., ef ávöxtunarkrafan er
5,70% en um 91.000 kr., þegar ávöxt-
unarkrafan er 6%.
Um nokkurn tíma hafa affóllin ver-
ið á bilinu 8,5-11%, en eru nú komin
niður í um 6,5%. Lækki ávöxtunar-
krafan niður í 5%, myndu affóllin af
húsbréfum fara niður fyrh’ 3%. Ekki
er þó hægt að segja með neinni vissu,
hvort þróunin verði á þann veg.
Hæst varð ávöxtunarkrafan um
9% síðari hluta árs 1991 og var aðai
ástæðan þá mikil húsbréfaútgáfa
ásamt mikilli lánsfjárþörf ríkissjóðs.
Lægst varð ávöxtunarkrafan rétt
undir 5% um mitt ár 1994.
Astæðumar fyrir vaxtalækkunun-
um að undanfórnu eru fleiri en ein.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir lítilli
verðbólgu í ár. Launahækkanirnar í
vor voru innan þeirra marka, að ekki
er talið, að þær muni skila sér út í
verðlagið. Jafnframt hefur lánsfjár-
þörf ríkissjóðs minnkað og þrýsting-
ur á lánsfjármarkaði um leið. Einnig
hafa ýmsir innlendir lántakendm’
leitað á erlenda lánsfjármarkaði í
staðinn fyrir innlendan markað.
Með þetta í huga ætti ávöxtunar-
krafa húsbréfa að haldast lægri en
hún hefur verið í langan tíma og af-
föllin um leið.
Avöxtunarkrafa* húsbréfa
jan.1995 til 4. júl. 1997 O
ávöxtunarkrafa viö kaup
J FMAMJ J ASONDJ FMAMJ J ASONDJ FMAMJ J
Verðbréfasjóður Fjárvangs er góður fjárfestingarkostur
Markbréf hafa skilað eigendum sínum 9,5%* raunávöxtun á ári sl. 2 ár. Kynntu þér
kosti Markbréfa og annarra verðbréfasjóða hjá Fjárvangi. Ráðgjafar Fjárvangs
veita upplýsingar um fjárfestingarkosti sem henta þér í síma 5 40 50 60.
*Miðað við 29. mal 1997
(|IP-
FJÁRVANGUR
L 0 G GIL T VERÐBHÉFAFYRIRLÆKI
Fjárvangur hf., löggilt verðbréfafyrirtæki, Laugavegi 170, 105 Reykjavík, sfmi 5 40 50 60, sfmbréf 5 40 50 61, www.fjarvangur.is