Morgunblaðið - 18.07.1997, Side 1
■ TÍSKUVATN í FÍNUM UMBÚÐUM/2 ■ FRIÐARLJÓÐ í FARTESKINU/3 ■
■ DRAUMUR UM DETTIFOSS/4 ■ BAKSTUR MEÐ BRAUÐGERÐARVÉLUM/5
BANDARÍSKA kvikmyndafyrirtækið TriStar
hefur keypt kvikmyndaréttinn að sögu þar-
lends blaðamanns um leitina að fegurstu konu
heims á íslandi. Greg Donaldson, prófessor í ensku
við New York háskóla, kom til Islands á vegum
tímaritsins Men’s Journal í fyrravetur í fyrrgreind-
um tilgangi, og vakti grein um dvöl hans mikla at-
hygli ytra þegar hún birtist.
„Ferlið er þannig að kvikmyndafyrirtækið byrj-
ar á að kaupa söguna, síðan er fenginn höfundur
til þess að skrifa handrit. Reynist það nógu gott,
rúllar boltinn af stað,“ segir Donaldson. Hann
segir ennfremur að fyrirspurnir hafi borist frá
TriStar um leið og grein-
Seinfeld
leitaði
fegurstu
konu heims
in birtist í nóvember síð-
astliðnum.
Donaldson segist þegar
hafa fengið umtalsverða
upphæð fyrir söguna og
hefur samið um sex stafa
fjárhæð, ef af kvikmynd-
un verður. Hann segist ennfremur munu
verða handritshöfundinum innan handar,
til dæmis hvað varðar tilurð hugmyndar-
innar og bakgrunn sögunnar. „Eg hefði
auðvitað viljað skrifa handritið sjálfur
en þeir hleypa ekki hverjum sem er í
slíkt verkefni í Hollywood. Maður þarf að
komast í hóp útvalinna fyrst.“
sögum og ekki víst að TriStar geri kvikmyndina verði
sagan að nothæfu handriti.
„Petta er ansi flókið mál. Ef af verður
munu tvö fyrirtæki sjá um framleiðsluna
sjálfa, annað er í eigu leikarans Tony Danza og
hitt fyrrverandi forstjóra NBC-sjónvarpsstöðv-
arinnar. TriStar myndi síðan fjármagna kvik-
myndina, eins og staðan er nú. Þá býst ég við að
kvikmyndin yrði tekin á Islandi, sem væri stór-
kostlegt, því mig langar til þess að koma þangað
aftur.“
Uppspretta fegurðarinnar sjálfrar
Grein Donaldsons í Men’s Journal er átta síður og
hefst í New York, að ætlunarverkinu loknu. Höfund-
ur gengur inn á veitingastað, með Ásdísi Maríu
Franklín „fegurstu konu heims“ upp á arminn, og lýs-
ir viðbrögðum nærstaddra karla, sem sumum verður
fótaskortur af aðdáun, að ógleymdum þjónunum, sem
kalla ekki allt ömmu sína í New York.
Meira að segja þeir muldra með sjálfum sér og Guði,
eins og höfundur kemst að orði.
Þegar að leitinni kemur leggur blaðamaður leið sína,
ögn vantrúaður, til Islands og vítt og breitt um Reykja-
vík, þar sem vart verður þverfótað fyrir fegurðardísum,
--------------- meðal annars fegurstu konu heims árið
ÁSDIS María 1989.
Franklín fyrir- Donaldson naut leiðsagnar Kolbrún-
sæta og „fegursta ar Aðalsteinsdóttur skólastjóra skóla
kona heims“. John Casablancas á meðan á leitinni
■ GÖMLU BLIKKBOXIN/5
■ FRÆÐIGREINAR NÚTÍMANS/6
Alheimsfegurð
frá Islandi seld til Hollywood
Karlar sendu fjölda bréfa
Donaldson segir aðspurður hvers vegna sagan
hafi vakið athygli kvikmjmdafyrirtækisins, að
greinin hafi fengið góðan hljómgrunn hjá banda-
rískum körlum, sem sent hafi tímaritinu fjölda
bréfa.
„Ég held að engin greina Men’s Joumal hafi
vakið jafn mikla athygli og þessi. Hugmyndin um
leit að fegurstu konu heims felur í sér draumsýn.
Sagan sem ég skrifaði er fyndin og rómantísk,
allt að því kjánaleg, og á mörkum hins fáránlega
á köflum, sem er ákjósanleg samsetning fyrir
bíómynd.
Ýmsar kvikmyndir hafa verið gerðar um sams-
konar efni, ég nefni sem dæmi Tíu með Bo Derek
og Maðurinn sem elskaði konur með Burt
Reynolds. Þessi uppskrift virkar, þótt ég hafi
ekki leitt hugann að því sérstaklega þegar grein-
in var skrifuð á sínum tíma.“
Donaldson segir enga leið að átta sig á fram-
haldinu, alþekkt sé að fyrirtæki í Hollywood selji
hvert öðru kvikmyndunarréttinn að tilteknum
stóð, og gerir hana reyndar að persónu í frásögn-
inni. Að því kemur síðan að Kolla lumar á leynd-
armáli, því hún veit hvar fegurstu konur heims
búa flestar. Þegar þangað er komið, er greinar-
höfundur „lostinn eldingu Þórs“, því höfuðstaður
Norðurlands, reynist svo sannarlega uppspretta
fegurðarinnar sjálfrar.
„Jerry Seinfeld las greinina í Men’s Journal og
ákvað að feta í fótspor höfundar, fara til Islands
og leita að fegurstu konu heims. Hvað finnst Is-
lendingum um það?“ spyr Donaldson að lokum.
á.i
sbii
•io ■
>V Grillað lambakjöt
>V Leiktækifyrirbörnin
iV Svalabræðurskenunta
>V Steinar Viktorsson með þátt
sinn í beinni frá Þverbrekku á ADALSTÖÐIN
^V Einn lukkulegur gestur fær matarkörfu að verðmæti kr. 5000,-
Við verslim (Qll Þverbrekku
frá kl 16:00 til 19:00 í dag
Ótrúleg tilboð:
>V Þurrkryddaðar grillsneiðar frá Goða kr. S99,- pr. kg
>V Heimaís frá Kjörís, tveir fyrir einn.
'( Brazzi frá Sól, tveir fyrir einn.
Tilboð þessi gilda aðeins meðan lukkustund stendur yfir.