Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.08.1997, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • Prentsmiðja Morgunblaðsins Miðvikudagur 6. ágúst 1997 Blað E Hverfis- verzlun FRAMKVÆMDIR eru hafnar við rúmlega 1000 ferm. verzlunar- og þjónustu- byggingu í Lindahverfi í Kópa- vogi. I henni verður hverfís- verzlun í um 300 ferm. hús- næði, en annað húsnæði er til sölu eða leigu. / 2 ► rOK Tmmnrtntranin. .iiiKiii; Atvinnu- húsnæði EFTIRSPURN er nú meiri eftir atvinnuhúsnæði en áður. Hjá Fasteignamarkaðnum er til sölu hátt í 1.900 ferm. húsnæði við Dalshraun 1 í Hafnarfirði, sem skiptist í margar einingar. Lóðin er stór hornlóð á áberandi stað. / 21 ► Ú T T E K T Fallegar skreyt- ingar HÚSIÐ Fríkirkjuvegur 11 er eitt veglegasta húsið við Tjörnina. Það var byggt sem einbýlishús fyr- ir um 90 árum og mikið til þess vandað á allan hátt. Þetta fallega en virðulega hús setur mikinn svip á umhverfi sitt og saga þess er samofin sögu Reykjavíkur. Það gegnir mik- ilvægu hlutverki enn í dag, en þar starfar nú Iþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur. I þættinum Smiðjnn fjallar Bjarni Ólafsson um málaðar skreytingar í þessu húsi, sem er ekki einungis veglegt að ut- an heldur einnig að innan. I því má sjá skreytingar, sem lengi hafa tíðkazt í málaraiðn en lítt verið notaðar á síðari árum. Þar má nefna marinaramál- un, strikun, granítmálun, skrautbekki og oðrun. Fáir munu sennilega gera sér grein fyrir því nú á dögum, hvað átt er við með oðrun, en það er málun, sem líkir eftir öðrum viðartegundum eins og hnotu- tré, mahony o. fl. Miðað við nútímamálun inn- anhúss hefur málningin í hús- inu dugað býsna vel og víða er upprunalega málningin í ótrúlega góðu lagi. I húsinu má sjá granítmálaðar súlur við innganginn og þar yfir má glöggt sjá fallega skraut- bekki og spjaldaloft yfir tröppum. /14 ► Greiddar vaxtabætur fara hækkandi VAXTABÆTUR skipta miklu máli fyrir þá, sem eru að kaupa eða byggja, en allir þeir, sem eiga íbúð- arhúsnæði til eigin nota, eiga rétt á vaxtabótum að réttum skilyrðum uppfylltum. Sama máli gegnir um þá, sem keypt hafa hlut í almennri kaupleiguíbúð. Með eigin notum er átt við, að húsnæðið sé nýtt til íbúð- ar af eiganda þess sjálfum. Rétturinn til vaxtabóta stofnast á því ári, sem íbúð eða eignarhluti er keyptur eða bygging hafin. Vaxta- bætur eru ákvarðaðar samkvæmt upplýsingum á skattframtali og eru greiddar út í einu lagi eftir álagn- ingu skatta. Greiddar vaxtabætur hafa farið hækkandi eins og súluritið hér til hliðar sýnir, en það sýnir þróun vaxtabóta og húsnæðisbóta frá árinu 1990. Húsnæðisbætur voru afnumd- ar frá og með árinu 1993 og vaxta- bætur tóku þá alfarið við. Vaxtabætur ættu að sveiflast eitt- hvað eftir því, hvort vextir fara hækkandi eða lækkandi í landinu. Vaxtalækkanir hafa þó sennilega ekki mikil áhrif á vaxtabætur, þar sem margir íbúðarkaupendur eða byggjendur eru það skuldugir, að vaxtagjöld þeirra ná áfram því há- marki, sem þarf til þess að fá fullar vaxtabætur. Vaxtagjöld, sem mjmda stofn til vaxtabóta, eru gjaldfallnir vextir og gjaldfallnar verðbætur á afborganir og vexti. Hér með teljast einnig dráttarvextir ársins. Affóll skapa einnig rétt til vaxtabóta að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þannig geta afföll vegna sölu á skuldabréfum myndað stofn til vaxtabóta, ef útgefandinn hefur not- að andvirðið til öflunar á íbúðarhús- næði til eigin nota. Sama máli gegnir um affóll vegna sölu húsbréfa hjá manni, sem er að byggja íbúðarhús- næði tO eigin nota og hefur fengið þau gegn afhendingu fasteignaveð- bréfa. Affóll vegna sölu á skuldabréfum eða húsbréfum, sem seljandi hefur fengið sem greiðslu fyrir fasteign, koma hins vegar ekki tO álita sem stofn til vaxtabóta. Vaxta- og húsnæðisbætur 1990-97(skv. álagningu, allt landið’ 3.458 Húsnæðisbætur ^ 3 301 3.023 ♦tí 3.04 2.812 2.400 2.044 CM milljónir kr. 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 TRYGGÐU Þ E R BETRA VERÐ Seldu Húsbréíin hjá Fjáruangi! Það borgar sig að gera verðsamanburð! Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastofnunum. Fjárvangur keppist viö að bjóða besta kaupgengið og staðgreiðir Húsbréfin samdægurs. Ráðgjafar Fjárvangs veita allar upplýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgengi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. Hn*- FJÁRVANGUR lOGSIU VEBOBBÍFAFYRIRT/td Fjárvangur hf., löggilt veröbréfafyrirtæki, Laugavegi 170,105 Reykjavík, sfmi 5 40 50 60, slmbréf 5 40 50 61, www.fjarvangur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.